Fáðu útrás í himnasænginni .....

HeartHeartHeartHeartHeartHeartHeart

Ljúfur föstudagur, tónlistin ómar í sálinni og sólin gægjist fram úr dúnmjúku skýji sínu.  Ég var þreytt í morgun enda var ég bundin með silkiþráð við gullið ský sem hvíslaði að mér leyndarmálum. 

Ég á að ganga hreint til verks, vera sjálfri mér samkvæm, njóta þess að vera í þeirri mynd sem birtist í nútíðinni.  Hver kannast ekki við það að grafa í kistu minninganna og hugsa til baka með stjörnur í augum eða hlakka til framtíðarinnar með óþreyju og gleyma nútiðinni sem er okkar guðsblessun.  Nútíðin er minn jólapakki og ég ætla að njóta þess að hafa hann hjá mér .....

Ég er heppin manneskja, stundum er ég ómanneskjuleg en ég reyni að standa pliktina sem sannfærir sjálfið.  Ég trúi ekki á mistök nema um vettlingatök ræðir .... Nei, grín, ég trúi á gleðina og grínið sem nærir okkur.

Ég var stödd hjá þinglýsingarstjóra sem er hluti af mínu daglega starfi og var með viðskiptavini mínum og við fórum í gegn um ákveðna hluti.  Maðurinn er mjög alvarlegur, vel metin jakkafatakarl sem sjaldan skiptir skapi.  Starfsmenn þinglýsingarstjóra höfðu falið honum röng gögn sem átti að undirrita og nú brá litlu lufsunni "moi"  .....  Virðulegur viðskiptavinur minn barði í borðið fyrir framan fulltrúa dómsmálaráðuneytisins og ég bað minn mann vinsamlegast um að róa sig. 

Ég tjáði honum að svona sterkar tilfinningar væri best að útkljá á jákvæðan máta og þá upp í rúmmi með gullfallegri konu.  Hann horfði á mig, þagði um stund og sagði "það er ekkert rúm hérna"  ............ Honum fanst ég náttúrulega fyndin og málið lá þar með dautt og reiðin farin fyrir brosi og björtu andliti.  Við fórum yfir gögnin og lagfærðum skjölin og kölluðum til vararáðstafanir svo aðgerðin gæti átt sér stað!

En það sem gladdi mig er að ég á mér vin, hann kallar sig El Alto og var að gleðjast yfir píkusögum sem er næsta samantekt hjá nokkrum vinkonum mínum.  El Alto tók sig til og hnoðaði saman í píkufrasa sem ég læt hér fylgja með algjörlega innanpíkubleikann ......

 píkusögur birtast hér

á því er engin vafi

píku áhugi er hjá mér

þó ég enga hafi

Ég hló af þessari litlu vísu sem mér finst einstaklega skemmtileg .... Hér er komin byrjun á nýrri bók sem mun hljóta nafnið píkusögur.  Bókin er reyndar búin að vera að gerjast í maganum á mér lengi en nú er ekkert sem stöðvar mig

Elsku bloggvinir og vinir þið þurfið ekkert að hafa áhyggjur þótt bloggið mitt virðist vera svolítið innanlitað upp á síðkastið ....  Ég gæti allt eins verið að ræða um ilsig eða ristilbólgur en hver tekur fyrir það sem honum/henni er kærast og það má segja að píkan er mér hugleikin svo finst henni líka gaman að leika sér ........

ÁST OG HAMINGJA


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Vaaá.....maður fær meira að segja litinn á líffærinu. Bleikur er jú stelpulitur, en þessi færsla var eins og, "Wake up call."  Ég er loksins farin að skilja þetta með bleika litinn,það eru svo langar leiðslurnar þarna niður...... 

Vísan er ekkert minna en frábær....innannpíkubleikur. Hehe...

Takk, Sóldís Fjóla 

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 23.11.2007 kl. 12:15

2 Smámynd: Margrét M

innanpíkugóð í dag ..

Margrét M, 23.11.2007 kl. 14:42

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

það væri sniðugt ef maður ætlaði að mála eitthvað bleikt , að biðja um innanpíkubleikan lit í einhverri málningarbúðinni, nú eða í einhverri myndlistarvöru versluninni. Það þarf endilega að festa þetta heiti á bleiklitatón í sessi. svo það öðlist rætur í eðlilegum umræðum um litatóna.
En svo er það spurning hvort allar píkur séu með alveg sama innanpíkubleika litatóninn? Kannski er það misjafnt eftir kynþáttum?
þá þarf að rannsaka það til hlítar, áður en af stað er farið svo það verði samræmi íðessu.
Annars er ég að mála bera konu núna og mér finnst grunntónninn í húð hennar vera akkúrat svona innanpíkubleikur litur.
Rosalegt píkutal er þetta annars orðið á okkur.

Svava frá Strandbergi , 23.11.2007 kl. 21:44

4 Smámynd: www.zordis.com

Guðný Svava ... það er einhver innri P ormur í okkur stelpunum ....

Var einmitt að huga svona fimm ára hugsun, hvað okkur þykir yndislegast í tilverunni.  Akkúrat eitthvað sem við þekkjum og elskum.  Hvað er þá nærtakara!!!

www.zordis.com, 23.11.2007 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband