Færsluflokkur: Menning og listir

Myndir og ýmsar syndir ....

..... tja, kanski ekki mikið um syndir nema hvað að börnin fóru í sund og nutu sín í frábærri veðurblíðu og aðstöðu sundlaugarinnar í Þorlákshöfn um helgina.

Við áttum heimboð hjá vinum og þar náðust myndir af okkur hjónunum í vígahug.

'I vigahug   'I vigahug

Skemmtilegur Partýleikur hjá okkur vinafólkinu og er ég þegar farin að hlakka til næsta samkvæmisleikjar.  Allir komu heilir úr veislunni, með alla þessa helstu limi heila.

En, ég tók nokkrar myndir af sýningunni sem var um helgina og mun sýningin standa út þennan mánuð.  Mig langar að sýna ykkur ....................

Syning Gallery undir stiganum Syning Gallery undir stiganum  Syning Gallery undir stiganum

Syning Gallery undir stiganum  Syning Gallery undir stiganum  Syning Gallery undir stiganum

Myndasmiðurinn hvarf svo eftir að sýningunni hafði verið stillt upp, læddi sér út í bíl og sofnaði á laugardeginum og fór síðan út í vita á sunnudeginum og get ég því miður ekki sýnt skemmtilegri myndir en þessar.  Það vantar eiginlega góða yfirlitsmynd en svona geta mikilvæg smáatriði klikkað.  Ekki græt ég það því minningin lifir og margt yndislega skemmtilegt fólk tók mig tali.

Ólafur Ragnar Grímsson og hans frú voru á staðnum en áttu ekki leið um spænskar þakflísalendur!

Syning Gallery undir stiganum
Ég kveð ykkur með bros á vör

 


Góðar viðtökur og gleði ...

á Ungmennahátíðinni í Þorlákshöfn 2008.

Hátíðin mun verða haldin á Grundarfirði að ári og er það hið besta mál.

Ég fagna því að hafa hitt bloggvinkonur og er það í senn skrítið þar sem þú veist dálítið um viðkomandi án þess að hafa nokkurn tíma hitt manneskjuna. 

Ég hitti bekkjarfélaga og gamla félaga sem var frábært og sakna ég þess að hafa ekki meiri samskipti en þegar 10 ár líða eins blikkað sé auga þá gerir kona sér litla grein fyrr en akkúrat núna hvernig tíminn flýgur, við yngjumst víst lítið svo það er mikilvægt að halda í prakkarann sem hvílir í hjartanu.

Sýningin gekk vonum framar og er ég alsæl með góðar móttökur, þakka þér fyrir komuna því það komu allnokkrir sem blogga, sem lesa blogg og allir hinir!

Morgunleikur

Morgunleikur

Akrýlflísin Morgunleikur rataði sína leið og er ég alsæl með það.

Takk fyrir komuna þið sem sáuð ykkur fært.  Sýningin stendur út ágúst mánuð og er hægt að skoða sýninguna á opnunartíma Bókasafnsins.

Í dag kom tækifærið

ég greip það

ég horfði á það um stund

og faðmaði það

Nýr dagur framundan

og ný ævintýri.


Gallerý Undir Stiganum ....

Í dag föstudag er sýningin í Gallerý Undir Stiganum komin upp.

Ég gleymdi gestabókinni í borg óttans og fór því ferð á Selfoss að versla eitt stk. sem ég og gerði!  Hef grun um að Dísa Dóra hafi mætt mér á leiðinni og þykir það miður!

Hrönn ég kom og bankaði uppá hjá þér en svona í einlægni þá er ég ekki viss um að ég hafi bankað á rétta húsinu því þú komst ekki til dyra.

Allir velkomnir að koma á sýninguna mína um helgina í Gallerý Undir Stiganum, í Þorlákshöfn.

Nánar til tekið í Ráðhúsi Ölfusinga staðsetning við Bókasafn gegnt Landsbankanum.

Húsið er opið til 17.00 alla helgina og opnar klukkan 1300 báða dagana.

Endilega kíkið við ef þið eruð á ferðinni.

kær kveðja,

Zordis


Guðir og gæfir menn ...

.... það má segja að við séum gæf þessa dagana og njótum veðráttunnar.

Ég hafði látið mig hlakka til að fá goluna í andlitið, láta rigna upp undir pilsfaldinn og ganga um í lopapeysunni minni.  Ekki halda að ég sé ósátt, ó nei!!!

það er með ólíkindum frábært veður og höfum við notið þess á okkar hátt þ.e.a.s. þar sem skugginn fellur við sól.

Það var sagt við mig "og þú sem býrð á Spáni og ekki brúnni" ... Nákvæmlega, ég fer aldrei í sólina, sit ávallt í skugganum því sólin getur verið alsherjar "morðingi"

Við mæðgur erum að fara niður á Grensás að heimsækja vinkonu og frænku, svo verður haldið í Ellingsen og eitthvað þurfum við að kaupa af blómum þar sem frænka fær blóm og svo á föðursystir mín afmæli í dag. 

Í dag fara nafnspjöldin mín í prentun og það verður gaman að sjá útkomuna.  Ég get hins vegar ekki ákveðið mig hvaða tillögu ég á að nota svo kanski ég verði með nokkrar bara LoL

Ætla að fá mér kaffi og drífa mig út í sumarið.


Bongó

eða Kongó?

Að vakna nánast steiktur í rúmminu við það að sonurinn vill þjónustu.  Ég fór frammúr og ætlaði að handera morgunverðinn og var litið inn og sá þar litla kvik YNDIÐ mitt hrjótandi í mömmusinnarbóli.

Bara yndislegt að fá prime á morgnanna helt alene með kaffibolla og tölvuna.  Það er svo geggjað veður að ég fór og vakti hersinguna mína því ég er að fara í Ármúlann að leita mér að upphengjum á breitt girni eða segir kona ginni??

Níu líf
Níu líf

Ég komst með allt mitt hafurtask í gegn um spænska eftirlitið, lenti í vandræðum þar sem að 4 töskur vöktu frekari grunsemd og mini me ðe hamsterlady mætti á vettvang með stækkunarglerið og andargogginn til að svara fyrir þetta ósamsetta þak.

Allt er gott sem endar vel og nú er ég að leggja lokahönd í uppsetningu á sýningunni.  Hef svo mikið efni að ég get valið úr því sem ég vill sýna ..... sem er gott!

Njótið blíðunnar, þetta veður er hrein snilld!


Nafli alheims .... ðe city

Síminn hringdi klukkan 05 í morgun og við hjónakornin rummskuðum við sífellda hringingu en héldum áfram að sofa.  Klukkutíma síðar aftur og svo vaknaði ég endanlega klukkan 10.00 við aðra hringingu og dreif mig á fætur þar sem að friðurinn var úti.

Var að spá í að fara á fætur klukkan fimm en kommon, fór seint að sofa þar sem ég var að klára að græja allt fyrir sýninguna sem verður um helgina.

Nafli alheims verður tekinn með stæl í dag og mun ég stilla sýningunni upp ásamt menningarfulltrúa ðe city.  Sýningin mun svo opna formlega 1.ágúst ef ég hef ekki misskilið neitt.

Um helgina er ungmennahátíð í Þorlákshöfn svo það verður margt um manninn.  Þið sem eigið leið um höfnina eruð velkomin að líta við í Gallerý undir stiganum þar sem að þakflísar og verk á striga verða til sýnis.

........................

Eitthvað hefur bilunin á blogginu valdið klessu það sem ekki er hægt að sjá myndir á myndakerfi og það sem er hvað verst er að ég er komin í appelsínuheader í stað þess sem ég var með.  Svonna eretta! 

Eigið yndislegan þriðjudag.


Glampandi sól og sæla ...

 .... Það er nú meiri dýrðin þetta íslenska sumarveður.

Vetrarfötin mín hafa að engu gagni komið og íslenska lopaflísin er afundin og afbrýðissöm.

Laugarvegurinn var arkaður upp að hnjám, fram og til baka!  Við sáum mótórhjólakappa sem við þekktum, Braga Ólafs, Eyþór Arnalds og nokkra fleirí sem ég ekki þekki nöfnin.  Vesturgatan var mynduð í bak og fyrir og litið inn um glugga á Nornakaffi.

Í dag hitti ég Guðný Svövu Strandberg, Elínu Björk og Katrínu Níels í Ráðuhúsi Reykjavíkur.  Sólin geyslaði allhrikalega þannig að ég gjörsamlega blindaðist af tilverunni og sá ekki mætar konur sem biðu okkar Elínar.  Yndislega gaman að hitta þessar konur enda mikil löngun eftir margar bloggfærslur.

Þetta verður hreint yndislegt hjá okkur og mikið fjör þegar við opinberum okkur.  Nánari tímasetning

kemur síðar og þú ert hjartanlega velkomin að samfagna okkur á opnun sýningarinnar "Gegnsæji" ..

Hlýja 20 cm

Hlýja Arkýl á flís

Úr glampandi sól og sælu þá sendi ég ykkur fingurkoss úr höfn Þorláks eða ðe City eins og margir kalla það.  Ég er hins vegar með það á hreinu að hér standi ég í nafla alheims.  Hvorki meira né minna .................................................... Alveg satt!

 

 


How do you like Iceland ?

.......

Þessi spurning hefur verið borin fyrir manninn minn nokkrum sinnum eftir komuna en við erum búin að vera meðvituð í ca. 6 klst.

Við komum seint í nótt og náðum að rata í hús.  Fékk samt mikinn efa þegar að lykillinn gekk ekki að hurðinni.  Við vorum komin með allan farangur á þriðju hæð í lyftulausu húsi og lykillinn var ekki alveg að virka.

Hefði ekki komið mér á óvart ef einhver íbúi hefði komið með kökukefli á nærbrókunum einum fata að lúberja okkur.  Snillingurinn maðurinn minn náði hins vegar að opna á meðan ég var úti að leita að kennileyti hurðarinnar.

Allt gekk þetta upp eftir stirða ferð, lögregluböst á Alicante flugvelli.  Jú,jú ... kjéddlingin var tekin með góssið og heldur var súr á henni svipurinn.

Jákvæðar hugsanir voru sendar út um allt og ég ræddi við yfirvaldið og var send á milli hæða og á endanum fékk ég skriflegt leyfi frá starfsmanni Icelandexpress um að ég mætti fara með þakflísarnar í handfarangri þar sem að regnhlíf gæti allt eins verið lífshættuleg samferðalöngum.

Ég komst í gegn með allt mitt og verkin mín komu heil í gegn. 

Akrýlflís

Ilmur býður eftir sínum nagla.

Um verslunarmannahelgina mun sýning í Gallerý undir stiganum í Þorlákshöfn prýða ýmis verk og er bara tilhlökkun að setja upp myndirnar.  Ég þarf að komast að nánari deteilum um þetta en sýningunni verður stillt upp næstk. þriðjudag ......

Og .... we like Iceland alot!


Bara finn það ...

... þreytan í bakinu klifrar uppá axlir.  Og það veit Guð að axlirnar mínar eru nógu breiðar fyrir allar syndir heimsins.

Mínar, vill bara taka það fram að ég ætla ekki að súta herðubreið fram og til baka vegna synda fyrrum heimsins meistara og geðsjúklinga.

Annars tók ég Biblíuna á loft í gær.  Kærir vinir mínir gáfu mér þessa ágætu bók í brúðargjöf og er hún hið mesta stáss í stofunni okkar.  Ég fletti af tilviljun upp hinum ýmsu "spjöllum" og staldraði við 5 heimskar og 5 hyggnar meyjar. 

Það er nefnilega þannig að samsýning bloggkvenna; Katrínar Snæhólm Baldursdóttur, Guðnýjar Svövu Strandberg, Elínar "björkin" Guðbrandsdóttur, Katrínar Níelsdóttur og Zordísarinnar fer að skella á.  Sýningin hefst 29 Ágúst og stendur til 14 September!

Hyggnar konur halda á völl,

hvað skal nú gera?

Velja nafn og prýða höll,

Ráðhús Reykjavíkur bera.

Mála meyjar hjartans köll,

hver í sínu horni.

Gegnsæji um víðan völl,

þora, koma og vera.

Ég geri ekki ráð fyrir miklu bloggerýi á næstu vikum en ég hlakka til að sjá ykkur sem flest og endilega sendið mér símanúmerin ykkar á femailið mitt zordis@zordis.com ef þið viljið ná í mig.

 


Á bak við silkimjukan blæ bifukollunnar ....

..... í hnipri og klórar sér í nefinu.

Bifukollur eru kitlublóm, mjúk, falleg og svo eru þau líka svona óskablóm.

Ég er búin að vera í svona neutro ástandi .... var dugleg í dag að skipuleggja ýmislegt í tengslum við starfið mitt og hef beðið svara með svo margt sem þarf að fara í gang fyrir fríið.

Tíminn vinnur stundum á móti konum en oftast vinnur hann með og veitir dýrindis gjafir inní tilveruna.  Tíminn talar stundum til konu og hvíslar orðum í eyrað sem eru margsinnis svo rétt og sönn.  Tíminn líður eins og vatnið, eins og golan sem kyssir þína kinn.  Tíminn ert þú í eigin hjarta.

Ég er í pökkunarham núna.  Er búin að grafa upp vetrargallana mína og ætti að vera fær í flestan sjó og talandi um hafið þá hlakka ég mest til Englavíkurferðar og Atlantshafsvaðs, ég óska þess heitt og vona að fara þangað ekki ein heldur með góðum konum.  Fara í svona Pick Nick með nesti og nýja skó.  Kaupa svo kaffi hjá Sigfríði sem er með kaffihús í Selvoginum.  Kasta sér á kirkjutröppurnar og drekka í sig náttúruna. 

Orðin mín ætla ég að setja í lítinn kassa og sussa inn í kvöldið.  Ég næ kanski einni línu af litríku ljóði þegar líður á nóttina.  Svo svíf ég á bifukollufræji í heim drauma og dásemda.

Í draumi I
Í draumi I

Góða nótt

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband