Færsluflokkur: Menning og listir
1.2.2008 | 15:45
Við ....
..... rekstur .... nei hér er enginn viðrekstur, bara gleði og grín.
Helgin að smella á og hjartað þráir Flamenco, söng og sæta kossa, kúra í faðmi Fjallsins og fyrst og fremst þakka fyrir það góða sem beið okkar.
Hjartað mitt hvíslaði þessu til mín
Þegar dagurinn býður þér allt það besta
þegar himininn er kristaltær og jörðin viðmótsþýð
þegar vængir þínir taka vindinn og lyfta í hæstu hæðir
þegar hamingjan lifnar í augum þínum og smella mig kossi
þegar lífið heldur áfram sem á fyrsta degi
þegar þú er hér í mínu hjarta
þegar þú ert ég
við
31.1.2008 | 18:59
Snillingur ...
Eitt sinn kallaði fyrrverandi tengdafaðir minn mig SNILLING. Frá honum var þetta mikið hrós! Svo skellti hann sér í augnaðgerð og sagði þegar ég heimsótti hann eftir aðgerð. Mikið ertu ljómandi FALLEG. Ég er bara farinn að sjá Elsku kallinn, hann reyndi líka að fljúga en náði ekki að hefja vænghafið og hrundi niður af háalofti en það er allt önnur ella.
Eitthvað er krúttið ofarlega í huga hjá mér því þessi færsla átti að snúast um líkamsræktar áhuga Fjallsins. Við fórum saman á Karneval hátíð drengsins í skólanum og þá stakk hann uppá því að ég færi að hreyfa mig meira.
Ég; Nú nú, finst þér ég vera orðin allt of feit, eða er það vegna þess að ég anda svo ótt og títt?
Fjallið; Heyrðu þú ert nú ekkert að yngjast.
Ég; " Með tíkó í hárinu og á nýju strigaskóm leið eins og 17 ára .... " nú nú, ekkert að yngjast ...
Fjallið; Já og ég er rúmlega fertugur og .....
Grái fiðringurinn, of lítill og stór og feitur of mjór eða bara eitthvað of í aðra áttina. Hjúkkit það var engin bikinístelpa sem nálgaðist fjallsræturnar því þá hefði hann sko fengið að hlaupa. Fyrsti tíminn í líkamsrækt fær því að bíða! Við áttum erindi í stórborg Torrevieja og álpuðumst inn á útsölu í versluninni Maximo Dutti og þar gerðum við frábær kaup á þann allra sætasta, (ástarpunginn eins og amma hefði kallað yndið mitt) ..... við keyptum buxur og tvö ógisslega kúl herrabindi og það kostaði innan við 7000 ísl krónur .... annað bindið kostaði 3000, say no more!
Æm hot or æm not!
Tölvugúrustrákur var hjá mér í dag að laga tölvurnar hjá okkur! Ég nefnilega hef orðið vör við það að póstur sem ég hef sent frá mér hefur ekki skilað sér alveg 100% svo ef einhver ykkar eruð að bíða eftir línu frá mér þá er það ekki vegna hversu ofbóðslegur dóni ég er heldur tæknilegt atriði. Endilega látið mig vita þið sem eruð búin að stimpla mig dóna og durt!
Best að halda áfram að pakka inn varningi sem er að fara með Póstinum Páli á morgun!
Svo er lífið bara gott í Janúar, einhver spenna sem hvílir í bústna búknum mínum .... er búin að finna fótaaðgerðarfræðing sem er íslensk frábær kona sem ég ætla að skella mér til og heyja stríð á hendur þeirrar inngrónu.
Þú sleppur ekki helvítið þitt .... í burtu með meinið og þá hættir kveinið í kerlingunni.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
29.1.2008 | 22:16
Inn og út, það er málið
Um daginn var ég að opna hurð. Opna oft hurðar og kemst vel í gegn um hurðaropið án nokkurra vandræða. En, um daginn opnaði ég hurðina sem er úr áli ( þessa sem er í ljósopinu ) og renndi henni yfir stóru tássluna mína sem varð til þess að ég nældi mér í reynsluör. Er enn aum í tásslunni sem dafnar vel þrátt fyrir þramm um strendurnar. Verra er með þá inngrónu sem er pirruð út í kerlinguna fyrir að hugsa ekki nóg um sig.
Væri til í að fara í dekur. Skella mér í nudd og gufu og ísbað og hafa góða vinkonu með mér. Vera saman tvær í þvílíku dekri, nuddi og þukli ( svona eins og siðferðið leyfir ) Eyða heilum degi í góðum félagsskap og gæða sér á einhverju grennandi eftir meðferðina!
En, hér sit ég með kaffibolla og súkkulaði húðaðar oreo kex kökur ..... hugsa um eitthvað voða kósý og næri sálina með hvítu súkkulaði og rjúkandi kaffi.
Þarf að vakna klukkan 05:00 svo það er best að halla sér og ná sex tímum eða svo ef það klikkar þá verður það eitthvað annað sex eða bara sjö!
Knús inn í nóttina og bestu kveðjur til ykkar allra frá vini okkar Búdda. Búddinn minn þú færð fingurkoss sem ég puðra út í loftið .......
28.1.2008 | 22:30
Inngróin tánögl og misheppnaður kantskurður ....
.... bæði er slæmt, vont vont.
Inngróna þó öllu verri þar sem kona hættir að geta stigið af föstum þunga niður og þarf að tippla eins og lítið fiðrildi. Vænghafið verður þreytt en "ég" er enn í náðinni hjá almættinu og næ að feta mig eins og ástfanginn þyrill er svífur milli hreiðra.
Kantskurður, það allra heimskasta er að fara með gamla borðhnífinn og tæta af sér liðaðar lufsurnar sem eru þarna í þeim eina tilgangi að verja djásnið fyrir árás Fjallagróðursins. Skrilljónfaldar kláðatilfinningar espa kerlinguna upp og það er víst lítið annað að gera en að fjárfesta í betri kanskurðargræju. Ætla að henda borðhnífnum og gilla í burtu kláðann.
Skrítið þegar viljinn verður ekki verkfærið í höndum þér. Þú gerir þér grein fyrir hvað er rétt en ferð rangan veg. En, hvað er rangur vegur ... stundum er það sem virðist rangt, rétt og það sem virðist rétt, rangt! Hugur okkar er hreint mysterí og það er með ólíkindum hvers við erum megnug.
Ég er sem sagt eins og útblásinn hvalur þessa dagana, freistast í allt sem hefur glúten og þarf að borga skattinn sem er vanlíðan, útþanin vömb, andleg þyngsli svo ég tali nú ekki um þau líkamlegu. Hins vegar er hvergi fegurri hvalynju að finna ... nokkuð fim og frjáls í fasi.
Annars, gerði ég tilraun í hugarleikfimi og það verður víst ekki upplýst hér en það er allt að smella og ef ég hef trúað á kraftinn og kurrið sem kemur að innan, að utan, að handan og þaðan. Orka sameinuð úr öllum áttum. Tilraunin er í raun lítil en æfingin skapar meistarann. Í stað þess að róa árabát þá ætla ég að skella mér á stærra fley!
Það þarf að uppfylla stærri óskir á hærri plani en það sem kitlar egocentriskt upplag, við þurfum að biðja um heil þeim heimi sem við búum í. Að búa í flekklausum heimi færir okkur stærri anda, stærri rúm og betri tíma.
..... og bla bla bla ..... það væri sko gott að rýma aðeins til í hvalnum og prumpa smá!
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
26.1.2008 | 19:02
Kona í allra kvik"ynda" líki ....
.... konur eru yndi margar hverjar kvikar, ein þeirra hikar en hinar geisla af lífsþrótti. Konur eru og verða yndislegastar!
Þessi færsla fjallar að sjálfsögðu um konur, kvinder, women y mujeres! Dásamlegar allar sem ein, berjumst fyrir því besta sem lífið færir hver á okkar hátt. Þann eina sem okkur var í brjóst borið!
Var að spekulera að gera kokkastrák, bókaorm og veiðimann ... kökuskreytingakonu og búðarkonu .... já, já svo heldur sílóinn áfram að hvísla að mér orðunum.
Kona, Köttur og Krummi .... áfram flísast kerlingin. Hefur ekkert með það að gera að konan sé afkastasöm eða dugleg. Við einfaldlega veljum okkur það sem okkur hentar! Ég hef t.d. ekki lesið mikið, hef ekki verið dugleg í líkamsræktinni, hef ekki farið í marga saumaklúbba en ég hef varið tíma mínum í að dunda við það sem róar og fróar huga minn. Mála og mála og mála og svo hef ég tölvast og dundað mér við að kíkja á ykkur. En ......... Voila!
Já, þeir eru sætir broskallarnir!
Var að koma úr bíó með familíunni og sáum við grínarana Mortadelo og Filimon. Tveir leynilögreglumenn sem bjarta heiminum frá vatnsskorti. Börnunum þótti myndin fín, Fjallið sofnaði (hraut sem betur fer ekki) og ég fór nánast úr kjálkalið. Hlóum smá, gáfum börnunum ís og röltum um verslunarmiðstöðina þar sem bíóið er.
Svo, var komið við í "melabúðinni" keyptum Entrecot steikur og grænmeti í kvöldmatinn.
Ástin er bústin og ég á bleikum bommsum!
24.1.2008 | 16:51
Svo Pornó er ekki það versta ....
..... nú nú sagði ég og kváði.
Hvað er verra en pornó horf og ástundun ??? Mæ, pornó dog svaraði því til ( sko ég á svona lítinn ímyndaðan vin sem er pornóstjarna, rosaleg vel niður vaxinn ) .... að þegar fólk gleymir sér stundum saman við fasteignaauglýsingar þá væri þráðurinn glóandi.
Ég: Ha, hvaða þráður spurðir ég ímyndaða vin minn? (kanski tippalingurinn)
Hann: það er enginn þráður þetta er bara svona sýki.
Eg: O.k. ertu sem sagt að segja að ég sé sjúk og eigi að fara að skoða pornó?
Hann: Nei, ekkert endilega en ertu að fara að kaupa þér hús?
Ég: Nei, nei ..... bara að skoða hvernig fólk býr og verð og svoll. Er að vinna að samanburðarkönnun miðað við landshluta.
Ef ég svara ekki síma, meilum eða kem ekki til dyra þá er ég að glápa á pornó síður. Spurning hvað ég duga lengi ....
Döhhh. Ekki mikið fútt í mér en ég hóf daginn á því að undirbúa líkamann, sturtaði mig tandurhreina. Drakk sólarelexír og skundaði háðsk á stefnumót. Drakk fyrsta kaffibollann klukkan 1400 .... og hef náð að drekka samanlagt 3 og nú er klukkan hálfsex.
Er með einhvern orm í mér, svona kvikyndisnóra sem kemur á óvart! Mér er búið að vera íllt í báðum hnjám (neita að vera komin yfir kjörþyngd) þetta eru skilaboð að handan. Ég hef grun að ég sé að verða fyrir ótrúlegu happi og mun að sjálfsögðu deila því með ykkur.
Ég þakkaði fyrir að vakna, þakkaði fyrir að vera á mínum stað, heil heilsu ( áunnin geðbilun telst mér til bóta) allavegana var ég þakklát og ætla að bæta við flísirnar mínar þar sem Síló er farin að tala tæpitungulaust að handan. Hann skítur sér niður í kollinn á mér í skemmtilegum leik.
Bla bla bla ....
Hjartað mitt er á sínum stað og kertið kastar frá sér fögrum bjarma.
23.1.2008 | 22:08
Fegurð og depurð ....
Að þekkja það fagra er heiður, að finna þjáninguna er heiður, að snerta sorgina er eitthvað sem við viljum vera án. Sorgin kemur í ólíkri mynd til okkar með þeim lifandi eða liðnum.
Í hjarta mínu er stórt gat þessa dagana sem ég get ekki útskýrt á þessari stundu en ég hef fyllt hús mitt af bænum og ljósum loga kertanna í þeirri einu von að almættið verði rausnarlegt. Rétt eins og almættið er!
Ég held mínu striki, elska að vera ég og elska að geta verið í nálægð.
Ég gat engan vegin sökkt mér í koníaksflöskuna, not my kind of flavor! Drakk soðið vatn, hunang og nýtíndar sítrónur út í eitt! Er miklu betri, eiginlega bara góð. Kirsuberjamaskinn hafði góð áhrif og ekki var verra allt þetta græna heilsubótarfæði sem var á borðum í kvöld.
Nokkrar flísar
Dóttir mín er ánægð með englaflísina og sagði; mamma gerðu engla þeir eru svo fallegir!
En ég stóð mig að því í eigin aumingjaskap að gleyma fegurð heimsins, að gefa ekki ástar dúllunum mínum vökvann eina. Það fegursta sem til er í mannheimi og í öllu umheimi. Vatnið!
Blómin þurfa að geta ljóstillifað, blómin eru útsend frá hinni fögru veröld til að minna okkur á það sem heitir ást, það sem umvefur okkur lit og líf. Blómin eru ástin eina og hana viljum við öll eiga.
Dúllurnar mínar voru að spjalla um daginn og vegginn.
Fegurðin er sjáanleg og depurðin er ósýnileg. Báðar eru þær jafn fagrar eins og depurð þeirra getur verið svipuð. En, í auganu býr fegurðin, í auganu sér sá hinn sami.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
21.1.2008 | 17:05
teskeið, matskeið eða súpuskeið .....
Vaknaði eldhress þrátt fyrir að vera með leiðinda eymsli í hálsinum og hósta skrjáfþurrum hroðbjóðslegum hósta sem ég er að vinna frá mér. Ég er sú allra leiðinlegasta þegar sjúkdómar gera hosur sínar grænar!
Tengdó hringdi í morgun og ég sagði henni að ég ætlaði að opna koníaksflöskuna og skvetta í mig. "Heldurðu ekki að hunangið virki betur" sagði ofurdúllulega tengdamamma mín .... Ég leiðrétti þetta svo hún héldi ekki að ég yrði bara blindfull af koníaksdrykkju hugsandi um barnabörnin hennar....
Kanski ég fái mér eina matskeið áður en ég fer í háttinn og svo aðra þegar ég vakna. Setja pyttluna undir koddann og láta sig dreyma um lækningarmáttinn ógurlega. Já, þetta er allt spurning ..... gæti líka farið uppá þak og látið reyna á mátt tunglstöðunnar, íklædd hvítum serk með baldursblóm í hárinu!
Þetta er eitt af tækifæriskortunum sem ég fékk úr prentun um helgina. Lenti í því að láta hraðbankann snuða mig og ég stóð gapandi af undrun.
Prentunin fór ekki alveg eins og ég átti von á og var á fundi með sölufulltrúa prentsmiðjunnar og á von á að hlutirnir fari eins og lagt var upp með. Nú er ég með "my fingers krossed" ....
Netfangið mitt er eitthvað að stríða mér þessa dagana. Ég á von á tæknimanni á miðvikudag til að laga stöðuna og ef ég hef ekki svarað mailum undanfarið þá er það ekki vegna kvikyndisnóraháttar míns heldur er tæknilega hliðin eitthvað hrekkjótt. Ég get verið óttalegur dóni en ég svara alltaf meilum sem mér berast!
Svo er það að finna stóra matskeið og taka meðalið .....
20.1.2008 | 11:11
Ammmmmmlisgleðin hátíð næst
Tengdapabbi minn á afmæli í dag!! Og Freyja líka. Allnokkur skilja árin þessar Steingeitur en ég óska ykkur báðum hjartanlega til hamingju með daginn.
Ég vaknaði gjörsamlega eins og úlfur í morgun. Gærkvöldið var gaman og þið getið nú bara rétt ýmindað ykkur nornafund með 13 skvaldurbrjáluðum kjéddlingum. Yfirmáta fagrar konur, allar búnar að farða vel yfir nornavörtuna svo á engu bæri.
Úlfurinn var hás í morgunn en það er sennilega vegna þeirra sem reyktu. Það er langt síðan ég hef farið á krá en þetta var flottur staður, fullt af fólki og þegar ég kom heim ilmaði ég af tóbaksreyk.
Allir eru ferskir og komnir á ról. Ég er búin að jarða Úlfinn og við ætlum að viðra okkur í góða veðrinu. Við ætlum að kaupa blóm handa tengdapabba og Freyja mín blómin þín koma í hugarsendingu. Jafn margar rauðar rósir og árin þín telja!
Út úr húsi er málið, njóta dagsins í faðmi fjölskyldunnar. Tengdapabbi er vænn og grænn karl svo það væri lag að gefa honum appelsínutré en sítrónutréð sem við gáfum honum er farið að gefa ávöxt og það má segja að sítrónurnar hafi bragðast vel .....
Sítrónuvatn
19.1.2008 | 19:03
Svartigaldur og höfuðkvalir
Já, ég ætla ekki að sleppa fyrir horn. Nornaveiðar og svartagaldursfundur á næsta leiti. Ég er búin að vera að æfa mig og eftir því sem nær dregur sargast höfuðkvalirnar nær dinglinum.
Ding dong og dingaling! Ég lifi nú af smá hauskviðu en nú stendur á að ég æfi spellið sem ég með snilldarbrag ætla að leysa úr læðingu! Þegar kona stendur frammi fyrir dotlu þá er gott að vera með nokkur spell í handraðanum. Hrista svo úr erminni eins og ekkert lætur og sjá skuggana falla.
Í kvöld ætla ég að spella fegurðina fram, láta grímur ódæðis hverfa og bera fram innra ræti nærstaddra. Stundum hefur "mærin moi" velt því fyrir mér hvernig það væri að standa rangsælis holdinu og horfa beint í innri mann. Þann sem hefur ekkert að fela.
Í kvöld, þar sem kláðinn er farinn, þar sem stiginn verður léttur dans.
Í nótt mun ég galdra,
kerlingar skvaldra.
Um víðan völl,
í ævintýrahöll,
ég spella allan heiminn.
Án alls á stokkin stíg,
vopnuð mínum vilja.
Nakið hold,
ískallt kvöld,
ég legg seið frá blíðu hjarta.
Kona og Krummalingur
Akrýl á striga 20 x 50
Njótið þess að vera saman því annars er ekkert gaman!
(gargandi snilld að hafa þennan laugardag)
"Þarf að finna kústinn, kiss og bless"