9.11.2007 | 18:50
prodotto italiano .... loksins, loksins .....
Eftir víbrandi kvöldstund tók við grátu og aumt hjarta litla engilsins míns. Mömmumús dreif sig í kotið hans og kvartaði hann sáran undan hægra eyra sínu.
Mið nótt og móðurhjartað lét undan. Við klæddum okkur og fórum út í bíl og beint á heilsugæsluna. Litli 7 ára drengurinn var að fá eyrnarbólgu í fyrsta skipti. Þessi engill hefur varla verið misdægurt, þó fengið hlaupabóluna en þá er það upptalið ... kanski mislingabróðir en annað hefur gengið snuðrulaust fyrir utan hjólaslys sem olli gat á höku. (þess má geta að móðir hans stökk á Nilfisk ryksugu og fékk líka gat á sama stað sem og föðuramma hans með sama skurðinn) .....
Drengurinn er hinn hressasti hitalaus og tekur sýklalyf til að koma í veg fyrir eyrnabólguna, hryglið í lungunum og hornösina sem snörlar í. Hann var glaðastur að sleppa við skólann ... fá að leika í Simpson leiknum og slaka verulega á.
jíha ... alltaf er tími til að fagna ...
Eftir tæplega 2ja mánaða bið var konutetrið að fá stofuhúsgögnin sem komu með bíl frá Ítalíu. Ofsalega falleg, mæ dog sko, voff voff!

Svooooo ánægð með skápinn minn ....

Ekki eins dökkt og það er á myndinni ....
Ég er ánægð, Fjallið vill breyta öllum málverkum þar sem honum finst þau ekki vera nógu klassísk ... Hux .... vantar klassísk málverk í öllum litum.
Elskurnar mínar, er bara sátt við að hafa fengið húsgögnin e. 2ja mánaða bið og ætla að fagna. Opna glútenfrítt kampavín (ehehhhehheh) og fæ mér ljúfa skál fyrir heimili sem hefur hljóð, italiano.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:56 | Facebook
Athugasemdir
Vá, geggjuð húsgögn, þú verður að sjálfsögðu að fá þér málverk í stíl, þó það nú væri
Margrét Birna Auðunsdóttir, 9.11.2007 kl. 19:57
jæja segðu M.Birna .... er með 4 myndir inn í stofu og maðurinn minn lagði blessun á myndina sem Hekla málaði.
Þá er bara að finna 3 á veggina!
www.zordis.com, 9.11.2007 kl. 20:03
Það er gott að elsku litli drengurinn þinn er að lagast. Mikið er fallegur skápurinn þinn og borðið og til hamingju með það og fallega málverkið.Risastórt knús til þín og þinna.

Kristín Katla Árnadóttir, 9.11.2007 kl. 20:07
Það er ekki að spyrja að ítalskri hönnun. Oftast klassi yfir henni.
Bergur Thorberg, 10.11.2007 kl. 07:37
Bestu batakveðjur til litla stráksins, og hamingjuóskir með að hafa fengið þessi yndislega flottu húsgögn til þín loksins.
Góða helgi, kossar og knús!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 16:38
Æðisleg húsgögn, til hamingju með þau. Ég sé að þú ert líka með arinn, ég ætla að fá mér arinn þegar ég verð rík. Vona að litla peyjanum batni í eyranu sínu.
Svava frá Strandbergi , 10.11.2007 kl. 16:50
Batakveðjur til stráksins þíns! Flott húsgögn ég er sérstaklega ástfangin af skápnum þínum!!
Huld S. Ringsted, 10.11.2007 kl. 19:44
Æ, litla skinnið. Vona að honum líði betur, Þórdís mín. Og ó mæ DOG, geggjuð húsgögn!! Rosalega posh og elegant. Þú ert svo mikil gyðja!
Hugarfluga, 10.11.2007 kl. 21:41
Ofboðslega fallleg húsgögnin til lukku með þau.
Ég finn til með strákastubb.
Solla Guðjóns, 12.11.2007 kl. 15:12
Batakveðjur til ljónsins þíns. Roalega eru þetta flott húsgögn, til hamingju!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.11.2007 kl. 21:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.