Færsluflokkur: Menning og listir

Hviss Bang ...

Dagurinn hann hvarf, eins og hvert annað hviss bang!

Ég er svefnlaus en finn ekki lúlluna í mér núna.

Ég gleymdi að hitta frænku mína sem er frábærasta saumakona landsins.

Ég brunaði í Hafnarfjörðinn, Kópavoginn, Grensás, Borgartún og fann svo andann ....

Ég hitti skemmtilega bloggvinkonu og við hlógum djúpt.

Ég er að þvo þvott og hugsa heim.

þegar kona er ein þá rúmast fátt annað en ég í tilveruna þrátt fyrir að þráin séu þau, mín yndislegu börn í umsjá Fjallsins.  Jemundur hvað ég elska þetta tím sem ég er hluti af!

En, svona í alvöru þá hef eg ekki heyrt eitt einasta lag með Geirmundi í sumar.

 

 


Leyndó ...

... þegar allt kurl er komið til grafar þá á ég sennilega ekki mörg leyndarmál.

Lífið er allt of stutt fyrir leyndarmál og tíminn er gjörsamlega spinnigal hjá mér núna þessa 2 síðustu sólarhringa Íslandsdvalarinnar.  Hvað gerir kona þá?

Nákvæmlega, gleymir sér í tölvuræksninu.

Ætla að pakka og príla í föt og kveð mitt litla leyndarmál.  Heart


Til í raun ....

.... smá svona hugvísindaleg í sjálfu sér.

Það sem gladdi mig hvað mest þegar ég vaknaði í morgun var kyrrðin og dagsbirtan.  Sposk að vanda eftir hárburstun og tannburstun, uppáklædd fyrir átökin.

Ég á leið í hús sem tilheyrir mér og mun ég njóta þess að hlusta á andans tákn og tíma.  Ég kem færandi hendi og það er gaman, tala nú ekki um þegar gestgjafinn er jafn interesant og raun ber vitni. 

Ég er svo þakklát að geta spókað mig um í nýjum konubúningi með úthvíldan huga (þrátt fyrir átakið að vera) .....

Vinningsmiðinn minn í lottóinu greiðir leið í óskir hugans og konan heldur sæl á nýjan áfangastað.

Í raun erum við til á svo ótal vegu, í ótal myndum með ótal fólki.  Eitthvað svo óteljandi ó tal sem gæti allt eins verið latte með mikilli froðu.  Talandi um kaffi þá er ég víst eina konan í heiminum sem skúffa froðunni frá, hef ég heyrt en ástæðan fyrir því er að mér þykir mjólk vond en alveg er hún afskaplega falleg!   Svoooo falleg að ég læt mig hafa það að fá mér latte SJALDAN.

Ég átti gott tal með konu sem ég þekki betur eftir daginn og lífsgátan er ekki svo flókin þegar rýnt er í galdurinn.  Eða er galdurinn að rýna í fólk og kynnast því betur, verður lífið betra ef við opnum hjarta okkar og ýtum hrokanum og fordómunum frá.  Kanski er það rétt!

Fyrir alla peningana sem frúin í Hamborg eftirlét mér ætla ég að byrja á því að tendra ljós í Landakotskirkju og fara með bæn til allra þeirra sem þurfa ljósið.  Heart


Var að spá .....

....  ekki í framtíð né fortíð heldur í tímann.

Hvernig tíminn líður áfram og hendingar breytast eins og hártískan.

Í fyrri færslu birti ég mynd af allskyns hjörtum og á einu þeirra stendur "FAX ME" ..... Svo eitthvað old fashion.

Ég man eftir ungri stúlku sem við skulum kalla frk.fix og var símastúlka á ónefndri útvarpsstöð þar sem ég starfaði.  Hún var falleg og frísk stúlka með lipra rödd.  Í vinnunni var forláta fax tæki sem var tæknigúrúum staðarins kunnugt nema að ég man að í eitt skipti var stúlkan beðin um að senda forláta gulan gúmmíhanska yfir á ákv. faxnúmer.  Já, hún tók hanskan og stimplaði númerið og bjóst svo við að hann færi sína leið ........  Þetta var bara sætt og hanskinn fór hvergi.

Ég átti notalega kvöldstund í útjaðri Reykjavíkurborgar með hressum konum í spé og spjalli.  Heimferðin hjá mér var stutt þar sem ég bý líka í úthverfi borgar en Frú Hrönn er vonandi komin heim yfir Fjall, Heiði og Kamba.  Send me FAX ef þú ert í trobble honný.

FAXIÐ MITT
Verði ljós

Ég er farin að sakna þess að vera ekki heima.  Á gamalt fax tæki sem flestir væru sennilega búnir að henda á haugana en notagildið er enn hið sama.  Faxið mitt er líka ljóskróna (not) og ég bara hlakka til að geta horfið heim.  Iceland never again ( í 60 daga), líður svipað og þegar ég fór í 200 daga til New York.

Er að spá ....

Að næst verður það urrandi rómantík með Fjallinu á Manhattan, laaaaanga helgi.

(Í ljósi 3ja ára brúkaupsafmælis þann 7unda Okt.)


Í næsta stríði ...

.... við vonandi sjáumst!

Áður en ég kveð set ég galdur í pott, blanda allskyns hugarfóstrum, fræjum og grasi.  Yfir pottin kveð ég bæn um heimsins frið um vinabönd okkar.

Í draumi ég sá þig svo fríð svo kær en það var bara í draumi.

Heart

Í næsta stríði.

lítil hjörtu

 


húsmæðraorlofi að ljúka ...

Dagarnir líða eins og þeir hafi aldrei gert neitt betra og skemmtilegra.  Klukkan sem ég keypti í Maddömmunni er algerlega frábær og er ég nokkuð viss að hún eigi eftir að mæla andans líðandi stundir og koma mér á réttan stað á réttum tíma.

Ekki veitir af í landi mañana þar sem tíminn er afstæðari en allt stæðilegt af. 

W00t

Ég sit og bíð eftir að tíminn líði svo ég geti komið mér af stað á lítinn sætan fund hjá góðu fólki.  Eftir það væri jafnvel ráð að kíkja í netta heimsókn til Elínar .... einn kaffisopa og smá kjéddlingar kjaftæði sem er æði eins og við Kjérlingar einar vitum.  Þó ekki Einar frændi!

Ég heyrði í fjölskyldunni minni og allt gengur prýðilega án mín sem var náttúrulega vitað fyrirfram. 

Það verður gaman að hitta þau í lok vikunnar.

Íslandsævintýrið senn á enda en áður en því lýkur þá mun ég hitta skemmtilegar konur á morgun þriðjudag.  Um hádegisbil hitti ég eina frábæra konu sem er eiginlega granninn minn!  Í eftirmiðdag fer ég á Grensás að heimsækja aðra frábæra og duglega konu Ooooog, svo um kvöldið hitti ég margar frábærar konur, sumar hverjar ókunnugar.

Konur eru æði

Á miðvikudaginn held ég áfram útburði á verkum sem seldust á sýningunni og fer í nudd með vinkonum mínum og geri ráð fyrir að busslast á pjólunni í nuddpottinum (sjor (ekki sjór)) ..... Geri ráð fyrir að hitta Bidduna ef hún verður laus úr handjárnum vinnunnar eftir það .....

Á fimmtudeginum fer ég í smætluveislu á Vesturgötuna í hús sem langalanga amma mín átti.

Á föstudeginum fer ég og kveð nokkur leiði, ætla ekki að láta mér leiðast og hitta vinkonur um kvöldið ................. last night out!

Zyrnirós

Þyrnirós fann sinn stað í Danmörku, ég þarf ekki að fljúga þangað.  Ég náði að tjá mig á dönskunni minni sem var vel.  Indælis fólk sem átti leið um Ráðhúsið í gær Sunnudag.

Hlakka til að fara heim

 


Sýningin fór í sæ ...

... þann mjúka, þann blauta!

Sýningin Gegnsæji var tekin niður í dag.  Frábær sýning og gestabók full af minningum.

Mig langar að þakka ykkur kæru vinir og þið hin sem lituð við, það voruð þið sem gerðuð sýninguna eftirminnilega.  Vá, hvað þetta hefur verið yndislegt og gaman .....

Syning Gallery undir stiganum agust 08 003

Haddan mín hannar augu.

Ég komst ekki yfir dagskránna mína eftir daginn og þarf að vakna klukkan 08.00 í fyrramálið.  Ykkur finnst það sennilega ekki neitt til að minnast á en mig langar sérstaklega að koma því á framfæri að ég er í fríi og nýt þess að vaka frameftir og vakna þegar ég næ að trekkja upp innri augu.

Góða og óða nótt


Herdúið ekki að gera sig ....

..... hrikalegt að sjá á mér hárið!  (fyrri færsla)

Ég ætla að eiga notalegt kvöld og hlusta á veðrið fyrst uppþvottavélin er tóm og allt tandurhreint!

Þvílíkt sem íslensk náttúra er mögnuð og verður að segjast að Vík í Mýrdal sé kyngimagnaður staður.  Ég fór með ósýnilegu vinum mínum og staldraði við Reynisfjall og þar var nú heldur betur líf og fjör.  Það niðaði í náttúrunni og ég fann minningar sem voru að hluta mínar en samt ekki.  Ég uppgötvaði orkuna sem ég náði að tengja mig og naut lífsins á þessum sælureit.

Ég ætla að gera 2 smámyndir sem tengjast minningu frumanna okkar og munu þær síðan fá segul aftan á sig og verða ísskápaskraut.  Lá og sá fyrir mér hvernig fruman heldur í minninguna og hvernig við hreyfum við víddinni sem er svo spennandi efni.

Lánsmynd, mín mynd er í bílnum og ég nenni ekki ad saekja vélina núna ........

Ég náði svipuðu skoti og þessu hér að ofan, eins og sést þegar músinni er rennt yfir myndina þá varð vélin mín eftir í bílnum.  Magnað andartak.

Best að reyna að gera eitthvað af viti eða bara óviti.

Laugardagur til lukku

 


Konan úthvíld eftir góða för

Systir mín

Nýkomin heim úr góðri hringferð um Næsland!

Úthvíld og krulluð með nokkra laxa og álfakjóla eftir för um landið okkar ástsæla og hjartans kæra.  Það gekk vel og er ég nýkomin heim.  Kom við í búðinni að næla mér í grænmeti sem verður með súpunni.  Nenni ekki að elda svona ein W00t

Ég fann fyrir álfum og varð fyrir dásamlegri reynslu sem ekki er óhætt að fjalla um hér .... hlakka óendanlega til að fara heim á ný, hitta litlu arfana mína og umvefja mig í hlíðum Fjallsins.

 


Hringvegurinn ...

.... vegur sem nær í heilan hring.  Ég fór í ferðalag í gær í æfingaferðalag og lá leiðin út úr höfuðborginni.  Pendúllinn var meððíför og þegar ég nálgaðist afleggjara að Nesjavöllumm þá var ekki annað hægt en að beygja og leiddi kristallinn mig alveg frábæran lítinn hring.

Þvílík fegurð sem mætti okkur vinkonum og sé ég svolítið eftir að hafa ekki staldrað við í Vinaskógi og styrkt systrabönd okkar Guðnýjar W00t en áfram lá leið og ég stöðvaði bifreiðina við Þjóðgarð okkar íslendinga Þingvöll.  Ég var með batteríslausa vél en náði samt nokkrum myndum út ferðina.

Það var SKO túrhestast í gær og sáum við smjattandi kindur sem voru ligegladar og sælar.  Við ætluðum að hitta vinkonu mína Önnu með Tomokosan en þær svöruðu ekki símanum og sennilega höfum við verið rétt á eftir þeim.

Kaffisopi

Vonandi áttu þær góðan dag og ánægjulegar upplifanir.

Á meðan æfingaferðalaginu stóð hringdi síminn minn stöðugt og Guðný svaraði fyrir mína hönd og leysti það vel úr hendi þangað til að síminn bara dó.

Eftir Þingvöll lá leiðin í Grímsnes að Sólheimum, vinnudegi var að ljúka og sáum við göngugarpinn Reyni Pétur og margt mætt fólk.  Ooooog svo hittum við Ástu Jakobs Þorlákshafnarmær (hún er hreint yndisleg ung og efnileg kona) .... við sáum myndlistarsýningu og fjárfestum í smáræði úr verslunin Vala.  Guðný keypti sér hunangskerti og ég jurtasjampó og astralblómaspil, grænmeti og sólheimamerkið.  Konan var hreint óstöðvandi. 

Í dag ætla ég að leggja í reisu.  Pakka tannburstanum og t-streng í koffortið og leggja land undir fót.  Það er útlit fyrir bjart og gott veður, inni sem úti.  Pendúllinn sá ráðríki kristall hvíslar svo að mér leið en tilfinningin segir að smátröll og álfar verði á vegi mínum.  Hver veit nema ég gisti á Höfn í Hornafirði í nótt .... Whistling

Lost in Næsland

Ef ekkert heyrist frá mér þá lít ég út eins og þessi kona hér að ofan með 3 koffort, T-streng og tannbursta.  Treysti á guð og ótæmandi gæfu í þessari för minni.

En fyrst verður það kaffi á Krúsinni.

Sjáumst


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband