Færsluflokkur: Menning og listir
3.7.2008 | 16:40
Það er vont ...
... að vera háður þriðja aðila með aðgerðir. Þegar þú getur ekki gripið inní og gert hlutina sjálfur.
Það er bæði vont og svekkjandi að mikilvægir hlutir staldri við án þess að fylgja huga þínum. Ég hef jafnan vitað að það sem þú vilt að framkvæmist sé best að gera bara sjálfur (æ nó, eiginlega galli) og gera það strax. Af hverju að bíða til morguns með að taka ákvörðun þegar hún getur verið tekin í dag.
Þegar hlutirnir liggja fyrir þá erum við ekki háð neinum nema ákvörðunum okkar sjálfra.
Þegar staðan er svona er best að fara á hæsta hól og blása nokkrar bifukollur, eiga jafnvel heilan bauk af sápukúlum og óátekna kampavínsflösku. Sitja á hólnum sem iðar í léttri golunni, grasið sem iljar fótum þínum vefur þig umhyggju náttúrunnar og þú skreytir himininn með gegnsæjum sápukúlum.
Þú dreypir á töfrandi kampavíni og bubblurnar verða að þeirri eins sem þú ein getur ákveðið og formarð. Ef heimurinn væri eins og sápukúla sem þyrlaðist í þúsund eindir við lendingu. Grastopparnir keppast við að grípa þig og drekka næringu þína og visku.
Eina Ósk
Já stundum er lífið vont gott .... en þá þarf að finna jafnvægið, finna baukinn með sápukúlunum, finna hólinn og horfa á aðstæður frá hæstu hæðum. Kampavínið er ágætt með þó skemmtilegra að draga góðan vin með sér á hólinn til að skála fyrir því góða.
Hóllinn er staður sem öll vandamál gleymast og nýr heimur opnast. Kanski ég skríði bara inn í hólinn og horfi á lífið sem er undir rótum bifukollunnar .... hvernig væri það?
Stundum ráðum við ekki við aðstæður og þá er best að leyfa tímanum að líða. Tímann á að nota vel og vinna vel með því hann kemur aldrei aftur eins og hann birtist okkur. Já, ég ætla að hætta að láta þetta pirra mig og láta tímann liða eins og vatnið sem leitar leiða til sjávar!
2.7.2008 | 17:06
Að lifa hættulega ....
.... það má nú segja að kjérlingin tók uppá því að lifa hættulega rétt í þessu.
Ég ákvað að stofna nýtt blogg (wow) og þar sem að möguleikinn er fyrir hendi hér á þessu prýðis mbl.bloggkerfi þá tók ég það ráð en gerði ráð fyrir að eiga þá tvö ólík blogg en ekki eitt með undirmöppu.
Eftir miklar flettingar og skoðun tók ég þá ákvörðun að eyða bloggi og uppfærði skipunina og eyddi út "litum lífsins" sem var aukablogg á sömu slóð. Ég tók mikla áhættu í blogglífinu mínu því ég var ekki viss hvort að allt myndi hverfa
Æjj þetta er nú varla til að tala um ....
Elín er að flytja út og ætlar að búa í dúlluíbúð hér í bæ en við erum búnar að eiga góðar stundir og börnin búin að njóta sín saman. Sonur minn hefur notið þess að þurfa ekki að læra í 30 mín á dag þar sem að vinir hans eru í heimsókn en hversdagsleikurinn lætur ekki að sér hæða og herská móðir mun halda lög og reglu frá og með morgundeginum.
Það er búið að mála í gríð og erg, spjalla og tralla eins og okkur stöllum einum er lagið. Set hér inn 2 skífur sem gerðar voru í 2ja vikna málaramaraþoni okkar vinkvenna ...............
Sæt og Svalandi
Óskastund
Hér hefur ekki verið setið auðum höndum og hvet ég Ellu Sprellu Cinderellu til að setja inn fallegar myndir sem hún skapað hér á Spáni.
Í Sumar 2008 er fyrirhuguð myndlistarsýning, SAMSÝNING bloggkvenna; Katrínar Snæhólm, Gúðnýjar Svövu, Katrínar Níelsdóttur, Elínar og Zórdísar í Ráðhúsi Reykjavíkur og munum við stöllur vænta ykkar sem flestra til að samfagna sýningunni sem ráðgerð hefur verið á blogginu undanfarið ár.
Lífið er hættulega gott
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
1.7.2008 | 08:20
Vegna þess að þú ...
... ert ljósið í mínu lífi.
Vegna þess að tilveran væri ekki sú sama án þín!
Mikilvægi allra einstaklinga og lífvænlegra vera, þín gleði, þitt tár. Tilveran okkar hefur æðri mátt og tilgang .... það er ástæða fyrir tilverunni og þess sem við gerum.
Lífsins ljós
Í ljósinu leiðir sálin,
frá þeim degi er þú varst
af guð og englum valin
í ljóssins drauma stall.
Lipur lífsins taktur
hann fól þér tæra ljós
þinn styrkur, þinn máttur,
ást á lífið kaus.
zordis
Stútfullur dagur af vinnu og ferðalögum, ferðast frá einum stað á annann og svo aftur heim. Elín vinkona er hjá mér í heimsókn og við sátum á spjallinu til klukkan 03.00 í nótt en þá er besta næðið. Við hljótum að breitast í froska og breytumst svo í prinsessur í síðum bláum silkikjólum.
(Við drukkum MIKIÐ vatn í svölum næturhitanum)
Eins gott að það kyssi okkur enginn í dag .... hviss bang, lafði leggjaprúð og ella sprella sinderella, kórónustelpur í bláum síðkjólum, "something new" ..... ?
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
28.6.2008 | 18:06
Hlýindi í hjartanu ...
.... og ekki bara hlýtt í hjarta heldur er kroppurinn þvalur eftir daginn.
Kjérlingin hefur verið við störf í allan dag og náð nokkuð góðum árangri. Hef náð að hugsa og fékk snilldarhugmynd. Hringdi á klakann og fékk góðar undirtektir og viti menn ..... hviss bang
Ávextir og vítamín, rauðvín og bjór, bikiní og stuttbuxur, geimverur og sjór!
Lífið er undurfínt þrátt fyrir hitann, á morgun er úrslitaleikurinn Spánn vs. Alemania og ég spái kokhraust mínum mönnum sigri!
Viva España
Helgin er rétt að byrja, grillmaturinn og salatið og félagsskapurinn er hér í eldhúsinu. Við munum trilla uppá þak þar sem grillaðstaðan er og vonandi hjúfra bumburnar okkar eftir kvöldið.
Úr djúpi sálar
Hafmeyjur og höfrungar, kókópöffs og kebab, sitja heima í stofu og sjá enga vofu.
Það má nú segja að hitinn fari misvel í geimverur, menn og dýr
blómálfa og hina.
26.6.2008 | 07:39
að vera ligeglad = líkaglaður ... eða jafnglaður ..... eða?
.... að lifa í sjálfinu og vera ánægður og glaður.
Að vakna og þakka fyrir daginn að þakka fyrir allt hið góða sem umlykur okkur!
Í blíðri morgunbæn
ég þakka hlý og hug.
Í ljúfum aftanblæ
ég þakka neistans dug.
Að kvöldi kyssir ástin
að morgni eflist dátt
Í hjarta brennir sólin
spor á lífsins brag.
Í hendi hef ég heiminn
er hlýjar vangans hjal.
Barnsins björt er vonin
frelsisbón í nýjan dag.
zordis
Nú er kerlingin búin að sofa upp tapaðann svefnsins tíma og hefur þar af leiðandi orku til að vaka sem hrafn næturinnar. Mín fór ekki í háttinn fyrr en langt gengin í þrjú í morgun. Setti uppþvottavélina af stað og ætlaði að kúra í "hlíðinni" en þá voru þar litlar tær sem fengu óáreittar að sofa áfram og móðurhjartað fór í rúmm litla bjarnar og náði góðum svefni.
Hjúfr akrýll á flís
Sem næturhrafninn blíði set ég inn eina af mínum uppáhaldsfugli. Að sjálfsögðu er þetta sjálfsmynd, hvað annað.
Eigið góðan dag og megi lukkan leika við ykkur.
24.6.2008 | 17:14
Að vera hot eða NOT ....
Þegar kona er hot ... rífur sig úr fötunum, berar á sér bossann og steikir á sér húðina!
Þessi kona er ég, nákvæmlega í eigin skinni á sólþakinu sínu. Það var ljúft að skriða uppá þak og taka púlsinn á stöðunni, gefa sig ekki og tæta sig úr! Ég bý svo vel að vera með sturtu á þakinu og gat þar með kælt mig niður svo úr rauk.
Pennslaæfing var tekin um daginn og þá var gerður frábær grunnur að nokkrum ....
Sýnishorn
Níu líf Akrýll á flís
Um hjarta mitt leikur ástin
svo björt
svo hrein
svo ein
Um andann leikur sál mín
svo svöl
svo yndis
plein.
Elín situr og málar við eldhúsborðið hjá mér, synir hennar eru í game boy og mollan þrykkir okkur niður í stólana.
Lífið er bara gott.
21.6.2008 | 19:37
Bjútíblundur ...
... Þyrnirósarsvefninn ljúfi og vakning til lífs á ný!
Ég er farin að gelta af ferskleika, var orðin svo þreytt eftir miklar vökur, sjálfsskaparvíti algert.
Sólin er komin í grillgírinn og það er gott að sitja inni við með kaffibolla við hönd. Ég er rétt skriðin frammúr og er sem segir allt önnur kona.
Elín vinkona kom í heimsókn til mín og er líf og fjör á þessum bæ þar sem drengjaglamur ómar um húsið. Í gærkvöldi fórum við út að borða á pizzustað hér í bæ og nutum okkar. Íris Hadda dóttir mín fór á lokaball í skólanum og eftir það færðum við henni afskaplega fallegt armband sem hún getur bætt á perlum og skrauti. Ég hafði hugsað mér að þegar henni gengur vel þá færum við saman og hún veldi sér fylgihlut á bandið sem verður henni vonandi metið og kært.
Framundan er hádegisverður með frænku og Oddu ömmusystir frá Eskifirði og hópur af Reyðfirðingum meðíför líka .... Hitti norðfirðinga í gær og svei mér þá ef ég hafi ekki fundið blessun Sérans.
Morgunleikur
Nú er dagur að kvöldi kominn, hádegismaturinn var rosalega góður og félagsskapurinn eftir því. Hér er setið heima við og málað af kappi í góðum félagsskap!
Ég setti inn myndina morgunleik og vona að þið heyrið gal hanans og hrifningu hennar .......
15.6.2008 | 21:05
kurr kurr og hjúfr ...
...... sæt orð segja svo margt og sætgera sálarlífið.
Ákvað að sýna ykkur nokkrar flísar .... Hef nóg að gera og ætla að senda nokkrar á Íslandið góða. Ég er að átta mig betur og betur á því að 2 mánuðir á Íslandi eru hellingur og mæ dog hvað ég ætla að njóta þess. Kaupa mér vaðstígvél, taka myndir og velta mér uppúr dögginni.
versugú
Akrýll á þakflísar
...
Kurr kurr ástin mín
best er að fara að "sofa"
hjúfr og kel
love og miel
læðast inn í kofa
og
ástina "lofa"
elsku hjartans dúllan mín.
Nóttin er ung
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
13.6.2008 | 22:40
Þegar óskin lifnar eins og nýsprungin rós ....
... lítill knúbbur fullur lífs, mótaður af móður þess er elur. Hvers væntum við og óskum?
Allt í einu fékk ég samviskubit yfir því að óskir mínar rætist. Að óskin um lífið hið góða snerti mig og umvefji þeim eina silkifaðmi er kona getur óskað.
Samviskubitið (kanski ekki réttasta orðið) eða kanski umhugsunin um þessa skrítnu tilfinningu fékk ég á blogginu hennar Huld bloggvinkonu þegar ein bloggvinakona hennar talaði um áhyggjur þess að enginn myndi óska friðarins og heimsins okkar án stríðs!
Leyndarmálið mikla, tæknibeyting hugans, sciense of mind!
Hvers óska ég mér?
- velgengni?
- veraldlegra hluta?
- kringlu með morgunkaffinu?
- heilbrigði barna minna?
- góðra stunda?
En, er það rétt að við óskandi mannverur óskum aldrei friðar í heimi hér, að við beitum okkur ekki fyrir frelsi og lausn þjáninga heimsins....... Já, hvers óska ég þegar ég óska mér?
Ég veit hvers ég óska og ég veit að við fáum öll yfirdrifið nóg úr góssins brunni. Við verðum að vera hrein í hjartanu, óska án sjálfselsku og eigingirni. Styrkur og máttur bænarinnar getur breytt mörgu ef við bara trúum því og leifum hjólinu að rúlla.
Gæðin eru gullinn kostur
óskir glitra í hjarta
ástarstund
þín yndis lund
meyjan ilhýra bjarta
...
Hvítur og blár mygluostur
lyktin eina svarta
ástarfund
glæsta sprund
elskunnar sinnar hjarta.
Af öðrum heimi Olía á striga 20 x 50
Ég er eitthvað undin, veit eiginlega ekki afhverju en það er nú ekki til að spekulera í.
EN, hvers óska ég mér í raun, hvers?
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
12.6.2008 | 18:41
Vaxandi vitund mannkyns ...
... já, fer hún vaxandi eða hvað?
Þegar hugur og sál vaxa ekki heldur minnka hvernig verður þá framhaldslífið? Er til eitthvað sem heitir framhaldslíf? Getum við fullyrt án þess að snerta, getum við lifað án þess að anda, erum við efni eða erum við ekkert?
Nýr heimur NÚNA með leiðinni að fjársjóði þess er við leitum öll sem eitt en á misvægum grundvelli.
Sporðdreki bloggvinkona mín bloggaði um fegurð og þá vaknaði spurningin um hvað er fegurð, hvernig er hún og hvers vegna er allt sett niður í munstur eftir kúnstarinnar reglum.
Orkan er hjá okkur akkúrat núna, þegar við bíðum, þegar við grátum, þegar við drögum andann fyrir augnablikið þegar við erum .... ástfangin, hugfangin, viðurkennd og elskuð .....
Olía á striga, Hvað er ástin 20 x 20
Ástin myndast í orðum, á borðum þar sem hjartað smeygir sér í þitt úr mínu. Af bikar þínum byrgi ég þær góðu unaðs stundir og hjartans kæru fundi.
Læf goes on
Ég er eins og vorið
alveg að spring - a
í svörtum kjól með slæðu
í fangi svarta læðu.
spurningin um að spring -a
bara .....
Oooog,
glugga í Echart Tolle
kveikja hungur
...........
narta svo í Fjallið
og
velta sér í hlíðinni .....
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)