Færsluflokkur: Menning og listir
31.8.2008 | 10:33
Nánd kærleikans ...
... þegar sunnudagurinn býður daginn með svona fallegu veðri að það glitrar í glugga þá finnur kona kærleikans tilfinningu.
TAKK FYRIR KOMUNA ÞIÐ SEM SÁUÐ YKKUR FÆRT að heiðra okkur blogglistakonur með nærveru ykkar. SAMSÝNINGIN stendur til 14.september.
Fjallið mitt tók myndir en vélin er í bílnum þannig að myndirnar koma síðar!
Í dag þá ætlum við að skella okkur í Brunch hjá Siggu vinkonu og þaðan munum við fara pakksödd á skauta. Jedúdda mía, veit ekki hvernig þetta virkar því síðast þegar ég fór á skauta í leigubúnaði þá kipptist ég um allt svell með sinadrátt! (hrikalegt) svo verður brunað í naflann (Þorláks city) og þar bíður okkar heimboð hjá ömmu mús um ca.1800 .......
Set svo inn myndir af sýningunni þegar ég fæ vélina, njótið dagsins ......
29.8.2008 | 21:39
Görótt veður og galdrakonur ....
....
Bloggið mitt hvarf eins og abrakadabra þegar sonurinn fór í leik í tölvunni.
Ég segi því ABRAKADABRA á móti og langar að segja ykkur sem staldra við hér að á morgun LAUGARDAG, 30.ÁGÚST munum við bloggvinkonur slá upp heljarinnar gleði og sýna ykkur listina okkar. Hjaranlega VELKOMIN að koma og sjá okkur, vini og fjölskyldur milli klukkan 15 og 17 og þiggja léttar veitingar.
Bloggvinkonur á góðri stundu.
VERTU VELKOMIN AÐ KÍKJA VIÐ Á SAMSÝNINGU OKKAR Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR, laugardaginn 30.Ágúst milli klukkna 15 og 17.
VIÐ HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG.
29.8.2008 | 01:10
Saxast á ...
... Minni svefn meira fjör!
Nú er best að ákalla meyjuna sem aldrei svaf og naut einungis ásta með bláeygum karlmönnum.
Reyndar gerði hún undantekningar þegar henni leist sérstaklega vel á gripina og leyfði þeim að strjúka hödd sinn er náði að lendum hennar.
Komdu til mín meyja, ástar og vöku
komdu til mín meya
veittu mér
ást,
vöku
og heimsins ráð
komdu til mín meyja, gefðu mér vökuna
og þorran sem kona þarf að þreyja.
Við familían vorum í yndislegu matarboði í sveitinni, fengum þar grillaðan lax sem var með mangó chutney og pistatsíu ábreiðu og litlar persil skreytta bullur. Örlítið hvítt til að skoða niður og nú situr kona og leggur lokahönd á sína þreyttu önd og ákallar meyju ástar og vöku.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.8.2008 | 00:13
Fullkomnun ....
.... Í dýrðarljómanum gægjist hann með alla sína liti, sjálfur regnboginn þar sem blóm í öllum heimsins litum vaxa og dafna. Þar sem hvíldin og kærleikurinn hjúfra sig í rót eilífðarinnar.
Ég sá hvar draup af honum fögrum litríkum demöntum og reyndi eftir megni að gripa þá en greip þess í stað mína eigin hamingju blandaða litbrigðum hins eina sanna konung litanna.
Ég er ánægð með daginn sem leið með mér og ég er þakklát fyrir svo margt! Ég finn gleði í hjartanu fyrir nýrri sköpun og svo er ég alsæl með doltið sem best er að halda fyrir sjálfið. Sumt er okkur kærara en margt annað og ef best skyldi segja þá er þetta svona líf úr lífi "thing" Já, nú er ég komin út fyrir samhengi en það skiptir kanski ekki öllu máli.
Dagurinn var dásamlegur, undirbúningur og þjóðbúningadúkkan ég hef haft í nógu að snúast og þarf að hringsóla og snúa mér inn í morgundaginn. Upphengjur, krókar og krækjur, hjal og mal við Ellu sprellu Cinderellu og svo er sýningin barasta að fara að skella á ....
Guðný vinkona kom í heimsókn til okkar í Villihollt og við grömmsuðum í ísskápnum og græjuðum matarkyns. Það var ákveðið að fara á skauta á sunnudaginn Haddan mín er sérlega sæl með það !!!
Ég get svo sem svarið það fyrir ykkur að ef ég gæti séð norðurljósin núna þá væri lífið fullkomið!
27.8.2008 | 01:12
Á ljósi regnboga.
Mér var hugsað til Erlu Álfakonu í dag þegar ég keyrði um Hafnarfjörðinn. Við hittum vinkonu okkar í mýflugumynd, sáum 2 Rotweiler hunda og þann allra fallegasta regnboga ever.
Fjallið mitt sagði, sjáðu !!! Þetta er tákn. Já, því var ég sammála því að regnboginn var ekki einn heldur umlék hann annar bogi er geislaði af himnum.
Tveir sveigir sem létu loftið lýsa sín á milli.
Galdrar og töfrar það er víst ekki frá því farið. Við vorum stödd við álfalendur og kanski ekki skrítið að augu okkar hafi fyllst af lifsins lit og gælt hjörtu okkar gleði og þrá.
Þegar veröldin hvíslar að þér þá verðum við að leggja við hlustir. Við göngum í gegnum um lífið með opin augun en sjáum ekkert, með opin eyrun en heyrum ekkert. Við eigum að hlýða hjartans kalli með opið hjartað sem þráir líf í lífi og ljósið eina ....
Já, kanski sá ég regnbogamæðgur eða feðga í dag .....
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.8.2008 | 11:11
Leitin að fimm fiðrildum ....
.... þau eru í regnbogans litum og hafa náðargjafir himnaherrans.
Talandi um regnboga þá fengum við merki um hversu yndislegur bær Hafnarfjörður er. Verð að skoða ljósmyndirnar sem Fjallið tók því ég held svei mér þá að ég hafi móttekið tákn og þar vinna hin fimm fallegu fiðrildi hamingjunnar.
Ég segi ykkur frá þessu síðar en allt sem er gott á að deila með öðrum, ekki satt!
Eigið góðan dag og þið sem ég hitti á Menningarnótt þá segi ég bara takk fyrir tilveruna. Ég fór sérstaklega á laugarveginn til að sjá sýningu í nýju gallerýi Marló númer 82. Þangað dró Ragga litla forvitni mína! Að númer 66 dró Katrín Snæhólm athygli mína og litlu neðar Thorberg.
Takk fyrir mig.
Einnig litum við inn hjá Guðmundi grillara og smelltum okkur svo í Tilraunamaraþonið ...
Flugeldasýningin var ekkert slæm!
22.8.2008 | 16:21
Kjéddlingarpartý á Gili ....
Í kvöld er mér boðið í frúarteiti hjá Frú Gilitrutt ... æj hún er nú svo mikið krútt og verður fugladansinn eflaust tekinn og mun hefðarfrúin sveipa sér í sitt helgar átfitt sem er fallegasta lundalopapeysa sem ég hef séð.
Allavega þá er hér 50% hamingja á heimilinu þar sem að íslenski hlutinn í barninu mínu vann stórsigur á Spánverjum og það grætur hinn helmingurinn .... Nehhhh bara grín!
Mærin mjóa skrapp í miðbæinn og lét verða af því að hitta Biddu krútt og áttum við stórkostlega stund saman. Reyndar voru þær nokkrar og fyrir mína parta þá naut ég tímans .... Bidda þú mætir bara með hvítu peysuna þegar við tökum miðnætursnörlið.
Kanski ég skreppi til Birnu og kaupi gallann sem ég sá og færi þér þann hvíta fyrir næsta hitting.
Hall ó ó hallí hey, það er komin helgi þó ekki Helgi Seljan sá knái og frái fréttamaður. Ég fann að litla hornið sem býr í mér er orðið að svona lukkuskeifu sem bullar í gleði og gæfa ...
Best að senda Gilitrutt vinkonu minni línu en ég var að enda við að hrella hana og best að leiðrétta bullið í mér ....
Drengurinn að falla í trans í Smáranum
(hann elskar þessa mynd sést bara í hvítuna í augunum hans)
Sæta Haddan mín
Í kvöld er hornalaust kvöld og við skulum vona að spádómsgáfurnar skilji ekki við konu á svona kvöldi.
Góða og Óða helgi.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
19.8.2008 | 22:11
Að gefa mynd nafn ...
.... Gróu Sögur er nýjasta myndin mín sem ég vinn nú að ... nafnið verður kanski ekki endilega vinnuheiti myndarinnar en þegar hún hefur hlotið lokastrokuna þá kemur nafnið skýrt!
Sýningin mín í Gallerý Undir Stiganum lýkur á morgun og mun ég taka hana niður og hafa samband við ykkur sem keyptuð myndir (sum ykkar hafið fengið ykkar flísar og myndir) en það verður nóg að gera hjá mér á morgun því ég mun síðar halda í heimahús og fá ægifagrar neglur til að verða fínni fyrir menningarnótt sem og laugardaginn okkar 3o.Ágúst.
Ég fékk smá verkefni í dag sem ég þarf að leysa fyrir klukkan 10 á fimmtudag og verður það gert í gleði. Mér var falið að útbúa tækifærisgjafir sem þurfa að fara í skreytingu svo það er víst betra að fara að skyrpa í lófana. Ég sé til hvort það verður ræs and sjæn klukkan 0600 í fyrramálið til að fylgjast með leik Ísland - Pólland (ógó freistandi) ....
Fór í risaeðlugallann og fékk unaðslega heilun, bowen gælur og höfuðnudd, enn sem komið er finn ég ekki til og er fersk og falleg!
Talandi um nöfn á myndir þá man ég að dóttir mín Íris Hadda valdi sitt nafn sjálf .... það kom í tæru hvísli þegar við mæðgur keyrðum yfir Þrengslin í snjóbil og stormi. Litla dúkkan lá í barnabílstólnum og valdi Írisarnafnið en Höddu nafnið var ekki hnikað.
Nöfnin, Dröfn, Dóra, Björg, Guðný, Elísabet og Kolka voru ofarlega á listanum og mikið hlær Írisin mín að nafninu Kolka ( mér finst það afskaplega skemmtilegt nafn) ... En, sálarhvíslið vann og nafnið hennar fer henni afskaplega vel.
Áfram Ísland!
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
19.8.2008 | 09:11
Núið getur verið snúið ...
... eða hvað?
Nei kanski er ég bara snúin!
Sit með morgundreitilinn og heyri bara í gamalli eldhúsklukku, Fjallið í íslenskunámi og börnin sofa.
Er að vinna í myndinni "Gróu Sögur" sem verður opinberuð á samsýningu okkar vinkvenna - bloggkvenna, brjálaðar kvennsur í ham .......
Hér er ég
um mig
frá mér
til mín
En, hvað um þig? Hvað ert þú að gera við núið þitt?
18.8.2008 | 10:55
Kvikyndis gluggaskraut ....
... Það má segja að kvikyndis gluggaskrautið sé eitt stk fljúgandi mávur. Hrikalega er mikil mávaplága hér í höfuðborginni. Ég væri alsæl ef þetta væri Krummaskinn en Mávurinn er ekki beint minn fugl og mikið asskoti er hann kræfur.
Á toppum Breiðholtsins er konu farið að líða eins og í bíómyndinni Birds og Mávurinn er í aðalhlutverki. "Æm skerd" .... spurning um að gera gogga eyrnalokka eða ökklaskraut ??

Hot goggur eða hvað finnst þér?
Mitt fólk spilaði vel á golfmótinu í gær og komu þau bæði heim með gjafir sem er gott og vel. Ég brunaði í höfnina til að ná í gripinn minn og ætlaði sækja konu heim en það fór nú öðruvísi en á horfðist þar sem að seinkun varð og ég beið og beið eftir að keppni lauk en sökum veðurs þá var mikil seinkun sem var ekki fyrirséð ..... Sigrún mín syng lagið Sorry með Tracy í huganum ....
Ætla í fjarnám í haust!
Ætla að fjárfesta í helli í haust!
Ætla að kaupa mér Bo Derek galla og hef það markmið að komast í hann
Ætla að syngja lag á plötu!
Ætla að njóta lífsins númer 1, 2 og 3 .... !
Svo í framhjáhlaupi núsins eins og ég vísa til þess sem ég ætla í haust þá er ég að spá í að njóta dagsins og gera eitthvað skemmtilegt! Byrja jafnvel á útsýnisferð um Súðavog
Hver er kvikyndi Mávurinn eða Moi?