Bleikur greipsafi ...

... Hversu góðir geta morgnar verið þegar kona sefur á sína græna í djúpum fönguðum svefni?

Ég fór seint í svefninn enda búin að setja upp Óla Lokbrá fælu, sérhannaður galli sem ég íklæðist og næ því að vaka ein til að verða 03:00 ... Líf næturhrafna er bara ljúft!

Þrátt fyrir þennan æðislega galla sem ég fer í um kvöldmat (líkist einna helst AbbA galla nema hvað að hann er ósýnilegur) smátt og smátt týnist heimilisfólkið í svefn og voila, Krunka litla er ein í heiminum, getur málað, föndrað, tölvast eða bara legið í tjatti á netinu. Það er voðalega notalegt að fá svona bonding thing með sjálfinu.

 (Mig dreymdi ömmu mína sem býr á himnum í nótt, hún var að segja mér eitthvað en ég man bara ekki hvað það var.  Hún kemur örugglega aftur og hvíslar dýpra í hlust mína.  Annars dreymdi mig að ég væri orðin svo loðin á maganum.  Ótrúlega sexý!)

Þar sem ég vaknaði heima hjá mér (ekki á hóteli eins og hver önnur kvikmyndastjarna) þá fékk ég mér ekki kampavín og jarðaber í morgunmat, heldur bleikan greipsafa.  Lífið gæti ekki verið betra, enda nývöknuð og hindranir heimsins hafa ekki náð að snerta mig enn sem komið er.

Að cromoþerapíunni þá ætla ég að bregða út af vananum og bæta inn litum og sálin er búin að undirbúa þennan leik mjög lengi og nú er undirmeðvitundin vöknuð og í dag er konan að sjálfsögðu í svörtum fatnaði til að gleðja þá fór ég í Indigo (dökklilla) kjól og skó ... Þá spyr ég mig hvað þýða þessir litir??

Indigo 

I fyrsta lagi er þessi litur andlegur og djúpur, hefur stjórn á þriðja auganum sem er staðsett á milli augnabrúna fólks (sumir héldu að ég væri að tala um "stjjörnuna" sem er staðsett djúpt á milli rasskinna, hahahah) ... Þessi litur kemur jafnvægi á skjalkirtil. slímjafnvægi og ýmsa kirtla í líkamanum.  Liturinn er góður þegar við fáum hita og bólgur svo þetta ætti að vera hitalaus og ljúfur dagur hjá mér.

Það má geta þess að Indigo hefur djúpan mátt og er einnig notaður í litaþerapíu þar sem sjúklingur er látinn horfa á ljós í gegn um lillaða filmu, er róandi og sefjar sjúklinginn. 

Í dag er sunnudagur, um það fær mín fjölskylda ekki villst!  Við eigum hádegisverðarsnæðing hjá tengdó.  Það eru allir klæddir og tilbúnir að halda til Fjalla.  Kanski ég setji upp andlitið.

Eigið yndislegan dag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hér sváfu hjón einstaklega vel.  Eigðu ljúfan dag yndið mitt.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.1.2009 kl. 12:22

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þessi litur er einstaklega fallegur! Ef ég horfi lengi í hann þá finnst mér eins og ég sökkvi djúpt inn í hann!!

En já - loðin á maganum.... ótrúlega sexý ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2009 kl. 13:08

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 11.1.2009 kl. 15:08

4 identicon

Elskan!!! voru þau farin að bíða eftir prinsessunni,,,,,,, hehehe

Rósa (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 15:46

5 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Fagur litur og mikið rett hvernig þu túlkar hann. Eigðu gott kvöld Zordís mín

Kristín Gunnarsdóttir, 11.1.2009 kl. 16:04

6 Smámynd: Ólafur fannberg

droppaði inn til að segja góðann daginn og gleðilegt nýtt ár

Ólafur fannberg, 11.1.2009 kl. 16:31

7 identicon

Takk fyrir þessa gefandi pisla þína Zordís mín.  Já. Það er oft gott að ,,drolla" frameftir.  Þá er friðurinn og kyrrðin svo ráðandi og gott að láta hugann reika.  Já. Ég er hrifin af þessum lit og túlkun þín á honum er örugglega hárrétt.  Hann fer svo vel við kyrrð og frið. 

Nú hlýtur sendingin að koma til þín eftir helgi.  Annars sendi ég þér aðra bók.

Sofðu rótt og vonandi kemur hún amma þín aftur til þín í nótt.

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 22:11

8 identicon

ahh, það er svo gott að drollast eitthvað :)

Nýárskveðjur til þín mín kæra!!

alva (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband