Færsluflokkur: Menning og listir

Ferskleyki númer eitt ...

... Fjallið svaf yfir sig i morgun en Imma reddaði því með símhringingu (3 sko) fast var legið á eyranu og eitthvað klikkaði LG vekjarinn þar sem draumaheimur umvafði mann og meyju.  Vona að elskunni minni, þeim báðum gangi vel á golfmótinu á Þorláksvelli.

Við mæðgur erum vakandi og rétt i þessu barst frétt um heppinn lottóspilara sem vann 66 millur!  Til hamingju með það og megi almættið vaka yfir þér.  Peningar eru afl sem þarf að fara gætilega með því eins og orðatiltækið segir, margur verður af aurum api.

Að morgni
Að morgni, olía á striga

Sunnudagur

Svo bjartur og fagur, 

að morgni kona ber.

Kitlar il þú yndis dagur

heill þér englaher

Heart

Familían fór í veislu í gærkvöldi og var mikil gleði þar sem börn og fullorðnir gæddu sér á fiskisúpu og pylsum í brauði.  Við fórum heim um miðnætti og greinilega að virkni risaeðlunnar gerði vart við sig og ég var að farast í höfðinu.  Engu líkara en það hafi verið að skrúfa af mér hluta höfuðkúpunnar ....  Ég tók Ibuprofen og dormaði aðeins í leisý boy og dreif mig svo uppí og er mun betri núna.

Sunnudagur til Sælu


Risa eðluleg eitthvað ....

Í dag dreif ég mig í risaeðluskoðun, man aldrei hvað þetta heitir, spjald og hryggjajöfnun ...

Úffffffffff, mér líður eins og ég hafi orðið fyrir heilum kók bíl, er þung og ég ræð varla við herðarnar né höfuð mitt!

Það brakar meira að segja í mér allri.  Ég pantaði mér tíma án þess að vita mikið um þessi mál en á endanum fékk ég nudd og kukl.  Eftir tímann þá spurði ég galdrameistarann um heilun og sagði hann þá að það hefði verið gjöf með tímanum.  Já, en hvernig vissi ég það? 

Ég bæði fann það og sá dýrðarlit og sýnir sem hann sendi mér.  Ég verð orðin hressari á morgun!

Ég lét verða af því að kaupa bókina sem ég heillaðist svo gjörsamlega af.  Það má segja að bókin hafi seitt mig að sér, ég tók hana upp og fann að mig langaði en lagði hana niður aftur.

Bloggvinkona K.S. minntist við mig á þessa bók og má segja að við höfum upplifað svipað tákn ef tákn má kalla og ég fór og keypti bókina í fyrradag og notaði tækifærið og opnaði kiljuna.

Fyrir ykkur sem ekki vita þá eyri ég mér frekar ílla við lestur kýs frekar allskyns dundur en sökum risaeðluliðan minnar hef ég varla getað slitið mig frá þessari bók, Daggardropar e. Kleópötru Kristbjörgu ... Ég hef meir að segja séð nýja flís fæðast.

Stenst nú ekki mátið að birta hér nokkrar myndir af sýningunni Gallerý Undir Stiganum.

Ástarkoss

Ástarkoss, akrýl á striga 30 30 "seld"

Elíf ást
Eilíf Ást, akrýl á striga 30 x 30 "seld"

Hún bauð uppá kaffi og vöfflur

 Með kaffinu "seld"

Tryggð

  Tryggð "seld"

Sjólistarkona

 Sjólystarkona "seld"

Með Sólblóm

Með Sólblóm "seld"

   WizardToungeGrinHaloWhistling

Leyndarmál
Lítið Leyndarmál, akrýl á striga 30 x 30
Ljúf Ást
Ljúf Ást, akrýl á striga 30 x 30
Heart

Best ég komi mér fyrir á ný við lestur bókarinnar Daggardropar .... svona til gamans þá er þetta 3ja bókin sem ég kaupi mér á klakanum og hefur hún gjörsamlega náð athygli minni ....

Ooooooog svo sendir RISAEÐLAN góðar kveðjur í nóttina ..........


Á hól í stuttum kjól ....

... Mamma, mamma, átt þú þennan kjól?

Íris Hadda sá kjól sem móðir hennar hefur aldrei farið í og var ánægð með þá gömlu.  Nýmóðins kjóll á kjéddlinguna.  Ég verð fín þegar ég fer í kjólinn en þetta rifjaði upp gamla kjóla sem móðir vinkonu minnar átti og lánaði mér, við erum að tala um BIG TIME heimasaumaða kjóla með kúl brjóstasaumum, skósíða með karakter!

Rólegur og dásamlegur dagur .... sofið út og "eldað" kaffi.  Það drukkið og stefnan tekin á Örninn í Skeifunni að ná í reiðhjólin okkar.  Hellidemba = ekki hjólaveður.  Mín með nýstraujað hár sem var flöffý og reglulega lifandi LoL rigningin er bara dásamleg!

Við fengum bílinn hans pabba lánaðann og keyptum hjólagrind f.kúlu og græjuðum málið.  Börnin fóru út að hjóla og ég skrapp í heimsókn til Rúrý vinkonu, hún er yndisleg og sterk! 

Systkyn sæt

Horft til himins ....

Sumarfrí Ísland

Hafravatn í allri sinni dýrð

Stúlka

Dótlan mín

Drengur

Dúllinn minn

Það var sko líf og fjör hjá okkur þegar við tókum stöðuna á Hafravatni.  Sú gamla lét sig hafa það og fór líka útí OG HÁflóð minningana óð konu að mitti.

Við erum nýskriðin heim eftir hlýtt og notalegt heimboð hjá Albert vini, mikið skrafað og spekulerað.

Góða nótt í alla nótt .....


Að vera óstjórnlegur ....

hefur ekkert með fegurð nér fitugildi að ræða.  Vera bara einhvernveginn óstjórnlegur með sjálfum sér.  Pirruð og æst yfir því að sumir (Fjallið) lætur ekki alveg að stjórn.

Þegar ég var orðin yfir mig leiðinleg með úfinn á tungubroddinum opnaði ég meilið frá Dísu Dóru og þá kom eftirfarandi boðskapur .............

 

Það er mikilvægt að þú einbeitir þér að eigin þroska. Hvað sem aðrir segja eða gera, þá munu þeir sem hafa fundið sitt styrka sjálf sigra að lokum. Hinn merki japanski höfundur Eiji Yoshikawa (1892-1962) skrifaði í skáldsögu sinni Miyamoto Musashi [saga um sautjándu aldar skylmingameistara með sama nafni]: “frekar en að hafa áhyggjur af framtíð þinni, og hugsa ‘kannski ætti ég að verða þetta eða kannski ætti ég að verða hitt,’ skaltu fyrst vera rólegur og byggja upp innra sjálf sem er eins sterkt og óhagganlegt og Mount Fuji.”

Hasta la Pasta ....

... voru orð mesta lygahlaupara Suðurlandsundirlendis klukkan 18 hundurð nú seinnipartinn í dag.

Ramon fjölskyldan hélt á Heiðina í glampandi eftirmiðdagssól og naut fegurðarinnar sem flaut að Ingjólfsfjallinu.  Merkilegt hvað allt er fallegt í léttu sólskini.  Á leiðinni í höfðuborgina var sungið og trallað, aðallega trallað og bílstjórinn ók einbeitt.  Þegar Öndvegissúlurnar voru í sýn minninganna ákvað kjéddlingin að taka smá aukarúnt heim og beygði við Hafravatnsafleggjarann.

Þegar hér var komið höfðu börnin gengið í hlíðinni og notið sólarglætu Selfyssinga, drepið á dyrum í höfn Þorláks og verið í skrúfubardaga á verönd Krúsarinnar.  Framundan var bikinítæm, hersögur a la afi og Eyri, litli hafsjór minninganna þar sem tíminn stóð í stað og ungfrúin gerði bombur í ísköldu vatninu og lék sér með sviðakjammana!

"MYNDIR SEINNA ..... ÞVÍ VÉLIN ER BATTERÍSLAUS"

Það var ákveðið að koma aftur að Hafravatni því við nutum okkar þar!

Heart

Suðurland var fallegt með öllum sínum fögru meyjum.  Stefnan var tekin á Kaffi Krús á Selfossi til að hitta skemmtilegar konur sem sumar hverjar brögðuðu á vænum Hnallþórum .... Ásdís Sig, Hrönn, Ollasak og Dísa Dóra sem og Leynigesturinn Fanney og Tína .... Takk fyrir skemmtilega stund Heart

Já, friðarnærurnar litu dagsins ljós, ógurlega sexý og vandaðar!


Suðurlandsundirlendið og þess fögru meyjar ....

....

Að hoppa og skoppa, taka á rás og finna sumarfrísstemminguna!  Að tilla sér í tryllitækið og láta vindinn leika um ljósa lokkana (er með rúðuna niðri, EKKI blæjukaggi) ....

Stefnan er tekin á Sólheima og kaffisötur ..... Þorlákshöfn, StokksEyrarbakki og Selfoss (ekki í þessari röð endilega) ....

Á Suðurlandi býr hópur af fögrum meyjum sem ég ætla að sýna Fjallinu mínu, þar eru líka álfasteinar og hallir og fegurstu Fjöll.  Strákarnir eru alls ekki slæmir neitt en ég ætla ekki að sýna mínum heittelskaða gamla kærasta né neitt þannig sko!

*******

Sumarveðrið er hreint yndislegt og sjóndeildarhringurinn faðmar með sínum breiða faðmi.  Útsýnið er úrvalskostur og fegurð náttúru hreinn og beinn unaður.

Kjéddlingin er slæm í hnakkanum, svo sem ekki algengur kvilli hjá konu á miðjum aldri en jú þessi kona sem um ræðir er oft slæm í hnakkanum en það er af sökum höfuðhangs og hoks með pensil.

Lítið leyndarmál

Lítil Leyndarmál er akrýlmynd 60 x 80.  Hér er brot fyrir ykkur sem viljið gægjast!

SAMSÝNING okkar bloggkvenna er á LAUGARDEGINUM 30.ÁGÚST. Ég hlakka til að hitta ykkur sem flest en sýningin stendur til 14.September.  Þér er boðið að fagna sýningunni með okkur laugardaginn 30.Ágúst milli klukkan 15.00 OG 17.00 ......

Ooooog svo er það bara boogie woogie út alla vikuna en fyrst er það Suðurlandið undurfagra! 

 


Að velta sínum eigin vanga ...

... svo undurblíður milli tveggja handa og hugsun hoppar og skoppar með.

Dagarnir eru hver öðrum betri, sól og sæla .... rigningarúði og gola = það er bara eitt Ísland!

Fjölskyldan átti leið í miðbæjinn í gær og lögðum við bílnum á Ægisgötu og gengum niður Vesturgötuna og rifjuðust upp ýmis prakkarastrikin og mér var hugsað til Nilla á númer 28, Gilla á 30 og Jónu hans Tryggva á Nýlendugötunni frá því í denn.  Í dag hugsaði ég til bloggvinkvenna sem búa í grennd og mun ég gefa mér færi að hitta þær á meðan á þessari löngu dvöl stendur.

Veðrið var hreint yndislegt og stóðum við í glampandi sólskyni í miðbænum og hlustuðum á tónleika eftir gleðigöngu Gay Pride 08.  Páll Óskar er hreint frábær listamaður og fór þessi skemmtun ágætlega fram í blíðviðrinu !!!

Akrýlflís

Úr undirdjúpum er akrýlflís sem hangir nú á sýningu Gallerý Undir Stiganum sem staðsett er í Þorlákshöfn. Sýningin stendur til ca 20 ágúst!

Af nógu er að taka í undirbúningi fyrir Samsýningu Bloggkvenna í Ráðhúsi Reykjavíkur sem verður í lok þessa mánaðar.  I dag ætlum við að hittast og fara yfir nokkur atriði og njóta þess saman að vera í svona dásemdar drottninga veðri.

Þetta er dagur tækifæra, ekki látt þitt úr greipum renna.


080908 .... 040169 ..... 121165

1.2.3.4.5 DIMMALIMM ... Tölur í bók eða jakka og kanski frakka!

Ég var næstum því búin að giftast konu í gær!!!  Og, get sagt ykkur að það var ekki hvaða kona sem er.  Má ekki upplýsa ykkur um hver hún er en ef ég hef skilið málið rétt þá gerði hún ungmeyjarheit um að gifta sig á þessum blessaða degi sem gærdagurinn var.

Lagt var á ráðin og leitað var að karlfangi fyrir hana en ekkert gekk og við gengum nánast í það heilaga ef ekki hefði verið fyrir þá sök að ég ER gift og gekk að eiga Fjall frá Iberíuskaga. Tvíkvæni er ekki löglegt hvorki í hans kaþólska trú-umhverfi né í þeirri villimannatrú sem ég aðhyllist.  Ekki það að kosturinn við að eiga 2 maka eru greinilega mun fleiri en gallarnir (förum ekki nánar út í það) ....

Ásdís og Lilja spurðu mig í síðustu færslu um stærð myndarinnar "Stúlka við fjallsrætur" en ég man ekki stærðina (gæti verið ca. 22 x 37), heimasíðan mín www.zordis.com er svo óþjál í fartölvunni minni að ég kemst ekki inn til að sjá stærðina OG það hefur EKKI verið gert SNITTI á síðunni síðan í febrúar fyrir einu og hálfu ári síðan.  (fari það í geltandi)  Ég þarf annað hvort að fá mér nýja síðu eða fá manneskju sem kann á þetta........blablabla

Af öðrum heimi.

Af öðrum heimi (mynd í einkaeigu)

Birti hér mynd af fólki með opin augun.  Ég hef verið spurð að því af hverju ég máli fólk með lokuð augu og bara með eitt ....?  Já, spurning!

Að vera dreymin og gleymin að sjá heimin í því ljósi er skín þér innra.  Eins og dropi í daggarhafi ræ ég minni duggu og fagna nýjum degi. 

Ekki varð úr brúðkaupi enda harðgift kjéddling!!!!

 


Að opna augun .....

Að koma sér í gang .....  Þó ekki stigagang!

Það var árrisul kona sem fékk sér kaffisopa í morgun og hef svo setið við að dunda mér.

Dundur er sætt orð, svona orð sem þú getur hjúfrað þig oní og látið tímann líða endalaust.  Mér er víst ekki til z-unnar boðið og þarf að koma mér í stuð og halda mér við efni.  Tíminn er hrekkjóttur og líður eins og elding fram úr mér og ég á fullt í fangi að fylgja honum í takt.

Día Maravilloso 9
Á góðri stund Spániá

Inn í bóli liggja börnin mín 2 og Fjallið er farinn í íslensku kennsluna .... kemur svo altalandi á þessu skrítna máli okkar heim og ég fyllist auðmýkt og aðdáun og kasta mér á rætur hans.

En svona án gríns þá finst mér vel staðið að námskeiðahaldi hér í Reykjavíkurborg þrátt fyrir að íslenskukennsla fyrir börn sé ekki sem skyldi.  Þeir feðgarnir ætluðu að skella sér í sumarfríinu á námskeið en sonurinn komst ekki þar sem engin námskeið eru í boði fyrir börn.

Stúlkan í hlíðinni

Stúlkan beið á hólnum

þar til Fjallið kom heim. 

Tungutak í tónum

hann íslensku kvað,

altalandi garpurinn

stúlkunnar bað!

 


Smukke ræje, hælsæri og leggjalangur ....

.... Leggjalangur er af svanaætt og heillar allar dömurnar eins og Leda blindaðist í denn.  Hann er giggóló síns tíma og gerir konur trylltar af ást!  Í heimi þar sem allir eru eins og ástin blind, fæddist lítil mynd í sólríku umhverfi.

Í víkingaveislu fengum við lánað gps tæki svo að Fjallið gæti farið ferða sinna. Þessi elska ætlaði að venja sig á strætó sem er hið besta mál en kennarinn í mér hefur sofið og sofið og ZZzzzzzzz og er sennilega steindauður.  ÞANNIG AÐ gps tækið er allra meina bót og nú getur hann ratað þangað sem hann vill.....á morgun byrjar hann í íslensku fyrir útlendinga og fer námskeiðið fram í Gerðubergi. 

Svefnvenjur okkar hafa verið með ólíkindum og á morgun er ræs klukkan 07.00 og Fjallið mætir stundvís klukkan 08.30 í sinn fyrsta íslensku tíma.  Ég er rosalega spennt fyrir hans hönd og ætla að nota þennan tíma til að klára undirbúning fyrir SAMSÝNINGU OKKAR BLOGGKVENNAElínar Guðbrandsdóttur, Katrínar Snæhólm, Guðnýjar Svövu Strandberg, Katrínar Níelsdóttur og Zórdísarinnar sem haldin er í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR í lok ágúst (nánari tímasetning auglýst síðar) ...

Þeri sem æskja þess að fá boðskortið heim endilega senda mér línu zordis@zordis.com en fyrir utan þá eru allir velkomnir að njóta litríkra og ólíkra geisla okkar bloggvinkvenna!

Helvettans hællinn á mér er aumur en ég týndi gúmmísóla undan hælnum á lágbotna skónum mínum.  Heyrði skemmtilega sögu um afhverju karlmenn eru slæmir á beddanum, mælt er með fótsnyrtingu og af þeim sökum fæddist myndkrílið "hælsæri" ....  LoL (birtist ekki hér)

Syning Gallery undir stiganum

Hún vafði hann ást og hlýju.

Akrýl á striga 20 x 40

Þegar halla tekur að degi og ljósrauðir himnageislarnir bjoða þér til sætis, til hásætis er best að njóta gnægðar heimsins og þiggja.

Smukke ræjer flögra um á toppum skýja og danskan hljómar í eyrum eins og hvert annað sælgæti!

Það er bara gott að fljóta með ......

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband