Færsluflokkur: Menning og listir

Sögur af Trabant .......

... Let´s live a little.

Já, þetta sagði ég við vinkonu mína fyrir mörgum árum síðan.  Hvatti hana til að koma með mér í ökuferð í Trabant sem pústaði inn í!  Hún ákvað að lifa með mér og við skelltum okkur í Bláa Lónið.  Við fórum og böðuðum okkur og snæddum svo á veitingastaðnum og svo var haldið í víkingabæjinn Hafnarfjörð og þaðan á Fógetann (sakna´ns).  Við mættum bláedrú en útúreitraðar og nánast látnar af ógeðfelldum útblástursgufum.  Bólgnar á augum og slæmar í lungum (hálfgerðar 2 úr tungunum) á Snæfríði og snípana (er síðar breyttu nafninu í Snæfríður og stubbarnir) tónleika.

Þessi sama vinkona mín þurfti ekki að segja mér hvernig lífið er þegar hún hringdi í kvöld og sagði mér að hún væri í næsta héraði, heldur pantaði ég hótel við grasgrænan sælureit í Almeríu fylki, þar sem margar gamlar kabboj myndir hafa verið framleiddar og mun bregða mér þangað eldsnemma í fyrramálið til að hitta hana á grösugum golfskónum.

Ég verð að sjálfsögðu með gin og tonic þegar hún kemur af vellinum og ég leik að vitanlega ekki golf nema ég liggi í golfinu nakin með græna Fjallsléttuna og vænt beði í hendi.  Á reyndar flotta Eco golfskó og hanska sem ég fékk að gjöf fyrir snilldartakta!  Mitt vandamál er að ég verð að hafa gaman af því sem ég geri og leik því ekki golf ennþá, er sennilega ekki nægjanlega þroskuð!

Ákvað að óska ykkur góðrar helgar þar sem Fjallverur hverfa af braut um helgina í mat og drykk og skemmtilegan félagsskap!  Jy hvað ég hlakka til!

Þarna verð ég meðan Fjallið fer í golf
Alveg að gera sig svona líf

Líklega verð ég þarna á morgun þegar fjallið bregður sér í golf.  Fæ mér örugglega jarðarber og snjáldur af kampavíni ef stemmingin verður þannig eftir gin og tonicið ... já ég þarf enga hvatningu.

Góða og Óða helgi elskurnar mínar!

Ég ætla að njóta minnar í allt að 30°C

Svammlandi í nuddlaug með náttúruna öskrandi í andlitið á mér.


Blómálfahlátur og fuglasöngur ....

... hláturinn dillandi mætti okkur ferðalöngum þegar heim kom!

Í járnfuglinum svifum við í sykurpúðagarði himnaherrans og varð okkur hugsað til Kanarýfuglanna okkar.  Fjórar pjattrófur sem eru matvandnari en sjálfur Devil ....  Eitthvað annað þegar ég var lítil og át jarðaberið síðast af öllu!

Kanarýfuglar eru nefnilega "pikký" borða bestu bitana fyrst og koma svo með látbragð og þykjast hungurmorða þegar sandkakan er búin eða þegar að kampavínsdælan klárast!  Jamm, alveg dagsatt sko!

En, dúllurnar voru skíthoppandi glaðir og sungu af hjartans lyst fyrir okkur í morgunsárið!  Þegar fyrsti kaffibollinn ....... og hugsanir fóru á flug heyrðist skelleggur blómálfahlátur úr ljósopinu en þar geymi ég Hawayrósina mína, 2 Jólarósir sem eru hrikalega brattar og 4 sumarblóm sem fengu hjartahnoð með vövkun!  Það er búið að vera yfir 20°C alla dagana sem við vorum á klakanum að njóta lífsins í leik og ljúfu lífi!

Bíbí og Vanilla
Þeir voru sprell alveg
Sátt og sigur, heimsins friður

Frá látum í auka ... auklæti að sárum ...

... í sársauka!

Kanski ekki alveg sársauka en tilfinningin um daprar tilfinningar annara og eigin valda mér samt sársauka og mér þykir miður að persóna mín verði valdur að neikvæðum tilfinningum annara!  Lífið er miklu betra en það.

Ég hef í raun ekkert gert nema að anda með öðru lunganu og notið þess að vera til og gert það sem mig langar.  Svo heyri ég útundan skrítið og það veitir mér depurð!  Stundum er pirrandi þegar fólk bara andar, eða gerir eitthvað annað, skrítið ..... eða ekki skrítið!

Í lífsins öldudal göngum við dvergknúin skref, upp og niður og upp og niður og að endingu erum við í bárujárnsleik og klífum upp og niður, upp og niður og njótum þess eður ei!

Ég hef val og það pirrar mig að geta ekki deilt gleði minni með þeim sem ég elska eða þeim sem ég veit að elska mig ... búmmerang love affect.  En hver er ég til að skikka aðra í mitt tilfinninga búmmerang "skran" thing, hver er ég til að vona að allt er sem var! 

Ég held ég geti ekki tjáð mig um þessa hluti nema á þá einu leið að senda bænir.  Við erum jöfn öll sem eitt, stór og smá, lítil eða ljót ...... gul eða græn!

Aðstæður það er málið og stundum þar að útiloka það sem ekki þarf að fylgja okkur í lífinu.  Ég veit líka að stundum þá fylgja okkur tindur sem leiða okkur áfram, styrkja okkur og eru raunverulega okkar styrkur!  Hvað er lífið án þeirra sem standa upp og setja línu í veg þinn.  Ef engar hindranir verða á vegi okkar náum við ekki að kvika né sanna snerpuna.  Öll sár gróa og stundum voru það ekki sár heldur ofur aumar tilfinningar sem sneru upp á okkur. 

Þess vegna þakka ég fremur en annað og segi, takk fyrir að vera!


þakk-læti ...

Þökk sé þér og friður sé með yður!  Þökkin og lætin gera þetta svo dásamlegt!

Ég sit og horfi á fallegt þakklætiskort sem bloggvinkona mín Katrín Snæhólm færði mér og hugsa um þakklætið, hugsa um heilbrigðið og þá heppni sem umvefur fjölskylduna mína.  Í dag lifi ég þakklætið sem kraumar í hjartanu.  Ég lofa daginn í dag og óska þess að móttaka ætlunarverkið hvort sem það gleður eður ei.  Spella svo út í heiminn glærum hamingjukúlum sem hitta þig í hjartastað.

Ég er þakklát og það er gott.  Ég finn hamingjuna í gegn um þreytuna og er að upplifa svo góða hluti almennt!  Ég er glöð þótt ég sé ekki eins og klippt út úr Burda blaði.  Ég er sæl þótt ég sé svona eða hinsegin og ég er heppin með það fólk sem ég umgengst!  Takk fyrir mig InLove þú ert svo sannarlega ein eða einn af þeim sem gefa mínu lífi lit!

Íslandsferðin var dásamleg í alla staði.  Við upplifðum snjó, okkur varð kalt úti og rosalega heitt inni í íslenskum húsum.  Við heimsóttum vini, sáum hesta og álfahól.  Okkur dreymdi fagra drauma og sáum drauga.  Við keyrðum í snjó og blindbil og var Fjallkonan nokkuð spennt í öxlunum en 5 mín síðar var komið flennifæri og birta!  Er Ísland ekki einstakt í sinni röð?

Hlýja 20 cm

Ein af 4 sem ákváðu að skilja ekki við mig að sinni.

Ég hef alveg fullt að segja en það kemur einhvern veginn ekki rétt frá mér.  Þakklætið er efst og ég trúi því að tilgangurinn sé jafnan að verki.  Þreytt eftir ferðalagið en fersk eins og blóm í skugganum.

Mig langar að vera rosalega skemmtileg en hér tifar þakklátt hjarta sem óskar ykkur góðrar nætur.

Takk, Gracias, Thank you and Danke!  Svo er við hæfi að segja tak paa min kærlige dansk!


Gleði og Gaman ...

... það má segja að það hafi verið glaðlegt í alla staði að hitta svo marga sem raunin varð á föstudeginum langa!

Bestu þakkir fyrir innlitið mín kæru.

Ég get ekki annað en glaðst yfir hversu vel heppnað allt var, frábær Stuðmannatilfinning helltist yfir mig í þessu félagsheimili Kiwanismanna.  Góður andi og skemmtilegt fólk sem kom.  Eitt fannst mér þó dapurt og það var hversu lítið ég gat gefið ykkur gaum en það rætist vonandi úr því á öðrum grundvelli.

Það styttist í að fjölskyldan haldi heim á leið, mörgum kg léttari í farangri þar sem þakflísarnar hreinlega fuðruðu upp.  Þegar við ókum í átt að sýningarhúsinu þá flaug Krummi kallinn að bílnum og krunkaði á mig.  Ég fékk góða tilfinningu eftir kallið frá honum!

Solla sörurnar voru æðislegar og nærvera ykkar bloggvina minna var hreint yndislega góð.  Takk kærlega, kæru bloggvinir fyrir komuna!

 


Síðasti kossinn ...

... meina færsla!

Ásdís fjallar um kossa og Doddi er tilbúin að koma og kyssast!  Marta stendur í stórhreingerningu og Ollasak örugglega sjæný og fín um höfuðið .....

Þar sem síðasta færsla fyrir flugtak er að fæðast og allt hálfpakkað og brottför e. rúml. 1 stk. klst, þá ætlaði ég rétt sísonna að segja bless og vonandi sé ég ykkur sem flest í rjúkandi sopa og hver veit nema að það verði eitthvað girnó með Whistling

Listasýning

Langar að minna ykkur á listasýninguna sem haldin verður á föstudaginn langa þann 21. mars í Kiwanis húsi Þorlákshafnar.  Frá 1400 til 1800 ....

Ollasak ætlar að tjútta upp kaffisoð og guð má vita hvað henni dettur í hug þessum snillingi.  Hlakka bara ógó mikið til að hitta þessa kjéddlingu.

Sigrún mín ætlar að hjálpa mér að hengja upp þakið svo við getum sungið; kondu niður bað hún amma, kondu niður sögðu pabbi og mamma, kondu niður, kondu niður ..... og við tjúttum eins og tveir grísir á heitu bárujárnsþaki!

Björkin kemur vonandi akandi en ekki á pinnaháum hælum.

Lísan mín verður vonandi ekki erlendis heldur að hengja upp með mér!

Bloggvinakjéddlingar á landsvísu eru hjartanlega velkomnar að koma og allir bloggvinakaddlar líka!  Doddi þú veist að ef þú ert á flakkinu þá er möst ......

Læt þetta gott heita og mér er víst ekki til setunnar boðið lengur, Fjallið er afskaplega pirrandi núna!  Wonder why????  Kjéddlingin að blogga og hann að púla Whistling

HeartVið skulum bara kalla þetta ást Heart


Zzzzzz .....

..... Þegar ég var að sofna í gærkvöldi var mér hugsað til Vesturgötunnar í henni 101 Reykjavík.  Þess tíma sem árur flugu eins og ilmur um húsnæðið, þar sem ég fann gömul græn og brún lyfjaglös merkt ömmu minni og upplifði ástand milli heimanna!

The sky was filled with angels

one of them was I ......  Svo man ég ekki meira! 

Ég tók upp gjörnina á gamlar kasettur og hló og skemmti mér!  Frænkur mínar fengu þar með staðfest að "moi" væri bara svona!  Ég gekk í gömlum kjólum af móður vinkonu minnar og elskaði það.  Ég elskaði að búa í Vesturbænum, fann meir að segja fyrir K.R. hjartanu .....

GeGgJaÐ vEðUr

Gaman Saman

Búið að vera yfir 20°C

Alla síðustu viku hefur verið hlýtt og notalegt, svona Dairy Queen veður eða Hlunkaveður!

Ég veit ekki hvernig morgundagurinn verður en hann er stútfullur og svo flug um kvöld.  Los Ramones (við familían) fórum í ferðatöskuleiðangur og við keyptum 7 töskur í öllum regnbogans litum.  Við verðum bara fyndin svona litrík ........................... 

Ég á vonandi eftir að gera nokkra engla í garðinum hennar ömmu ef snjórinn klikkar ekki. 


Listasýningin á Þakinu ....

.... það styttist í ferðalagið okkar; Ísland fagra Ísland.

Almennilegt vetrarfrí framundan og mikil tilhlökkun hjá börnunum að sjá snjóinn og geta leikið sér við snjódúkkugerð og englaframleiðslu.  Drengurinn er vís með að liggja á bæn til að fá nóg af snjó.

Við munum dvelja þessa viku í Þorlákshöfn ðe City eins og margir búar kalla bæjinn.  Nafli alheims er sko ekkert slor þótt Sigrún bloggvinkona mín sé ósátt við þefinn sem leggur sig á snúrurnar.

Ollasak bloggvinkona er ein af þeim konum sem eru stútfullar af hugmyndum og þegar ég heyrði í henni um daginn þá lét hún það bara flakka.  Sko !!!!  Zordís, taktu sal á leigu og bjóddu gestum og gangandi uppá litla listasýningu og kaffi.  Þessi hugmynd fanst mér mjög sniðug hjá henni InLove Ooooog það sniðug að hugmyndin fékk líf.  Ég grennslaðist fyrir um sal sem er laus á föstudaginn langa.  Þennan dag munum við Solla og Sigrún vonandi líka og Lísan mín skrafa í kaffispjalli og ekki má nú gleyma Björkinni sem verður að koma og hitta vinkonurnar mínar!

Já, það virðist allt stefna í að Listasýningin á Þakinu líti dagsins ljós á föstudaginn langa og erum við að stefna á opnun frá klukkan 14:00 - 18:00.  Er ekki tilvalið að taka bíltúr í eitt af fallegri bæjarfélögum landsins, Þorlákshafnar og skoða list og njóta kaffisopans með okkur vinkonum.

Hugmyndir fljóta um geyma er læðast í mennska heima.  Hugmyndin er nú orðin að einhverju meira og í höndunum á okkur verður þetta skemmtileg tilbreyting og ég óska þess heitt og innilega að sjá ykkur bloggvinir mínir í kaffispjalli næstkomandi föstudag milli klukkan 14:00 - 18:00.

 


Tíminn er núna ...

.... hefur aldrei verið meira áberandi og stendur beint fyrir framan mig!

Ég fékk gott fólk í heimsókn í gær, brilljant veður og gott spjall.  Það smá saxast á þakflísarnar og í gær fór ein af mínum uppáhalds yfir hafið.  Ég hef ekki setið auðum höndum undanfarið, hef verið þreytt og tók á frk. þreytu í gær og fór að sofa fyrir klukkan 22.00 og er eins og nýslegin í dag!

"Moi" átti inni pöntun á þakflísum sem eru 50 cm á lengd og var spennt að geta hafist handa við efnið en allt kom fyrir ekki að þegar ég fór til að sækja pöntunina hafði verðið hækkað um helming frá því ég panta og varan kemur!  Þakflísar fara hækkandi eins og bensínverðið ... nú er bensín ódýrara en olía .....  Algjört hneyksli í landinu mínu.  En, þegar ég var að grammsa í þakflísadeildinni (heavy gramms) þá fann ég algjörar dúlluþakflísar og ákvað að kaupa nokkrar og þvílík krútt!

Þakflísar 40 og 20 cm

Sjáið munin ....

Dagurinn í dag verður stútfullur hjá úthvíldu konunni.  Ég finn fyrir þakklæti sem er boði á góða hluti.  Ekki að ég hafi ekki nóg að þakka fyrir!  Ísland er á næsta leyti .... þakflísaflutningar þar sem ég ætla selflytja verkin heim í handfarangri og útvega mér stað þar sem hægt er að sjá þau "læf".

Til gamans þá læt ég ykkur njóta nokkurra krútta sem hafa bæst í safnið ... myndirnar eru teknar án flass en birtan er ógurleg hjá mér .... LoL  Verðin á flísunum eru; 14.000 krónur stærri flísarnar (40 cm) og 8000 krónur þær minni (20 sm) ..... fyrir ykkur sem hafið áhuga! 

Kona og fiskur 20 cm

Þakflís 20 cm 

Hlýja 20 cm

20 cm þakflís

Eigið yndislegan dag


Lottóvinningar ....

..... það var þá aldrei að kona tók þátt í lottó!

4 miðar og 4 vinningar!

Nú get ég hætt að vinna, mála, borða, tala og elska!  Ég er rík í hjartanu og þarf ekki meir!

Ég mun sitja í kyrrðinni og hlusta á lottóvinning lífsins.  Fuglasöngurinn, sólargeislarnir og viðmót þitt.  Þitt er lítur við og skilur auðmjúklega eftir þig spor í hjarta mínu.

Ég hef séð og skilið.

Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband