Færsluflokkur: Menning og listir

Ljón eru yndisleg ..... kitty kitty ...

Í ljósi ljónsins baðaði hún sig með litla ljónið sér við hlið.

Konan í ljóninu

Konan í ljóninu

Heart

Þegar konan leit í spegil sá hún ljón.

Áran geislaði bjarma

og ástin,

já ástin.

Heart

Venjulegur dagur sem dró ljónið fram í konu.

Litla ljónid

litla ljónið mitt


Spádómar og spéhræðsla ...

...... já, spá og spé!

Fjallið klikkaði á að stilla náttborðshanann og sofnaði við sjónvarpið.  Ég var á fótum til að verða 02.00 sem var hluti af hangsi og kaffidrykkju.  Spjallaði á msninu við góða vinkonu sem kemur von bráðar í heimsókn til mín, ekki bara einu sinni heldur 2x á skömmum tíma en það ætla ég ekki að tíunda hér.

Lífið er gott og þakklætið getur ekki verið meira þegar ljótleikinn þyrmist að úr öllum áttum.  Heiminum veitir ekki af jákvæðni og hlýrri hugsun.  Við þurfum að taka höndum saman og hlúa að jörðinni og gefa henni meiri ást því ást uppsker ást.  Já, er sko sannfærð að við getum öll gert meira.

Við getum lagt meira á skálar vogar í þágu þess er stendur okkur næst og við getum látið okkur annt um nágranna okkar af hreinni hjartans fegurð.  Hálfgerð keðjuverkun þar sem bros gefur bros og betri líðan.

Hjartað í mér er á sínum stað en það er búið að vera skrítin tilfinning þar í gær, skil hana ekki en hún datt niður á þessa hugsun um að láta gott af sér leiða og innleiða meiri kærleik í umhverfið.

Spádómarnir bíða þerrun í blómlegum postulínsbollanum ....  Hvað skyldu droparnir hvísla að mér, já hvað gæti það svo sem verið?

Spéhræðslan er 7 ára drengur sem vill ekki vera í stuttbuxum sem ná ofan fyrir hné !!! Já, herregud nu er jeg helt Blush .....


Þegar atburðarrásin breytist þá fer kona ....

.... hvert fer hún?

Barcelona borg heldur sínu striki með þúsundir gesta sem nýta sér  hótelrými borgarinnar, rýmið okkar er sennilega nýtt af einhverjum sem hefur gaman af Formúla 1 eða af fótboltanum eða af lestrarhesti eða blómaunnanda.

Herbergið okkar sem var lítið og látlaust er nú iðandi af selskap einhvers sem ég veit ekki einu sinni hver er.  Hvað gerir kona þegar plön hennar hafa verið brotin í mola.  Þúsundir mola sem líkjast einna helst stjörnuþoku sem glitrar í takt við hjartslátt hennar sem er konan.

Ég ætla að fara aðra helgi, bara einhverja aðra og lenda ekki í svona tvíbókun eða hvað við getum kallað þetta .......  Á meðan sálin mín svífur á Römblunni situr kona heima og málar.

Tomando café pensando en el

"Hún drakk kaffi og hugsaði um hann"

akrýll á skífu 50cm hæð

Eins og myndin sýnir ykkur þá eru stjúpurnar ódrepanlegu kátar yfir félagsskapnum enda er konan yfir sig ástfangin og drekkur kaffið sitt kallt!  Hún er bráðum fertug og lífið er rétt að byrja.

Í kvöld munum við fara á Indverskan veitingarstað vonandi með góðum vinum og þá verður krotað og skrafað .....

 


Er á kafi ... í vorinu við Iberíuskaga ....

.... nokkuð til í þessu með að vera á kafi því ég er á kafi í vinnu, sem er gott!

Segi því Gleðilegt íslenskt Sumar elskurnar .... er tímalaus og kíki á ykkur eftir Barcelona.

Já, og vorið

vefur sig um vanga,

enn rennur horið

sem mamma vill fanga.

Heart

Sumardagur íslendinga

kemur fyrstur í heimi

hríðarbylur

sólarblíða

á Íslandinu þýða.

Sumar okkar við Iberíuskaga er væntanlegt þann 21 júni en sumarveður hefur leikið við okkur frá því í september í fyrra, eða þar um bil.

Sjáumst eftir helgi.

 


Ljúfir tónar og litaspjald ....

Yndisleg helgi er á enda þar sem ýmislegt hefur verið brallað.  Sambland ad leik og starfi og áhugamálum.

Ég hef ekki setið auðum höndum undanfarið, heldur setið iðin með pensil í hönd.  Sem er svo sem ekkert nýtt því þannig uni ég mér best!  Sniðugt að hugsa til þess þegar ég sveif á Fjallið mitt og benti honum á hvað hann væri lánsamur að eiga mig. Já, sniðugt ... þar sem mínar geðlægu hvatir færu á striga eða flís.  bla bla bla .... Júpp hann er lánsamur þessi elska og það þarf vart að tíunda hér.  Hvert og eitt einasta pund léttir hans lund ... InLove  Ég er líka heppin, viðurkenni það Heart

Stúlka med rós  Saetur svefn í módurfadmi  Zér ást mína tjái zví hjartad zig dáir

 

Í gledinnar fasi hún lyfti glasi  Zú ert mín eina sanna og hreina  Hana langadi í sopa og fékk sér 10 dropa

 

Hann vafdi hana ást og hlýju  Hugfeng veidi  Í hálsakoti

Allar flísarnar eru unnar með akrýl litum á mismunandi tegundir af þakflísum.  Ég setti inn eina af eldri flísum með þessum en ég er að leggja lokahönd á eina sem fylgir þessum í rauninni.

Ég setti mér markmið sem er gott en það hefur allt farið fyrir ofan garð og neðan en það mun þó ekki halda aftur af mini - me, hrædd um ekki.

Nú er kroppurinn orðin þreyttur eftir daginn, þvílíkt puð að fara í lönns til tengdó og fá þar úrvals þjónustu.  Hvar væri ég í þessu lífi ef ég ætti ekki svona dásamlega tengdó, sem tók að sér lítinn dreng og ól hann upp samkvæmt frábærri uppskrift eða er það forskrift .... LoL  Já, það má nú segja að lánið leiki við kjéddlingar kropinn.

Nóttin yljar mér til morguns

undir ikea sæng

þá kemur dagur

glaður,

já, himinglaður,

geislar af honum

sumarbragur

.......

Já, alveg snar!


Fljúgandi hryllingur ...

.... sit hér í makindum mínum og mála (hvað annað) opnaði út á verönd til að fá ferskan daginn inn í kotið.  Kemur ekki dillandi martröð sér inn, "friggin" hjúts fiskifluga eða hvað sem þetta nú var.

Hún fór út blessunin jafn ört og ég uppgötvaði nærveru hennar.

Fiskiflugur, ormaflugur eða hvað sem þær eru kallaðar hafa alltaf farið öfugt i konutetur.  Þær minna mig á neikvæðni og gamlar hryllingsmyndir poppa upp í hausnum á mér.  Ég var unglingur sem þótti gaman af hryllingsmyndum og sennilega er viðkvæmni mín gagnvart þessari svörtu drottningu þaðan komin.

Annars er bara allt gott, lífið gott og einhver magakveisa búin að hrjá mig undanfarna viku.  Ég borðaði reyndar sushi á japönskum stað svo það er spurning hvort einhver nella sé að hreiðra um sig ..... nehhhh!  Það drepur ekkert á þessari vömb sem kjéddlingin er búin að koma sér upp.

Sagrada familia de Gaudi

Barcelona er á dagskránni næstu helgi

Við erum búin að ákveða að bregða út frá vananum og munum kíkja til Barcelona næstu helgi.  Við munum haga okkur eins og túristar, borða góðan mat, smakka á ljúffengum tapasréttum á Römblunni og dreypa á ísköldum drykkjum með.  Ég hef aldrei á mínum 10 búsetuárum farið í sjálfa borgina en oft keyrt framhjá eða komið í nærliggjandi bæji á leið minni til Pyreneafjalla.

Það er ekki laust við að mig hlakki til.  Ég ætla að skoða listaverk og afla mér upplýsinga um listaskóla og njóta þess að slaka á með fjölskyldunni.  Ýmislegt í deiglunni .......

Gjugg í borg


Hið eilífa ...

.... það sem ætíð verður, það sem aldrei hverfur okkur.

Lífið hið eilífa, milli lífa þegar ástin sanna kann að blíva.  Thats læf!

Eilíft líf ....

Eílíft líf er það málið.  Er ekki gott að hvíla sig og taka svo upp þráðinn, njóta karma búmmerangsis á milli tilverustiga til að halda áfram hinni eilífu leit að fullkomnun sálar.

Jake-in-Red-Rose-Posters

Anne Geddes er óviðjafnanleg með fallegu börnin ...

Lífið er; stilkur af rós, leiðin þín, sá ilmur og festa sem þú tekur með þér.  Lífið það góða, fyrsti andardrátturinn, fyrsta brosið, fyrstu skrefin.  Lífið er það sem hjarta þitt og sál endurspegla!

Lífið

Góður dagur á enda.  Einum deginum færra, einum deginum ríkari.  Lífið er dásemd.


Flaskan mín fríð ....

.... fer þér ekki bráðum að ljúka?

 LoL

Ekki leiðist mér einni og nýti flöskuna þótt henni sé löngu lokið.  Það var eitt sinn á gamla heimilinu mínu, einn ljúfan sumardag að ég ákvað að mála á striga.  Skellti mér í kjallarann og greip með mér galtóma kampavínsflösku.  Tilgangurinn var að mála mynd með flöskunni.  Þar sem flaskan var græn tók ég fram græna og hvíta olíuliti og klappaði flöskunni.  það kom enginn andi út úr henni enda hafði hann verið dreyptur helginni áður við mikinn fögnuð allra þó aðallega mins eigin. 

Græn eins og flöskuglerið ....

Og svona endaði þetta ....

Mér hefur dottið í hug að prófa að mála með líkamshluta öðrum en gengur og gerist.  Ath. Fjallið verður ekki tekinn í tilraunir Whistling  Nema að hann vilji ......

Í kvöld förum við mæðgur í afmælisveislu, alveg að skella á svo það er betra að fara að setja á sig gerfiaugnhárin, gerfi brjóstin, gerfi bossann og setja nýjan ultrasjæn gloss á varirnar.

LoL  Þarf að horfa á Stuðmannamyndina bráðlega.  LoL


Uppá gátt í suðurátt!

Í ævintýraheimi opnast veröldin á ótalvegu.  Að lifa í eigin draumi og sjá hann rætast verða að þeim sannleika sem hjarta þitt gat.  Það undraverða verður sannleikurinn, þinn sá eini.

Heart

Saman tvö svo heil svo sæl,

sigrar og sorgir,

ókunnar borgir!

Saman tvö enn á ný,

viska og kraftur,

ástarinnar æskumáttur.

Heart

Hann tók í hönd hennar og sá eilífdina

Æskunnar brunnur, elsku Unnur!

Er eitthvað meyr svo nú er spurning að láta narta í sig, svei mér þá!

Halo

 


Engin rós án þyrna ...

... engin þjáning án gleði.

Rósir eru blóma fegurstar, rósir minna mig á hana ömmu mína, á Mariager = rosenes by í Dk, á ilm þinn, á þá fegurð sem lífið hefur að geyma!

Á vegi mínum verða rósir, engin þó án þyrna!

Á leiðinni í gegn um lífið.

Góður dagur á enda í yndislegum félagsskap.  Ég vaknaði í morgun og dreif mig af stað að hitta vinkonur en við áttum leið á útimarkað í sveitinni.  Við versluðum örlítið en megintilgangur ferðar minnar var að kaupa blóm.

Ég lét ekki kjurrt við liggja og keypti skó og danskt rúgbrauð.  Veðrið var sól, sól og sól.  Brakandi geislar er þræddu hjartastöðina, við áttum ljúfan dag!

Ég náði að sofna í sólinni seinnipartinn hjá tengdó og ég skal segja ykkur að það var notalegt.

Konan er eins og kríuskítur og leitast við að lifa í skugganum en hvað er betra en vorsólin er smeygir vítamíni í kroppinn.  Það er fátt betra nema kanski nægja þess er fyllir tómið.

Heart

Gleðilegan Sunnudag elskurnar.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband