Færsluflokkur: Menning og listir
6.10.2008 | 13:33
Snillingar ... við erum öll snillingar!
Það má nú segja að við erum öll snillingar annað slagið. Að díla við snillinga er bara eins og það er og best að fljóta bara með þangað til annað kemur í ljós.
Það er dásamlegt veður og notalegt hérna mín megin, lítið sem ekkert í fréttum annað en þetta venjulega hversdagslega. Þetta hversdagslega sem er svo gott og notalegt.
Ég er svo aum í öxlinni, sef eins og drottning en rækta akróbatískan svefn sem er nýjasta trendið ... ég er sennilega ekki nógu flexible týpa því liðirnir eru ekki jafntilbúnir og hugurinn og með reglulegu millibili dofna ég upp á höndunum. Ætti að kaupa mér Liðamín (er það ekki annars til) .....
Nennan mín var ekki uppá 10 fiska og ég lét mig hafa það að fara frammúr klukkan 08.30 en ég átti að mæta á mikilvægan fund skömmu síðar og eitthvað þurfti konutetrið að græja sig til.
Morgunmatur var aloe vera safi og 2 Kiwi, frískandi fyrir kroppinn. Í hádeginu fékk ég mér Melónu og hráskinku, bara gott. Á prímusnum mallar svo tómatlöguð grænmetissúpa sem verður í matinn næstu daga. Það er ekkert eins gott fyrir kroppinn eins og þessi matarmikla súpa.

Gott í mallan,! Gulur, rauður, grænn og og og blár!
Vonandi eigið þið snilldarlegan dag í allan dag.
4.10.2008 | 10:19
Úr mörgu að velja ....
Þvílík endemis kvelja!
Kanski vel ég ekkert en okkur er boðið á opnun á bílaverkstæði og bílasala, hreint glæsilegt með frábærum tilboðum í tilefni fagnaðarins. Ég ætti eiginlega að vera þar núna en sit á náttkjólnum hér með ykkur.

www.autosdirect.es þið sem hafið áhuga á þessu endilega koma svo!
Svo er það síðasti dagurinn sem mamma og pabbi eru í heimsókn og pælingin var að fara á röltið þar sem að "laugardagsmarkaðurinn" er í fullum gangi núna. Nota blíðuna og brosa framan í heiminn! Ekki veitir af brosunum þar sem að bros getur dimmu í dagsljós breytt.

Hvað skyldu komast mörg brjóst í allar þessar búbbingahöldur?
Allavega 25 tær geta búið í þessum gúmmibommsum ....
Best að fara úr náttkjólnum og rata út í sólina. Skoða úrvalið á markaðsborðunum, prútta smá og finna þörfina fyrir einhvern lítinn sætan hlut sem nýtist fullkomnlega inn í daginn.
Kela svo við kanarýfuglana í tilefni dags dýranna og biðja fyrir blessun þeirra.
Njótið dagsins.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
2.10.2008 | 12:14
Blanca como la nieve ...
Frá allri litagleðinni og þerapíunni sem ég er í þessa dagana þá ætla ég að tæma hugann algjörlega og hugsa um himininn og hans fagurskapaða lita mót.
Hvítt í hugann með smá bláu ívafi til að annmarka hvítuna sem er svo falleg. Ég keypti mér þetta líka fína undirpils í gær, brakandi hvítt undir hvítt bómullarpils sem ég ætla að láta mig vaða í næstu daga. Ég á eftir að gera upp við mig hvort ég fari í gulu skyrtuna mína eða þá grænu??? Kemur í ljós en ég lofa að taka partýmynd af tilefninu. Ég þarf að tylla mér á nef og sjá hvaða liti líkaminn þarfnast þar sem yfir stendur allsherjar andleg og líkamleg hreinsun.
Hér er eitt af mínum uppáhaldsblómum Margarítan eða Baldursbrá.
Þegar ég sé þessi sætu blóm sem ég nota oft í myndefni mínu þá hugsa ég um hana ömmu mína á himnum. Við garðinn hennar voru aragrúi af Baldurbrám og gat ég setið heilu eilífðirnar að dást að þeim, búa til hárskraut og telja ástarsögur eina af annari. Amma, minningin er góð!
Olía á striga, Eilíf Ást
Hér er Baldursbráin töluvert ræfilsleg en stendur fyrir sínu ... þegar barnið í bumbuna er komið þá opnast fegurstu gáttir heimsins. Upplifun og eftirvænting. Lífið er sannarlega sælt þegar við bíðum lítils krílis. Til hamingju þið fjölmörgu bumbubloggarar með það nýja og bjarta sem er framundan.
Hvítur litur táknar tryggð og hreinleikann, táknar frið og frelsi.
Hvítur er sakleysið og æskan hin eina fullkomnun.
Það er ekki að ástæðulausu að englar og hrein tákn eru íklædd ýmind hvíta litsins.
Hvíti liturinn gerir það að verkum að við fyllumst trú og trausti sem ekki er vanþörf á.
Verst að hafa ekki snjóinn til að gera nokkra engla.
"Solla þú tekur nokkra fyrir mig þegar byrjar að snjóa, er það ekki?"
1.10.2008 | 16:13
Unas bromas verdes ...
... Þegar kemur að ljósbláu kvikmyndunum er ekkert blátt við þær heldur eru þær grænar Spánarmegin tilverunnar!
Allt er vænt sem vel er grænt og því grænna því betra og því fjær því álitlegra. Ég er komin í litaþerapíu og drekk vatn úr rauðum glösum, gulum glösum og stundum svindla ég og fæ mér rauðvín úr glæru glasi!
Þegar Spánverjar segja ljósbláa brandara þá eru "grínin græn" og viti menn ég er ekki að tala um golfíþróttina.
Eftir eldrauðan gærdag sem byrjaði á pirring og reiði þá leitaði ég útfyrir hinstu mörk og fann friðinn, sætti mig við aðstæður og lét eftir. Ég get ekki leyft óviðkomandi aðila út í bæ að hafa áhrif á mig. Þannig að nú ætla ég að setja nafn viðkomandi á ódýrasta pappír ever og henda honum í plastpoka og frysta hann. Já, já, stundum doltið skrítin!
Svartklædda konan fór út í morguninn á RAUÐA bílnum sínum (Ollasak ég býð þér sérstaklega á rúntinn því þú átt eftir að elska það ... Múgíbúggý á fóninn og klassapæjuhattur á höfðinu sem við vonum að fjúki ekki ...) Meðferðis var græn taska er innihélt alla liti sem ljómuðu í átt til konu. Í erindagjörðum lagði hún land undir fót og lenti í marvísum ævintýrum ....

Á markaðstorginu stóð sígauninn og bauð henni Azucenur til sölu.
Sólarglæta á himni iljaði konunni þegar hún gekk eftir markaðsgötunni og hitti allskyns fólk og sá allskyns varning. Prútt og gamaldags verslunaraðferðir. Appelsínur hér og kiwi þar! Allir voru að gera kaup lífs síns, líka ég!!!
Hvítt undirpils og mjúkasta barnateppi ever setti konan í innkaupagrindina og skimaði eftir góðum kaupum. Kaupmenn kölluðu hver í kapp við annan. Konan varð ringluð og lét við sitja enda klukkan langt gengin í 14.00.
Undirpilsið ætla ég að nota undir nýja kjólinn minn. Í kvöld ætla ég að dansa og njóta tilverunnar með hvítt blóm í hárinu. Þegar dagurinn losar faðm sinn og mætir kvöldi munum við turtlurnar eiga góða stund.

tja tja tja
Hliðar saman hliðar, tja tja tja. Rifja upp gamla takta frá því að Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar var og hét, heitir kanski enn en ég veit lítið um það mál!
Ég fann Regnbogarósirnar og set þær hér inn. Fyrir mitt leyti myndi ég velja búnt af rauðum eða hvítum, orange eða gulum. En nýungagirni er líka í góðu lagi. Ef ég fengi svona búnt af Regnbogarósum þá yrði ég himinlifandi, þær ilma sennilega af fersku vatni og himni, af jurtum jarðar og ilmi lífsins. Já, eru þær ekki bara fínar, rétt eins og þú og ég?
Regnbogarósirnar
Ást, friður og eining er í græna eðlinu, grænt kraftaverk gerist svo klukkur hljóma.
Grænn er litur vinskapar, það trausta og róin sem hjúfrar í hjartanu.
Grænn er litur hjartastöðvarinnar í chakranu og merkir harmony og ást, eins gott að hafa það í jafnvægi svo það fari ekki í öfgar!
Rauður og Grænn eru andstæðurnar en vinna samt ferlega vel saman í litaflórunni.
Grænn kærleikur bindur, ástina, friðinn og eininguna saman.
Njótum dagsins í grænni laut!
Tja tja tja
30.9.2008 | 17:35
Rojo vivo, la vida y el amor!
... Sannarlega er ástin rauð og lífið ljúft þegar tvö hjörtu mætast . Þegar lífið er ljúft situr ástfangin kona heima og stagar í gamla sólhlíf.
Sólhlífina ætlar hún að nota á síðustu aurana sína. Aurana sem hún hefur safnað árum saman til að eiga fyrir rósrauðu lífinu. Sólhlífin á að þjóna tilgangi fallhlífar sem er eldrauð með oggulitlum silkiormi. Vonandi verður sólhlífin svo mögnuð að hún megni að halda krónunni í hæstu hæðum, lengi, lengi, lengi alveg við tásur himnaherrans.

Þessi gamla sólhlíf er sko betri en engin og nú get ég bundið aurana við handfangið .....
Rautt er litur ástar, litur styrkleikans og reiðinnar. Í rauðu sveipum við okkur dulu styrksins, ástar og verjum okkur gegn ýmiskonar hættum. Rauðir skór eru t.d. frábærir ferðafélagar, taka stundum sjálfstæðar ákvarðanir og við vitum ekki af neinu fyrr en hviss bang og þú ert komin eitthvað allt annað en þú ætlaðir þér.

Draumasýn prinsessunnar í rauðu skónum tekur engann enda. Hún hvílir sig í grænni dögg og lætur hugann líða um heim og geim. Hvar á hún heima og hvert fer hún? Prinsessan ætlar að nota græna litinn og tala við fjármálaheima og setjast að samningaborðinu og fá þessa helstu herra til að græja þetta. Samþykkja það sem þarf, svo litlar prinsessur geti haldið áfram að lifa.
Finna til og vera til. Hún veit það innst inni að ástin býður og styrkist með fallegum rauðum lit. Litur ástarinnar sem heilar styrkinn í hana og þorið. Já, já, krónan jafnar sig, ekki spurning hvort heldur hvenær. Við skulum sveipa krónunni okkar rauðri dulu og hífa hana upp til himna, nóg er nóg!

Lífið er lítil ástarsaga. Ég læri að elska og elska að lifa. Lítið bros tindrar bál í hjarta mínu, í hjarta þínu því í ástinni erum við jöfn, eitt og ekki neitt ........
Rauður litur heilar okkur og getur hjálpað okkur þegar við eigum við öndunarerfiðleika að stríða.
Rauður litur getur líka stuðlað að betrum fyrir lágan blóðþrýsting. Þið sem hafið of háan blóðþrýsting endilega farið í eitthvað orange, litur sem verndar!
Rauður litur er streymið og næringin en eins og með allt jafnvægi vinnur rauður litur á móti og getur hættu og rifrildi, stríð og fórnir. Litirnir eru heillandi og mikilvægir! Þessu til viðbótar langar mig að nefna HUGREKKIÐ sem Dísa Dóra nefnir, rauður litur er hugrekki eins og ástin!
Stundum leitum við í ákeðna liti þegar við borðum, við eigum t.d. að jafna litina í fæðunni, borða rautt, gult, grænt og blátt ... alla liti til að halda jafnvæginu ...
Svo í lokin færi ég þér fallega rós. Rauð rós táknar ástríðuna og játninguna.
Eldrauð og heit rós
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
29.9.2008 | 20:40
Amarillo es el color de la vida ....
... gjörsamlega litlur lífs og krafta.
Ég keypti mér gula blússu í byrjun sumars og hún hangir inní skáp og smitar litbrigðum í dökkan fataskápinn.
Ég þarf að venja mig af því að ganga í dökkum fötum en það er erfiður vani að brjóta. Svart skal það vera, dökkgrátt eða dökkgrænt en fylgihlutirnir fá jafnan að vera líflegri!



Ekki amalegt að á í þessum sæta sófa!
Gulur er litur sólargeislans, ljóssins í lífinu. Gleði og hamingju, orkunnar og viskunnar.
Gulur litur hefur jákvæð örvandi áhrif á andann og líkamann.
Það er með gulan lit eins og aðra liti að merking þeirra getur verið öfug og ber að hafa það í huga eins og þegar okkur dreymir litadrauma, hvernig var liturinn, var hann hreinn og hver geta skilaboðin verið.
Nóg um gul hjörtu og lífsins ljós.
Fegurðin er falleg rós
Þú mátt velja þinn uppáhaldslit á rósina þína.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
28.9.2008 | 20:01
Eina Ósk .....

25.9.2008 | 15:40
Ávextir og líkamlegar samlíkingar ...
.... Konan er eins og Pera, eins og epli eða ivöl og þétt agúrka .... well ég var að vafra á netinu og fann mynd af listaverki eftir Miguel Angelo.

Hrikalega flott listaverk og ég viðurkenni að brjóstin eru einna helst eins og vel þroskuð epli. Nokkurn vegin daglát fyrir silikon æðinu sem sumar konur duttu inní.
Brjóst!
Er eitthvað fallegra en brjóst?
(sumir eru nottlega bara hrifnir af hælum)
(( ekki tjaldhælum ))
Stór brjóst, lítil brjóst, lafandi brjóst og allskonar brjóst. Hverjum langar ekki í falleg brjóst eða strjúka nettan og fallegan hæl? Án gríns, hællinn er svæðalega séð einn sá kynferðislegasti staður líkamans = þjóðhnappur sá íturvaxni vöðvi.
Karlarassar, konurassar
er mér virkilega alveg sama.
nákvæmlega ef lófinn passar
herra eða dama?
.....
Rassar eru og verða sterk kyntákn
Hver líkamshluti hefur sína sexual dulu sem heillar okkur mismunandi. Það sem hentar einum þykir öðrum fráleitt. Í litaflóru hamingjunnar og ágirndar hefur ekkert blóm sama ilm eða sama unað.
Lífið er fallegast í þeim lit sem nærir.
24.9.2008 | 15:37
Bling .... Dong ....
Regnið lætur ekki að sér hæða þessa stundina. Það er alltaf ljúft að hlusta á regnið þegar það skellur í götuna, finna svo ilinn að vera inni eða gleðina að dansa berfætt af öllum krafti með lemjandi regnið í andlitið.
Seinni kostinn uppfylli ég ekki nema að miðju sumri og þá rignir sjaldan!

Það er nú ekkert leiðinlegt að vera í rigningunni með ljónum og fílum og allskonar dýrum.
Í dag hafði ég ráðgert að fara út að skoða hellinn minn og ég sé að móðir náttúra heilar jörðina fyrir mig áður en ég legg í hann. Ég er full af forvitni og spenningi sem er notaleg tilfinning!
Það er tími kominn á andann og að ferðast í rúminu án þess að rugla sig í ríminu.
Bling ...
Þá heyrist Ding, dingaling,
bjallan hljómar, gestir óma,
Út á hlað
rigningarbað.
Ég brosi til þín,
þú brosir til mín.
Dong ...
Hljómur fer, engin hér,
spegilinn brosir til mín.
Augun blá
blikið sjá,
gnægð þú móðir jörð.
Regnið flæðir, hjartað glæðir,
enni mínu á.
....
22.9.2008 | 22:51
Tímasprengja .....
Heilir 2 mánuðir liðu hratt hratt og svo hægt hægt í lokin.
Það var notalegt að komast heim og knúsa Fjallið og yndisleg börnin. Við sátum og horfðum á hvort annað, spjölluðum og hlógum en tímamismunurinn kallaði konu í svefn og við mæðgin náðum rétt í iljarnar á Óla Lokbrá.
Sunnudagurinn var notalegur í spænsku regni og afslappelsi. Við hittum mömmu og pabba sem eru í slökunarferð og nutum góðs kvöldverðar á indverskum matsölustað í litla bænum mínum San Miguel de Salinas.
Ég byrja að vinna að nýju í vikunni og það er af nógu að taka. Kanski ég kíki við og skoði málverkasýninguna mína sem er staðsett í Los Dolses við Costa Blanca ströndina .......
Ég er búin að sjá rosalega flotta sýningaraðstöðu sem verður mín á árinu. Verst að sú sem á staðinn veit ekki af þessum hugleiðingum mínum en jedúdda mía hvað við verðum báðar sáttar þegar við tökumst í hendur og fögnum hver okkar leið!