Færsluflokkur: Menning og listir

Viðburðaríkur sunnudagur ....

Í dag þá höfum við verið dugleg, í dag voru spænsku kosningarnar og úrslitin eru nánast komin á útslétt borðið.  PSOE mun halda áfram og Zapatero heldur velli.

Ég hef ekkert út á þetta að setja, hvorki með né á móti en heildin hefur tjáð sig og þar við situr.

Það var notalegt að fara í kirkjuna og hlusta á Séra Lúkas tala við fermingarbörnin.  Segja þeim biblíusögurnar og spyrja í þaula!

San Miguel kirkjan

Kirkjan okkar

Einhver misskilningur var á milli okkar hjóna og ég taldi að foreldrar hans yrðu ekki í sumarhúsinu og ég var búin að plana veitingahúsaferð á kínahofið sem var frábært!  Held að t-mamma og t-pabbi hafi ekki verið jafn ánægð og ég en svonar er lífið.  Ánægjan dreifist á milli manna, sem er gott!

Día Maravilloso 9 de Marzo

Pato a la Pekinesa og broshýr kokkur

Þetta er aðalrétturinn minn.  Í forrétt fékk ég mér maki taku eða hvað sem þetta heitir með grænustu Wasapi peist ever svo það rauk út úr eyrum og nefi á mér.  Góð hreinsun það ..... heilin fékk smá spark og ég verð nú bara að segja að Sushi er snilld!

Día Maravilloso 9

Sætust, Enrique og Íris Hadda

Eftir frábæran hádegisverð fékk móðirin æði og stakk upp á Go Kart ferð.  Það tóku allir vel í það og börnin þau undu sér vel og óku hratt á brautinni.  Dóttir mín er svakaleg og sá stutti á eftir að sýna væna takta á komandi árum.  Bara gaman!

Día Maravilloso 9

Enrique tilbúinn á braut

Día Maravilloso 9

Íris Hadda komin í mark!

 ..... svo var tekið fótboltaspil og við tíndum kúlunni en þegar þessu trummsi var lokið enduðum við daginn á því að fara í kvikmyndahús San Pedro.  Við fórum og sáum Mi monstruo y yo eða ég og skrímslið sem er ævintýramynd er gerist í Skotlandi og fjallar um sæhestinn eina.  Loch Ness skrímslið.

Æðisleg ævintýramynd sem fyllti upp í daginn!

Ég held ég hafi aldrei verið jafn uppátektarsöm á sunnudegi sem nú.  Kanski voru það guðsorðin sem fylltu hjarta mitt af orku sem læddist út á félagslegum nótum með fjölskyldunni í allri sinni yndislegu dýrð ..... Heart

Tunglið situr, á bláþræði hangir

kona líka og brosir, í hjarta býr þrá.

 geislar armur, ástarþrána svangur,

 hugur elskuna má, er lífi hennar brá.

tunglið glottir

hún lítur undan

í nótt

Heart


Þegar nóttin læðir sér inn ...

.... hún kemur degi að óvörum og yfurbugar ferska geisla hans og vaggar honum blítt til svefns.

Í næturhúmanum gerast mýmörg ævintýri sem við náum ekki að sjá né snerta.  Í hausnum á mér voru átök úr draumaheimi eftir skemmtilega viðveru hjá degi.

Við buðum fólki í hádegisgrill, 14 fullorðnir og 7 börn (vona að ég gleymi engum) .....  Margar hendur vinna létt verk .... orð að sönnu.  Ég var búin að útbúa salötin, grilla bullurnar í ofni, skera niður ávexti sem voru meðlæti Tiramisukökunnar.  Við ákváðum að vera uppá þaki en þar erum við með æðislega útiaðstöðu með frábæru útsýni.  Gestirnir tóku til hendi og báru upp hinar ýmsu veitingar og allt fór þetta vel fram.  Æðislegt grill með góðu fólki.

Þakpartý
Vinir á þakinu

Sólin gladdi gestina og sumir tóki lit í húðina, þar á meðal ég sem roðnaði heilan helling.

Eftir veisluna fór Fjallið að aðstoða vin okkar í ökunámi og ég varð eftir og gekk frá því sem þurfti og tók tal við einhverfuna mína og málaði á eina flís.  Ein af gestkomandi hafði séð húsamynd e. mig og langaði mig að prófa að setja þau á flísar .....

Næturævintýri

Næturævintýri

Fyrsti kaffibollinn leiðir okkur að degi, nóttin sleppti takinu og við munum njóta sólarinnar og þess sem lífið gefur.  Við erum á leið í kirkju og ég sendi ykkur mínar bestu sunnudagskveðjur.


Þúsund brot, milljón stundir og skrilljónir sem ....

.... hvert fara skrilljónirnar?

Allavega þá er gott bara gott og betra jafnvel betra!

Ég ætla nú ekki að hafa orðin löng né köld né annað sem orð gætu orð-ið.

Orð er það sem snertir hjarta þitt

Orð er það sem bræðir mitt

Orð að sönnu mælir þú blíði

hjartans elsku þjónn ...

Í rauðu

Í rauðu akrýl á flís

Ég hef það ekki lengra.  Er að fara að halda upp á það sem gekk ekki eftir í dag!

Ég mun gleðjast að tilefnislausu, mun kitla hjarta mitt og strengi ástarinnar því ástin þarf hvorki tilefni né tyllidaga.  Fjallið er að hamra á gítarinn, börnin eru þæg og ég búin að kasta grýlunni veg allrar veraldrar!

Njótið og hrjótið


Upphaf í upphafinu ....

... byrjunarreitur með geislandi þrepum, þrautum og brautum.

Á leiðinni ætla ég að njóta útsýnis, ég ætla að ilma mig upp og verða eitt með umhverfinu, finna tár almættis þegar við göngum vegin.  Vera eitt í honum því hann er eitt í mér!

Ég er lækurinn sem líður niður grösótt gil, ég er vindurinn sem snertir þinn vanga.  Ég er!

Þegar upp er staðið sáldrast milljón eindir þess að vera í heild sinni, frammi fyrir fegurð lífsins, frammi fyrir staðreind þess áþreifanlega.  Sporið sem markar jarðveginn er sönnun þess að djúpið heldur hæðinni í hæfilegri fjarlægð.

Hjartsláttur heimsins ert þú og ég.

Ástin er æðisleg

Í dag er 7 undi mars.  Sjöundi dagurinn í lífi mínu.

Merkilegur dagur. 


Berfætt argintæta ....

Ég leit í spegilinn og oftar sem ekki þá mætti mér undarleg sjón ..... ég var föst inn í speglinum og úti fyrir var appelsínugulur köttur og kona sem er fremur argintætuleg.

Undir niðri

Undir niðri pastel á A4 pappír

Hvað átti ég að gera, gljáandi kórónan var á sínum stað og ljósu lokkarnir hrundu niður undir gullinu.  Hvað var þessi Baldinmær að gera á fína teppinu mínu ....

Veit ekki, svei mér þá veit ekki svo var hún þarna berfætt í þokkabót og ekki með neina klofbót fyrir alheimsgotterý - inu.  Það má segja að konan hafi falið sig á bak við glerið og gert erindi sín, fara í banka og banka uppá hjá viðskiptvinum og koma svo heim eins og slytti.  Aftur horfði ég í gegn um glerið og þarna stóð hún ennþá, berfætt með úfið hárið.  

Hvað get ég gert annað en að skella mér í rjúkandi sturtu og nudda hársvörðinn og axlirnar.  Ég skal segja ykkur að það er þvílíkur munur á skvísunni ....

Líður vel og nú gæti ég tekið flugið!

Á flugi

Á flugi pastel á A4 pappír

Meir að segja komin í skó ... svona líka bráðhugguleg .... 

Já, fara í skóna og láta þá leiða sig áfram á réttu staðina.  Vera með hausinn á herðunum og finna ilminn af nýrigndum skýjum, finna goluna sem hvíslar leyndarmálum heimsins í huga minn.

Vera sæl og þakklát fyrir það að líða vel fyrir að líða það góða í lífinu.


Einstæðir, samstæðir, litríkir ....

..... skór í tonnatali...!

Spor annara!

 

Ég varð fyrir áreiti í draumi.  Mágkona mín og Eiginmaður voru ekki eins og hugur minn (þótt ég hefði verið huglaus) ......  ég stóð frammi fyrir því að velja skó, að fara í skó og það í húsi ömmu og afa heitins.  Ég vildi fara í brúna leðurskó úr mjúki leðri en það sem var skrítið, var að annar skórinn þ.e. sá hægri var af fjöldanum öllum af allskyns skópörum en bara sá hægri sem var í boði.

Flottir skór.

Reyndar var eitt par sem var sérlega litríkt, virtist búið að ganga það til, þetta voru mínir skór!  Einhver var búin að ganga heila ævi í þessum skóm og ég vissi að þessir voru ætlaðir mér.  Og það undarlegasta var að þarna voru hægri og vinstri mættir til leiks!

Á góðum degi með silikoninnlegg ....

Er búið að ráðstafa okkur, erum við með slóð sem sálin leiðir undirmeðvitund.  Ef svo er get ég þá bara látið reka og hvílt mína velhirtu ugga og ruggað mér inn í kvöldkyrrð með hugann á litlu bleiku skýji, þar sem ég helst vildi vera. 

Skór í draumi hafa alltaf táknað ferðlag eða breytingar sem hefur með persónuna sjálfa að gera.  Eitthvað óvænt nýtt er framundan.  Þetta óvænta er því töluvert eins og skórinn var og viðmótið þitt !

Segir þetta mér eitthvað?

B-zapatos Mercedes_diaz

Skór e. kúbönsku listakonuna Dolores M. Koch

 Amma mín og afi ( upp á skýji búa) voru miklir húmoristar og ég held að þau séu eitthvað að leiðbeina mér frekar en hitt, eða kanski ekki.  Kanski "eretta" bara partur af prógramminu ......

Langar mig að verða virðuleg frú, mittismjó með uppsett hár og karli mínum trú eða á ég að fylgja draumnum mínum, gera það að veruleika sem poppar og skoppar í mínum skrítna heila.  Ég geri oft það sem mig langar til að gera og það eru margir hlutir sem eru þar efstir á dagskránni.

Litríka leiðin er held ég mín með fólki sem kemur úr litrófinu, er geislar svo fallega í takt við andann.

Gulur - Rauður - Grænn - Blár - Svartur - Hvítur - Fjólublár

Og

Öll þau litbrigði sem litirnar hafa uppá að bjóða því enginn er eins.  Allir eru ólíkir á sinn fallega máta.  Í augum þess er sér kemur fegurðin í dýrð þess ljóss er leikur um.  Ég held ég velji litríku leiðina, lifi dag frá degi dags og vona að við getum notið þess saman.

SKÓR eru ekki bara SKÓR

Heart


Andinn í kristalsglasinu ...

.... Ég get sagt ykkur það að ég fékk falleg kristalglös í brúðargjöf frá elskulegri vinkonu minni og megaskvísugolfara (hún ætlar að vinna Audi mótið í sumar og mér skilst að hún hafi gengið á Fjallsrætur að fá kallinn minn í lið með sér) ......  Allavega ég nota þessi glös alltaf spari.

Spari hjá mér er hversdags, svo það fari nú ekki fram hjá neinum.

Rétt eins og ég nota uppáhalds sokkana mína, brjóstarhaldarann minn og hvað sem til að njóta dagsins.  Ég ætla að nota hlutina mína því ekki fer ég neitt með þá að þessu æviskeiði loknu.

Andinn í glasinu hvíslar stundum að mér orðum sem ég vel og hafna að nýta mér.  Þannig er nú það!

Afi heitinn hann bað mig um að lofa sér að ég færi aldrei aftur í ANDAGLAS .... ég játti því og hef ekki kuklað nema þegar ég veit hvar ég hef hlutina og þegar ég veit hvernig LEYNDARMÁLIÐ lendir.

...

þegar ljóðrænn dropi litar glas

andinn talar tungum

mærin skiptir í léttara fas

syngur þöndum lungum

Heart

í litina dýfir penslinum

laglega leika sér knáir

rauður og blár í bjartri von

ástfangin í heimi þess þráir

Heart

Nokkrar flísar koma hér í framhaldi eða var það hjáhaldi

Ástin er æðisleg Hugulsöm

 Æðisleg Ást                      Hugulsöm

 Ævintýri  Að eilífu

        Ævintýri                            Að eilífu

Umhyggja  Umhyggja - móðir og barn

    Umhyggja M og b           Umhyggja M og b

Gamlar myndir frá því 2006 voru kláraðar en það er ansi mikið af efni sem ég á óklárað .....  Bara gaman að finna tak og láta verða af því að fullklára myndir.  Stundum breytast þær eða fara beina leið í endurvinnslu.  Það slæma við að vinna með akrýlinn er að hann er svo óbreytanlegur en hann er góður að mörgu leyti ....

án titils  Án titils

Kona, Akrýl á striga        báðar 20 x 50

Svona burt séð frá öllu föndri og flissi þá kemur gólfið mitt bara þokkalega út undir myndefninu.

Ég er ástfangin af glerlistamanninum Lárusi (hann er bloggvinur minn og er á hliðarlínunni ásamt ykkur hinum en ástin sem ég ber til hans er hvernig hann stillir upp sínum munum)  ég er hrifin af því sem hann gerir og ætla að gera það sem ég get til að hitta hann!  Var að spekulera hvort ég gæti ekki stillt myndunum upp með öðrum hætti en þegar ég var búin að hugleiða málið þá koma málverk sjaldnast vel út á mynd .....

Allavega þá ætla ég að njóta kvöldsins, er búin að eiga góðan dag með tengdaforeldrum mínum.  Ég fékk eitthvað skrítið í augað og náði mér í dropa við því ...  Bjútíkvínið er mætt!!!!!

Best að anda í glösin 

 


Stálslegin og til í allt .....

Þvílíkt dásamlegur laugardagur.  Klukkan æðir áfram og ekki verður kona yngri en þvílíkt sem heilsan er dásamleg! 

Katrín Snæhólm, það var gaman að hitta þig á stjörnunni okkar, og takk fyrir að sýna mér fallegar hugmyndir þínar!  Ég hlakka til sýningarinnar okkar og það styttist heldur betur í gjörninginn!

Ég er að undirbúa þessa sýningu ásamt annari sem er á svipuðum tíma en er að auki að gæla við að vera með soldið í upphafi sumars smá öðruvísi sýningu og það væri gaman að viðra þá hugmynd örlítið síðar við betra tækifæri.

Það er laugardagur 1.Mars, elskuleg vinkona mín á afmæli í dag og óska ég henni innilega til hamingju.  Ung og falleg kona í fegursta blóma, auður af konu og yndisleg ást.  Auður mín, við sendum þér bjartar og ljúfar afmæliskveðjur Heart

Ég ætla að fara úr náttkjólnum og klæða mig, skella mér út í góða veðrið og fara að kaupa blómvönd.  Kanski ég finni mér blóm til að setja á endalausar svalirnar hjá mér ...

Eigið yndislegan dag

Ég er uppfull af geislandi appeslínugulri orku í dag

Viltu vera memm


Dásamleg fyrirferð þynnku dauðans ...

..... það er með ólíkindum hvað kona eins og ég er lánsöm með Guð sinn og aðstoðarmenn.

Klár og hrein skilaboð að handan, ekki hægt að misskilja þetta ...... Grand Marníer er kona sem fylgir mér ekki framar í veislum né öðrum huggulegheitum!

Konan dressaði sig upp, gjörsamlega grunlaus að þessi orange leita kona væri vond.  Vil bara nefna það að hún var framanaf hljóð og prúð.

Í forrétt var yndislegt Feta salat með villigróðri og sólþurrkuðum tómötum.

Í aðalrétt var keisarafiskur steiktur á pönnu með laukmauki og tómatasætuefni ... bara gott ...

Í glasinu var eðal vín og félagsskapurinn hreint yndi.  Spjall um allt, fórum hálfan heiminn á enda og hláturinn dillaði okkur, knúsað og kyssts! 

Í eftirrétt, Cortado og helvettans kjéddlingin hún Grand Marnier sýndi sig í flauelsdressi.  Litli alkinn ég sagði henni að tylla sér hjá mér og við renndum saman tungum og ég sé það að þessi ást hefur rústað lífi mínu.

Þynnka dauðans bankaði uppá og litla ég átti erfiðan dag en virkilega lærdómsríkan.

Þynnka dauðans .....

Svona leið mér ......

Dagur að kvöldi kominn ... Ég eldaði hrikalega góðan kjúklingarétt í hádeginu fyrir Fjallið mitt.  Ég var gjörsamlega lystar laus og gældi við dolluna fram eftir degi, átti bágt og frostpinnar komu fljúgandi eins og feitar rollur í draumi!  Langaði í grænan hlunk frá Kjörís, Hveragerði en nó vei hósei!

Gylltur kjúlli undir beikonsæng ..... (ekki beikonrúmmi)

Kjúklingalund (besti bitinn) létt gylltur á pönnu með grænni olívuolíu ... himalayasalt stráð yfir.

Gylltu kjötinu er raðað í eldfast mót og á pönnuna fara;

beikonbitar, sneiðar eða teningar, steiktir og dreitli af olívuolíu bætt á pönnuna.

Tómatkraftur í fljótandi formi er bætt á pönnu ásamt rjóma til matar og bleik sósan er síðan hellt yfir kjúllan í eldfasta mótinu.

Mozzarella osti er stráð yfir og herlegheitum skellt í forhitaðann ofninn 200° og eldað í 15 til 20 mín!

BARA GOTT

(Svo er ég bara öll að koma til)

 


Íllræmd leið til vellíðunar ...

Þetta er nú meiri aðferðin.  Masókismískt ástand á "ðe hamsterlady" .... JÁ, ÉG FÓR W00t sjálfviljug ... mér var íllt í öllum skrokknum og finn að mér mun ekki líða betur á morgun!

Með íllu skal íllt út eða í burtu reka, það er alveg greinilegt!  Kg in læðast á mig í massavís þegar hazarkroppurinn sofnar á verðinum.  Er það nema von að ílli andinn sem býr í konukroppnum feli baðvogirnar og brjóti alla spegla. 

Var síst að skilja hver elti mig á röndum út um allt en þá var það bara silalegur skugginn sem ég mætti og dauðbrá!

(fann enga nógu góða mynd)

ðe hamsterlady afrekaði annan sadó masó tíma í dag og þjálfarinn lét mig ekki í friði.  Ég var eins og loðhnoðri á skíðavélinni, brosti með glæra glossið og hollýwood málninguna á feisinu (alltaf flott) svo þerraði mín svitaperlurnar á meðan hann talaði við mig um mat.  Kommon, hann var að spjalla um mat, franska snigla og froskalappir, þýskt eðal snitsel og sauerkraut!  WHAT .... IS SOMETHING WRONG "hugsaði ég (hann er enskur)"  Hvað er að, wow .....

Ég er greinilega bara svona HOT í þessu loðna outfitti að þessir litlu mjóu karlmenn tapa sér í svona g-kasti.  Eða ég geisla af móðurhlýjunni, þeir þyrpast að mér til að fá að kúra sig í mig .....

Allavega þá er ég búin í öxlunum, tók 25 mín á skíðavélinni, 15 mín á hlaupabrautinni .... fór í tæki sem styrkja upphandleggi og brjóst .... teygði mig og togaði fyrir framan spegilinn (þar var þessi ókunnuga kona komin aftur, örugglega um fertugt) Svo snappaði ég og tók 7 10 mín á hjólinu ...

GARGANDI SNILLD .... LÉTTIST AFTUR

Sá varla út úr augum, varð bleik og þarf að láta vatnið hreinsa áruna mína, skola af mér þreytuna og fara í sparigallann .... Já, það er allt að gerast elsku vinir mínir .... Nú er ég komin í Masó deildina.

WHIP ME


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband