Færsluflokkur: Menning og listir
16.1.2008 | 23:20
Upp á þaki ......
Takk kærlega fyrir góðar móttökur, alltaf gaman að fá klapp á bakið ..... ég er svoddan kettlingur í mér. En, ég ætla að birta þakið í heild sinni fyrir "suma" til að sjá þar sem tæknigúrúið ég tók svo stóra upplausn á myndavélina rúml. 2 Mb hver mynd og gengur ílla að senda.
Vonandi er ég ekki alveg að drepa ykkur, en það sem ekki drepur styrkir!
Já, já, nú er mín bara þreytandi en hér kemur örsýning af þaki ..... Útsýnið er það sem augu þín sjá, hvorki meira né minna.
10 Dropar Blómarós Komdu Kisa mín
"Frátekin" Í einkaeigu Í einkaeigu
Blá Vínberjaást Rós fyrir Rós Ástfangin
"Frátekin"
Vínberjaást II Eldabuska Sæt og Svalandi
"Frátekin"
Kaffikerling Eplapæja Vínberjaástin
Í einkaeigu "Frátekin"
Tími fyrir te 2 falin hjörtu Kona og Krummi
"Frátekin" "frátekin"
( Spákona - í vinnslu )
Spurning hvort þessi færsla fari í einn graut því myndirnar eru ekki settar upp eftir neinni reglu og textinn er settur undir af mikilli ást og alúð!
Spákonan er í fæðingu og mér sýnist á öllu að mig vanti fleiri flísar því það er slatti sem fer í útkast.
Dagurinn er búinn að vera góður, ég fór í smá ferðalag í dag með Fjallinu mínu ... fór í fjallkonu búninginn .... " greiddi í píku og fór í háhælaða skó" og svo var brunað með strandlengjunni.
Ég er búin að vera döpur, kem ekki orðunum að þeim sársauka sem tilheyrir fallegri manneskju er háir nú baráttu við líf sitt. Ég mun lygna aftur augunum og biðja algott almætti um styrkinn fyrir viðkomandi. Lífið er svo stutt kæru vinir, njótum þess á meðan við getum og gleymum því aldrei hver við erum, hvaðan við komum og hvers við erum megnug.
Ást og hamingja að leiðarljósi
Menning og listir | Breytt 17.1.2008 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
13.1.2008 | 22:33
Ég elska konur ...
... þegar ég vel mér myndefni. Konur eru spennandi, mjúkar og hlýjar persónur sem ég hreinlega elska að mála. Konan getur verið þú eða ég, konan á móti eða sú sem býr í bakhúsinu við okkur.
Konan elskar ketti og krumma, elskar rósir og allskyns blóm. Konan elskar það eitt að vera, finna ilminn af þér sem leggur leið sína í líf hennar, vertu velkomin í heimsókn.
Ég mála konur og reyndar líka karlmenn og gerði smá tilraun sem ég þarf að vinna með en ætla að sýna ykkur tilraunina sem heitir tvö falin hjörtu sem er fyrsta flísin hér að neðan. Í framhaldi koma nokkrar "flísar" sem ég hef verið að gera undanfarið. Stærðirnar eru ca. 20 x40 og munu flísarnar verða settar á heimasíðuna mína www.zordis.com þegar tæknigúrúið finnur anda sinn.
Njótið
Tvö falin hjörtu
Blá Vínberjaást
Vínberjaást II
Í einkaeigu
Komdu Kisa mín
Í einkaeigu
Kona og Krummi
Blómastelpa
Í einkaeigu
Ástarjátning
Sunnudagskvöld, góð mynd á skjánum sem ég hlusta á. Ég viðurkenni að ég heyri nú ekki mikið af því sem fram fer því ég er hvort sem er annars hugar. Kanski draumasvið mitt verður á sviði gamallar bíómyndar.
En vona að þið njótið flísanna, ég er greinilega í einhverju orkubústi því ég hef valið rauðan lit á nánast allar konurnar mínar. En það er nú í lagi.
Takk fyrir komuna
Ath. ef þið viljið frekari upplýsingar sendið mér línu á zordis@zordis.com
Menning og listir | Breytt 16.1.2008 kl. 06:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (43)
12.1.2008 | 19:53
Á bleikri grein ....
Stundum er nauðsynlegt að taka tilfinningarnarnar og blása þeim út í loftið, blása blítt og framleiða af stút þykkar og silkimjúkar sápukúlur. Finna svo svörin som koma til þín beint í undirmeðvitundina þína.

Svo getur kona lent inn í kúlunni líka
Ég er eitthvað svo poppuð eftir daginn, ætlaði að gera svo margt, gerði margt en ekkert sem ég var búin að ráðgera. Svona gerist stundum og það er allt í lagi. Anda bara djúpt, inn og út og láta kvöldið líða. Það eru allir að dedúa í sínu horni, heimasætan að læra og feðgarnir í Play station ..... Hvað gera þá sætulíusarkonur eins og ég ???
Spurning
Ég held að við séum óvenjulega fjölskylda, erum heimakær og nennum oft ekki að fara á flakkið. Áður fyrr vorum við duglegri að sækja allskyns tómstundir eða útiveru um kvippinn og kvappinn en í dag þá er heimilið aðalpartýstaðurinn. Það er nú í lagi, alveg sátt við það að vera með þeim sem ég elska mest "all day round" .... kanski erum við bara ósköp venjuleg
"boring" fjölskylda. Já, ég held það ósköp venjulegt ógnarskemmtilegt mengi.
Eftir að hafa verið í Fjallgöngu í 7 ár ákvað ég að negla fjallið. Gerði honum grein fyrir því að nú væri tíminn. Við myndum gifta okkur eftir 7 mánuði þann sjöunda. Mér reiknaðist til að það yrði 7 Október og ca. 1 mán fyrir brúðkaup fór mærin mjúka að leita að kjól en hefði öllu frekar átt að panta sér tíma í fitusogi því enginn fannst kjóllinn. En til að gera langa sögu stutta, sagði Fjallið JÁ og ég hélt ræðu í kirkjunni fyrir íslensku gestina okkar og við frestuðum hungangsferðinni um óákveðinn tíma.


Hann er ennþá óákveðinn þ.e. tíminn því ekki höfum við farið saman í ferðina einu, skreytta ástinni og bliki þess að vera ...... innnnn löv! Koma tímar og þessi ferð verður farin þótt síðar verði! Við eigum 3ja ára brúðkaupsafmæli og hver veit nema að við finnum leið til að strjúka 2 saman.
Parlez-vouz frances?
Vona að kvöldið verði ánægjulegt, ég ætla að láta verða af því sem var á dagskránni í dag ...
11.1.2008 | 17:07
Að snerta estrogenið í sjálfinu !
Árið 2005 tók ég skrefið og ákvað að fá mér heimasíðu. Stórtæk eins og ávallt réð ég mér grafískan hönnuð og tölvugúru til að gera síðu fyrir mig. Af hverju að kafa í laugina þegar þú hefur allt hafið. Ég hefði sennilega átt að verða geimfari og njóta ástar hins eilífa geims sem tekur oft í taumanna, þegar við höllum augum okkar opnar nýr heimur þér sýn, sem þú sérð á þann eina hátt er sál þín litar. Vertu velkomin .....


Það er góð tilfinning að vita af því að fólk gefur þér og sjálfum sér tíma í að fara í gegn um safnið mitt, skoða og jafnvel spekulera. Vinkona mín sem er "vitur" á ýmislegt sagði mér að í gegn um heimasíðu þá myndi ég ekkert selja. Ég var "vitur" á móti og sagði henni að það væri ekki rétt og það hefur nú sannað sig hvor var vitrari!

Mánudagur til mæðu og ég veit að þeir sem koma í heimsókn fá vonandi mæðu sína niðurgreidda.

Hér má fylgjast með skoðun pr. vikum yfir árið og það sem kanski er mikilvægast á meðan markaðsherferðin er ekki sterkari en hún er í dag þá er bara heiður að þú skildir hafa litið við.
Það að selja málverk eða list er stórkostleg tilfinning, vita af því að þú ert ekki einn í heiminum sem ert að fíla það sem geislar frá þér heldur að einhver er að njóta þess sem þú sendir frá þér. Já og svo eru það hinir sem gjörsamlega flippa yfir hvað þú sért að eyða tíma þínum í. Þetta er það góða við lífið .... við getum fest rætur í öllu því sem við tökum okkur fyrir hendur því á hverri hillu er pláss fyrir allt og alla, það sagði einn gamall maður mér sem býr í hjartanu mínu.
Já, svona er þetta bara, lítil gleður litla ... er það ekki bara málið!
Svo ég tali nú ekki bara um mig þá hef ég dálæti á að skoða heimasíður og þá sérstaklega síður sem hafa með listmuni að gera.
Eva konan hans Gunnar svíafara er leirlistarkona og gerir fallega muni
Björkin vinkona mín Elín Björk er frábær listakona sem málar í Olíu
Katrín Snæhólm galdrakona og bóhem er frábær listakona
Guðný Svava Strandberg málar ótrúlega skemmtilegar myndir
Sara Vilbergs er ein af mínum uppáhalds listakonum
Nicoletta er frábær listakona
Sigilosa blönduð tækni
Inga Steina frænka sem býr í noregi er flínk með pensilinn
Ég held alheimi í hendi mér
Ég nefni fáa, vona að heimasíður séu rétt nefndar og endilega látið mig vita ef þið vitið af fleiri góðum og smellnum heimasíðum. Ég gæti fyllt margar blaðsíður af frábærum listamönnum og konum, Tolli, Hekla, Karólína og fleiri og fleiri og fleiri ...
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
10.1.2008 | 21:01
Marinerað hjarta með ferskum lauk ...
.... hjartað á mér er eitthvað meir"t"iháttar þessa dagana.
Veit eiginlega ekki hvort þetta sé gott eða slæmt því ég veit varla hvort ég sé meir eða meiriháttar ...... það má segja að hjartað mitt sé marinerað í miklum kærleik heimilismanna og treður nú hjartað leið upp Fjall með litlu birkitré hreinræktuðu íslenskum runna og appelsínutré, líka nokkuð svo hreinræktaður runni.
Ég heyrði í kóngunum þrem sem komu færandi hendi og þeir bentu mér á leið til að nálgast það sem var efst á óskalista barnanna, svona ..... Wiiiiiiiiiiii tölvu! Já, það er nebblega málið, bankinn sem ég var að hefja viðskipti við gefur svona tölvu sem er uppseld á öllum Iberíuskaga. Það getur borgað sig að trúa á töframátt og eftir 10 daga kemur leynigjöf inn á heimilið sem við þökkum konungum alheimsins.
Ástarjátning II
Ég hef stundum hugleitt af hverju ástin er mér hugleikin, af hverju aldur og ár eru mér hugleikin, af hverju rósrautt skýjið hefur dregið hluta af mér á annað stig og af hverju ég hef verið svona mikill prakkari í gegn um lífið. Grínið mitt er mörgum andstætt en þannig eru sumir hlutir, andstæðir en samt svo stæðir sem ferðast um hæðir þar til hjarta mitt/þitt blæðir.
Já nú er ég farin að bulla.
BRÁÐUM ER SÝNINGIN Í RÁÐHÚSINU STELPUR
Katrín Snæhólm
Elín Björk
Guðný Svava
Zóa
Zordis
Það styttist með degi hverjum, hún er eftir tæpl. 7 mánuði ...... Ótrúlega spennandi tími framundan, næg vinna og pælingar og hugsanir sem ná vonandi að skreyta grunninn, sem ná að heilla augu þín og sál. Nægur tími hefur aldrei verið skemri en akkúrat núna.
Stelpur, nú er að taka á listagyðjunni og skapa fegurð sem hvergi hefur verið sýnd áður.
9.1.2008 | 17:03
Krassa inn í kaldan raunveruleikann .....
Af hverju vaktiru mig mamma, ég var að fljúga með Harrý Potter sagði Júníorinn við mig í morgun ... Góð spurning??? Af hverju fáum við ekki bara að gera það sem við viljum. Pjúff hvað lífið væri mikil óregla ef allir gerðu bara alltaf það sem þeir vildu.
Lög og reglur, agi og aðhald er það sem heldur okkur gangandi þ.e. okkur flestum.
Í morgun lá leið í réttarsalinn, mín beið kvíðafull yfirheyrsla. Ég var kölluð fyrir sem vitni vegna atburðar sem átti sér stað fyrir rúmu ári síðan. Og, nú var komið að því. Fór í virðuleg föt, greiddi mér og setti glamúr varalit á varir mínar sem var algjört aukaatriði í raun því ekki leið mér betur. Hefði getað staðið eins og vænsta jarðaber á skinnin einu saman.

Ég átti tal við andana mína og fann fyrir ró þegar leið á morgunin, ég hafði beðið um að þurfa ekki að horfa framan í gerendur glæpsins en hætti við það þegar að neyðarstundu kom. Ég virti fyrir mér 3 karlmenn sem brutu lögin og gerðu alfarið það sem samviska þeirra leyfði. Ég fylltist sorg vegna bakgrunns viðkomandi, vegna aðstandenda og vegna ljótleikans sem býr í heiminum.
3 klukkustundir í bið í sama herbergi og 3 fangelsaðir glæpamenn og dómnum varð frestað þar sem 1 lögreglumanna lá veikur og annar er gekk frjáls mætti ekki fyrir dóm. Ég verð vonandi rólegri næst þegar ég mæti ef ekki þá er bara replay á tilfinningaskalann. Alltaf erum við að ganga í gegn um raunir af ókunnugum toga. Við erum vonandi að vaxa í einhverjum skilningi en það er lífsreynslan okkar.
Allir heilir og sælir og "vinir" mínir 3 voru sendir í fangelsi þangað til dómstóll verður tekinn upp á ný fyrstu vikuna í febrúar.
Já, stelpan er að gera sitthvað og ég held ég þurfi að kasta mér á jörðina og grípa í eitthvað sem ég þekki .... það er óhætt að bleika skýjið mitt hélt mér ekki uppi heldur náði ég að krassa á kalt malbikið þegar raunveruleikinn brá sér í kalt holfið.
Eins og Hemma Gunn einum er lagið, verið hress, ekkert stress .....
8.1.2008 | 19:33
Sólin í hjartanu ...
þar sem sólin skín í hjarta þar líður okkur vel nema um brjóstsviða ræðir!
Eftir þessa dásamlegu sukkhátíð í glúteni er ég að þjást fyrir vikið. Brjóstsviði og kláði í fótleggjum og rjóð útbrot og þurrkur í andliti. Ég er bara að breytast í hafmeyju, það er nokkuð víst!
Eftir að synda með höfrungum breytast ákveðin skilyrði líkamans og þessi silfurgrái kallar á sálina tala nú ekki um þegar kona rakknar upp á bak við eyrum.

Horft í land
Góður dagur er að renna í sandinn. Heilt kvöld framundan, spurning að grípa í bók eða pensil eða penis .... thi hi hi
7.1.2008 | 20:38
krummi krunkar úti ...
... kallar á nafna sinn ...
Elska þetta alveg í ræmur! Góð vinkona gaf mér spiladós með laginu um krumma og ég trekki dósina upp og læt mig dreyma um krumma og kóngulærnar, um kisurnar og krabbaklær!
"Set inn surprise hér á eftir"
(ég að öllum líkindum á nærjunum)
Ungherrann er í baði og hefur fengið skrúbb og hárþvott og bíður þess að verða tekinn uppúr og settur í náttfötin. Hann á að fara snemma að sofa í kvöld þar sem aðlögun að eðlilegu lífi hófst í morgun. Það var notalegt að fara og sinna sínu í morgun og heilsa uppá fólk. Ég ætla hins vegar ekki að deila við það um neinn hvað er notalegt því við erum misjöfn eins og við erum mörg!

Ég tók séns í lífinu og fann litinn minn. Léttur snúningur í hjóli ástarinnar getur margborgað sig. Að gera það sem okkur þykir best, að finna það sem er fallegast og njóta til fullnustu þess er kemur. jafnvægið er að sjálfsögðu langsamlega happasælast, er það ekki?
Litlu krúttin mín eru komin í háttinn, klukkan er gengin í 2200 og best að gera eitthvað sniðugt. Fín mynd í sjónvarpinu, ómálaður strigi og heilt kvöld með Fjallinu ................
Ást í poka sem ekki má loka
(p.s. þið sem eruð að bíða eftir pöntun á flísum þá er ég að vinna í því og mun senda sýnishorn í vikunni.......er komin með nokkrar en ætla að bæta smá í)
6.1.2008 | 23:48
Ég heiti ekki Ósk fyrir ekki neitt .....
Ég fékk fallega afmælisgjöf frá börnunum mínum. Þau völdu hana alveg sjálf og þótti mér vænt um hvað þau hafa góðan smekk! Gjöfin hitti mig alveg og kitlaði mig, fallegt nisti sem hefði allt eins getað verið teikning eða föndur.
Við þurftum hins vegar að fara og fá stærri keðju þar sem svanahálsinn hefur gildnað með árunum sem hefur þó lítið með að gera að frúin er enn limalipur og nýtur þess að vera til.
Ég spurði mágkonu mína í dag, hvað hún myndi óska sér ef hún gæti óskað hvers sem var vitandi að óskirnar hennar myndu rætast. Hún hugsaði sig um og sagði; að dætrum hennar vegnaði vel og að hún gæti dansað og og og .... erfið spurning sagði hún svo og var eiginlega ekki viss um hvers hún innilega vildi óska sér!

Óskaðu þér en farðu varlega með óskina því allar óskir rætast. Við förum stundum óvarlega með óskirnar okkar og óskum stundum rangt og lendum á óskastundinni. Orð og hugurinn eru skæð vopn sem við ættum að fara vel með.
Hvers óskar þú þér?
Þú lendir á óskastund fyrr en varir ..... notaðu óskina vel!
6.1.2008 | 11:09
Þrettándamessan hljómar í sjónvarpinu ....
Gömlu hróin voru vakin í morgun, drengurinn var spenntur og sagði að Konungarnir hefðu komið og skilið eftir gjafir undir trénu. Æj, hvað ég var þreytt en fór í fötin mín og fékk mér Sol Elixir dropana mína, hitaði kaffi og við settumst í stofuna og fylgdumst með gjöfum þess rausnarlega.
Sæti strákurinn minn
Mamma, ég bað ekki um þetta og ekki um þetta .... hvað er að kóngunum ?? Mér er spurn hvað sé eiginlega að þessum konungum sem komu af sinni alkunnu snilld ríðandi á úlföldum eftir götum bæjarins.
*******
Til gamans má geta að leiktækjatalvan Wii er uppseld á öllum spáni, en hún var á listanum hjá drengnum. Ég er gjörsamlega yfir mig hissa að þetta leiktæki skuli vera uppselt í rúmlega 40.000.000. manna landi. Hvað er að ???
*******
Í gærkvöldi fórum við og sáum för kónganna og var götuleikhús Orihuela borgar með frábæra listasýningu. Við biðum róleg og vorum með gott stæði .... þangað til fólk ruddist fram fyrir okkur og ég náði ekki upp í mitt stóra nef. Gott tak í nefinu en þarna náði ég sko ekki. Þegar kom að því að vagnar fleytifullir af allskyns gjöfum rúlluðu framhjá varð heldur betur fjör því allt í einu ruddust fjöldinn allur af sígaunum framm fyrir okkur til að grípa gjafirnar. Sonur minn hafði gripið gúmmíslöngu sem var rifinn af honum, dóttir minni var hrint sem og mágkonu. Syni frænku okkar varð undir svo undurblíð móðir hans hrissti aðeins upp í líð götunnar og gnísti tönnum.

Burt séð frá þessum skugga þá áttum við ljúft kvöld. Settumst á lítið torg "parque" þar sem börnin léku sér og fulltrúar götunnar komu og reyndu að ræna mig. Ég lét það nú ekki viðgangast en spyr mig, hvaðan komu allir þessir sígaunar eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Við erum öll börn guðs og erum alin upp við ólíkann bakgrunn og berum áfram það sem okkur var kennt. Þegar ég flutti til Spánar man ég eftir fjölskyldu sem lagði bílnum sínum fyrir framan íbúðina okkar og þar tendruði hún bál (við bjuggum í útjaðri bæjar) og viðkomandi sátu úti, ákveðið fjölskyldumunstur, goggunarröð og virðing sem fyrirfannst, það laut hver fyrir sínum æðri. Þegar ég ætlaði að bjóða þeim inn til að baða sig sagði Fjallið mitt hvort ég væri ekki með sjálfri mér. Þau myndu ekki kæra sig um það! Mér fanst það undarlegt þar sem þau voru skítug, hann þvertók fyrir að þau myndu þiggja baðferð og að fyrir utan þá væri hann á móti því. Ég ákvað að fara yfir leikföng dóttur minnar og við fundum dúkku fyrir hvert barn og svo fórum við mæðgur niður með leikföngin.

Mér leið hálfílla (fanst ég vera ókurteis á einhvern óútskýranlegan hátt) en kom engu að síður færandi hendi. þegar við afhenntum leikföngin var þeim vel tekið en elsta kerlingin sagði; það vantar dúkku fyrir hann og benti á uppkominn ungling. Ekkert mál sagði ég og fór og náði í eina dúkku til viðbótar. Ég held og veit að fólk sem lifir á flakkinu kann ekkert annað og vill ekkert annað, menning þeirra er töluvert öðruvísi, framkoma og siðferði er með öðrum hætti og það að vilja skilja eða sjá aðstæður með þeirra hug er okkur fremur erfitt. Fljótlega eftir þetta fór fjölskyldan sína leið, sennilega verið vísað frá þar sem fólki stendur uggur af sígaunum þar sem þeir svífast einskis til að ná sér í nauðsynjar.
Kallast sjálfsbjargarviðleitni.
Mikill munur er á sigauna og sigauna og fer það alfarið eftir uppruna. Ekki misskilja mig en í bænum okkar búa sígaunar, börnin þeirra fara í sama skóla og börnin mín og svo eru það börnin sem fá ekki að fara í skólann og búa á eilífðar flakki. Menntun er máttur, þarf vart fleiri orð en það.
Í dag, á þrettándanum, afmæli langafa míns munum við halda til tengdó í enn eitt matarboðið (hehe fer á hverjum sunnudegi) og ætlum að njóta þess að vera til eftir megni.
Ég þakka bara fyrir hlutskipti mitt og óska ykkur þess besta í heimi hér.