22.11.2007 | 23:11
Shop till you drop ...
... Pay and smile!
Í dag rigndi konunni niður, það var svona dæmigert, þvo sér undir höndum með froðusápu ...
Ég átti erindi vegna starfsins í banka bæjarins og lagði bifreiðinni í mollinu. Þegar ég hljóp varlega í gegn um mollið, sælla minninga þegar ég flaug niður af þriðju hæð á aðra hæð .... "hér var að sjálfsögðu verið að þjálfa upp vængstúfana" .... Meiri fararheillinn sem fylgir þessari konu!
Allavega og burt séð frá þessu þá droppaði "moi" við í tískuhúsi borgarinnar og valdi mér eiturgræna peysu !!! Þegar ég kom að kassanum var ég efins um hvort að peysan væri í minni stærð. Ég spurði því afgreiðslukonuna hvort hún héldi að þessi stærð væri í lagi ( pssst. nenni sjaldnast að máta ..... )
Hún sagði; þú ert með brjóst
Ég hugsaði; já líklega hef ég brjóst
Hún sagði; Hún verður fín
Ég hugsaði; já liklega verð ég fín með brjóstin í peysunni !
Að auki fékk ég mér diskógalla, svartar rennilegar buxur þar sem ég er að fara með elskulegri tengdamóður minni og mágkonu í svona kjéddlingapartý á sunnudaginn!

Lífið er gott, er það ekki bara .......
Ég er nú hrædd um það, þrátt fyrir misgæði heimsins og smávægilegur deilur þá er ekkert nema gott um þetta allt að segja. Var að spekulera í hvað ég er stútfull af orku í sumt en annað ekki.
Ég á t.d. bágt með að taka afstöðu til einfaldra atriða, sem eru í raun hrikalega flókin. Ég held ég ætti að vefja mig inn í hnykil og njóta hlýjunnar sem kemur frá honum. Kúra svo í Fjallinu mínu og taka einn dag í einu. Ég veit að það góða, það óða má öllum bjóða ..... Ég veit svo margt en samt svo lítið.
Það er gott að vita fátt og hafa höfuðið hátt og ég segi enn og aftur lífið er BARA gott!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Allt er vænt sem vel er grænt. Finnst allavega mér. Eiturgrænt sérstaklega. J'a, mundu nú eftir að vera með brjóstin í peysunni, það fyllir líksom betur út.
Maður verður bara að taka einn hlut i einu dúllan mín, og auðvitað þá skemmtilegustu fyrst og ef heppnin er með manni þá eru komnir aðrir skemmtilegir hlutir á dagskrána þegar þeim fyrstu er lokið. Þá: ABRAKADABA! Bara hægt að gera skemmtilega hluti
. Well, a person only has hope............
Inga Steina Joh, 23.11.2007 kl. 05:54
Ég mundi bara kúra hjá fjallinu þínu elsku Þórdís mín. Eigðu góða helgi. Kús til þín.
Kristín Katla Árnadóttir, 23.11.2007 kl. 10:43
Ég meinti þú ættir að kúra hjá fjallinu þínu Ég er hálf rugluð núna.
Kristín Katla Árnadóttir, 23.11.2007 kl. 10:44
Fjallið hefur alveg faðm fyrir okkur báða
......
www.zordis.com, 23.11.2007 kl. 12:32
Á að vera BÁÐAR þar sem við erum konur ...
www.zordis.com, 23.11.2007 kl. 12:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.