Færsluflokkur: Menning og listir
11.4.2008 | 15:05
Skilaboð hjarta þíns, vellíðan ...
og vanlíðan ( ekki má gleyma jafnvæginu ) munu vísa mér á rétta braut.
Það er sólríkur föstudagur og ég er búin að áorka helling í dag. Mér líður eiginlega eins og íslending núna. Búin að vinna vikuna á 2 dögum! Ég dró spil sem heitir Einbúinn IX en það er margt til í því sem spilið segir. Það er náttúrulega mest til i sjálfri mér, vera sammála eða ekki og öfugt!
Ég er að fara að skrifa bréf og ætla að senda með póstþjónustu Iberíuskaga, ekki sú fljótasta en skilar sér oftast á endanum. Ég var iðin að senda, sendibréf hér áður, þegar ég átti enga tölvu, átti í raun fátt nema sjálfa mig ( fer alveg á flug með hugmynda aflið og það sem skiptir máli núna ). Var alsæl með fyrsta farsímann minn og þótti nú bara fínt að eiga þannig tæknitól. Í dag þá liggja þeir í hrúgum út um allt hjá fólki og það er enginn maður með mönnum nema að eiga nýjustu gerð!
Ástæðan fyrir bréfaskrifum er að ég fann gömul bréf og þótti yndislegt að lesa m.a. bréf frá ömmu heitinni og frá góðri vinkonu. Það er svo miklu persónulegra þegar þú sérð rithönd viðkomandi, færist á óskiljanlegan hátt nær!
Ónefnd, flís 40 cm
Smá sýnishorn handa ykkur kæru bloggvinir, mínir ötulu stuðningsmenn og konur. Ég er eins og megabeib á heitu bárujárnsþaki að steppa trilltan dans. Nóg að gera en í kvöld er það fundur með góðu fólki sem var að taka skrefið. Fólk sem lét verða af dottlu.
Langar að segja svo margt en þarf að halda mér við efnið.
Njótið helgarinnar
10.4.2008 | 17:03
5 tíma svefn og ......
.... fullur dagur af verkefnum!
Búið að vera af nægu að taka, vaknaði með andfælum klukkan 07:14 og dreif mig frammúr. Gekk frá smá pappírsdóti og var farin út í vorið um 08:00 og kom ekki heim fyrr en 14:00.
Hrikalega þreytt eitthvað ... það þykir nú ekki slæmt að ná fimm tímum í svefn en eitthvað var kjéddlingin drusluleg og eftir eldun Fjallsins þá læddi ég mér inn í stofu, lokaði og lagðist undir teppi. Það er gott að gleyma sér og sameinast góðum vættum .... vaknaði með hálsinn í keng en er orðin þokkaleg núna.
Ég þykist og tel sjálfri mér trú um eigin dugnað og keppist nú við að undirbúa mig fyrir sýningarnar í sumar. bla bla bla ....
Búin að flísast töluvert, koma frá mér sendingu sem fór í gær yfir hafið. Það er alltaf góð tilfinning að senda frá sér til að geta hafist handa á nýjan leik.
Engar fréttir eru góðar fréttir
8.4.2008 | 23:58
Næstum því ...
...... já, svo nálægt því!
Þá fer þetta höfuð bara að hugsa og tekur allan hjartastuðulinn í bakaríið og Goðaheimur hellir sér yfir mig og grýtir í mig rúnum sem segja mér að halda mér fast á töframottunni.
Já, og ég ákvað að verða bara þæg.
Siló minn var hinn merkilegasti köttur og það er lítið meira um það að segja nema kanski að þegar að ég stóð við gömlu eldavélina í húsinu sem l-afi minn og l-amma bjuggu í þá sat krúttið á öxlinni á mér og lét mig vita þegar sporðurinn hans væri akkúrat perfekt gerður!
Svo dó hann og ég grét úr mér augun en er búin að jafna mig. Systir vinkonu minnar sagði, hvað er eiginlega að henni Zordísi og vinkona mín svaraði " hún var að missa kisuna sína" .....
Systirin hló en ég fór hálfskælandi á leikrit með Hr. Guðmundi. Ég naut þess ekki en nærvera Hr. Guðmundar var góð og ekki urðum við hjón þrátt fyrir góða nánd (takk Hrönn).
Allt í einu er ég farin að hugsa og spá.
Stend á gati og veit minna en þá.
svo horfi ég í tóm augun grá,
og undrast, og undrast -
- hvaða augu eru þetta?
Mín eru grænblá.
Næstum því sem ekki varð, verður nú að öðrum dag.
6.4.2008 | 11:48
Ég er að bráðna ....
.... ekki grín því hitinn er hrikalegur!
Kanski er ég ekki innstillt á þetta hitamunstur en það væri óskandi að einhver auka kg fykju bara norður og niður í orku sólar.
Ég fór í messu með syni mínum. Það var notaleg og góð stund, presturinn Lúkas er gifti mærina er hreint yndi og sungum við um guð í hjartanu, um guð í þér og í mér. Eftir messu fórum við mæðgin á kirkjutorgið og pöntuðum okkur kælandi drykki og lítinn poka af GRENNANDI flögum.
Það er svo gott að vera með guð í hjartanu og dreggjar blóði krists gærkvöldsins. Já, nú fór ég alveg með heilagleikann!
Í gær vorum við hjónin í matarboði hjá kærum vinum er búa rétt fyrir utan bæjinn og áttum góða stund. Húsfreyjan Sigrún var búin að útbúa sönghefti og bara svo það sé alveg á hreinu þá er ég nánast raddlaus í dag. Fékk smá kraft við messusöng en svonnnnnna eretta bara!
Eftir dýrindis kvöldverð; lax í forrétt, nautalundir í aðalrétt og tiramisu og jarðarber í eftirrétt .... sannkallað lúxus slurp býður sunnudagshádegisverðarfundur með tengdó.
Elín vinkona var að hafa áhyggjur af mér hvort það væri ekki örugglega bubblur hjá tengdó ??? Carmen klikkar ekki á perlandi víni með sinni einstöku Miðjarðarhafsmatargerð! Og, svona bæ ðe vei þá mun ég taka upp nafnið Carmen þegar ég verð orðin spænskur ríkisborgari til helminga!
Er í stuði með guði, er að mála og viðfangsefnið er ástin enn eina ferðina. Sem er gott! Hvað er betra en ástin??? Við erum svo yndisleg einhvernvegin þegar ástin kraumar í hjartanu okkar.
Ástin, Olímynd á striga 81 x 100
mynd í vinnslu
Ég er að hlusta á æðislega tónlist, kvæðaljóð og þjóðlög en Bára Grímsdóttir hefur sterka og fallega rödd og þetta er tónlist að mínu skapi! Ég mæli með að þeir sem hafi áhuga á fögrum og gefandi tónum skoði tónlist hennar. Konfekt!
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
5.4.2008 | 09:19
dem .. með þumalputta á öllum ....
..... þegar ég ætlaði að ýta á "vista og birta" þá hvarf færslan mín. Er verið að nota þolrifin sem hljóðfall eða er ég mætt í vélritunartíma 12 ára stúlku í Mýrarhúsaskóla.
Skyldi ég ná prófinu, get ég hammrað nógu mikið á sem skemmstum tíma?
Hún situr og horfir á hafið, það er blautt og notalegt. Hafið, uppsprettan, yndislegu lífsins gæði. Í huga hennar hefur hún alsett það blóðlitum rósarblöðum er greiða henni leið á yfirborði þess. Hún er hluti af gæðum heimsins og sameinast móður jörð í þeim líkama sem guð gaf henni. Í huganum getum við sigrað stærstu tröll og unnið fínustu verkin. Í raunheimi stöðvar okkur enginn nema við sjálf. Líf í lífi og ljós í ljósi erum við hér til að sigra heiminn, hver á okkar hátt.
Rósin hún teygir knúbba sína í átt til sólar, hún er fögur og fíngerð úr fögrum paradísargarði. Hún, þessi fegurð þrífst í mjúkru móðurmold og í sameiningu þá gefur hún okkur ljúfan ilm og hjartans sýn. Rósin ert þú og við getum í sameiningu sigrað heiminn. Nýr dagur!

4.4.2008 | 07:16
Tíminn lætur ekki hæða að sér ....
25 ára afmælið er nú liðið. Í dag gekk ég í fullorðinmanna tölu og staðfesti þannig barnatrú mína að sið Mótmælenda. Dagurinn var bjartur og fallegur og gekk eins og í sögu.
Ferming í Dómkirkjunni í Reykjavík, Séra Hjalti Guðmundsson prestur sá um vígsluna sem var vel.
Já, heil 25 ár síðan, alveg er þetta merki um að konukroppur er eins ung og hún vill.
Ég var sátt og sæl, þakklát fyrir daginn.
...... er það enn ......
Hásætiskirkjan í San Miguel
Ekki er hægt að ég sé beint kirkjusækin en ég fer öðru hvoru á sunnudagsmorgnum og finn fallegan frið í kaþólsku hæsætiskirkjunni minni. Ég gekk að eiga Fjallið mitt í þessari kirkju og það má segja að það sé dagur sem fer í ánægjupakkann!
Eins og sól í heiði geislaði guð með mér inn kirkjugólfið. Ég fékk brúðarkjólinn korteri fyrir athöfn og það var spenna í kjéddlingunni. Mamma og Vala föðursystir mín aðstoðuðu mig á síðustu stundu í dressið og við pabbi röltum svo bæjinn eins og siður er hér í átt að kirkjunni. Það flautuðu allir og göllu gleðiorðum.
Ég ákvað að vera ekki með skreytingar í kirkjunni og fór morguninn sem ég gifti mig í blómabúðina mína og bað hana að útbúa látlausan vönd. Þessi litli dúllulegi vöndur gleymdist svo heima og ég var eina blómið þennan dag.
2.4.2008 | 19:12
Spá í lífið og spá í þig!
Mig dreymdi kæra vinkonu mína í nótt! Ég þakka þér fyrir mig í draumaheimi en það var svo skrítið að okkur skildi að gengsætt gler! Draumar eru skrítnir, eða hvað finnst þér?
Ég er búin að henda mér niður á þá mannlegu veru sem ég er og hugleiði þar með veruna sem ég tók að mér. Þegar ég var í eind minni og ákvað að það væri tími. Eins og krónan í frjálsu falli heimsins að upplifa lífsins stund og dagsins drauma.
Í dag er það Laguz sem hvíslar að mér að í fortíðinni skilji ég við tilfinningar sem oft á tíðum streyma vaxandi til sjávar. Laguz er rún sem er í raun stórkostleg inn í framtíðina en hún er mín fyrrilífsfortíðar rún!
Nú, lifi ég tímabil sköpunar og orku sem laðar sig að mér og gæti haft með allt mitt að gera. Fehu er rúnin sem boðar velgengni og auð hún boðar það góða sem hægt er að njóta í núinu. Að njóta dagsins er eitt það besta sem til er!
Á morgun, þar sem framtíðin hvílir sig býður nótt góðan dag er vefur kærleik sinn um sjálf mitt. Algiz er góð rún inn í framtíðina enda boðar hún Vernd og velferð, hún er getan hún er lífið!
Með þessar fréttir þá þarf kona varla meir, þessi kona er sátt og sendir þér kveðju.
Að faðma Pálma Svo er dálítið spúkí í gangi. Í dag þá fór ég að síðuna hennar Katrínar Snæhólm bloggvinkonu og af hennar síðu á síðu Vilborgar vinkonu hennar og dró Creative spil sem án fyrirvara birtist hér fyrir neðan. Ég var að reyna að smella inn Ástarsambandi mínu við Pálma hér inn og það sem peistaðist fer hér eftir. Á ég að láta slag standa og finna opnun? ¿ Spurning ? |
1.4.2008 | 15:31
Þegar tunglið kyssir þig á kinn .....
.... kossinn ljúfi snertir minn vanga og himintunglin hreyfa jörð!
Þegar gættin opnast og ljósið skín á móti þér eins og móðurfaðmur hlýr. Hver er þessi gæfusama móðir, hver er þessi blíði faðmur sem ávalt er þér opinn. Traustið og friðurinn sem mætir þér jafnast ekki á við neitt í lífinu, nema kanski dauðinn sjálfur.

Fegurð og ásjóna
Dagurinn hefur verið annasamur, sólin brennir vanga eftir næturkoss tunglsins. Ég þarf að vera dugleg að klára ýmsar pantanir sem eru nú þegar að líta dagsins ljós. Aðalstarfið gengur fyrir öðru en það fara nú að verða breytingar á því þar sem tíminn flýgur á ógnarhraða í áttina að ljósinu!
Sólarkveðjur til ykkar og ekki gleyma lakkalokkunum sem verða það heitasta í sumar! Hver veit nema ég mæti með lakkalokka á sýninguna um verslunarmannahelgina ...................
Það eru liðin tæp 3 ár frá því ég gekk upp hlíðina og tók að eiga Fjallið að kaþólskum sið. Ég er hálfgerður "trúvillingur" svona prakkari. Ég er að fíla boðskapinn hennar Dísu Dóru, elska goðafræðina en finn Jesú í hjartanu og dáist að hreinni fegurð móðurinnar. Hvað er ég þá annað en eindin er trúi öllu og fagna öllu og sú sem vil finna. Ég stakk uppá því við tengdamóður mína að það væri nú lag að draga soninn að heiðnu altari. Úff ... 300 Maríubænir eru ekki næg refsing
Gyðja Þórs kveður að sinni ....
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
31.3.2008 | 21:56
Að koma á óvart, alveg óvart!
Varð bara. (Jóan þessi færsla er fyrir þig thi hi hi hi hi)
Hann liggur í skel sinni, hefur varann á sér og lifir af ótrúlegustu þrautir og er lífseigur fjandi. K....................n getur lifað af og þolir allt að 130 sinnum meiri geislum en maðurinn ef til kjarnorkugeislunar kæmi en að sjálfsögðu myndi hann andast ef hann væri nær kjarnaupptökum geislunar. Ástæðuna má rekja til litningagerðar dýrsins, ekki beint gælulegt gæludýr en dýr engu aðsíður.
Svart er smart en hann er líka brúnn og það væri t.d. dásemd að útbúa eyrnalokka úr lökkuðum k...........................m. Parið kostar ekki mikið en þessir lokkar munu gefa þeim sem þá bera mikla gæfu! Alveg satt ........
Þið sem viljið leggja inn pöntun
Opinberum kvik "yndið" sjálfur kakkalakkinn er kvikk og getur skotist í minnstu smugu og þykir gott að hlýja sér á ómöluðum hlýjum kaffibaunum og þrífst vel í raka. (er by ðe way að drekka kaffi frá kaffitár).
Þess má geta að það fyrirfinnst gerill sem er með meiri geislunarþol en kakkalakkinn er nefnist Deinococcus radiodurans, já og hér erum við að tala um þrjúþúsundfalt geislunarþol á við mannskepnuna. Er það ekki dásamlegt!
Guð blessi allar lífverur jarðar. Fagrar sem fagrar og stórar sem smáar. Það er ekki fegurðin sem skiptir máli, heldur tilgangur og gæði viðkomandi vera. Við erum jú öll ein heild þegar upp er staðið! Öll með hlutverk sem öll skipta máli.
Fagur er hann svartur að lit
harður undir tönn
undir niðri mýktin ein
lifir af í fönn
andlistfríður harmakvein
hræðir ra og menn
lífsins gæði hugsun ein
kakkalakkageim
Hann er vissulega spennandi en af flestum ógeðfelldur blessaður anginn, þó hvergi banginn.
* upplýsingar um kakkalakka eru fengnar á vísindavefnum
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
31.3.2008 | 19:58
Er hálfsögð saga, eintal ...
Eins manns hjal er annars manns gleði þótt hann streði!
Smá svona málsháttapælingar þar sem ég fékk mér páskaegg númer 1 með páskaegginu og fanst það virkilega gott. Ég hafði enga lyst á páskaeggjum á Íslandi enda var þvílík súkkulaði flóð og ég er ekki mesta súkkulaði æta sem upp hefur verið! Eða hvað finnst þér Elín mín ??
Við lögðum land undir fót um helgina og það var gaman að bregða sér út frá hversdagnum ekki það að við vorum nýlent eftir Íslandsförina. Það var hið besta veður, töluvert rok í kabboj landi en þar sem íslenskt blóð dælir þar er sjaldnast vandamál. Það góða við rokið er að þá eru engar flugar sem eru að dilla sínum dúllulega botni.
Þetta er nú hálfgert svona bla bla blogg um ekkert og það litla innihald er gott! Ég dró mér rún og fékk Þurisaz en það er rún athafnasemi, þekkingar þrenginga, aga, íhugunar, endurnýjunar og einbeitingar.
Á gangi .... akrýl á pappír
Málið varðar doltið og ég gæti best trúað að athafnasemi og endurnýjun sé svarið sem ég leitaði að.
Ef ég ætti að líkamast með dýri þá yrði það fleygur fugl og gettu nú hvaða?
þurs er kvenna kvöl
og kletta búi
og varðrúnar ver
* tekið úr íslensku rúnaspilum