Kósý morgun ...

... Fjallið fór með drenginn í skólann. Litla sigurvegaranum okkar sem svaf eins og lítið ljón, enda í ljónsmerkinu eða var það ljósamerkið.  Hann sagði við mömmu sína sem var nýsturtuð að reyna að vekja hann; helduru mamma að sofandi fólk sé að hlusta????  

Í eldhúsinu dreypi ég á ferskum ananas safa, tók lýsið mitt og halla mínu höfði að skrækum manni sem kemur hér í formi engils.  "Staying alife"

 

Ég man eftir þegar mamma hlustaði á þessa ofur "píku" poppara.  Ég var alveg að fíla þá og geri enn.  Ég hugsa til baka þegar pabbi gekk um á háhæluðum bítlaskóm í hvítum jakkafötum, mamma var með silkiborða um höfuðið og þau bömbuðu í stofunni við afró hottý mjúsik.

Ég er komin í gírinn, það er föstudagur og helgarævintýrin raða sér upp.  Við ættum að dansa og veifa höndum í átt til himins.  Það er bara þannig dagur.

Ég skilaði verkefnum í skólanum í gær og græjaði eitt og annað, setti tölur í excel skjal og grúskaði.  Er í dillandi standi og Fjallið sem var að koma heim er ekki sem verstur með svona takta í kroppnum.

Leyndarmálið er í umheiminum, það er verið að kippa í strengi, verið að hnoða saman góðum galdrapakka á himnum.  Ég ætla að taka myndavélina með mér í dag ....... aldrei að vita hvað fyrir augun ber.  

 Litfögur slóð þín

Undurblítt far

Ljóslifandi ástin

Af himni þú barst

Heart 

Umvef þitt hjarta

Í elskunnar heim

Stjörnublikip bjarta

Í heimi svo hrein

Heart 

Yndisþýð úr draumi

Í minningunni  man

Lífsins tilgang bjóði

Sú ást er Guð einn gaf

                          (zordis)

Ævintýraheimur, Ástfangin. 

Ástfangin, blönduð tækni á striga

 InLove

Lífið er eins og hjartað, ótrúlega sætt 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já þarna á bakvið einhversstaðar kúrir allt hið sæta...er ekki endilega í framvarðarlínunni hérna heima innan um rússagullið sem er hætt að glóa

En það má ekki missa kærleiksmóðinn...hann er það eina sem heldur öllu þessu sæta á floti..ekki satt?

Knús á þig mín kærleiksríka

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.2.2009 kl. 10:40

2 identicon

Og ég hér dansandi í minni stofu og út á veröndina í sólinni, dilla mér í takt við dúndrandi nútímatónlist........ ekkert BeeGee's hérna....

Knús í hús flotta kona.

Rósótt (IP-tala skráð) 13.2.2009 kl. 10:58

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Píku poppið yljar sálinni, knús og kærleikskveðja til þín og þinna mín kæra.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.2.2009 kl. 14:38

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

yndislegur fallegi drengurinn þinn. En ég elska Bee Gees eigðu góða helgi elskan og Fjölskylda.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.2.2009 kl. 19:16

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Zordis! Ef ég væri ekki gefin fyrir karlmenn þá félli ég fyrir þér. Mér líst feykivel á að dansa í alla nótt og veifa höndum til himins.

Finndu mér sígauna og málið er dautt! Eða kannski það lifni fyrst þá :)

Hrönn Sigurðardóttir, 13.2.2009 kl. 20:39

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 13.2.2009 kl. 21:22

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Flott ljóð og list!  ...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 14.2.2009 kl. 08:39

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 14.2.2009 kl. 08:40

9 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Góður, auðvitað hlustar ekki sofandi fólk, þó það nú væri

Margrét Birna Auðunsdóttir, 14.2.2009 kl. 11:50

10 identicon

Takk elsku listakona.  Ljóðið þitt er svo fallegt, litfagurt ljóð þitt sem skilur eftir undurblítt far í hugarheimi.

Knús með vindi til ÚTLANDANNA.

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 13:29

11 Smámynd: Inga María

þú færð mig alltaf til að brosa....haltu áfram að horfa til himins!

Inga María, 14.2.2009 kl. 17:38

12 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Hugjúft og fallegt...
Vona að Valentínus hafi heimsótt þig í kvöld með rósir og konfekt

Linda Lea Bogadóttir, 15.2.2009 kl. 02:36

13 Smámynd: Hugarfluga

Æ, mér þykir vænt um þig, Zordís. 

Hugarfluga, 15.2.2009 kl. 23:52

14 identicon

Bráðn

Þórdís (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband