Færsluflokkur: Menning og listir
10.2.2008 | 00:10
Sunnudagur í myrkri ... enda nótt!
Ég átti gott samtal í kvöld (gærkvöldi) við vinkonu mína og á meðan við spjölluðum saman útbjó ég 2 salöt til að narta í síðar um kvöldið. Einfalt og notalegt;
Salat númer eitt ..... 1 og 1/2 tómatur skorinn í bita (temmilega stóra/litla) túnfiskdós opnuð og olían af túnfisknum hellt yfir tómatana sem og túnfisknum. Balsamediki sprayað yfir og saltað. Dásamlega gott.
Salat númer tvö ..... krabbakjöt, 1/2 tómatur og fersk græn blöð. Allt saxað og sett í skál og 2 msk af megrunarmæjónesi ásamt dass af carrý og salti .... hrært saman og kælt í smástund.
Með þessu fékk frúin sér Kampavínstár og bóndinn Shandy sem er bjór og límonblanda. Að auki skar Fjallið niður hráskinku og síðan ekki söguna meir. Það er komin þreyta í kroppana, himnasængin er lokkandi eins og ilmurinn á jólunum.
Einhverfupúkinn ég var að líta upp og á eftir að leggja lokahönd á en ætla engu að síður að deila þessu með ykkur. Uppbyggjandi bloggvinir eru metnir af heiðarleika umfram öllu.
Söngkonan akrýl á flís
Þessi flís er gerð fyrir bláa konu sem syngur af hjartans lyst. Konan á bráðum afmæli og veit ekki af þessu. Konan bloggar ekki og því sé ég ekki neitt athugavert við að sýna ykkur "Söngkonuna"
Par akrýl á flís
Tilraun fyrir ungt par sem vill fá öðruvísi mynd sem skaðar ekki buddu skruddu.
Ilmandi akrýl á flís
Sérpöntun en þessi mynd er ekki ólík jarðaberjamynd sem ég gerði en svona eretta bara.
Það er kominn tími á að kasta sér uppí, skrá sig í heim drauma þar sem lifanda líf kraumar undir augnlokum konunnar!
Vona að þið eigið góða kvöldstund öll sem eitt.
Ooog ævintýralega ástarfundi.
9.2.2008 | 13:14
Hrottaleg áskorun holdsins ....
"Bjúti is pein" það vitum við girlís ..... Ég renni augum mínum eftir mjúkum kroppnum og mig rekur í rogastans að sjá loðnar fæturnar.
Það er bara ekki hægt að vera loðinlappa þegar ströndin er við hliðina á kotinu. Rölta eftir strandlengjunni með loðnar lappir ... hreinlega gengur ekki. Ég sem á svo fína Philips græju, satinelle soft sem tætir hárin, eitt og eitt í burtu á sársaukafullan hátt.
Ekki það að lafði leggjaprúð dofnar fljótlega og þetta er bara spurningin að hefjast handa á verkefninu. En, to og tre ......
ÁTSITTÝÁTSITTÝ ÁI ÁI LIGGALIGGA LÁ, NÚ LIGGUR KERLINGUNNI Á!

Fegurð er sársauki
Ég ætla að taka þetta í skorpum. Svo verð ég dásamlega mjúk, óskaplega fögur og dofin.
- ein löpp
- hin löppin
- vinstri kantskurður
- undirhandar hár
- hægri kanturinn
- hin undirhandarhárahendin
- nefhárin
- augnhárin (nehhhhhh)
Hrottaleg áskorun framundan. Ég verð sem sagt útúrdofin og aum þar sem hárstæðin eru.
Bling bling, eitt hár hér og annað þar, syngjandi tæti ég þau af mér.
Svo þegar þessu áskorunarverkefni lýkur mun ég finna einhverfuna mína og tylla mér í heim þar sem pennslar og litir deifa hugann. Klára nokkrar flísapantanir sem eiga að vera tilbúnar fyrir miðja næstu viku. Ekki veitir af tímanum ..... Leyndarmálið er ekkert leyndarmál eða hvað!
Þarf að spella smá út í heiminn, sendi Biddu litlu ekki moggabloggara knúsið en hún ákvað að hætta að blogga á mogganum vegna auglýsinganna sem birtast á hægri væng síðunnar. Ég ætla að setja Háskólakórinn á fóninn og hugga sálina þótt kroppurinn sé í þján.
Laugardagar eru bara skemmtilegir.
8.2.2008 | 23:26
Sem dagar líða orðin ljóð ...
.... hugsanir blíva og ástaróð. Dagar líða með birtuskil, lífsins óður er þinn, minn blíði, einstaki hróður.
Svona erum við ......... flest
Þegar við stöndum frammi fyrir því að þurfa að gera hlutina, þurfa að vera til staðar, þurfum að sýna nærveru okkar. Margar ástæður geta legið á baki þess að þurfa.
Burt séð frá því að þurfa þá bregðumst við líka við og stundum bregðumst við seint og ílla.
Það er til lag sem heitir "como una ola" mér þætti gaman að syngja það fyrir ykkur og ég veit að ég mun syngja það fyrir ykkur einhvern tímannn ..... (ísl. þýðing er "Eins og alda") ........ Elska alveg þessa tónlist sem Rocio heitin söng, hreinlega elska þessa tónlist og það segir mér bara það sem ég veit um tilvist frá öðrum tíma.
Þessu færsla er um ljóð og óð þess að vera. Tilveru þess að hvorki eitt né neitt að segja, það að vera og engu tilheyra. Hvað er best og hvað er verst. Hvers er að vænta og hvað mun vanta.
Ég mála hjarta á vegginn, það festist í vef ...........
Ég get lofað en vil það ekki .... hjarta þitt skal ég gefa vænghaf hálft, það sem hlýjar og vermir!
Ég sit í eldhúsinu og horfi á tímann, hann líður ekki. Ég tek bókina og sé að orðin eru horfin, ég finn að lífið býður mér leyndardóma sem hvergi er að finna. FRAM TIL ÞESSA ...........
7.2.2008 | 22:58
Milano, Róm og Reykjavík ....
.... meðal þeirra borga sem ég heimsæki á árinu!

Ég á heimboð í Barcelona, alltaf langað til Prag og svo er Köben í miklu uppáhaldi.
Málið með Milanó er geggjað armband!
Rómarferðin er að mínu mati nauðsynleg fyrst ég er á annað borð komin til Ítalíu og líklega tek ég góðan þæfing á stígvélinu og versla mér bönns af skóm.
Gul, rauð, græn og blá, svört og hvít og fjólublá pör af heimneskum ítölskum skóm og læt handveski fylgja með í passandi lit.

Nú er ég orðin spennt, Italiano gelato, italiano bambini, tutti frutti og öll hin orðin sem ég syng úr svefni. Annars hafði ég á orði um daginn hvað ítalir væru nú duglegir að tala spænsku, smá bjagaða en ???? Fjallið leit á mig, augun uppglennt og sagði, Cariño, no hablan esapñol es italiano.
Sem minnir mig á það, að ég minni Fjallið oft á það hvað hann sé hrikalega heppinn. Þar sem ég hafði minnstan áhuga á Spáni, ætlaði að fara til N-Ítalíu og þar ætlaði ég að hitta milljarðarskrilljarðarmæringinn sem situr og bíður mín. Ég slysaðist til Spánar og hitti græna grund er fleytti mér aldir og ár aftur í fyrri líf og voila ..... C´es la vie! Elskann bara!
Nú svo er förinni heitið til Reykjavíkur, þ.e. ef ég kem nokkurn tímann til baka frá Ítalíu, sem minnir mig á gæsaveisluna mína sem ég hætti við (efni í færslu) ....
Spurning að fara að spila í Lottó því Þórshöfn, Kúlusouk og Vestfirðir Íslands eru ofarlega á dagskránni ..... Sko, meinti eiginlega Þorlákshöfn but who is reading .... lesendur komnir svo langt niður að nú er bara mjá mjá og kvitt og knús á færsluna!
Já, það var þessi milljón sem ég vinn í lottó!
Lífið er gott og æm hot
er þakki bara
6.2.2008 | 21:10
Eldabuskan ...
.... hún brosti og var sallaróleg, fann til svuntuna og hóf matargerðina.
KVÖLDMATUR
- 1 gulrót
- 1 kúrbítur
- 1 eggaldin
- 1 laukur
- 4 egg
Kúrbíturinn, gulrótin og 1/2 laukur fínt skorið og steikt á vel heitri pönnu með góðu dassi af olíu. Himalayasalti stráð yfir. Á vægum hita mallar þetta þar til þetta er orðið vel steikt þó ekki brennt.
2 af fjórum eggjum eru þeytt og hellt yfir pönnuna. Ég mæli með að hráfefnið sé jafnað á pönnunni áður en þeyttu eggin eru sett yfir.
Miðlungshiti er við gerð eggjakökunnar og þegar henni er snúið er gott að vera með disk að svipaðri stærð og pannan til að snúa kökunni við. Mér finst best að hafa Fjallið við hendina til að snúa.
Mjög bragðgóð þessi en gulrótin gerir gæfumuninn
Góður tími gefst til að skera niður í eggjaköku númer 2 þegar hráefni í kúrbítseggjakökuna mallar. Eggaldin og laukur fínt söxuð og í raun sama aðferð og hér að ofan. 2 egg eru vandlega þeytt og hráefnið er jafnað út á pönnunni og þeyttu eggjunum dreift ofan á.
Svo kom Fjallið mitt og snéri bökunni við, þeirri seinni ......
GARRRRRGGGGGANNNNNNNNNNSSSSSSSSSSSSSSSSSS
Helmingurinn af kökunni flaug nánast á mig en á gólfið. Andlitið á mér fann enga gleði, fann enga meðaumkun, fann til einhvers er líktist helst að hatri (fegin að vera svona mannleg). Fjallið hafði gert góða tilraun í að þeyta í mig brennheitri eggaldinseggjakökunni. "The flying vedg", ekki nóg með það heldur ætlaði hann að laða fram brosið og tók restina á pönnunni og hennti upp í loft og hluti smassaði í nýskúruðu gólfinu.
Fjallið brást aumur við þegar konan hans brá fyrir úldnu andliti.

Allt í góðu, við hlæjum bara að þessu á morgun .... það sem ekki fór á mig eða á gólfið bragðaðist mjög vel. Meðlæti var salat með Canonigos (hestamatur) og flysjuð gulrót, sætur tómatur, olía, edik og himalayasalt ....
Á gólfið fór Eggaldinseggjakakan (wow hvað þetta er langt nafn) á spænsku segjum við Tortilla de berenjena ....
Fjallið er að skúra, það er óþolandi eggjalykt í húsinu .... sá sem kastar egginu, þrífur það!
Af lyktinni að dæma er ammoníak í skúringarfötunni .... geisp!
5.2.2008 | 21:02
Palli hvað .....
Gapandi fór fjallkonan til náða, var svo djö..... (afsakið blótið) íllt í vinkonu minni þeirri inngrónu. Mikið Helv. (sorry aftur) er mér íllt þarna innst og svo er þvílíkur hiti og æðasláttur í beibinu mínu inngróna.
Ég er ekki ein af þeim sem naga á mér táneglurnar, ó nei! Ég er hins vegar ein af þeim fáu eftirlifandi sem kann ekki að klippa eina tá af þeim 10 sem ég hef. Fjallið lá rólegur í hvílunni og bjóst nú ekki við blóðugri táaðgerð. Hann er enn að kynnast mér og mikið getur hann þakkað fyrir að ég notaði ekki tækifærið og gerði að honum með vopnin í hönd.

Æj, þetta var ekki gott en, nú er vont orðið gott og ég er stálslegin, óhöllt og til í allt, verst að fjallinu er eitthvað flökurt en hann hlýtur að jafna sig, verður jafngóður eftir góðan nætursvefn.
(hér var mynd en á henni stód ... haettu ad stela band vídd svo ég tók hana út)
langar ekki ad vera ad stela sko .......
Oft verið betri í tásslunum
Annars er bara allt í gúddý, þyrfti að kaupa mér naglalakkaeyðir og nýtt lakk. Þoli ekki að vera með rauðar tásuneglur, er hrifnari af hvítu eða glæru! Reif mig úr háu hælunum og fór með Fjallinu mínu á ströndina. Við áttum góða göngu og hefðum sennilega kastað okkur á hvort annað ef ég hefði ekki verið svona slæm eftir aðgerðina.
Tja, og hina sem voru á ferð, eilífðarbögg að vera ekki eins og
"Palli var einn í heiminum"
Menning og listir | Breytt 12.2.2008 kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
4.2.2008 | 21:58
Feit Bolla, bolla með tippi eða bolla með rjóma ......
Bolla bolla feitabolla .....
Sorry elskurnar mínar, bollur geta líka verið með tippi og það einföldu! Mér finst tippi sæt og hef það fyrir víst að margar vinkonur mínar finnast þau afar ljót!
En fegurðin er sú er býr í augu sjáandans. Við erum falleg, í raun erum við kraftaverk. Lífið þarf að varðveita og rækta eins og heilan aldingarð þar sem ávextir eru til þess að njóta þeirra.
Við Bollurnar ætlum að bragða hvor á annari og ég vona að þið njótið ykkar bollu á þessum skemmtilega degi.
Spruning að sporðrenna einu stk. kjöthleif svo ég fái ekki rauðflekkótt útbrot á líkamann .... helv. glútenið. Svona er þetta, það gæti verið verra! Kjötofnæmi "kræst" ... get ekki hugsað það!
Bollan mín er vænsti hleifur!
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
3.2.2008 | 19:41
Blómstrandi Jukka og sitthvað ...
Sælan er sæt á bragðið. Þegar ljósið skín í kjöltu þína og þú iljar hendur þínar með geislum sólar. Lífið heldur áfram á sinn einlæga hógværa máta, þar sem hvorki upphaf né endir ná að varpa skuggum sínum. Ilmurinn er það sem vit þín nema ....
Kjéddlingin með sítrusilminn sinn
Dagurinn hefur verið góður hjá tengdó og nutum við okkar öll á sinn háttinn .... fórum í sundlaugina og sólin skein eins og hún ætti ekki aðra viðveru. Sólin elskar okkur og við elskum sólina.
Sundlaugin er vatnslaus það væri náttúrulega ekkert vit í að baða sig í köldu vatninu. Sólin iljar okkur og vermir en um leið og hún fer í kúrinn kólnar svo um munar!
Dagur að kvöldi komin, Nikó kisukrútt var alsæll og stillti sér upp, svo fallegur þessi elska.
Þessi kisustrákur er voðalega kelinn.
En, að gróðrinum þá sagði ég ykkur frá blómálfunum mínum sem ákváðu að fylgja mér á milli húsa. Þeir bjuggu sér stað í jukkunni og komu sælir á nýja staðinn. Ég lofaði að setja inn mynd af blómstrandi jukku þar sem að fæstir höfðu heyrt eða séð svoleiðis fyrirbrigði. Kæru vinir, nú er jukkan mín að fríka út. Er að blómstra að nýju og mæ dog sko, ilmurinn sem kemur af þessum blómum í blóma er hreint yndislegur. Ég er sem sagt búin að koma mér upp Jukku sem blómstrar á 4 mánaða fresti ..... henni líður vel og blómálfunum sem hvísla að mér sögum á kvöldin líður greinilega vel líka.
Hvað vilja blómálfarnir segja mér núna? Bleikur knúbburinn breytist í hvít og vel ilmandi blóm sem ég mun að sjálfsögðu taka myndir af. Ég held að blómálfarnir sakni hjalsins í okkur en fuglarnir okkar kjafta við þessa engla eins og ekkert væri takmarkið.
Njótið lífsins og þess að vera.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
2.2.2008 | 17:43
Að vera í öðrum heimi ....
..... ástin mín þér aldrei gleymi.
Í nótt varð ég fyrir undursamlegri tilfinningu í gegn um draum. Draum sem er í raunheimi þess lands þar sem óskin, vonin og kærleikurinn vefja sig um fingur þér.
Ég lá í hvítu rúmmi og faðmaði karlmann, tilfinningin er ólýsanleg nema hvað að ég tek lítið barn og gef því brjóst. Í fyrstu varð ég hissa því barnið var ekki mitt. En rjóminn streymdi í lítið kok og ég var komin í tilfinningalegt himnaríki.
Ást í andaheimi er næring sem tekur frá þér allan fjarlægan vilja. Veraldleg gæði verða að engu því andakt þess ljósa er það eina sem streymir um gegnsæjar æðar .... Það eina sem vantaði voru vængirnir góðu til að flytja mig yfir á æðra stig.
Að raunheimi.
Sorgin heltekur hjarta mitt, fólk er slasað, vonlaust, drepið, tekið frá umhyggju, niðurníðsla og dómar. Við verðum að gera gott úr lifanda lífi og virða traustið sem okkur var gefið. Leysa verkefnin eftir mætti og halda í það góða í lifanda lífi.
Gaman, gaman
Ég var að koma úr verslunarferð með dóttur minni, við höfum átt yndislega stund saman. Fyrst fórum við til Söru hárgreiðslukonunnar okkar og fengum við báðar æðislega klippingu. Þar næst fórum við á veitingastað og nærðum líkamann, spjölluðum og héldum í H&M, Sprinter og aðrar sem ég man ekki hvað heita. Vorum að koma heim og það fyrsta sem ég gerði var að setja gjöfina frá Biddu litlu á fóninn.
Þessi tónlist Háskólakórsins er andlegt konfekt og það jafnast ekkert á við tónlist af þessum toga. Þegar upp er staðið þá er bara gott að vera til, finna hvernig tárið ryður sér leið að augnkróknum og hjartað fyllist þakklæti verunnar.
Falin hjörtu er uppáhaldsflís Fjallsins
Over and Out
1.2.2008 | 22:09
Úr pokanum tíni ég rauðleit hjörtu ....
Ég kraup við hné og Fjallið hallaði sér að mér og mændi. "Hvað" sagði ég?? Hann svaraði og spurði; hef ég sagt þér hvað ég elska þig mikið í dag?
Það eru þessar stundir sem eru svo ánægjulegar í sambandi fólks. Þegar þú ert heima, að raða ajaxi, klósettilmi og baðsápu inn í skáp, ótilhöfð eða þannig. Konur eru fallegastar á hinn náttúrulega veg "la mujer serrena". Konur eiga að láta sína eðlislægu náttúrulegu fegurð lýsa í gegn. Fegurð er ekki bara útlit heldur líka viðkomandi persóna.
Við erum öll persónur, segjum hluti vanhugsaða, velhugsaða, óhugsaða og getum glatt, sært og sviðið heilar jarðir án þess að leggja upp með nein leiðindi. Ég lét út úr mér óvalin orð nú um daginn vegna viðtals bloggkonu hjá útvarpskonu. Ég er sjálf mjög viðkvæm á orð og viðbrögð, einna helst viðbrögð þótt mér sé sama um helling. Það sem hvílir næst hjartanu segir að við eigum að gæta betur að orðum og aðgerðum. Aðgát er ávalt góð og það sem skiptir máli er að geta fyrirgefið og ég vona heitt og innilega að bæn fyrirgefningar rati rétta leið.
Við lærum allt lífið, við erum lífið, við erum það eina sem skiptir máli. Förum vel með hvort annað og verum gætin með orðin ...
Bláskeljar með sítrónu
Ég verð að segja að forrétturinn sem Arna bloggvinkona gæti náð í, í fjörunni og Sigrún og Solla og Lísa bloggvinkonur og fleiri eðal íslendingar .... bláskelin sem flæðir allar fjörur kaupi ég í kaupfélaginu og borða með miklu slurpi, sem var "delisju" .... Í hægra efra horni glittir í kristalglas með gylltum vökva.
Hvaða gyllti vökvi er í glasinu????
Aðalrétturinn var hráskinka
Þessi tvö yndislegu börn eru svo aðalrétturinn ..... Íris Hadda er farin í háttinn en júníorinn situr enn hjá okkur og horfir á skemmtiþátt með pabba sínum. Það er kominn tími á draumalandið, land sem hefur upp á svo margt að bjóða.
Ást í poka sem ekki má loka ....
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)