Færsluflokkur: Menning og listir
18.5.2008 | 09:15
Sunnudagstónar óma ....
..... Bidda litla bloggvikona stendur fyrir tónlistinni sem ómar, kóratónlist hreint yndisleg!
Mínir eðalsteinar,
blóð og tár.
Börnin bæði
yndi og æði.
Hún er dama
orðin stór.
hann er ljón,
hálfgert flón.
.....
?
Börnin svo blíð og tær gefa okkur von um betri heim, gefa okkur það góða sem býr í hjartanu.
Verð að fara ... 1/2 færsla er betri en engin! Kirkjan kallar og litli fermingardrengurinn bíður eftir að foreldrarnir komi í sálarþvott!
Eigið yndislegan sunnudag!
16.5.2008 | 22:32
Hot hot og heitari ...
.... orð að sönnu að konan er búin að vera hot uppá síðkastið.
Lasarus gerði viðvart og konan var haldin heljarkvölum. Byrjaði með verk í vömb en leiddi konu í kojuna og þar lá hún í einangrun þar til að heilagur andi lagð hönd á höfuð hennar og blés lífi.
En ég er öll að koma til, fékk ekki tíma hjá lækni fyrr en næsta þriðjudag og þá sagði ég við Fjallið að heilagur andi myndi lækna mig áður en að dr.Jekyl gæti komið oní mig eitri snáksins.
En nóg um það .... sumarið er komið og Íslandið nálgast. Ég finn að tíminn er að renna frá mér og nú er bara eitt framundan! Skyrpa rækilega í lófana og halda uppteknum hætti.
Þar sem ég fjallaði um ástina og að elska í síðustu færslu þá langar mig að setja inn strákana mína.
Yndislegir báðir 2 nafnarnir
Þegar sumarið er grænleitt eins og sjórinn, þegar brosin eru gulleit eins og sólin og tilfinningin rauðleit eins og ástin þá er víst lítið annað sem kona þarf.
Ég sagði við son minn um kvöldmatarleytið;
Ég; viltu sjá mótorhjólið sem mamma vill eiga?
hann; já
Ég, Sjáðu þetta sæta chopper hjól ...
hann; vá mamma, má ég eiga það þegar þú verður amma?
Ég; Já, en ætli ég verði ekki asnaleg og allt of feit á þessu ...
hann; AFHVERJU, þú ert svo æðisleg!
Hugur okkar eldri getur verið svo langt frá gleðinni .... wonder why?
Góða helgi
13.5.2008 | 22:09
Að elska .....
Mæðgur
Að elska, er sú tilfinning eina, sú hreina! Að eiga þá átt í nætur húma að mega gleyma sér í faðmi þess er elskar. Dóttir kær, þú eina dásamlega meyja ..... Ég elska þig!
Vinkona mín sagði mér, njóttu unglingsáranna, þau eru yndisleg! Ég ætla að njóta hverrar mínútu með dóttur minni og fá að verða hluti af hennar lífi. Stundum finnst mér eins og við fjarlægjumst en þá gef ég mér tóm og hugleiði minn eigin aldur og sé hvað þessi dásamlega vera er að gera.
Lítið blóm
vex úr grasi
stækkar mest
lífsins hljóm
ástar fasi
lærdóms vers.
Hún er ég í eigin holdi, stúlkan hreina, ástin eina, stúlkan mín.
Menning og listir | Breytt 14.5.2008 kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
12.5.2008 | 13:50
Af moldu ertu komin ....
Geggjaðar hugmyndir sem týndar eru af lífsins tré.
Ég er búin að vera svo orkulítil og hugleiddi hvort að himintunglin væru farin að þrýsta mér oní jörðina. Margt að gerast í vinnu og vinnu sem skilur eftir sig minni tíma. Hins vegar er tíminn okkar nægur í akkúrat það sem við kjósum. Mér sýnist á öllu að ég sé komin upp úr moldinni og ætla að dusta af tásunum og taka flugið á ný!

Úti skín sólin eins og hún eigi lífið að leysa, fuglarnir syngja og inni situr húsmóðirin og bíður eftir því að kaffið myndi framtíðina. Þvottavélin kjaftar inní þvottaherberginu og potturinn er að ilja sig fyrir kvöldið. Ég ætla að taka prinsessuna mína í bíltúr og hugmyndin var að kíkja í kvikmyndahús í Murcia héraði ..... eiga svona stelpustund!
Njótið dagsins
11.5.2008 | 18:13
Til hamingju með daginn ....
Þvílíkur letidagur sem kjéddlingin er búin að eiga.
Til hamingju með daginn í dag allar mæður!!!!
Spænskar mæður héldu uppá daginn þann 4mai og kom sonur minn með gjafir sem hann gerði í skólanum, voðalega sætt af honum. Fallegasta mamman og besta og ..... já honum vantaði ekki fallegu orðin.
Ég var í partý með vinkonu minni onðe fón ... mikið fjör en svo vaknaði litli drengurinn hennar og við kvöddumst. Ekki amalegt þrátt fyrir að ég panta partý læf í sumar!
Um helgina er búið að rigna og hér hefur fallið þvílíkt að ofan að það hefur valdið miklu tjóni hjá mörgum. Sennilega hafa íbúar Almería fylkis orðið hvað verst úti en á meðan aðstoðaði ég vinafólk mitt sem lenti í að það flæddi inn hjá þeim og er mín að drepast í baki, fótum og þjáist af ofurþreytu! Þvílíkt og annað eins sem kjéddlingin er í slæmu formi .....
Elskulegu blómin mín fengu að kenna á haglélinu sem kom á föstudag og eru götótt á þeim blöðin. Jólarósirnar eru ekki í sínum fínasta búning og Hawayrósin er í fullum skrúða og blómstrar feitt.
Ég óska ykkur mæður til hamingju með daginn.
8.5.2008 | 21:05
Rigningin er góð fyrir geðið ...
Heilnæm rigningin hefur kitlad vanga okkar í dag og gerir vonandi fram yfir helgi. Gróður tekur kipp og allt grænkar í umhverfinu.
Ég setti jólastjörnurnar mínar út í ljósopið svo blöðin gætu fundið tillífun sína, svo heilnæmt regnið gæti skolað sér á réttan áfangastað. Stjúpurnar eru glaðhlakkanlegar og Hawayrósin teygir reisulega úr sér á veröndinni.
Ég ákvað að borða ávexti og grænmeti í dag og byrjaði daginn á banana og nýkreistum appelsínu safa.
Í hádeginu splæsti ég spínati og papríku á pönnu með ferskum tómat og dilli á disk. Bara gott!!
Oooog, í kvöldmatinn voru 2 tómatar teknir og kurlaðir í takt við túnfisk og skolað niður með köldu Cava. ÆJ, það eru nottl. vínber
Annars tók kerlingin það bara flott á stjörnusilfurlituðum sandölum í rigningunni. Fór heilan hring í héraði og endaði daginn í banka og var leyst út með gjöf! REGNHLÍF.
Mér fannst vera mánudagur í dag en það er víst skollin á helgin enn eina ferðina. Tíminn flýgur hraðar og hraðar og hraðar og ég ætla að njóta ferðarinnar sem er í boði.
Akrýl mynd 20 x 50
Nóttin liðar sér í vitund og það er víst betra að fara að strjúka ugganum mínum .....
Sofið rótt í alla nótt!
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
7.5.2008 | 22:18
Í sportsokkum upp að hnjám ....
.... stórfengleg í anda með hugann við allt annað.
Kjarninn er sofandi og kerling sópar hismið frá. Það er bjartur dagur framundan og það sem best er, er að gert er ráð fyrir innanhreinum þarmi.
Þarmur er ekki sérlega fallegt né rómantískt heiti yfir líffæri sem þó er með þeim undrum gæddur að stuðla að þeirri vellíðan sem kona þarf. Hvaða kona nýtur sín stútfull .... ekki ég allavegana.
Annars eru þarmar aldrei fagnaðarerindi né umfjöllun þeirra svo við skulum bara láta það ógert að fjalla nánar um krúsídúlluna þáþarma. ........
kirsuber, smá vínber, jarðarber, vatnsmelóna, epli og nisperos ....
Jedúdda mía hvað það er gott að taka létta kvöldmáltíð, við mæðgurnar vorum í himnasælu.
Stjörnuspáin mín segir mér að sætta mig ekki við meðalmennsku og að ég eigi að halda mínu striki. Gott mál, ég mun halda því sem halda skal, fórna því sem ég tel rétt og vona að ég standi uppi sem sá sigurvegari sem jafnastur er. Aungvir sigrar sem hér er talað um .......
Mujer con Estola,
Acrilico enzima de teja 20 x 40
En svona svo við komum að sokkunum þá brjálast ég í ofnæmi ef ég fer í sokka. Hef alltaf gengið berfætt í snjónum og aldrei farið í sokka fyrr en ég flutti til Spánar. Ekki gott fyrir ofnæmið!
Knús inní nóttina og alla nóttina!
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
6.5.2008 | 22:22
Stjörnuóð .....
Steingeit: Nokkrar minniháttar upplýsingar gætu komið þér í uppnám. Ekki sjá fréttir sem slæmar eða góðar. Ef allt er hlutlaust geturðu notað það eins og þér hentar.
Ég hef alltaf litið á það að ef sjálfið er minniháttar þá getum við snert okkar eigin nánd. Að geta hugleitt og opnað hugann fyrir eigin þróun, fundið jafnvægið ......
Fyrir framan mig voru falleg blóm sem keypt voru í tilefni mæðradagsins hér á Spáni, ég fór ein á markaðinn þar sem börnin mín nenntu ekki að hreyfa sig og Fjallið var í golfi (nu) nei, nei, hann var ekki í gólfinu heldur að reyna að hitta litla hvíta kúlu með kylfu!!!
Já, þessi fallegu blóm eru búin að gefast upp, duga venjulega vikuna og rúmlega það en voila .... nenna bara ekki að vera hérna lengur!
Í morgun kom eitt lítið kjánalegt atvik mér í uppnám, og ég er ekki búin að hrissta það af mér ennþá. Sko, þetta er bara svo kjánalegt en pirrar samt að eitthvað sem hvorki er gott né slæmt og hlutlaust með öllu geti potað svona í konu. Jæja, best að dusta kjánaprikið af öxlinni og leggjast uppí með góða bæn í hjartanu og óska öllum konum og körlum kærleika og gæsku.
5.5.2008 | 14:22
Hvad ef .....?
Steingeit: Galdraspurning er: "hvað ef?". Spurði þig hana oft og komdu sköpunarkraftinum í gang. Með hugann fullan af möguleikum laðar þú það þér það sem þú vilt og þarfnast.

Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
2.5.2008 | 22:19
Á ferð með sjálfinu .....
Á oggulitlu skýji þar sem hnoðrinn rétt nær utan um bossann. Þar sem jafnvægið er það eina sem bjargar þér. Að njóta og hrjóta smá með og leyfa huganum að svífa áfram þrátt fyrir að sumt megi ekki eða sé ekki tímabært!
Að ganga berfættur í grasinu og finna lífið og ilminn sem snertir vitundina. Að bregða sér úr skrokknum í blómið eina sem vex við rætur fjallsins, það er frelsi. Að ná að sameinast hnoðranum sem hylur bossann þinn, finna vætuna í grasinu sem kitlar iljar þínar, að finna umhverfið verða þú í því.
Leti hefur hreiðrað um sig í annasömu lífi konunnar, kanski engin leti heldur tímaleysi sem fær mig til að kasta kveðju á ykkur vinir, sýnilegir sem ósýnilegir!