Ástrík eldamennska ...

... sem fær þig til að gráta og fyllast lotneskri þrá til lífsins.  Að leifa sér að svífa í hæstu hæðum með góðmeti á tungubroddinum og njóta hverrar sekúndu næringarinnar.

Kryddlegin hjörtu er kvikmyndin sem mér kom til hugar eftir lestur bloggfærslu STÓR vinkonu minnar.  Hún er í sjálfu sér ekkert stærri en ég en STÓR er hún, mín einlæga og hjartahlýja Hrönn. 

Eftir hjólreiðarnar þá var bjútýtímabil og það tekur nú sinn tíma.  Hádegið læðir sér inn og gamlan ætlar að elda þægð í börnin.  Ég er t.d. núna að sjóða hrísgrjón sem dóttlan valdi og mamma setur hamingjutár í bland við vatnið.  Börnin mín verða svoooooo hamingjusöm eftir hrísgrjónin.  Með grjónunum eru kjúklingabringur sem fá gælur áður en á pönnuna leggjast sem gera börnin svo miklu þýðari.

Allt gert til að hafa alla góða ... ég er nú þegar orðin svo mild í eðli mínu og MJÓ hehehe ok, þarf nokkra mánuði til að hjóla mig niður.  Fákurinn er eins og versta ótemja og "minns" rétt svo tollir á hnakknum.  Elskulegi eiginmaðurinn minn kom með mér í morgun og það var att við kappi dauðans og lærin mín frönsku og mjóu eru þarna ennþá.  Ég loka augunum og finn að þau eru á sínum stað = íllt í þeim. 

Ilmur 

Ilmur, olía á striga.

Á meðan tíminn líður og maturinn verður klár í þekku börnin mín þá ætla ég að finna blómailminn sem læðir sér í vit mín.  Ef stundin er ekki fullkomin núna þá verður hún það aldrei.  Ástin og hamingjan er meðalið sem læknar öll sár.

Lífið er ljúft á ilmandi föstudegi 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Æðisleg mynd, flottur pistill, og ilmurinn yndislegur! 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 3.7.2009 kl. 20:39

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Elska þig stelpan mín

Hrönn Sigurðardóttir, 3.7.2009 kl. 23:45

3 identicon

Falleg færsla stelpa

Lovjú sæta með frönsku lærin...........

Rósótt (IP-tala skráð) 5.7.2009 kl. 15:54

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert yndisleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 6.7.2009 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband