Færsluflokkur: Menning og listir

Blár kaffibolli og bið ...

... táknin í bollanum hafa myndað stígvél og buffaló sem stendur í langri halaróu þar sem einn leiðir annann!  Fallega mótaðar kaffislettur sem segja allt um framtíðina.

Einhverfan sem býr í sjálfinu leiddi mig í nýja föndurbúð þar sem ég keypti slatta af strigum.  Sá nýjar stærðir sem mér fannst upplagt að prófa.  Þurfti svo sem ekki mikið að stappa stálinu í mig og smellti 6 strigum á afgreiðsluborðið, brosti og borgaði.  Ég var eini viðskiptavinurinn og fékk afbragðsþjónustu.

Ég átti erindi vegna nafnabreytinga og hitti þar fyrir hundrað manns og þar á meðal eina konu sem talaði mikið við sjálfa sig (ég t.d. lét einhverfuna nægja og ræddi ekkert við mig .... þrátt fyrir að mikið frjálsræði ríkir hér almennt) ....

Ég, hér er mín að brjótast út þar sem innilokunarkennd og bið hefur einkennt kerlingarkrúttið .... Já, að mér þá ók ég eftir strandlengjunni, og á eftir mér var eldri frú, sem keðjureykti og lá á flautunni.  Þessari konu kynntist ég á bílastæðaplani en þar lá hún á flautunni þar sem gamla konan á undan henni var ekki nægjanlega fljót að setja í fimmta gír!!!  JÁ, ÞETTA ER LÖNG SAGA!

En til að gera hana stutta svo biðin verði ekki frekari þá lá konan á flautinni á öllum ljósum og ég gjörsamlega trompaðist úr hlátri á rauðu ljósi .... Þeir sem vissu ekki af konunni hafa upplifað mjög svo skellihlæjandi konu = mig. 

Nú sit ég og bíð í upphafi nýs dags, blái kaffibollinn er fullur af myndum sem gætu sagt svo margt en segja hins vegar ekkert! 

Já og svo rétt í lokin á meðan ég bíð þá dreymdi mig að ég væri komin með bringuhár og sportrönd. 

Saet í Kvöld

Sæt í kvöld er olía á striga

Á meðan ég bíð gæti ég lakkað á mér neglurnar .... góð hugmynd!


Lífsbrot ...

Hún sat og vafði sig hlíðinni.  Hugur hennar var órafjarri í leit að ævintýrum og grænni grund.

Stúlkan strauk sér um vanga, hún sá lífsbrotin svífa eitt af öðru hjá, hvert öðru skemmtilegri stundir er mörkuðu lífið hennar.  Stúlkan viss að þetta var leiðin hennar og hún var sátt við sinn guð og sitt fólk.

 

Stúlkan í hlíðinni

Stúlkan í hlíðinni

Þarna sat hún og heyrði flug bifukollunnar og kúrði sig að ástinni.  Draumar hennar svifu í loftinu og einn þeirra gróf sig í vitund hennar.

Hún er frjáls, hún er ...


Tilfinningarnar láta ekki sussa á sig ...

Ég er svo glöð yfir dotlu og hjartað í mér er meirt yfir dotlu.  Það má nú segja að tilfinningarnar taka engu tjasli þegar útrás hjartans hefur flæði sitt.

Mig langar að senda sterkri konu yndislega strauma og senda henni brot af mínum kærleikshugusunum.  Skrítið hvernig við þekkjum okkur lítið þegar við þekkjum okkar samt alveg helling.

Ég á litla postulínskúlu sem er með myndum af englum og blómum.  Í þessa litlu kúlu ætla ég að setja ástina, vonina og kærleikann og vona að það sáldrist jafnt úr henni til okkar allra.

Heart

Í augnkrók læðist lítið tár

gleðinnar hrókur fagnaðar

ástin og engill bæta sár

er þér hlúa ljúfa kona.

Tárið niður vangann æðir

það snertir mína sál

rödd þín hjartað kærleika gæðir

duglega yndis kona.

Tárin eru demantar sem koma frá sálinni ... það er gott að gráta

.......

Ástin

Hvad er betra en ástin

 


Dásamlegar breytingar ...

... stundum gleypir tíminn konur sem standa í útviðum bommsum með blóm í hári.

Í brúnum kjól sem slæðir sér niður í jörðina og heldur í hönd kjarnans er ber tetur áfram.  Hausinn á kjéddlunni hefur verið að springa út af dottlu og nú verður að færa hugann í verk og vera sterk.

Heart

Suðurlandsskjálftinn hefur heldur betur hrisst uppí sálum okkar og tekið frá fólki þrek og þor.  Náttúran er ógnvænleg í fegurð sinni og grimmdin svífst einskis.  Vona að allt komist í samt lag og fólki líði betur í sál sinni.

Ad frelsa hugann

Vid Sjóndeildarhringinn er blár bordi er heldur heiminum saman.


Ósofin kjéddling ...

.... gapandi og geyspandi!

Konu óx ásmegin og fyrr en varði var klukkan orðin 0400 í morgun og ákafinn við pennslastrokurnar þvílíkur að tíminn bara hvarf.  Hvert hann fór veit ég varla nema kanski í formi þessa litla ljóðs sem ég sýni ykkur.  Svona var stemmingin ....

Rómantík

Rómantík akrýll á flís

Stundum gleymum við stundinni og það sem er sniðugt við stundina að hún bara fór og ég naut mín alein í náttmyrkrinu.  Ég held ég fari snemma að sofa í kvöld .....  Kanski ég haldi það út til 0200 en þá er eiginlega nótt en ekki morgun!

Á þessari stundu situr kjéddlingin, hálf úfín og heitt í skinni þar sem Iberíuskagi lætur sólarglæturnar blekkja sig ár eftir ár.  Það er hljótt í húsinu okkar, börnin sofa og Fjallið er að koma sér til hlíðar.

Kanski ég fái mér einn kaffi fyrir svefninn, hlýtur að virka vel á þreyttann ofurkroppinn.

Góða nótt og munið að elska það að vera Heart


Að finna og lopann spinna ...

Tilfinningin mín er eitthvað svo ljúf!

Að tilla sér á hjartans strengi og finna ilinn sem geislar frá miðju alheims okkar, líkamanum.

Hugur leitar mörg ár aftur í tímann þegar ég skammaðist í ömmu minni sem hafði í röggsemi sinni búið um rúmmið mitt, hún var yndisleg og góð.  Mig dreymdi ömmu í nótt og þá hafði ég gleymt að fara til hennar í afmæli og í draumnum var mér sama og hringi í hana til að láta hana vita að ég hefði bara gleymt mér ......

Það er ekkert eins og var, það eina sem ég hef í hendi mér er að skapa framtíð sem gefur af sér góðar minningar og NJÓTA tímans. 

Ég nenni ekki að hlaupa og vera á síðasta snúningi, ég nenni ekki að vera að missa af sumu heldur vill skapa mér góðan stað á streng hjarta míns og hylja mig hjúpi sem segir mér að NÚIÐ er mitt eina lífsfæri og út frá því skapist tækifærin.

Úllen dúllen doff

Ég fór til Alicante borgar og datt inná flotta myndlistarsýningu.  Svo flotta að ég heillaðist gjörsamlega af einum listamanni er heitir Josep Cores og málar beint í hjarta mitt!  Heimasíðan hans er því miður ekki neitt sérstök en þar má sjá falleg verk hans.  www.josepcores.com ..

Hvað finnst ykkur um þennan ljúfa mann.  Verk hans eru samtímis mikilvæg sem fögur.  Hann setur svo mikla persónu í verkin sín ................. 

Um helgina höfum við notið okkar, borðað góðan mat, hitt tengdafjölskylduna og fullt af góðum atburðum sem komu og fóru án þess að við tókum eftir þeim.  Þessir litlu og sjálfsögðu hlutir sem gera daginn eftirminnilegan, brosið þitt og nærvera, klukknahljómurinn í kyrrðinni og fuglasöngur í kjölfar sólargeislans er snertir nefbroddinn.

Set inn eina af mínum myndum, því Josep vill ekki að hans myndir birtist á annara manna síðum.

Hvíslad

Hvíslað, Olía á Striga

Ég er búin að vera dugleg að munda pennslana um helgina og ætla að hvíla mig á stóru strigunum og slaka á yfir vænni flís .....  Aldrei að vita hvað litirnir hvísla að mér í kvöld.


Sumir dagar ...

 ...... eru betri en aðrir dagar. 

Það fer ekki á milli mála að sumir dagar eru betri en aðrir dagar, hins vegar er enginn dagur verri en annar því við höfum alltaf tök á því að breyta deginum með eigin sjálfi! 

Kyrrðinni,

eins og Steina bloggvinkona fjallaði um, hún gaf mér þann skilning og er ég henni sammála að stundum þurfum við að meðtaka kyrrðina til að gefa okkur gaum og gera gott betra.

Vandlilfað í fallega heiminum okka

Ég held mig við undirbúning og set hér inn smá vinnslumynd  .... hluti af stórum striga, það er svo gaman að mála og njóta þess að gera það sem áhugasviðið kallar á! 

Undirbúningur efni fyrir sýningu 006
  

 ýmsar myndir 004

Það getur líka verið leiðinlegt að mála en það þýðir víst lítið annað en að vera meðvitaður og njóta þess hvort sem það er skemmtilegt eða leiðinlegt.

Bling .....

Vissuð þið að komið er á markaðinn tyggjó sem er gegn rasisma í heiminum, gegn mismunun í heiminumþ  Þetta tyggjó er svart eða hvítt og er fólk hvatt til þess að finna einingu heildarinnar!

Vissuð þið að Vinskapur er eitt það dýrmætasta sem til er.

Mynd í vinnslu

Myndbrot

Já, ég er nú bara svolítið klikk en það er ekki verra eða kanski er það verra!  Veit ekki .....

Ég er boðin í veislu í kvöld og ætla að dekra við mig þennann seinnipartinn.  Bera krem á skraufþurra fæturnar á mér.  Ef ekki þá enda ég öll í blóði eftir klór.  Svo ætla ég að naglalakka neglur og dekra við mig .... Örugglega óvelkomin hár sem ekki mega sjást þegar kona fer í kjól!

Svo segi ég bara

ÁFRAM ÍSLAND


Hverjum er hún lík ...

...... hvað finnst ykkur um þessa fögru snót?

Er hún ekki afskaplega lík konu sem bloggvinir þekkja?  Hún er í bloggvinaröð minni og mér finnst þið bara nokkuð svipaðar!

Konur eru yndislegar, ekki spurning.  Á Spáni þá er mjög skemmtilegur þáttur er nefnist "frami og frægð" Operación triumpho og þar koma fram frábærir krakkar og syngja af hjartans lyst!

HVERJUM ER STÚLKAN LÍK ??

Hverjum er hún lík .....

Flott þessi stelpa!

Dagurinn er búinn að vera voða voða notalegur, þeytingur í vinnu en nú eru að skella á rólegheit.

Nú þarf kona bara að redda kvöldmatnum, hreinsa prinsinn og koma honum í náttföt og í ból.  Ganga frá eftir matinn og munda pensilinn fram eftir kvöldi.  Fjallið fór á nýja Yamaha hjólinu sínu út í buskann og hver veit nema að hann komi heim fyrr en undir morgun!  Sennilega þarf að prófa þokuljósin hehehhehheheh ..... nehhh, hann er búinn að taka út eðalsteik fyrir hjónakornin og mun elda fyrir sína heittelskuðu, EKKI SPURNING.

Spurning dagsins er;  Hvaða flotta bloggvinkona er hér á ferð, á mynd, eða tvífari hennar ...


Umheimurinn ....

... er pennavinur minn!

Ég fann bréf sem ég skrifaði umheiminum, ég kalla það nú bara að spella umhverfið.

Bréfið skrifaði ég árið 2004 í ágústmánuði og skapaði þar með margt sem hefur komið inn í líf mitt og fjölskyldunnar í dag.  Hlutir sem eru ekkert svo fyrirsjánlegir, velgengni ást og umhyggja.

Þegar ég les yfir bréfið sem fór til almáttugs hafa allir undirstrikaðir þættir ræst, allar uppljómanir eru nú staðreyndir.  Bréfið er sönnun þess að hugurinn hefur engin takmörk, heimurinn er okkur megnugur eins og hver annar matseðill sem við leggjum fyrir okkur.

Ég bloggaði reyndar einu sinni staðhæfingar sem síðar urðu eins og ég sá þær og upplifði.  Já, lífið er dásamlegt, lillablátt og kærleiksríkt þegar horft er framhjá hörmungum heimsins sem við ættum að gefa minni gaum, þ.e. minni hugsun.  Biðja ávallt fyrir velsæmi og velgengni heimsins þannig að allir menn og allar konur uppfylli rétt sinn að lifa sómasamlegu lífi.

Stundum höfum við gnægtir með tómann brunninn rétt eins og við höfum ekkert þegar yfir flæðir. 

Jafnvægið er það dásamlegasta í huga og hjarta okkar smáu mannvera.

There is only one power, spirit is the creator of all there is.


Eitthvað svo ljómandi ...

.... dagur á enda!

Pirr pirr og kurr kurr en bíltúr og verkefni kláruð í vinnunni.  Verslaði í matinn og ætlaði að versla "skífur" en það voru allir svo uppteknir í iðnaðarmannastepustöðinni .....  Ég var þyrst og ákvað að kaupa vatn og viti konur að ég keypti mér einn og hálfan líter og hló úr mér pirrið!

Tengdó eiga 46 ára brúðkaupsafmæli á morgun, mamma og pabbi eiga 40 ára brúðkaupsafmæli í ár, í júní og við eigum 3ja ára brúðkaupsafmæli í október ....

Lítið að gerast annað en að það er nóg um að vera og gera.

Ætlaði að skrifa um dúfur

en setti á mig húfur

fann svo trefil og sokka

hár mitt greiddi og augnabrúnir plokka

lít nú á Fjallið mitt væna

já,

Karlpunginn eina

......

þetta kalla ég líf.

Heart

"amma hefðu nú sagt ástarpungur"

Allavega þá kíkti ég á stjörnuspá fyrir geitur .....

 Heart

SteingeitSteingeit: Þú verður beðinn um að fara út af þægindasviðinu þínu og ganga inn í heim furðulegra persóna. Þú færð mikla athygli á þessu nýja svæði. Njóttu hennar.

"Hlakka til að verða furðuð af öðru fólki enda er þetta furðuveröld"


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband