heimasmíðuð fokker 50 ...

.... Hver átti ekki afa sem smíðaði flugvél út í bílskúr?

Svona í alvöru þá er nú bara sniðugt að vera svona manneskja!

Ég lenti í því í gær að segja ýmsu fólki frá dásamlegri "und" þess að finna fyrir dásemd blómanna, að finna hvernig lífið gleður og hvernig andans máttur dregur morgun að kvöldi.

Stundum er kona eins og hún er og það nær enginn að stöðva það.   

Heart

Afi er örugglega á himnum að smíða flugvél

gula að lit

annað er lítið vit.

Amma er að baka pönnsur og kallar fram í skúr

kaffið á könnuna komið

brosandi afa boðið.

Um axlir hennar tekur, koss á kinn rekur

með kaffi í einni

og pönnsu í hinni.

Í huganum ferðast um draumsýn lönd

sólin í skúrnum

við skýjarönd.

Kona sem er ad vona

Hvíslað Olía á striga

Svo er bara að njóta stundarinnar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég heyri hvíslað susssssss

Solla Guðjóns, 4.12.2007 kl. 11:11

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi hvað þetta var fallegt kvæði um ömmu og afa þú ert svo dásamleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.12.2007 kl. 13:32

3 Smámynd: Margrét M

fallegt kvæðið

Margrét M, 4.12.2007 kl. 16:24

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Fallegt kvæði

Marta B Helgadóttir, 4.12.2007 kl. 19:51

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Eru það amma og afi fyrir austan? Yndisleg minning sem endurspeglast í þessu.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 4.12.2007 kl. 21:21

6 Smámynd: Elín Björk

Fallegt kvæði hjá þér elsku vinkona.

Hjúts knús til þín inn í draumalandið

Elín Björk, 5.12.2007 kl. 00:06

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

meil til þín

Marta B Helgadóttir, 5.12.2007 kl. 01:00

8 Smámynd: www.zordis.com

Takk fyrir kveðjurnar vinir ....

Mig dreymir ömmu og afa oft oft og stundum hvísla þau að mér leyndarmálum ... Afi er á himnum en amma er spræk og að austan frá Eskifriði ... Sjólistin er og lifir!

Sol Elixir, svo einn vænn kaffi!

www.zordis.com, 5.12.2007 kl. 07:55

9 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Dásamlegt ljóð og glæsileg mynd :)

Knús

Vatnsberi Margrét, 5.12.2007 kl. 16:29

10 Smámynd: Heiða  Þórðar

Nefnilega heila málið; njóta stundarinnar

Heiða Þórðar, 6.12.2007 kl. 01:13

11 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Ljóðið er flott og svo sjónrænt....eins og mynd. Þessar konur þínar eru meiri háttar, ég kíkti inn á síðuna þína og ég er alltaf jafnheilluð af EVU. Hún slær allt út.

Um axlir hennar tekur, koss á kinn rekur

með kaffi í einni

og pönnsu í hinni.

Frábært.

Sóldís

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 6.12.2007 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband