20.6.2007 | 20:56
Wo ai ni ....
Vona ad ástin ríki í öllum heimsins aedum, renni í laekjum og ólgi í hjarta okkar eins og hafid á grófum hrjúfum degi! Ástin er tilfinning er vid zekkjum öll med einhverjum haetti. Höfum öll lifad kaerleik burt séd frá litarhátt, aldri eda uppruna!
Uppruninn er óljós zví vid upplifum svo marga reiti sem kallast nú ..... Núna er í dag, var í gaer og í upphafi lífs. Núid er ávallt hjá okkur, laetur ekki deigan síga og spyr ekki ad leikslokum!
Leikslokin eru í raun upphafid ad zví nýja er segir okkur ad lífid er nýtt, ferskt og spennandi. Í zeirri einu merkingu sem vid kjósum ad sjá zad! Upphaf og endir, ný taekifaeri, nýtt líf!

Zegar ég vaknadi í morgun heyrdi ég zúsund fugla syngja á svölunum hjá mér, zeir hvísludu ad mér galdri er ég tók med mér út í daginn. Sólin var brennheit og orsakadi zungan andardrátt en zegar kvölda tekur kemur ferskur vindurinn í vit og hundur nágrannas sudar vid hrafn naeturinnar.

Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Hæ ást...já lífið er lotterý og gotterý og líklega fæ ég að sjá Næturhrafn "læv"er'þaggi"
Hjútsknús á þig...útaf DOTTLU
Solla Guðjóns, 20.6.2007 kl. 21:12
Hjúts knússlur á móti! Mig hlakkar til út af DOTTLU líka .....
www.zordis.com, 20.6.2007 kl. 21:21
Lífið er lotterí ... minnir mig á gamlan slagara "Falling in love again" sem Edith Piaf söng, og auðvitað meistari Marlene Dietrich líka ... þessar myndir minntu mig sem sagt á þetta - og mér líður vel. Mikið væri gaman að geta sungið þetta með þér við gott tækifæri!!
Hjartans hlýjar kveðjur og knús,

kossar og fleiri í líterskrús .... til þín!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 22:05
Hitabeltiskveðjur (getur maður óvart verið galdrakelling?)
gerður rósa gunnarsdóttir, 20.6.2007 kl. 22:07
Þetta eru bara frábærar!! Bæði myndirnar og textarnir...
Ég dáist að þér
Toshiki Toma, 20.6.2007 kl. 22:46
Já, Þórdísin mín, svoleiðis er nú það. Sveitungakveðjur til þín!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.6.2007 kl. 22:49
Fallegur texti og frábærar myndir. Takk
Margrét St Hafsteinsdóttir, 21.6.2007 kl. 00:16
Já, Zordís, lífið er sannkallað lotterý, ég ætla nú samt að vona að ég hreppi stóra vinningin. Ég er alltaf jafnhrifin af myndunum hjá þér og textinn leggur málinu lið.
Kveðjur í sólina..... Sóldís
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 21.6.2007 kl. 09:27
Fallegar myndir já lífið er lotterí knús frá mér.
Kristín Katla Árnadóttir, 21.6.2007 kl. 10:15
Fallegt. Knus a ykkur
Lisa (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 13:26
Þú þvældist mikið og sterklega um í draumum mínum í nótt og Jóna Ingibjörg kom þar við sögu líka. Þú áttir heima við götu og þar voru búðir og allt sem til þarf en ekkert þar í kring. Gatan var bara á sveimi í einhverju tómi og ég var komin til að heimsækja þig og máta alls konar kjóla.
Knús
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.6.2007 kl. 13:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.