Færsluflokkur: Menning og listir

Í lausu lofti á Vesturgötunni ....

.... eilífar draumfarir sem skapa líkamanum sérstöðu.  Þar sem efnið svífur endalaust áfram og blandast tilfinningum raunheima.

Ég bjó beint á móti Silla og Valda versluninni á Vesturgötunni þegar ég var yngri og minni.  "Af ávöxtum skuluð þið þekkja þá" (held að slagorðið þeirra hafi verið svona!)  Denni kaupmaður var í sömu línu en hann keyrði um á bronco bíl.  Í bakhúsi bjó Sigga sæta söngkona og Tryggvi hafnarvörður gekk hnarrreistur í átt að höfninni eftir að hádegismat lauk.  Hann bjó reyndar á Nýlendugötunni.

Að svífa í draumi er stórkostleg tilfinning og geta stjórnað svifinu, hægt á sér og hraðað för í huganum einum.  Stundum væri gott að geta nýtt sér þessa undursamlegu efnistækni í lifanda lífi.

Ég ætla að finna prakkarann í mér og klára nokkur viðvik.


Að ganga með .....

..... drauma!

Að geta látið lifið líða í draumi, hafa þá til að hjúfra sig að, til að halda festu og fóta sig eftir þeim.

Draumar eru eins og meðal draumkennda mannsins.  Hann / hún fer í draumi í gegnum ferð sína og sér nýja liti og ný form út frá þeirri silkiveröld sem er spunnin. 

Freisting

Freisting

Þrátt fyrir draumana og vonirnar sem berjast um í hjartanu þá veit ég að það að standa á föstum fótum, (skónúmer 40) að í vitund og eigin vísdómi að ég mun finna mitt frelsi til að geta athafnað og skapað mína drauma.  Verið minn klettur í hafsjó, því þegar lygnir þá geislar af honum og endurspeglar hug og heim í óskalandið.

Sunnudagur til sælu.  Síðasti sunnudagurinn með tengdó áður en fjölskyldan heldur til Íslands.  Það er mikið að gera, miklu að pakka og það blundar tilhlökkun og kvíði fyrir ferðalaginu.

Í dag hefst nýtt ævintýr ....

 


Að dúa á fiðruðum væng ....

... að finna hvernig golan dúar þér til og frá, hvernig tilfinningarnar líða eins og ljúfur draumur.  Að sætta sig við sorgina, við missinn, við sjálfan þig.

Að dúa í hugsun sem heldur heljartaki í hjarta þitt og þú veist ekki hvernig birtan blasir vid þegar þú opnar augu þín næst!

Þegar rökkva tekur og augun þín leggjast aftur eins og blý.  Að fylgja huga sínum í draumaveröld og láta slæðuna falla.  Í þessum heimi er gott að búa og líða eins og sandkorn eilífðar milli heima og geima.  Að falla í hópinn vera sandkorn á strönd eða að vera dropi í hafi.  ..........................

..................................

Að vera!

Í dag keypti ég mér kjól á útimarkaði og hann er bara hrikalega sætur, ég fór og kyssti tengdó sem á afmæli í dag InLove hún er æðisleg og tíminn hefur unnið með okkur og læknað sár! 

Englakona

Englakona

Hvernig getum við búið í betri heimi, hvað getum við gert til að hlúa að þar sem þörf er?  Ef ég gæti sent kærleiksfræ í hjarta þitt þá væri það komið til þín núna.  Gerum eitthvað gott, gerum það saman!  Kærleikur er bestur þegar hann er sýndur í verki, með nærveru, með brosi og hlýjum hug.

 


Skrítið ....

.... Þegar kona er næstum því búin að vera gift í 3 ár og til í 40 þá er eins og tíminn hafi ekki hreyft sig.

Unglingsárin runnu til og fullorðinsárin komu og þau runnu einnig.

Ég held það gerist ekkert fyrr en við komumst á heldri manna laun.  Ég stefni á það STÍFT að geta lifað af listinn, málað og skálað það sem eftir er lifidaganna.  Vona bara að þeir verði margir!

En svona í alvöru talað þá er tíminn svo skondinn og skrítinn, hann líður hægt þegar okkur liggur á, hann líður hratt þegar við erum á síðasta snúning með allt. 

Tíminn stendur í stað þegar ástin er annars vegar.  Ástin mín fór að ná í son okkar til ömmu og afa. 

Lífið er kærleikur, undur kær - leikur. 

Rómantík

Rómantík

Verð að segja ykkur söguna þegar fólkið kom í heimsókn til að næla sér í flís.  Ég fór með konunni og hún sagðist eiga svo erfitt með að velja.  En, hún væri búin að sjá eina sem hana langaði verulega í. 

Hún sagðist vilja að maðurinn hennar til fjöldamargra ára fengi einnig að skoða og velja það sem honum þætti fallegast.  Þessi hjón hugsa eins og horfa í sömu átt því hann valdi sömu skífuna og konan.

Það gladdi mitt hjarta að þau voru sammála um sína eigin fegurð og þann kærleika sem Rómantík mun færa þeim.

Lífið er bara gott


Rúllur og rauðar rósir ....

Eftir miðnætti, aldimmt úti og gítarglamur hljómar úr stofunni.  Rödd litlu krakkadúllunnar hljómar í gengum tóninn en hann er núna að ráðfæra sig við föður sinn um afhverju millistykki séu svona stíf.

Krakkakrúttið var að enda við að bjóða móður sinni ísfótabað með dropa af Fairy útí og ætlar sjálfur að skella sér í sjálfvirka nuddarann sem þarf sín 3 kw af stuði til að geta nuddað ....  Þessi elska!

Á mínu heimili er ekkert sem heitir Alzheimer light heldur dílar frúin við STRONG ið þessa dagana.  Gott ef hún nær að muna daginn.

Bíllinn var blæjaður og Sigrún vinkona kom með mér í bíltúr, við áttum quality stund og það verður að segjast að stundum líður tíminn of hratt.  Svona gerir tíminn grín að okkur, ginnir okkur og getur allt eins tekið upp á því að leika á tilfinningarnar og líða jafnvel ögurhægt ef þannig stendur á.

Rósrauð ást

Rósrauð ást

Stundum býður lífið uppá sjálfið í lit, stundum ilmar það af fegursta heim ... allt fer það þó eftir ástandi okkar sem lifum það.  Lífið í dag er gott, ég tek því sem gjöf og óska þess að gleðin hjúfri sig áfram í hjarta mínu og búi um sama máta það sem eftir er lifandi daga.  Elífð og friður.

Hver man ekki eftir rósrauðum kinnum og Carmen rósum ....

sko, rúllum ...


Hvernig var ....

.... Doddilíus bloggvinur minn, piri piri kjúlla snillingur og launmaður Angelinu Jolie og sambýlismaður Veigu, spurði mig hvernig gærkvöldið mitt hefði verið????

Það heppnaðist vel, ég tók á móti fólkinu sem er hið yndislegasta og tekinn var tappi úr Cava flösku og var dreipt á, spjallað og hlegið.

Leyndarmál og umræður um andleg málefni léttu geð okkar og við náðum flott saman.  Skrítið þegar þú hittir fólk í fyrsta skipti, skrítið ... já, því þá finnum við akkúrat galdurinn sem geislar á milli.

Hjúfr

Hjúfr ..... flísin kallaði á konu

Skjöldur

Skjöldur var þó fyrri til að finna sína leið.

Svo er það Hrönnslan sem er með lítið afkvæmi í fæðingu.  Ég viðurkenni að hafa ekki verið dugleg sem skildi en það hefur ýmislegt truflað tilveru konu.  Svo sem vinnan, heimsóknir og sjálfselska!

Rósin

Rósin er akrýl mynd á striga 20 x 50 en skemmdist í skjálftanum.  Hrönn ég man við vorum að grínast um að myndin yrði verðmetin og bla bla bla en aldrei datt mér í hug að til þess þyrfti sjálfsmorðstilraun dúllunnar sem Rósin er.

Sem endranær þrátt fyrir mótvægi þá er lífið gott og heitt.  Elín var að fara eftir 3ja vikna dvöl og ég held svei mér þá að hún skilji óskir mínar um ekta íslenska golu.

Kvöldið var gott, þegar að gestirnir fóru setti konan sem fyrr segir pastarétt með mozzarellaosti í ofn, einnig potteldaður hrísgrjónaréttur og allir fóru sáttir á vömb í hátt!


Að falla á tíma ....

 .... það má segja að ég sé að falla á tíma.

Ég á von á fólki sem vill privat sýningu á skífum. 

  það sem ég ætlaði að vera búin að gera var t.d. ...... þrífa eldhúsið, útbúa snittur, kæla kampavín og baða mig en ég er hér eins og vænsta gyllta eftir hlaup og annríki.

.................

Náði að baða mig, frysta Cavað og taka á móti fólkinu!  Á Nornaþingi er oft gaman og það var engin undantekning í þetta skiptið.

Tíminn er nýr og núna er ég með makkarónur og mozzarella í ofninum.  Hver veit hvað kvöldið býður uppá?  Ekki ég allavegana en ég er tilbúin í allt!


Fátt um fína ...

Stundum höfum víð lítið til málanna að leggja og jafnvel er það litla undursamleg þögn.

Susssss

Að njóta þagnarinnar, finna hjartsláttinn tifa og andvarp dagsins er hverfur nú á braut!

InLove 

Ástfangið par

Ástfangið Par

Það er svo hlýtt hjá okkur að þrátt fyrir ástina sem gutlar í hjartanu þá langar konu ekki til að faðmast né kúra, heldur eygir sálin í kalda sturtu eða ísbað.

Talandi um ísbað þá fer ég stundum í ísfótabað og er það virkilega hressandi.

Stutt var það heillin en svona er þetta þegar fátt er um fína drætti.

Kyss og knús í öll heimsins hús


Bíbí og blaka með vængjaþyt ...

Að lifa í lífsins söng þar sem smáfuglarnir taka á móti þér með útbreiddum vængjum sínum.  Þú ert ein í heimi frelsis þar sem ekkert getur þig stöðvað!

Við búum yfir innra mætti þess að geta.  Eina hindrunin í lífinu erum við sjálf því allar heimsins dyr standa okkur opnar, allar leiðir liggja í átt að hamingjunni.  Afleiðing og Orsök.

Paul Ramses er að fara erfiða leið en með aðstoð og kærleika umheimsins, kærleika fólks sem komið hefur fram á blogginu, fólk sem ritar nöfn sín á undirskriftarlista um að veita blessuðum manninum hæli á Íslandi.  Kærleikur er öflugasta vopnið og það verður ánægjulegt þegar Hr. Ramses kemur til baka og fær að faðma konu sína og lítið barn. 

Helgin er framundan og margt spennandi sem við ætlum að gera með fjölskyldu og vinum.

Fotos artisticas

Í gegnum laufin sá ég glytta í augu þín blíð.  Svo makindarlegur og rólegur yfir heimskupörum okkar mannanna.  Samt þakka ég fyrir að vera það sem ég er því ég veit að þú ert þarna á bak við laufblöðin til halds og trausts!

Góða helgi kæru vinir.

Huld ég óska þér sérstaklega velgengni og lukku inn í morgundaginn þegar opnun verslunar ZikZak á sér stað á Akureyri.  Ég verð með þér í huganum!


Príl og prjál á háum hól,

Kerling var í bláum kjól,

lyfti faldi að mitti

og óð lækinn að hólnum.

Já, nú er konan búin að sitja hól og hugsa og njóta náttúrunnar.

Tíminn stóð í stað á meðan hann rann úr hlaði annarstaðar! Nú er kominn tími á svefninn sæta og draumalandið eina væna.

Mikið skelfing er bloggið stíft og leiðinlegt þessa dagana.  Ég hef stundum gefist upp á að kommenta því ég næ ekki að gera það heldur reyni ég í þrí og fjórgang þangað til ég gefst upp.  Suma daga er þetta hviss bang bjútífúl og aðra þá er ekki smuga að sýna lit og áhuga á því sem aðrir skrifa og gera!

Góða nótt og sameinumst í kærleiksbæn fyrir heiminn okkar!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband