Færsluflokkur: Menning og listir

Hún er fegurst Rósa ....

Fegurst Rósa

Fegurst Rósa

Ég er eitthvað svo tóm í tilfinningunni ....  Ég fékk fréttir í gær sem ég bjóst ekki við og vona svo sannarlega að vinafólki mínu vegni vel með nýjar ákvarðanir í lífinu.  Ég óska þeim alls hins besta og bjartra vona á þeim nýju skrefum sem þau hyggjast taka. 

Lífið tekur stundum breytta stefnu sem okkur svíður en ég trúi því að óvænt ferðalag geti líka boðið uppá ný og notaleg tækifæri sem bæta okkur og styrkja.  Hver hindrun í lífinu eru gullin tækifæri, það er undir okkur komið að nýta þau okkur til betrunar og bóta í lífinu.  Gangi ykkur vel kæru vinir .....

Ég fór óvenju lumpin í gær uppí rúmm snemma og dormaði fram eftir öllu.  Fjallið kom og þvoði á mér iljarnar og bar á mig nærandi krem og augun þyngdust eins og blý.  Gott að eiga góða að á öllum augnablikum lífsins .... 

Áður en svefninn sótti mig saunglaði ég í hjarta mínu.

Í húminu snertir hjarta mitt

er lýsir bjarmann fríða

Í faðmi snertir veruna blíða

þú í mér, við rennum í eitt

 
Heart
 

kinnbein hvítt, augnblik þýtt

niður vanga perlar

ástin eina, svo geislandi björt

í laumi þig ætla að geyma

Heart 

 Í djúpi ástar ég fann þig

elsku og hjartað fína

Við áðum lífsins björg og hljóm

unaðssemdir blíðar

Heart

(Z)

 

. . . . . . . 7 og síðan

ekki söguna meir!

Í morgun þann 17. þessa yndislega haustmánaðar nuddaði ég augun, þreytt eftir stuttan svefn.  Lét það ekki á mig fá og útbjó nesti fyrir litla drenginn minn og hann fór sáttur og sæll í skólann.

Mín leið lá á fundi og gekk það vel, náði að klára ýmis verkefni og sé nú loksins fyrir endann á þessu og það styttist í að ég láti af störfum.  Já, ætla svei mér þá að fara bara á eftirlaun og þiggja húsmæðraorlofsbætur frá spænska ríkinu ( hahhahhahah góóóð) ...

Nú er ég búin að læra að elda að hætti tengdó en fyrir mitt húsmóðurlega leyti þá eiga siðir að fylgja tengslum og ég hef skipað Fjallið í alla þessa helstu eldamennsku.  Ég verð nú bara að sýna þakklæti til tengdamóður minnar fyrir að hafa alið elskuna mína svona dásamlega upp eins og á hefur reynt.  Er minn hugljúfi svona oftast ... þarf nokkuð að útskýra það frekar?

sýning ísland 2008 029

Hugarfóstur

Þessi flís eins og ég kýs kalla þessa tegund af efni, gerði ég fyrir sjálfa mig.  Af öllum þeim tugum sem ég hef gert og hvíla víða þá ákvað ég að gera eina fyrir heimilið.  Dóttir mín, þessi elska hefur oft sagt "mamma þessi er fyrir okkur" og ég jafnan sagt, já já, en einhvernvegin hefur engin staldrað við.  Reyndar var ein flís sem var gerð í tilraunaskyni, mun stærri og þyngri sem ég ætlaði alls ekki að selja ....

Með kaffi í hönd

Með kaffi í hönd ... og stjúpur út um allt ......

Þessi flís átti aldrei að fara úr húsi en rataði á sinn máta til síns heima.  Svonna er þetta bara!

Á morgun sem er dagur sem styttist í og ég sit hér enn vakandi, get ekki sofnað og held heljartaki í svefnlausu konuna sem ég kynntist á Íslandi fyrir mörgum árum.  Hún er glaðvakandi og hlær að mér.  Hún er hluti af mér og neitar að halla augunum og segir, hí á þig .....  Ég er samt ákveðin að vinna þessa baráttu og svæfa hana, svæfa litlu baldintátu sem vill ekki kúra við hljóð himins og hamingju.  Og síðan ekki söguna meir.  Ég er alveg viss að það líða 7 mínútur frá því ég set geiflurnar í glas (bursta þær lúmsku) og þar til augun skýla sálinni fyrir birtu nætur.

Góða nótt kæru þið sem hafið litið við.


í næturhúmi kúri ég með henni ...

.... Nóttinni sem hefur tekið við af degi.

Kvöldið hefur farið í föndur og dundur.  Keypti spes pappírslím út í búð og nældi mér í bunka af dagblöðum á neðri hæðinni og ætlaði að líma á eitt stk striga og búa til abstrakt myndir en hætti svo við það og fór að gera meistarastykki í pappírsdúkkugerð ... engin dúkkulísa sem það verður ef það verður eitthvað úr þessu .... Fótstór og búklítil bredda!

Sara ég hefði átt að koma á námskeið hjá þér til að fá undirstöðuatriðin á hreint í þessu malli mínu.  Fyrsta límhræran hjá mér var vorkunnarleg og ég henti henni.  Næsta blanda var nokkuð góð og ég hafðist handa;

haus, háls, brjóst og hendur .... úff!  Þetta verður væntanlega lítill pappavesalingur en ekki skyldi kona örvænta svona fyrir fram.  Svo eyddi ég tíma í að gera pappakrús með vængjum!  Þvílík spenna sem kraumar í konukroppi að það hálfa væri nóg.

Ég held það væri ráð að kasta mér á kodda því það er stór dagur á morgun og það er um að gera að vera fínn í tauinu sem holdinu.  Brjálæðislega verð ég fegin þegar þetta verkefni er frá!!!!

Það er hrikalegt drasl hjá mér núna .... málning út um allt, pappírsræmur og blöð á víð og dreif.  Nú er það spurningin um að ganga frá eða drössla sér snemma fram úr á morgun???  Best ég gangi frá núna, svei mér þá það er alltaf gott að lúra aðeins á öðru eyranu og hlusta á morgunverk hinna.

Senjórítan er hálfmáluð og má segja að hún sé þjóðleg að spænskum hætti ... tek myndir við tækifæri af þessu föndri mínu ....  Það hefði verið ráð að hafa einhver undirstöðuatriði í þessu malli en svona okkar á milli þá var þetta mjög gaman, tíminn flaug áfram!!  Oooog ég var ein með sjálfri mér, þvílíkur snilldar félagsskapur sem ég er.

Svo er það heill dagur framundan þegar nóttin læðist frá ...


Nakin kona situr og spinnur þráð ..

... fínt að vera nakin á Spáni, tala nú ekki um eins og í dag þegar sólin skín og nartar í kinnarnar á konu, hún grettir sig framan í hana og gefur henni tunguna.  Allir sólargeislar heimsins bæta svo sem ekki ástandið og það kreppuhjal sem virðist tröllríða okkur.  En .....

Í dag talaði ég við fiðrildin og bað þau um halda áfram að fegra umheiminn.  Þau sveima frjáls og falleg allt um kring og fegra augnablikið.  Ef þú sér lítið fiðrildi þá er það örugglega komið til þín að hvísla að þér fallegum boðskap heimsins um samstöðuna og friðinn sem við þurfum á að halda.

Í dag hefur dagurinn liðið og ég fann augu til að sjá hlutina í ljósi annarar manneskju og er sátt við þá sýn sem mér birtist.  Ég tek á málunum með því jafnaðargeði sem mér er unnt og þakka fyrir mig.  Eitt pent takk sem ég vona að öðrum gefist líka að nota.

Að vera þakklátur gefur töluvert í hjartað.

Óskastund

Þakklæti eru góð læti. 

 

 

 


Ævintýrin gerast enn ...

... Alicante borg bíður mín ræs and sjæn. Konukroppurinn hefur sofið eins og rotuð í morgun. Rummskaði örlítið við brölt í kallinum, ekki það að hann hafi verið að reyna að koma kjéddlingunni til heldur var það tímatakan sem átti hug hans og hjarta! Alonso varð fjórði og spenna helgarinnar er tengd Formúlunni. Verður bara gaman á morgun þegar keppnin verður ræst í bítið.

Alicante er það heillin! Það verður næs að spóka sig um í borginni, kaupa lottómiðann og baða sig eins og Jóakim aðalönd, ætla að reyna að fá þetta í seðlum en ekki skiptimynt. Það hefur talið heillavænlegast að heita á Strandakirkju í Selvoginum, ó já!  Ooooog Gulla vinkona sagði mér að það gæfist alltaf vel að heita á hana svo það er aldrei að vita nema ég geri það bara líka!!!!

Ég er að fara að undirbúa brúðkaup sem ég hef ansi frjálsar hendur með.  Þarf t.d. að græja gumann.  Þegar hann er komin í veiðarfærin þá geta hlutirnir gerst hratt  InLove  Dagsetningin er ákveðin svo það er ekkert til fyrirstöðu að hefja skipulagið.  Innan við ár í viðburðinn.

Hringirnir komnir í silkibandi ...

Ekki amalegt hjúskapardjásn sem vinkona mín fær á fingur sér.

Latneskt skal það vera með öllum þeirra hefðum og trummsi .... gæti líka heitað á þetta fyrirmyndar brúðkaup!  Hvernig líst þér á það mín kæra brúður.  Jy hvað konu getur hlakkað til núna!!!

Mig dreymdi þeldökkan hipp og kúl mann sem færði mér kristalglas með rauðbrúnum galdravökva og sagði að ég myndi brenna öll við að drekka úr glasinu.  Þrátt fyrir að skynsemin yfirgefi mig á stundu þá dreypti ég ekki á glasinu sem var afskaplega fagurt!  Ráðning draumsins er að ég læt ekki glepjast þrátt fyrir mikla spennu.  

Ekki eru það fleiri orð á fögrum degi, það er heil borg sem bíður mín með allskyns töfrum og leyndarmálum.  Ég ætla að fara í notalega skó og sjá hvert ég verð leidd áfram ......

Engar freistingar takk, eða hvað? 

 


Nýtt ríkisfang kallar á nýtt lífsviðhorf ...

...

rússnes, færeysk eða spænsk?

Aldrei að vita í hvaða átt ég sný mér ... ofarlega hefur þó síðastnefnda fangið verið efst i huga mér þar sem að ég hef fátt að sækja og lítinn stuðning til hins ástkæra ilhýra.  Þjóðrembingur er enginn þrátt fyrir ást á land og uppruna.

Ég er svo lítið tölvugúru að ég kann ekki einu sinni að læsa þessu bbbbb vitans bloggi.

Ég var að skoða þá sem koma á bloggið mitt, og finnst það svolítið kostulegt miðað við þá sem kommenta.  Mörg nöfn og gaman að fá ykkur hin í hljóða heimsókn ....

Nóttin er ung en nú er kominn tími á að finna heim drauma og óska heiminum þess besta!

Áfram Ísland


Andlit ... það lit sem næst sálu er ...

 ....  opnaðu augun svo ég sjái mig.

Ekki depla augunum þínum ég þarf að setja á mig varalitinn.  Þú hefur svo falleg augu, svo blíð og ljúf!  Innst inni hvíldi sálin sig, hún þurfti hvíldina.

Þessa færslu birti ég á einu af bloggunum mínum hér á mbl. en það nefni ég KERAMIK ÞAKFLÍSAR og má finna hér á vængnum.  Ég ætla að birta strokurnar mínar þar en á báðum síðum er sama myndaalbúm svo þetta er ekki mjög flókið!  Snillingur sem ég er, það sagði allavega fyrrverandi tengdapabbi ....

Mismunandi andlit

Fögnuður

Fögnuður

Vonin

Vonin

Einlæg 

Einlæg

Bláir tónar

Bláir tónar

Konan kallaði á nautið

Kona og naut

Rauðir tónar

Rauðir tónar

Í skjóli nætur

Í skjóli nætur

Ástarhjal

Ástarhjal

Vinkonurnar

Vinkonurnar

 


Yndislega rigningin er farin ...

... Hún kom og lagði blessun sína yfir jörðina.  Nú þykist ég viss um að allir litlu appesínufósturvísarnir eru hipp hipp húrra hamingjusamir og ávaxtatrén iða í berkinum sínum af heilnæmri hamingju.  Mér finnst rigningin góð rétt eins og hljómsveitinni sem Andrea og Helgi Björns sungu í um árið.  Man einhver hvað sú hljómsveit heitir?

Mér finnst rigningin góð ...
Hún kom og lét finna fyrir sér en fór eins snöggt og hún kom.

Væri til í að eiga cd inn með sveitinni og setja allt í botn.  Það er hins vegar ekki í boði og ég set Kristjönu Stefáns á fóninn í staðinn og það verður enginn svikinn af því.  Mæli með disknum hennar!

Stefnan er tekin eitthvað út eftir hádegismatinn en það fer að líða að spænsku hádegi.  Eitthvað gotterý verður í gogginn .... t.d. grænmetissúpa og ferskt salat fyrir þá gömlu og svo er spurning með hvað hinir vilja.  Á þessu heimili er oft margrétta matseðill, eldað fyrir hvern og einn og allir sáttir!  Sá yngsti myndi borða pasta í öll má ef hann fengi að ráða en hann fær það ekki blessaður.  Mallakúturinn er vel mettur eftir ávextina sem voru í morgunmat en það er það hollasta sem og slatti af vatninu góða. 

Ég var að versla mér nýjan líter af Aloe Veranu en ég trúi því að með sopanum verður allt svo miklu betra í skrokknum en nú er bara að bíða og sjá.  Hrund og Fjóla bloggvinkonur eru hæstánægðar með sína neyslu á 4ever Aloe Veranu og er það frábært!  Það ættu allir að prófa þetta því þetta er að gera svo gott.

Góður tími fyrir Martini ......
Ekki amalegt

 


Smá dekur framundan ...

... ekki veitir af smá dekri, hlakka til að fá smá spjall um daginn og veginn.

Öll þessi umræða sem á sér nú stað í þessum heimi sem við lifum og hrærumst í hefur áhrif og finn ég fyrir örlítilli depurð sem er auðmjúk tilfinning.  Vona að depurðin dragi mig ekki á dýpri þrep enda engin ástæða til fyrir mína parta.  Ég hef einhverja samkennd sem ég losna ekki við.

Kanski er ég að stíga inn í svona hippa love thing tímabil, hver veit?

Ég er að mála fyrir sýningu og gengur mér bara mjög vel með það verkefni InLove 

Hellirinn er á sínum stað og langar mig mest til að skríða inn og fara í hýði en það er ekki kominn tími enn.  Fyrst er það dekur og dásamleg samvera og svo má kasta sér í fleti.

Morguninn var strembinn, fyrst móðgaðist ég pínulítið yfir ósvífninni sem áttu sér stað í bréfasamskiptum.  Mér fanst það ekki svara vert og fór bara á staðinn og eftir að hafa rifið mig niður í rassgat og barist fyrir málstað þá virðast hlutirnir ætla að fara mína leið.  Það er svo vont að reiðast, tilfinning sem ég kann afskaplega ílla því á tilfinningasviðinu þá ruglast ég oft og læt tárin læðast með en núna var ég ofursvöl og komst yfir þessa ljótu tilfinningu og viðkomandi endaði með að biðja mig afsökunnar og útskýrði m.a. annars fyrir mér tilraun sína að svína á mér.

Já það er ekki allt elsku amma í þessum skemmtilega lífsleik en ég veit að ég hef alla mína engla, anda og vætti í vasanum til að styðja mig þegar svo ber undir.

Heart

SteingeitSteingeit: Þegar þú trúir á eitthvað, þarf kraftaverk til þess að þú skiptir um skoðun. Það eiga margir eftir að reyna, en þú ert fastur fyrir sem fjall. Ekki síst í kvöld.

W00t

Það er komið kvöld einhversstaðar í heiminum og mér finnst stjörnuspáin mín í dag ekki svo vitlaus miðað við það sem ég þurfti að tækla í morgun.  En nóg um það!

Ég verð orðin gyllt af gleði þegar líða tekur á kvöldið ... ekkert tilfinningalegt "blue thing" ....

Set upp zessa gylltu krónu med kvöldinu ...

Ein tóm gleði


Ávallt tækifæri til að fagna .....

... læri læri, tækifæri!

Heil og óskipt 3 ár frá því við tókum loforð um hjónabandið.  Þá búin að vera saman í 7 mikilvæg ár.  Engin skilaréttur og við gengum sátt að hvort öðru  með alla okkar kosti og galla.

Hamingjudagur mikill í lífi okkar.

7undi október 2005
Nýpússuð og fín

Í dag ætla ég að vera mjöööög ástfangin og halda í höndina á elskunni minni.

Sólin skín og við ætlum að fara í smá ástargöngu í litla bænum okkar og ná í litla ávöxtinn sem kemur heim í hádegishléinu sínu.  Hver veit nema að við förum eitthvað saman í kvöld í léttan kvöldverð, bara 2 ein.

Eigið yndislegan dag!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband