23.11.2007 | 18:18
Engla tal er svo sætt ....
Fyrir framan mig stendur engill í hvítglansandi kjól með celeste bláum töfraljóma. Engillinn heldur á stjórnu og orð himinsins segja FRIÐUR.
Þessi engill er búin að vera í kring um mig og ég tek þetta sem vísbendingu um að taka á öllum málum af miklum kærleik. Finna kærleikann í hjarta mínu áður en ég opna munninn.
Fjallið mitt kom með ábendingu í hádeginu, varpaði fram hugmynd sem er svo skæs og næs að allar aðrar hugmyndir eru á bara áfram í geymslu á hugmyndahillum heimsins .....
Ég fæ oft hugmyndir, langar oft að gera ýmislegt en set alltaf eitthvað í veg fyrir það, hugsa í flækjum um hvað sé skynsamlegt og ákveð að þetta sé ekki rétta stundin eða henti ekki. Ég hef reyndar þá trú að þegar efi hvílir í rótinni þá er ekki rétti tíminn.
Hins vegar eftir að hugmynd Fjallsins var matreidd og ígrunduð hef ég orðið vör við svo margt hér í höllinni okkar. Engillinn á móti mér sem veifar FRIÐARSTÖFUM og göngulag frá annari vídd, þar sem engill styður við mig er eins konar staðfesting á að eitthvað sé rétt og gott.

Það sem ég kanski vildi sagt hafa er að hafa hugmynd sem fer ekki á hugmyndahillu alheimsins, fá hugmynd og vilja framkvæma hana, gera allt til þess að ýta henni úr vör. Já, svona eiga Fjöll að vera.
Ég elska Fjallið mitt þó ég sé kanski ekki sammála þessari hugmynd hans um suma hluti.
Englar eru yndislegir og alltaf til staðar. Þegar við skynjum þá í nálægð þá eru þeir komnir til að gæta okkar. Vona að helgin verði góð og nærveran styrki okkur.
Elskum hvort annað alla helgina
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Mikið er þetta fallega sagt já englar eru yndislegir mín kæra Þórdís.
Kristín Katla Árnadóttir, 23.11.2007 kl. 19:32
Ég hef alltaf haldið mikið upp á engla og allt þeim tengt. Held að englatal og -trú sé besta sálarmeðalið. Englakoss á þig.

Hugarfluga, 23.11.2007 kl. 19:39
Englar eru þú og ég kæra Katlan mín. Vona að þér líði betur, mér þykir svo vænt um að sjá þig á ný!
I og Y bros út um allt! Gudmundur það verður lagt upp með einhverja dásemd ... Nú er Fjallið að versla Entrecot steik fyrir Frúnna sem er búin að lifa á laufblöðum og gulrótum alla vikuna .... og úrvals rautt eðalvín fær að dansa á tungubroddinum.....lífið er bara dásamlegt!
Hugarfluga, ég er alveg sammála þér með þetta. Englatal var mjög algengt á mínu heimili og ég hreinlega elska allt svona tal. Mæli með bókinni Embrazes by the light e. ohhhhh (þarf að gá hvað konan heitir) yndisleg bók um engla og upplifanir .....
www.zordis.com, 23.11.2007 kl. 19:43
Englar eru yndislegir og þeir eru allstaðar í öllum formum og myndum. Ég elska engla og bókin á náttborðinu hjá mér er englabókin (Boðberar ljóssins) sem ég les í á hverju kvöldi fyrir svefninn
Huld S. Ringsted, 23.11.2007 kl. 21:16
Ég elska líka engla, hef englaþema nokkuð víða á heimilinu mínu...
Góða helgi bloggengillinn minn
Marta B Helgadóttir, 24.11.2007 kl. 00:55
Englar eru ekki endilega allir andlegar verur. Margir mennskir menn eru englar. Ég kynntist einum engli fyrir meira en áratug síðan, sem kom mér til hjálpar á ögurstundu í lífi mínu. Þegar ég kvaddi hann fyrir fullt og allt, langaði mig til að segja við hann. 'Ertu engill'? En ég var bæði feimin við að segja þetta við hann og svo var líka óþarfi að spyrja.
Svava frá Strandbergi , 24.11.2007 kl. 01:48
Ég mætti engli í dag. Það var dásamlegt . Það getur svo sannarlega komið á óvart hverjir eru englar, það fer oft ekki mikið fyrir þeim.
Frábært að fá góðar hugmyndir og bara gaman þegar þær eru "leyndarmál"
Góða helgi
Lísa (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 02:43
Englar boða frið og kærleika, það er líklega rétt hjá þér að best er að finna kærleikann áður en munnurinn er opnaður sem sagt hugsa með hjartanu.
Ef allir gerðu það þá væri að öllum líkindum meiri friður í henni veröld. Englar alheimsins.
Hljómar vel.
Englakveðjur til þín og þinna.
Sóldís Fjóla
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 24.11.2007 kl. 10:07
Englar eru yndislegir.
Vatnsberi Margrét, 24.11.2007 kl. 12:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.