Svif yfir hausamótum á öðru fólki ....

.... að þvælast um heima og geima og svífa eins og enginn sé morgundagurinn. Að staldra við og grípa hugsanir fólks sem bera með sér bjarta von.

Nýtt árið 2009 ber með sér ólesin orð og ónotuð tækifæri.  Vonin og kærleikurinn spenna sig undir bringubeininu og kona stendur tvístígandi yfir framtíðinni, gleðinni og morgundeginum.

Árið endaði á yndislegan hátt með fjölskyldu og vinum, góðum mat og hlátrasköllum.  Áríð hófst með gleði í hjarta og kossum frá fólkinu sem við elskum mest, nokkur stjörnuljós og blys voru sett í litlar hendur sem ljómuðu af gleðinni einni.

Kisukurl á Miðnætti 2008/9

   Hér eru litlu tútturnar komnar inn .... Ekki alveg búnar að fá endanlega andlitssnyrtingu.  Tunglið skín skært og glyttir í nokkra álfa fyrir þá sem sjá lengra.

Áramótin bera vonandi vott um framhaldið og gleðina sem mun fylgja okkur út þetta ár.  Við tökum á því sem kemur af þeirri kunnáttu sem okkur er auðið og reynum að læra af reynslunni sem getur verið sæt eins og fallegt sumarblóm eða bitur eins og rammasta vömm.

Í hjarta mínu ber ég von fyrir heiminn og alla sem búa á jörðinni okkar en það er velferð og betrun á aðstæðum.

Njótum stundarinnar og njótum lífsins eins og enginn sé morgundagurinn.  Okkur líður svo miklu betur þegar kærleikurinn umvefur litlu hjörtun okkar.

Gleðilegt árið kæru bloggvinir með von um sigra og sæta daga.  

Lífið er gott, engin spurning! 


Að vera fugl ...

... og svífa um loftin blá.

Að vera fiskur "hafmeyja" og finna hvernig hafið umlykur vanga þinn og gárurnar faðma konukroppinn .... Að vera í tengingu við sjálfið í því formi sem hugurinn leitar.

Ég er í senn fugl og fiskur en sit hér föst í konulíkama sem þrengir að sálinni. Úti er birtan svo björt og lokkandi er læðir súrefnisdropum í hjartað mitt.

Ég vona að stjörnurnar teikni sig í myrkrið því ég ætla að fara í lopapeysuna mína og læða mér uppá þak. Ég hef takmark í dag, lifa daginn og telja stjörnurnar í kvöld ....

... svo svíf ég í þoku hafsins og dett af skýjahnoðra í fangið á Fjallinu mínu! 


Galdrar og litlar verur sem fylgja okkur ...

... lífið er einn galdur, lítið kraftaverk sem kveiknar og skapar ólíkar verur sem fylla hver og ein sinn ákveðna stað á jarðríki. Við deilum jörð og umheimi sem er jafnt þinn sem minn og allra hinna.

Við verðum að standa vörð um rétt jarðarinnar okkar og fylla heiminn af kærleikslofti svo okkur líði vel.

Það má segja að árið endi í eldhúsinu hjá mér og það nýja muni hefjast í rúmminu.  Draumur, ekki satt?

Hátíðarsúkkulaðiterta

  En að aðalhobbý-i frúarinnar þá tókst hátíðar súkkulaðitertan a la Hrönn stórkostlega .....

Súkkulaðigrísirnir mínir  Á vinstri hönd er lokafrágangur á tertunni fyrir stóra fólkið en á hægri hlið er lokafrágangur á tertunni fyrir litla fólkið .......

Sonur minn var mjög sæll og sáttur með tertuna og gleðin leyndi sér ekki.

Vinkona okkar kom í heimsókn og var á sama máli !!

Ég fór svo og verslaði aðeins, keypti barna kampavín (óáfengt jarðaberjadjús með bubblum) má ekki klikka þar sem að eldra fólkið kemur til með að bubblast um miðnættið.

Ég var ekki dugleg við að mála kisukurl um miðnætti en það er lítil saga um tvær kisur sem mála bæjinn rauðann um áramót!  Gleðikettir af verstu tegund, samt voða ljúfir!

Kattarkurl um miðnætti 2009

Þarna stóðu kettirnir að kurlast af hamingju.  Það var farið að líða að miðnætti og enn var gamlársdressið inn í skáp.  Fjörið og gleðin var til staðar og nýtt ár innan seilingar.

Kæru bloggvinir, það hefur verið ánægjulegt að kynnast ykkar!  

Mínar hjartans óskir um gleði, farsæld og frið á nýju ári 2009. 


Ævintýri eldabuskunnar ...

... eða var það Öskubuskan ??

Kanski hverfur allt bakkelsið um miðnætti ...... og eldabuskann sem strílaðist upp með kokkahúfu sitji í sárum með höfuðklút og gamla trésleif.  Það væri þá aldrei að þetta væri súrrealískur draumur, ég í kóma á sjúkrahúsinu og líf mitt ein og tóm ýmindun.

En svona til að taka allan vafa af þá verðið þið bara að dæma sjálf hvernig Súkkulaði terta Hrannar kemur út með tilsettu hátíðarskrauti.

Að hætti Hrannar ....

 

Kemur bara nokkuð girnilega út hátíðar súkkulaðitertan sem er liður í æfingaprógamminu, Desert gamlárskvölds 2008.

Við mæðgin ákváðum að skella í nokkrar pönnsur og sá ungherrann um að hræra á milli þess sem hann sigtaði hveiti.  Honum fannst pönnsurnar sínar mjög bragðgóðar og fékk sér nokkrar með sykri.

Ég fékk mér hins vegar pönnsu með krabbasalati og kemur það einstaklega vel út.

Sé að kona þarf að drífa sig að versla vog til að geta mælt hráefnið í tertur ársins 2009 til að forðast mistökin.  

Smiðsaugað virkar ekki alltaf og urðum við sárlega vör við það í nótt sem leið þegar kona tók út stökka sykurköku ... bragðgóða en stökka undir tönn.

Jæja kæru bloggvinir, árið að smokra sér fjær svo ég segi, njótið augnabliksins því það er svo dýrmætt.

 


Á fleygifljúgandi ferð ....

... árið bara að skjóta sér fyrir hornið!

Tíminn hið undursama hugartifandi tímatak. Ég lagðist til svefns í gær allt of seint eftir tilraunir í eldhúsinu. Spáið í það að ég hef látið eldhúsið nánast óáreitt allt árið og svo skal ég enda það með bakstri og matreiðslu. Kanski eru það konuárin sem eru að læðast að mér ????

eplapæja

 Eplapæjan tókst bara vel þótt ég segi sjálf frá.  Matvandi sonur minn vildi að sjálfsögðu ekki svona mat .... hefði treyst sér í súkkulaðitertu svo það verður næst á dagskrá!

Ég átti rosalega góða uppskrift sem ég nældi mér í úr  Gestgjafanum, hrikalega góð en eftir að ég flutti og hætti nánast að baka og vasast í eldhúsinu þá fór uppskriftarminnið að gefa sig.

Agalegt alveg!

Frönsk súkkulaðiterta, tekið af síðunni Krydd og Kavíar

 Svo er bara að græja uppskrift af frönsku súkkulaðitertunni.  Ég fann þessa mynd hér til hliðar á heimasíðu Krydd og Kavíar (allir þangað) þar eru margar grinilegar tertur, osta og skyr og allskyns .....  En leyndardómur uppskriftarinnar er óráðinn því innihald er greinilega leyndó!

Árið hefur liðið mjög hratt, margt yndislegt hefur komið til okkar og við fagnað því.  Heilbrigði fjölskyldunnar er þakkarvert og vita til þess að stuðningur er ávallt til staðar þegar syrtir.  Árið hefur verið spennandi á svo margan hátt en einnig dapurt en það er hluti af lífinu!

Win some lose some!

Ég er enn með þessa skrítnu tilfinningu er samt rólegri í dag.  Dreymdi saur enn eina ferðina í nótt og hitti hann afa  minn á himnum.  Já, það er ekki endasleppt hvorki í svefni né vöku.

Ég hef trú á því að nýja árið komi sterkt inn með margar góðar breytingar. 

 ... 

Lífið er fullt af gullnum tækifærum, það er undir okkur sjálfum komið að grípa "gæsina".

It´s good to be a king! 


Að lifa í gegn um aðra ...

... eða minningarnar sem hinir skildu eftir.

Konutetur bakaði pönnsur áðan við góðar undirtektir heimilisfólksins. Ég á eldgamla pönnsupönnu sem hefur væntanlega bakað ótal tugi af pönnsum allt sitt pönnsulíf. Ég veit eiginlega lítið um uppruna hennar annað en að hún virkar vel þrátt fyrir að handfangið er eiginlega laust og pannan á auðvelt með að fara flikk flakk hraðsnúning svo það þarf að hafa hröð og snögg handtökin.

pönnsur

 Ég er búin að vera að skoða allskyns uppskriftir af fyllingum til að "varía".  Bestar þykja mér pönnsurnar með smá sykri en ég hef einnig borðað spínatfylltar pönnsur með osti í ítalskri tómat og rjómadressingu.

Ég ætla að freista þess að gera spínatpönnsur handa okkur eldri fjölskyldumeðlimum einhvern síðustu daga ársins.

Í jólagjöf fékk ég frábæra uppskriftabók sem ég ætla að hella mér í nú í kvöld og kanna hvort ekki einhver góð cous cous uppskrift leynist inná milli.

Við fengum góða gesti en þá voru allar pönnsur því miður búnar en það stóð ekki á kaffi og piparkökum.

Ég er búin að hafa skrítna tilfinningu í dag, veit ekki hvort þetta er fyrirboði eða bara þúsund fiðrildi sem eiga leið um???

Kemur í ljós!

Fjölskyldan er búin að vera í miklum kósý rólegheitum, við sváfum út og svo hafa allir verið að dunda sér.  Ég eldaði hádegismat, kjúklingabringur og hrísgrjón og útbjó svo dásamlegar pönnsur með kaffinu ....  

Matur, matur og meiri matur .... ekki linast vömin á frúnni heldur gengur hún sterk inn í nýja árið.  Reyndar er þyngdarsöfnun gott ráð við hrukkum .... fitumyndun fyllir uppí hrukkufarið og kona er eins og fertug allt lífið ... Já, aldur og holdarfar er ofarlega í huga konunnar, wonder why?

Svona burt séð frá hinu og þessu tengdu mat þá langar mig í vöfflujárn sem gerir hjartalagaðar vöfflur!  Væri til í gamalt járn og notað .....  en það má líka vera nýtt.  Los Reyes (vitringarnir þrír) koma að morgni þrettándadags og hver veit nema að þeir skilji eftir eitt stk. vöfflujárn sem gerir kærleiks og hjartalagaðar vöfflur fyrir mallakútana á þessu heimili.

HeartKnús og hjartalaga kossar til þín Heart 


Í upphafi skyldi endinn skoða, out and over ....

Saumavélin hefur öðlast sjálfstæði sitt á ný ... hún saumar eins og tryllt út árið!  Segi nú bara svona, hún heitir Alfa og er algjör saumavél, var keypt fyrir 10 árum og er glæný!  Ég var að gera við gallabuxur hjá dóttlunni og þegar Fjallið heyrði malið í vélinni þá fór hann og mætti með nokkrar buxur sem þurfti að renna í gegn um Ölfuna.  Svo tók kjéddlingin og setti upp einn fald og má segja að rokki feitt!

Ég fékk óvænta heimsókn sem var gaman að, við sátum úti með kaffi og konfekt og spjölluðum um heima og geyma.  Svo var elduð risapizza og einn ískaldur öllari fylgdi góðgætinu í mallann.

Jólarósin

 

Poinsettan er mjög svo jólaleg og mikil prýði sem ekki má vanta þegar skreytt er um jólin.

Ég átti reyndar 2 afspyrnufallegar jólarósir sem stóðu fram í september en því miður í fjarveru okkar brá af þeim heilsan og þær hurfu til upphafsins á ný.

Jukkan mín fékk snyrtingu í gær og litlu sætu blómálfarnir voru stökkvandi út um allt og flúðu í peningablómið sem hefur stækkað og stækkað ég veit bara ekki hvar þetta ætlar að enda.  Ég keypti peningablómið af sígaunakonu sem fyllti ljósopið mitt af mörgum öðrum plöntum.  Ég færði henni föt og nytjavörur sem nýttust henni.  Í staðinn spáði hún fyrir mér .....  

Á ástarfund þig sótti ....

   Set inn eitt stk. flís en ætlaði reyndar að setja inn aðra sem er einnig í vinnslu og stefnt er að klára á árinu.

Það tekur mig óratíma að setja inn myndir núna, þannig að ég ætla bara að hætta því og fara í sturtu og búa mig fyrir kvöldið.

Kona hefur ekki endalausa þolinmæði í svona smáleg verk þegar margt þarf að ditta að og framkvæma.  Börnin fóru með afa til Orihuela en þau gátu ekki beðið eftir því að hitta frænkurnar og ömmu músina sína.

   HeartHeart

Framtíðarspor

 Mikið er ég nú glöð að hafa náð inn flísinni sem er einnig í bígerð.  Þetta sannar bara að þolinmæðin þrautir allar vinnur og mér tókst að koma dúllunni inn.

Ég læt hér við sitja og ætla að baða konukropp!  Vildi að ég ætti Carmen rúllur því þá færi ég kurluð og sæt í kvöldverðarboðið.  Ég reyni bara að krulla eitthvað annað en sjálfa mig ......

Bóndinn situr fyrir framan arininn og spilar á gítar, þið getið rétt ýmindað ykkur hvað það er huggulegt að sitja hér við kertaljós og hlusta á kappann.  

Stína bloggvinkona mín danadrottning á afmæli í dag!  Til hamingju með daginn þinn í von um að þú hafir notið dagsins frísk.

Ég veð úr einu í annað núna en það er bara í lagi og langar mig að minnast á góða gjöf sem foreldrar mínir færðu okkur en það er matreiðslubók, "framandi & freistandi" bók um indverska og arabíska matreiðslu e. Yesmine Olsson!  Ég hlakka til að glugga í þessari bók og prófa að matreiða.

Ég á eftir að finna mér fórnarlömb sem verður boðið í mat!

Það styttist í 4 og núllið hjá mér .... rétt rúm vika!  Ó boj hvað ég hlakka til að verða meiri kona ...

Lovjú gæs and gels, 

over and out!

 


Gleði og friður ....

Tíminn er búinn að vera yndislegur og ljúfur í faðmi fjölskyldunnar. Ég á frábæra tengdafjölskyldu sem sýnir mér og mínum mikinn kærleik. Fyrir það get ég þakkað!

Gamlárskvöld er á næsta leyti og þá höfum við fjölskyldan alltaf verið ein heima í rólegheitum. Í fyrra fórum við uppá kirkjutorgið og heyrðum kirkjuklukkuna slá nýja árið inn og skáluðum í kampavíni eins og hinir þorpsbúanna. Svo var rölt heim, tónlist sett á geislann og við dönsuðum saman áður en við skriðum í ból.

Í ár geri ég ráð fyrir að eiga rólegheitarkvöld því nennan er ekki mikil í fjör og fagnað. Enginn síðkjóll né kóróna verður sett upp heldur eitthvað notalegt. Ég er greinilega orðin hrikalega spænsk, á engin spariföt og er þessi eiginlega hversdagsprýði.

Ég óska ykkur gleði og friðar :-)

Blómvöndur

 

En svona í tilefni dagsins þá langar mig að færa þér fallegar rósir (væmin núna)  Arnar Snær minn elskulegi á afmæli í dag. 

 

Til hamingju með daginn þinn elsku drengurinn minn.   

Ég þekki allnokkra sem eiga af mæli í dag og óska ég þeim innilega til hamingju með daginn.

 

Heart

 

Kærleiksknús í daginn þinn. 


Dagur daganna, dagur og anna, annasamur dagur ....

.... Í morgun á jóladegi þá kom ungherrann til mín og sagði, mamma klukkan er átta.  Ég rummskaði, hálfgert rúmrask að fá ekki að staldra lengur við í draumaheimi.  "Æj, koddu uppí í smá stund og kúrum" ...

Ekki málið, við kúrðum saman og pabbi tók fallegar hrotaríur sem vaggaði okkur í ljúfan svefn á ný.  

Klukkan 10 kom dóttlan og lét mig vita að það væri jóladagur og að undir trénu væru jólapakkarnir óuppteknir.  "Æj, koddu uppí í smástund" ...  Nú lágum við 4 í hjónarúmminu og ég með bæði börnin mín í kúrnum.  Systkynin tóku tal og dóttlan espaði ungherrann í að fara frammúr en hann neitaði harðlega að fara fram ef foreldrarnir kæmu ekki með .....

Þessi engill sat á sér, staðfastur sem aldrei fyrr.  Við fórum frammúr öll 4 og tekið var til við að lesa á pakkana.  Jólasveinninn klikkaði ekki í ár og færði börnunum þær gjafir sem þau hefðu beðið um.  Í ár mátti biðja um eina gjöf frá Sveinka gamla, ég er þakklát fyrir að hafa geta aðstoðað sveinka við að uppfylla óskir barnanna.  Andlit drengsins ljómaði af gleði og í þessum rituðu þá eru feðgarnir að leika sér með Star Wars sverð og Prestarnir kyrja í bakgrunninn.

Sæta dúllan mín

 

Set hér inn mynd af Írisi Höddu að opna pakka frá Bigga bróðir en það að fá silfurgeislann með Páli Óskari er bara æðislegt.

Enrique alsæll með gjöfina sína

 Þegar Enrique opnaði pakkann sinn þá ljómaði hann.  Þetta er í fyrsta skipti sem jólasveinninn hlustar á hann.

Reyndar eru óskir stundum það erfiðar að ekki er hægt að uppfylla þær.

Jólin eru svo mikill kósý tími sem við megum ekki gleyma í spenningi og æsingi.

Við hjónin fórum út klukkan 24.00 í gær til að fara í kvöldmessuna en því miður þá voru dyr kirkjunnar lokaðar og við náðum ekki miðnæturmessunni, "la misa de gallo" hanamessan í beinni þýðingu.  Mér finnst svo notalegt að fara í messu á miðnætti þar sem að við slórum fram yfir hádegi á jóladag án þess að fara til kirkju snemm morguns.  Boðskapurinn býr í hjartanu, ekki spurning!  

Vonandi hafið þið átt yndislega stund með fólkinu sem er ykkur kærast.  Ekki kvarta ég þar sem að við hittumst 9 fullorðin og 4 börn hjá tengdafjölskyldunni minni.  Við nutum góðs matar, hlaðborð með rækjum, humri, hnetum, þurrkuðum hrognum og þurrkuðum fiski, lax og saltfiski ásamt svo mörgu öðru sem væri of langt mál að telja.

Pabbi spenntastur

 Pabbi var orðinn svo spenntur að opna gjafirnar að hann tók upp gjöfina til mömmu frá jólasveininum og svo tók hann líka upp gjöf sonar síns frá honum Kela "afa" og dyggum aðstoðarmanni jólasveinsins ...

Æjjjj, pabbi krútt var orðinn svo spenntur þegar til kastana kom.

Er það nema von að við elskum hann!!!!

Mamma að skoða gjöfina frá jólasveininum ...

 

Il Divo er æðislegur geisli sem jólasveinninn sótti til Italíu .. eða þannig.

Allir sáttir og sælir með jólin þrátt fyrir að sú gamla hafi ekki komist í kjólinn ...

Segi nú bara svonnna ... Jólakötturinn kom hér við í leit að æti en hann var rekinn í burtu.  Tungumálafjölhæfni gömlu skruddunnar bjargaði málunum og mjálmaði móðurhjartað kattarómyndina út.

Í dag býður okkar hádegisverður hjá tengdó.  Við mætum og uppdubbum hlaðborðið því mín elskulega t-móðir er alltaf með allt of mikið af veitingum.  Betra að hafa restar heldur en ekki.

Allt of löng færsla um nánast ekkert ..........

 Vonandi eigið þið dásamlegan dag.


Gleðilega og GrÆðGisLeGa Skötu elskurnar mínar ......

STJÖRNUSPÁSteingeit: Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag. Og furðuleg nokk, engin vinnuverðlaun heldur - þessa dagana.

Vá, hvað þessi stjörnuspá á við mig núna!!!  Var að hætta við shop til you drop ferðalag ....  Og þrátt fyrir skjalavinnu á síðustu stundu voru engin vinnuverðlaun.  Áts, bleyta putta og væta vörtu ... sorry er svolítið ójólaleg núna en það er bara fínt inn í allt jólafiður og jólapuðr í bumbu.

Líður eiginlega eins og það sé páskadagur á morgun og það vill svo vel til verka að konukríli á eitt stk. páskaegg í búrinu.  (þessu trúa bara þeir sem þekkja mig) ....

Á meðan flestir gæddu sér á kynorkugefandi kæstri skötu þá borðaði kona hlíðinnar grænasta Brokkolý ..

 Brokkolý

Hvern hefði grunað að skatan ætti sér hvorukyns staðgengil í jurtaríkinu.  

Nú er jóladúkurinn kominn á hátíðarborðið og ungherrann er í geðveiku jólafroðubaði og ég heyri bara strákahljóð ... Froðan sem er rauðleit er náttúrulega blóð úr Ken dúkkunni sem fær ótal byssuskot ef marka má óhljóðin sem berast innan úr baðherberginu.

Í stofunni hljómar Bo Hall og jólatréð hefur aldrei verið jafn fagurt (segi þetta á hverju ári) .....

Annars langar mig að óska þér lesandi góður gleðilegrar skötu eða bara brokkólý´s ....  Það  styttist nú óðum í jólin.  Sumir eru óðir og aðrir verri!

Geri ráð fyrir að það séu bara hörðustu bloggarar sem lesa þetta eða fólk sem er búið að öllu ...

Börnin með útitrénu ... 

Hér sjást elsku börnin mín með trénu sem fær að standa fyrir utan útidyrnar. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband