20.2.2007 | 14:49
Hamster Lady .....
Eitt sinn sat ég sem oftar á sólarveröndinni minni, það var farið að rökkva og tengdaforeldrar mínir litu við ásamt fleira glöðu fólki. Þegar Spánverjar koma saman er tilfinningin oft eins og í bjargi, mikið spjallað og skrafað.
Í för var lítill hamstur sem var bara nokkuð krúttaður ........ En, svona til gamans og styttingar þá var ég með þeyttann rjóma og ákvað að gefa hamstrinum smá smakk sem endaði með þeim afleiðingum að hann beit mig. Kræst, hvað mér brá en lét kúlið ekki sigla frá mér og brosti bara að þessu Og lét sem ekkert hefði í skorist.
Um nóttin fékk ég agarlega sótt og leið fremur ílla .................. Það var sem mig grunaði, ég var að breytast í Hamster lady, ofurkraftar og ótæpilegt magn sem ég gat komið fyrir upp í mér. Jórtraði á öllu grænu og sólfræjum út í eitt.

Meir að segja fékk ég niðurfellda yfirvikt í einu flugi þar sem Hamster Lady kom og bjargaði málunum. Það munar um minna.
Hún er snögg, hún er fim, hún er Hamster Lady
Þarf að rifja taktana þar sem nú styttist í flug.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
he he góð saga ..eins og ávalt..
Margrét M, 20.2.2007 kl. 15:37
Ertu enn í hamsterlady fílingnum?
Hellings knúsur til þín ladyin mín, þú átt svo meil :)
Elín Björk, 20.2.2007 kl. 19:48
The Hamsterlady og prakkarinn... getur ekki klikkað í spæjósögu
Heiða B. Heiðars, 20.2.2007 kl. 22:23
Guðmundur, velkomin heim .... það er ekki óvanalegt að rauðvínsglas sé haft um hönd
Elín mín kæra, ég er alltaf í fílingnum
Jóna þú getur ekki ýmindað þér hvað það er stutt í það, o boy sko!
Heiða ég held að prakkarinn og hamsterlady verði borg óttans einum of mikið .... eða hvað?
www.zordis.com, 20.2.2007 kl. 22:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.