1.4.2009 | 14:28
Gamalt ... gott og gleðilegt!
Svo ljúft að tilla sér í sæti fortíðarinnar. Huga að þeim tíma sem leið og grípa það besta með sér í núið.
Hugsa um ömmu og afa og afa og ömmuna mína eftirlifandi. Sonur minn sagði við mig nú fyrir stuttu. Hún amma æltar að lifa miklu lengur en afi. Já, svona er lífsaldurinn okkar mismunandi. Krúttið mitt talaði um þetta eins og hann væri að panta sér fanta limon á barnum.
Gamlar olíumyndir, málaðar löngu síðan.
Blár og Rauð
Konan við hafið, Olía á striga
Þakskífur, akrýlmyndir 40 x 20
Smá myndaþróun ...
Úr gömlu í nýtt að nota það gamla í því nýja að sjá ljósið í sömu fegurð sama hvernig skugginn fellur i daginn. Að meta vinskap og lífsins gæði fram yfir hið ytra.
Lífið er gott
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Heillandi finnst mér hún, konan við hafið. Ég vil samt ekki kaupa hana frá Katrínu Snæhólm. Þetta er alveg hún
Skemmtileg þróun á handbragðinu þínu.
Hrönn Sigurðardóttir, 1.4.2009 kl. 15:38
Er ég konan við hafið....eða konan sem horfir út á hafið og nemur þaðan ævintýri utan úr heiminum?
Zordís mín þú ert svooooo dugleg og skapandi kona...hlakka til að sjá þig einhverntímann........................................................................................bráðum!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 2.4.2009 kl. 00:50
Þú er nú svo yndisleg alltaf.
Kristín Katla Árnadóttir, 2.4.2009 kl. 08:56
Nu kanski fer maður að þora, flottar myndir hja þér og maður ser muninn á gömlu og nyju myndunum. Þú ert snillingur Zordis min
Kristín Gunnarsdóttir, 2.4.2009 kl. 14:02
Te quiero........
mucho.
Rósótt (IP-tala skráð) 3.4.2009 kl. 12:25
Solla Guðjóns, 3.4.2009 kl. 23:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.