Færsluflokkur: Menning og listir

Græn kona og væn ...

... ég sit í lopapeysunni við hlið arinsins og ilja mér.

Ég á von á Guðnýju vinkonu í hádeginu í hollt og grænt ..... spjall og næs!

Oooog, ég ætlaði að fara í smá ferðalag í dag með vinkonu minni og hennar vinkonu í góðan suðurlandsrúnt en þær ætluðu að leggja svo snemma af stað að ég bakkaði út!  Ég tek það fram að ég get alveg vaknað á morgnanna en eg fer seint að sofa og vakna þ.a.l. ekki fyrr en um ca. 09.00.  Kommon, ég er í sumarfríi Wizard

Var að spá í að leggja kanski í hann út í buskann ef Guðný nennir eða kanski við sitjum bara hér og glápum á tærnar á hvor annari ...

Spiladós

 

Við getum sagt hvor annari sögur af regninu sem reyndi að læða sér inn í nótt.

Við getum tekið spiladósina og horft á hana snúast áfram, hring eftir hring þangað til hugur okkar fer að snúast með.

Gaman af þessu !!!  Ég fór í verslunina Maddamman á Selfossi í síðustu viku og sá svona spilahjól eins og er hér til hliðar.  Á meðan við skoðuðum gamlar gersemar sem eru til sölu og sýnis fékk Orri Thor að leika sér með svipað tól.  Gamalt dót, sumir hefðu sagt leikfangadrasl!  Drengurinn undi sér afbragðsvel og allur kristallinn og stytturnar horfðu á kappsamann drenginn ....

Mæli með því að fólk kíki í þessa verslun, "maddamman" rétti staðurinn fyrir þá sem hafa unun og ánægju af antik.  Ég sá klukku sem mig langar í og geri ráð fyrir að hún bíði eftir mér svo við getum tifað í takt inn í eilífðina.

Þess má geta að ég er búin að finna staðinn fyrir klukkuna mína sem færir mér minningarnar frá henni ömmu minni sem situr á fallegu skýju og saumar kross saum úr silkimjúkum skýjaþráði. 

Amma þessi klukka styttir tímann þangað til við hittumst á ný í tímanum og rúminu.

Þegar ég sest niður á ilmandi moldina og horfi allt í kring, finn dýptina og nálægðina við jörðina, finn kraft móður get ég sagt við sjálfa mig að ég tók rétta ákvörðun að velja vinnustaðinn minn, velja leiðina sem er nú framundan.  Ég er konan sem situr í helli sínum og skapa í fangi móður jarðar.

Það er góð tilfinning að takast á við daginn.


Inn og út um gluggann ....

.... Ein ég sit og sauma inní litlu húsi, enginn kemur að sjá mig nema litla músin ......

Guðný Anna klukkaði mig, ég skil ekkert í því þar sem ég hleyp hraðar en hún.  Sennilega náðir þú klukkunni á öðrum staðartíma ....

Man eiginlega ekkert þar sem heilinn minn er í efnis og áþreifanlegri afneitun en nú uppljóstra ég bara hinu og þessu eftir minni.

4 störf;

Humarprakkari í Meitlinum í Þolló

Skrifstofu Flugleiða

Sölustörf ýmis

Listakona

Heart

4 heimili;

Eskifjörður

Þorlákshöfn

Mariager

San Miguel 

W00t

4 staðir sem ég hef komið til;

Síkiley / Ítalía

New York / BNA

París / Frans

Natal / Brazil

Whistling

4 grænmeti;

Tómatar

Brokkolí

Sellerý

Gulrætur

Tounge

4 eiginmenn;

hahahahahha .... Bara einn svo dásamlega hreinn!

Nú er ég búin að gleyma hvernig þetta á að vera en hef sýnt geysilegan lit í þessum leik .....

Wizard

4 staðir sem mig langar til;

Köben

Feneyja

Færeyja

Cubu

Bandit

Í nótt dreymdi mig að ég var stödd inní stórverslun og ætlaði að kaupa mér þvottavél og hún varð að geta snúið sér á þúsund km hraða .... Ójá, og mér var sama hvaða nafn hún bæri.  Bæ!


Hvar og hvert nær hún .....

?

Hvar er skynjunin okkar og hvert nær hún.  Í hvaða efni erum við og á hvaða leið?

....

Pælingar eftir kvöldið sem staldra við hjá mér.  Ég hitti vinkonu mína og vinkonu hennar sem kemur frá Japan og er hér í 4 nætur.  Við gengum saman um grjótaþorpið og skoðuðum gömul hús með sál.  Við enduðum svo inná 101 Rvík og fengum okkar kaffi og soda og náðum að ígrunda ýmis mál og var kvöldið vissulega ánægjulegt.

Ég lærði japönsku á AÐEINS 20 mín og enda nú allar setningar með viðhenginu SAN, geri aðrir betur.

Við höfum áhrif á svo margan hátt þegar við viljum.

Ég fór í gamla kirkjugarðinn í Rvík og heimsótti langömmu og langafa .... Ég náði að tengja mig englasálinni og fann gleðina og þakklætið fyrir að fá að vera og fyrir að mega njóta, fyrir að kjósa að vera það sem ég er OG EKKI SÍST fyrir að fá að njóta þess dýrmætasta í lífinu, maka og börnum.

Ég er sæl, ég er sátt og ég er sem er mest um vert!

Ég átti ánægjulegan dag, hitti mikið af fólki og langar að þakka Ingu Maríu fyrir góða stund.  Það er alltaf gaman og gott að skyggnast í heim annara sem búa í ólíkum reynsluheimi. 

Góð stund en of stutt. 


Tilhlökkun í hryssingsveðri ...

.... að líkja veðri við óbaldna hryssu er alveg óhætt, allavega eru hljóðin sem gnauða í húsnæðinu sem ég dvel vetri líkust.

Á sálinni sitja þrjár frostrósir er tengja hugann við efnið.

Þegar ég kom til Íslands fyrr í sumar skrúfaði ég niður í öllum ofnum og var þ.a.l.  frekar kallt að tippla að kaffikönnunni.  Eftir græna drykkinn og vítamín þá setti ég ofninn í eldhúsinu á 3 og sit hér og hjúfra mig að honum. 

Væri alveg til í að vera með Fjallinu mínu núna við suðurstrendur Iberíuskagans en þetta kaus ég sjálf.  Er farin að telja dagana niður, finna faðmlögin og knúsin.

Ég lenti í aðstöðu um daginn þar sem mér var vinsamlega bent á það að ég væri allt of feit.  Wow, það er ekki eins og ég eigi ekki spegil.  Þetta var svolítið fyndið fyrir utan að það að vera feitlaginn er ekkert fyndið i sjálfu sér Whistling  Ég gæti flautað lagið um Bjössa Bollu nema útfært það Daisy Dúlla .... LoL

Allavega þá hef ég verið að gera breytingar og vonandi að ég verði boðleg öðru fólki, feit eða mjó.  Vona bara að ég geti haldið í minn feita og bleika húmor!

Ég er á leiðinni út að hitta góða konu við Tjörnina. 

Sjáumst á eftir

Zyrnirós

Þyrnirós er til sýnis í Tjarnarsal í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Kanski það sé komin tími að vakna upp úr dáinu, taka sig á bæði líkamlega og andlega.  Hef verið að spekulera í að virkja ljósið í andanum og nota hann. 

Ísland hefur undarleg áhrif á mig. 

Ég fór í kirkjugarðinn í gær og sat í brjáluðu andans roki og grét í minningu fruma minna.  Hann var svo mikilvægur, vonandi læri ég að koma fram á réttan máta og heiðarlegan, vera sjálfri mér sönn og hrein.  Það er ekki vandlifað, eða hvað?

Lífið er allt of gott til að flækja það.


Orð

um orð.

Óskin

Ósk (í vinnslu) 120 x 35

Átti góðan dag með sjálfri mér.  Fór og hitti galdramann og ákvað að keyra á fjall.  Tók Suðurlandið og kom svo heim í kotið.  Sagði eins og catwoman "honey I´m home" eða what ever og tók mig til og útbjó heimalagaða pizzu.  Allt var perfect þegar kom að mozzarella ostinum ... þvílík píkufíla af ostinum svo honum var hent og mildur skólaostur var settur á gjörninginn.

Nú hugsa ég .... hvaða reynslu hef ég af pjólu ilmi (píku fýlu) ... sko ég heyrði söguna um gamla manninn sem gekk á markaðstorginu.  Elskan var sjóndapur og gamall eftir að hafa lifað heila kuntuævi í mikilli gleði.  Þegar hann kom að síðasta básnum á markaðnum tók hann ofan hattinn sinn og bauð go afton mine damer og þar var Ole gamle ostakaupmaður í allri sinni dýrð.

Ég hef að auki heyrt íslenskar ostasögur sem eru hrikalega neyðarlegar, t.d. ostur settur í miðstöð á gömlum bíl og allt kynnt í botn.  Stúlkan sem var í bifreiðinni var komin með fætur í kross og alles ..

En þetta á sko ekki að vera eitthvað píku blogg ekki það að píkur eru flottar og orðið píka er svolítið gay orð ... wonder why???

Þessi bloggfærsla er komin út fyrir allt það eðlilega sem þó er nokkuð óeðlilegt.  Mig sem langaði að sýna ykkur þróunina á ÓSK sem er mynd í vinnslu.

læf is gúdd.

 


Eina ósk ...

... hvað eða hvers myndi ég óska mér?

Ég er búin að fara þúsund hringi í hausnum á mér og er vægast sagt ringluð.  Einveran gefur kjérlingunni færi á að hugsa á þúsund snúningum.  Hversu  mikið vit Whistling er óvíst um.

Ég dró mögnuð galdraspil hjá bloggvinkonu minni Katrínu Snæhólm og það eru viss skilaboð sem ég tileinka mér og finn hvernig ég olnbogast í hugsuninni.

Ég ætla að nota litina mína meira og snúa þeim í rétta átt, hvað svo sem það skilur eftir sig.

Tilfinningaskalinn er búinn að ná töluverðum bassa og rjúka upp í sópran á hugsuninni einni.

Ljáðu mér eyra

Ljáðu mér eyra

Nóttin hefur hjúfrað um sig og ég sit hér alein, að vera AL í EINNI, þurfa að þola eigin félagsskap, þola sjálfið.  Það sem fólk hugsanlega kærir sig ekkert um og aðrir kjósa.  Sami gallinn, sama konan, í gær og í dag ...

Já, líf úr lífi ............ ég er enn að pússla. 

 


Ást og efni ....

þegar ástin nær að snerta vitund þína .....  Þegar lífið verður svo undurljúft og fallegt, lófar þínir þvalir og fjöldinn allur af fiðrildum kitla þig að innan.

Ástin er stórkostleg þar sem að líkaminn framleiðir góðar kenndir og skrítnar, stundum fyndnar en gera þig oftast pínu kjánalegan ....

Ástfangin

Það sem mig langaði að minnast á er ÞAKK LÆTI.  Geggjað orð, vera uppfull af látum þakkarinnar!

Af hverju er ég þakklát?  Vegna þess að þrátt fyrir mig auma þá hef ég heilsuna mína, ég er ófullkomin í heimi þar sem við eigum öll færi á að grípa sneiðina, bara ef við berum okkur eftir henni.

Ef ég ætti eina ósk þá myndi ég nota hana til að lýkna, sem kemur mér í þá stöðu að ég get haft áhrif, HAFT ÁHRIF!  Þrátt fyrir að eiga ekki þessa ósk.

Óskin er einfaldlega minn vilji og orka alheimsins.


Bossaköst

..... Get svo svarið það að 12 ára taktarnir voru teknir og náði kjéddlingin að taka hring í Egilshöll á fremur óskerptum skautum.  Eitthvað voru takkarnir að þvælast fyrir mér og tók mín heljar dívu, var fremur hipp og kúl. 

Náði mér í eymsli á hné og kramdi á mér vinstra brjóstið svo að spöngin (í tvíburahúfunni) fann meir að segja til. 

Staðin upp ...
 

On ðe boss

Hér er ég eftir slysið með listdansþjálfaranum mínum, G.H. peppar í mig kjarki eftir að hafa hvatt mig á fætur.  Sökum viðbjóðslegs krampa þurfti ég að yfirgefa svellið og tók sæti með klappstýrunni Elínu Björk, viðurkenni að flikk flakk heljarstökk var ekki alveg að gera sig hjá mér .....  Whistling

Sæta Haddan mín 

Haddan mín ofurfín

Feðgar að leik

Voffaleikur á túninu hjá ömmumús

Góður dagur framundan, fer í viðtal um 11.leytið, niður í ráðhús rúmlega 1200 og í mátun klukkan 1400 og svo tekur risaeðlan dans klukkan 1500 ....

Síjúleiter gæs!

 


Ótrúlega flottir leggir ...

... meina strákar!

Sit hér ALEIN, skutlaði fjölskyldunni minni í flug til Keflavíkur í dag.  Þögnin kollvarpar sér í hausnum á mér og vel þrifalegir drengir hlaupa um á skjánum.  K.R. (mitt gamla félagslið) er að keppa við Breiðablik.

Ég held með K.R. þar sem gamla hjartað slær í takt (núna var sko næstum því mark en K.R.ingar komu snilldarlega vörnum við) .....

Breiðablik er greinilega í ham þó ekki jamon serrano! 

Nú eru elskurnar mínar sennilega að lenda eða lentar Spániá!  Ég er strax komin með söknuð í hjarta.  Hins vegar er allur aðskilnaður hollur svo framarlega sem hann varir ekki of lengi.

Salut

Ég sendi ykkur mis saludos ....

 

 


Listasýning bloggkvenna ....

Gegnsæji

Á móti sól

Set hér inn nokkrar myndir af sýnigunni.  Það hafa allnokkrir bloggarar birt myndir sem er gott mál.

Íris Hadda og Enrique með mömmu sinni Tekið yfir salinn

Tekið yfir salinn Sögustund 

Ljósmyndarinn minn tók ekki margar myndir, misskildi mig og hélt það mætti ekki taka nærmyndir!  Já, já svona er það nú bara.

En varð bara að setja inn þær fáu sem ég á!

Það er smá söknuður að myndast í hjartanu mínu þar sem að fjölskyldan mín er á útleið.  Flýgur til Spánar seinnipart dagsins.  Tíminn hefur ekki látið að sér hæða og við höfum notið hans hver á okkar hátt.  Vona að íslenskuáreitið hafa leitt til góðs og fólkið mitt geti haldið áfram að tjá sig á íslensku þegar ég hverf til þeirra nú seinna í mánuðinum.

Heart

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband