Færsluflokkur: Menning og listir

Sólríkur og fallegur dagur ....

..... ég vaknaði falleg, var með fallega verki í upphandleggjum og fann örlítið fyrir því að ég tók brjálæðiskast í gær!

Hrikalega þekki ég mig of vel og ætlaði að henda mér á fitubrennslutækin aftur í dag og taka á honum en náði að snarhemla mig niður og fór þess í stað í átt að strandlengjunni með mínum elskulega ástarpung eins og ömmumúsin mín hefði kallað afa heitinn .....

Við lögðum bílnum ofarlega í brekku og gengum hana niður, sólin var enn á lofti en í þann mund að tilla sér.  Ekkert fallegra né meira rómó en að ganga berfættur í flæðamálinu.  Ég fór úr kápunni og lagði hana í sandinn og við settumst og horfðum á sólina læða sér neðar.

Ungt par og ástfangið fór í sjóinn og það fór nú eiginlega um mig.  Sennilega hefði ég gert það sama fyrir 10 árum en nú sem settleg frú hvarflaði ekki að mér að meika eitt stk. B O M B U .... Nó vei hósei!  Þrátt fyrir um og yfir 20° þá er sjórinn allt of kaldur fyrir svona dýfur!

La Zenia ströndin ...

Ef marka má þessa mynd, má nokkurn vegin gera sér grein fyrir útsýni okkar því við sátum á þessum stað.  Sjórinn var örlítið lygnari en þessi mynd sýnir sem er fengin að láni á netinu.   Þegar ég sat og horfði á sólsetrið fann ég eitthvað svo djúpt inní mér, varð sæl og langaði að gera svo margt.  Góðar tilfinningar sækja gott til okkar!  Ég fór með teikniblokk og græjur en gerði ekkert í þeim málum heldur lagði höfuð á herðar Ektamannsins og lét mig dreyma um það góða!

Eftir dágóða stund héldum heim á leið, drengurinn er að læra margföldunartöfluna á meðan "ðe hamsterlady" lætur krauma í heimagerðri lauksúpunni.  Skera niður lauk nær konu alveg niður á jörðinna úr sæluheimi drauma og dásemda!

Whip me

 


Opinberlega er ég ..... ðulájrbla

Get varla sagt þetta orð, það fer bara á hvolf í höfðinu á mér!

Mikið á Fjallið það gott að eiga konu sem er "ðulájrbla", hann fær þá allavega frið fyrir mér þar sem ég er búin að fá þvílíka útrás.  Hef bara ekki orku í neitt röfl eða vesen.

Verð að einblína á hvað ég elska og passa mig að halda mig elsku-megin línunnar.  Hann er vissulega lukkunnar pamfíll.  Einu sinni málaði ég risastórt málverk, það var af konu og bláum fíl ....  ég spekulera í því hvort þarna séum við bara ekki lifandi komin ... af mynd í mynd!

..... Hamster Lady is back in town .....

Albrjáluð í íþróttafötum, gekk konan í hamsturfeld sínum að íþróttamiðstöð bæjarins.  Ca. 20° hiti en allt gert til að kynda undir svitaperlunum.  "love pearls" ....  talandi um perlur þá selja Færeyingar Perlandi vín og er það flottasta nafn á kampavíni sem ég hef heyrt ...........

Heart Algien decia Cava Heart

En ég komst heil á leiðarenda, dýrsleg svitalyktin lagði keim að götunni og blandaðist hitastybbunni og konan nett í sínum þykka ham ... - .. sturfeld inn á þessa ræktandi holdarstöð!

Ég;  pssst psst ... hóst, ég er komin til að ..... Blush skrá mig.

Hann;  Já vertu velkomin.

Ég;  O.k ég bara byrja ...  ( vel mér fitubrennsluvél og hamast á henni ... mæ dog! .... puff )

Hann;  Dugleg ertu !!!

Ég;  Komin á skíðavélina og bað um 20 mín lotu ... já og trakking ...

Hann;  Ertu viss ...

Ég;  Well til að gera langa sögu stutta, hamaðist eins og djöfullinn, hef aldrei verið jafn bleik í framan ..... eftir 42 mín á fitubrennslutækinu ákvað ég að gera teygjur.  Sá bara stjörnur og fann varla fyrir fótunum.

JibbÝ ....

Ég greinilega léttist svo um munaði, fann ekki fyrir sjálfri mér, var komin í stjörnuhimin þar sem í myrku sjónrýminu voru bara stjörnur og ég rétt rataði á barinn í einn ískaldan ÖL .....

Það er bara fínt að vera AlBrjÁlaÐuR .... eða hvað?

Set inn mynd af mér í æfingagallanum, ef ég mæti aftur Whistling


faðmlag - galmðaf

Þegar orðin skorta mynd, þegar litríkar hugmyndir sitja fastar í höfuðmótum þínum. 

Í huganum staldra orðin við og vita ekki með vissu hvert leið þeirra liggur, hvert þau rata og hvern þau heilla.  Orðin sitja föst í huga þínum en augu þín segja mér þúsund orð með tilbrigði sínu.

Ástin er blind, orðlaus og heyrnardauf. 

Faðmlag

Faðmlag Olía á striga

Ástin mín eina

elskan þú veist

nákvæmlega hvað ég meina

Ástin er þinn staður

mín stund

okkar eina land

Ástin er okkar.

Heart

Það er nú bara þannig að lífið er Ást og án hennar erum við svo takmörkuð

Eitt sinn, í lífi þar fann ég vænan hest er horfði í allar áttir.  Brúnn að lit með heiðbjört augun, fagurt fax og breiðasta bak.  Viljugur var hann, gat borið byrðir mannanna og gerði það vel.  Hann var klár og atti kappi við að gera vel.  Hann var elskaður, þráður af fólkinu dáður.

Dag einn kom ástin hans og setti skýlu sem gerði hann þröngsýnann þar til hann glataði ást sinni og hætti að lifa frjáls.  Hann sá ekki lengur hina víðu sýn heldur einungis það sem hentaði, frelsið á lífið hvarf og viljinn með því.

Hesturinn hætti að elska og varð þræll lífsins í stað þess að þræla fyrir ást sinni og frelsinu.

Hann er frjáls, hann ann lífinu og lifir nú frjáls í hjartanu, hann er hluti af mér, hestur heimsins er gefur styrk, von og trú.

hann er ástin

Hvað gerir okkur sæl og sátt

Heart

Í myrkrinu lýsir ástin hjarta þínu leið


Þau voru dásamlega ber ...

Eldrauð jarðaber, græn vínber og dökklituð vínber ..... 

Það er laugardagskvöld W00t þið sem hélduð að það væri mánudagur LoL .... 1 á móti milljón lesendum mínum héldu að það væri mánudagur, eru nú í sjöunda himni.

Hver sagði að lottovinningar væru eini glaðningurinn í lífinu!  Not me ....

Fjallið mitt spilar dásamlega gítartóna á meðan dóttir mín dundar sér með afmælisgjafirnar sínar.  Sonur minn leikur sér með hetjur og ég er ber.  Er með jarðaberin og fæ vatn í munninn, spurning að fá sér kælt kampavín og dýfa jarðaberjunum út í (gott gott gott) .....

Sálarfélagar

Sálufélagar Akrýlmynd

Þá er paramyndin Sálufélagar tilbúin og fer hún brátt á spænskt heimili sitt! 

Ég er þreytt svo þreytt en það er stundum þannig að kroppurinn verður lúinn, á lífinu búinn og heimtar hvíld og kósýheit.  Ég er búin að ná mér í flísar og ætla að slaka á og mála smá ......

Eigið góðar stundir kæru vinir og óvinir (vona að það séu fáir eða enginn sem fer í óvinahópinn).

Elskumst og strjúkum kviðinn á hvort öðru eða bara það sem við viljum strjúka Whistling


Umhyggja ...

.... hvað er betra en hlýr faðmur, brosið blítt og ilmur þess er ástina hrærir!

Umhyggja - móðir og barn

Umhyggja - Móðir og barn

Umhyggja Módir og barn

Umhyggja - Móðir og barn I

Ég á ljósmynd af rollu.  Hún er afskaplega myndarleg og ljúf, með ljósan hödd og brosir, tvíhyrnd og sátt við umhverfi sitt.  Þessa svart hvítu ljósmynd fékk ég að velja úr dánarbúi ömmu minnar.

Rollur eru umhyggjusamar og það var nákvæmlega það sem amma mín var.  Umhyggjan var hennar númer eitt, elska börnin sín og barnabörnin sín.  Úr dánarbúi ömmu minnar fékk ég líka afskaplega fallegan vasa.

Amma ég veit þú ert að hlusta á mig, Ég ELSKA þig óendanlega mikið.  Bráðum áttu afmæli og þá ætla ég að heimsækja þig í kirkjugarðinn og færa þér kveðjuna mína.

En, allavega, ljósmyndin af rollunni fallegu er geymd og innrömmuð hjá lítilli vatnslitamynd sem ég gerði fyrir langalöngu.  Umhyggjan er kveikjan að Móðurástinni sem ég sýni ykkur í dag.

Góða og Óða helgi elskurnar

Heart


Brjálað að gera ....

... hvenær er svo sem ekki mikið að gera hjá okkur.

Ég var að klára verkefni í dag og fagna því! Nú er það búið og árangurinn góður .....  Jibbý!

Þessi elskulega dúlla varð 13 ára þann 17 febrúar 

Íris Hadda 13 ára

Íris Hadda

Þessi fallega stúlka hefur alltaf verið dugleg, mikil skapkona og ráðagóð.  Þegar hún byrjaði að tala þá kom hún til mín og sagði mér að hún hefði valið mig þar sem ég ætti eftir að verða svo góð við hana.  Hún var altalandi fyrir 2ja ára aldurinn, hafði góðan orðaforða og símalandi.  Hún er afburðanemandi og yndislega góð stelpa.

Ég elska hana óendanlega mikið!

Ballið var bara fínt, við hjónin hittum mikið af skemmtilegu fólki.  Við fórum fyrir miðnætti á skemmtun þar sem íslendingar höfðu hreiðrað um sig á hóteli einu í nálægð við ströndina.  Við vorum í seinna lagi að bóka okkur í matinn en í raun ætluðum við ekki að fara þar sem Íris Hadda átti afmæli en svo fór það svo að börnin vildu gista hjá ömmu og við þar af leiðandi í dinglumdanglandi ástandi og skelltum okkur.

Ég dansaði og spjallaði heilmikið og sé ekki eftir að hafa skellt mér.

Ég hef svo góða tilfinningu ... jæja er að fara á fund og sendi ykkur fingurkoss út í loftið!


Er að fíla nýju kolluna mína ...

..... elsku bloggvinir ég er komin með nýjan hödd eftir aðgerð gærdagsins.

Sara hárgreiðslumeistari, minn sérlega plastic hairduetrainer ætlar að lýsa kolluna upp þar sem fjallkonan er orðin svo verðurbarin og grá í rótina.    Red heddið víkur fyrir litlu silly blond sem á það til að vörulita sig í strætó, sem á það til að fara keyrandi til stórborgarinnar og taka lestina til baka.

Moi le pussycat

Búin að greiða mér og er að fara á ball

Bara gaman að því að lyfta sér aðeins upp.  Fjallið situr með bassann og spilar eins og hann eigi lífið að leysa.  Ég hélt að þetta væri einhver nágranninn með læti, stóð nú ekki alveg á sama hvað það heyrðist hátt og fór að rannsaka.  Sótti stækkunarglerið og setti pípuna í munnvikið og fann það út að lætin komu úr tónlistarherberginu.

Flís í vinnslu kæru bloggvinir, ekki þreytist ég á að misnota ykkar virðulega smekk.

Par í vinnslu
Par
Þessa mynd er ég að vinna fyrir eina spánar-vinkonu.
Lífið er gott, kollan á sínum stað og brosið á bak við mokkalitaðann vörulitinn.
Konan er svartklædd í grænum skóm með græna handtösku.
Dressed to kill

lesa, skrifa og reikna ....

Sonur minn situr við hlið mér að læra heimalærdóminn.  Honum finst þessi lærdómur óttaleg vitleysa og vill helst vera að leika sér með vini sínum.  Hugur hans dettur út af einbeitingunni hvað eftir annað því í huga hans eru leikir í mynd sem ráða ríkjum.

Elsku litli drengurinn minn er látinn stroka út þegar hann vandar sig ekki (er að flýta sér) en hann fékk 4 A4 bls sem eru málfræði og stærðfræði.  Hann lærir þetta smátt og smátt, þarf sinn tíma að melta allar upplýsingarnar. 

Það má nú segja að fyrir 30 árum þá hafi móðurhjartað lært með öðrum aðferðum.  Nokkuð breytilegri  en það sem blessuð börnin læra í dag.  Ég nota mína gömlu sem er engu síðri!

Laugardagur til lukku

Hann;  Mamma þegar ég er búinn að læra þá get ég ............ og svo get ég .......

Mamman;  Já elskan en nú skulum við halda áfram!

Hann;  O.k. mamma!  En þegar ég klára, þá ......

Mamman;  Já elskan mín, en mundu að gera þetta vel frá hjartanu.

Hann;  Þögn

Það eina sem heyrist núna er Ellen Kristjáns að syngja bænalög og hugsun drengsins, blýnudd á skraufþurran pappírinn.

Í dag hefur þetta gengið vel Heart


Samsýning í Ráðhúsi Reykjavíkur ....

Auglýsingagildið er og verður aldrei of mikið.  Það er gott að tyggja vel og lengi áður en bitanum er kyngt og ætla ég að minna ykkur kæru bloggvinír á samsýningu nokkura bloggvinkvenna sem haldin verður í lok ágúst.

Afmælisdagur móður minnar og Mikael Jackson (he doesn´t know yet) eða 29.ágúst í mánuði meyju svo það er eins gott að vera vel undir búinn með línurnar á hreinu.

Hvíti galdur hafði sitt að segja og það sem er ment to be það verður!  Get ekki betur séð en að nú sé rétt að nýta tímann vel til að skipuleggja hlutina (sjálfa mig) ...... af mörgu er að taka svo það er best að byrja frá byrjuninni.  Klæða grunninn vel, þá er björninn unninn!

tree_red

Tré Rautt e. Katrínu Snaehólm

sem_demantar_i_koronu_landsins

Sem demandar í kórónu landsins e. Guðný Svövu Strandberg

medianaranja2

Media Naranja e. Elínu Björk

malverk_2

Málverk e. Gerður Rósa

Stelpur

Stelpur e. Zordisi

Ég læt þetta gott heita í bili en ég valdi myndir af algjöru handahófi, sitt þykir hverjum og ég veit ekki hvort myndir sýningar verða í þessum anda en hver og ein vinnum að settu  marki.

Þetta verður spennandi, gaman og þá mest að hittast og vera saman!

 


Venjulegur dagur ...

.... eða var hann óvenjulegur!

Ég er búin að ráðstafa ýmsu í dag og eiga skemmtilegar umræður við nokkra einstaklinga.  Suma þekki ég betur en aðra en svona er að starfa með ólíku fólki.

Var að spekulera í því hvort við getum ekki glatt hvort annað meira, lagt meira á okkur til að náunganum líði vel.  Koma af stað smitandi kærleik sem við sendum hvort öðru.  Ég sé þetta vel fyrir mér, gerast og verða mörgum til hamingju, ekki síst þeim sem vill vel og gefur kærleik frá hreinu hjarta.

Fyrir þó nokkru síðan, nokkrum árum síðan langaði mig að opna fyrir kærleikshring.  Hring sem sálin heldur utan um og fólk frá ólíkum löndum, lithætti eða hugsunum sameinast í bæn.  Gefa okkur tíma til að finna okkur þar sem við sitjum innst í okkur sjálfum.  Snerta eigin nærveru og hugulesemi.

Þessi hugmynd er enn sem komið er í loftinu og það þarf bara að grípa hana og senda hana áfram.

Hvað er venjulegt við dagana?

Ég fann mynd sem ég málaði með olíulitum á striga fyrir ansi mörgum árum, sennilega máluð fyrir árið 2000 þ.e. árið sem sonur minn fæddist og ætla ég að deila henni með ykkur. 

Kona

Það er eitthvað við þessa konu

Svo, fór ég og náði mér í meira efni til að halda áfram að mála.  Var að vonast eftir að geta sent nokkrar flísar á mánudaginn næsta en það er allt of mikið að millilenda með herlegheitin .......

Svo, kemur hér paramynd sem fékk ansi sterkt nafn í huga mínum, er ekki viss með það svo ég hinkra með það nafn sem mér finst viðeigandi!

Par

Par

Við hjónin fórum og vorum að spekulera í dottlu og mér leist ljómandi vel á hugmyndina þangað til ég gerði mér grein fyrir því að ef af því verður þá er það "good bye Iceland" næsta sumar, nema ég nota innihald hvíta galdursins og láti allt gerast.  Samt, stundum er ekki allt hægt! 

Gamla góða, velja og hafna aðferðin verður nýtt .......


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband