1.12.2007 | 10:00
Merkilegur dagur, sá merkilegasti fram til þessa ...
Að finna andann renna í vit snemmmorguns, að finna lífið í líkamanum gerir þennan dag fyrsta desember þann merkilegastan af öllum fram til þessa. Dagsbirtan varpar rjómalituðum blæ svo augun geta ekki móttekið alla morgunfegurðina, ég blikka ótt og títt og finn litlar tær bora sér að mér, litli kúturinn minn er komin með barnslega hönd sína á hökuna og er greinilega að vakna!
Rjúkandi kaffisopinn í afmælisveislu andans er drukkin af bestu lyst. Solla á afmæli í dag og við skröfum saman á annari stjörnu. Takk fyrir tertuna ljúfan, hún var falleg á bragðið og góð að líta.
Á morgnanna tek ég inn Solar elexír sem eru dropar í lagi. Á fastandi maga eru þessir töfradropar teknir inn með vænum skammti af vatni. Töfrar sem engu eru líkir, ég er ferskari á morgnanna, er með virkari innri starfsemi, líður mun betur er náttúrulega komin með nýtt lúkk, lít út eins og geislandi sól alla daga. Ég ætla ekki að fara út í díteila en Fjallgöngur eru tíðar .... suss
En, það sem mér liggur á hjarta á þessum bjarta ómótstæðilega degi er að mér var bent á að skoða netsíðugerð, hugmyndin að koma mér í eitthvað þjálla netkerfi svo að kona með tíu þumalputta nái að henda myndum inn á síðuna sína.
Ég held úti síðu sem ég birti myndirnar mínar, þessi síða er vistuð hjá hostway sem er bandarískt fyrirtæki og kostar mig tæpl. 20 dollara á mánuði. Síðan sjálf er búin að kosta mig allt að 1500 evrum sem mér finst ekki mikið í rauninni.
Síðan mín er www.zordis.com ...... kíktu og segðu mér hvað þér finst ???
Nú svo er það fyrirtæki sem heitir netvistun sem er með mjög einfalt og frábært kerfi að ég held og kostar síðan í sjálfu sér ekki mikið en hýsingin er á bilinu rúmar 9000 til tæpra 13.000 ísl króna.
www.netvistun.is fyrir ykkur sem viljið skoða en ég er hrifin af því sem ég er búin að sjá og þeir sem njóta þjónustunnar eru mjög sælir viðskiptavinir, ég yrði það líka.
Síðan mín þykir mér persónlega flott og er hún hönnuð að minni ósk. Ég er bara svo mikill þumalputti að ég kann ekki "rassgat" að henda inn á hana.

Ég ætti kanski frekar að leita mér að manneskju sem kann að nota dreamvafer og qtp, skera, kroppa og henda inn vatnsmerkjum ..... Auglýsi hér með eftir svoleiðis snillingi Ég hef í raun ekkert sett á síðuna mína frá því í febrúar á þessu ári ... nánast heilt ár liðið og það væri eðlilegast að halda að ég sæti aðgerðarlaus.
Einhver ráð frá kærum lesanda ....
Hingað koma margir snillingar, ég veit um nokkur tölvugúru sem líta við
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Ég fékk mér rjúkandi kaffi eins og þú kæra Þórdís mín ég ætla kíkja á síðuna þína eftir þegar ég hef tíma. Eigðu góðan dag.
Kristín Katla Árnadóttir, 1.12.2007 kl. 10:56
Mér finnst síðan þín mjög flott, hún er skemmtilega uppbyggð.
Ég er ekki tölvugúrú, veit ekki hvort það er mikið mál að læra að bæta inn á hana jafnóðum og þig langar til...
en hún er falleg, listræn og líka aðgengileg, ég á við maður finnur auðveldlega það sem sett hefur verið inn á síðuna. þarf ekki að fara magar krækjur í leit ...
Marta B Helgadóttir, 1.12.2007 kl. 11:18
Ferlega vildi ég að ég væri tölvugúrú sem gæti hjálpað þér, en ég vona að einhver svari. Ég hef nokkrum sinnum kíkt á síðuna þína, og finnst hún flott. En það er alltaf gott að sjá líf á svona síðum ...
Flott og yndislegt líka að heyra af þér geislandi og í tíðum Fjallgöngum ... það er bara svo ljúft! - Sólarkveðjur frá snævi þaktri Akureyri, ... en það er sól í hjarta.
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 11:58
Takk Gudmundur og þið sem hafið litið við hjá mér ...... Ég hef þá trú að ef að vafi eða efi komi upp þá þurfi að endurskoða málin.
Ég er hrifin af síðunni minni en vantar einhvern snilling til að setja inn myndir! Ef allar óskir rætast þá veit ég framhaldið og MÆ O MÆ ....
NÚ SKÁLUM VIÐ FYRIR OLLUSAK. ÉG OPNA AÐ SJÁLFSÖGÐU EÐAL KAMPAVÍN OG DREYPI Á MEÐ GUFUSOÐNU GRÆNMETI SEM ER Í HÁDEGISSNARL!
www.zordis.com, 1.12.2007 kl. 13:16
Flott síða Zordís mín, þú ert snillingur! hef sjálf ákveðið að setja trönur í húsið mitt nýja, þar ætti að vera pláss fyrir skapandi sál, svo er bara að sjá hvað birtist á striganum,,, hef alltaf haft brennandi áhuga á myndlist og sköpun
þínar myndir eru mér inspiration.
bara Maja..., 1.12.2007 kl. 17:43
Síðan þín er mjög flott og vel gerð en auðvita þarf hún að vera notendavæn og þannig búin að þú getir notað tímann til að mála, allt tölvufifferí er ótrúlega tímafrekt.
Ef ég bara gæti þá væri ég til í að sjá um svona myndadæmi - en ég er meiri tölvugúrka en tölvugúrú og allt á þetta að sjálfsögðu að vera professional og vel vandað, annað er bara klúður.
Netvistun er snilld, en kostar vænan skildinginn - nú er bara að gefa sér góðan tíma til að vega og meta...
Skál fyrir Sollu
Lísa (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 19:36
Ólafur fannberg, 2.12.2007 kl. 10:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.