Ég gleymdi eyrunum á skýi ....

... þau liggja á skýji, tvö litil og sæt eyru.

Ég þarf engin eyru því ég skynja það sem ég vil.  Í hjartanu flauta ég gamalt lag sem rennur í æðum, eitthvað sem fær vitið til að vakna.

Ég heyri ekki mitt eigið flaut heldur finn á af lofthjúpi varanna að það er styrkur sem flæðir frá.  Það er tónstig sem fær svöluna til að staldrast við, hún flýgur fyrir framan mig og sýnir mér listir sínar og segir; við getum þetta öll.

Í dag liggur leið í næsta hérað, þar á að skoða jóla jóla jóla dót, því á morgun ætlar dipló ég að leyfa börnunm að skreyta jólatréð!  Fjallið er alinn upp við að tréð sé skreytt 6.des og ég þann 23ja des.  Börnin vilja fá að skreyta og ég valdi 14 des þar sem að langamma mín heitinn átti afmæli þennan dag og það var hefð hjá l-ömmu og l-afa að setja ljós á trén og skreyta og svo var allt tekið niður á þrettándanum þegar l-afi átti afmæli.

Heart

Jólin koma og fara og ég minnist lömmu og lafa og hugsa um þau í minningunni og skyna.  Ég get lagt frá mér augun og eyrun, hendur og hjarta en upplifi samt inní mér það sem ég vil.

Lítill engill, situr hjá mér, ég er sæl

Að morgni

Morgunstund gefur gull í mund


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég ætla að skreyta jólatréð í næstu helgi ég er búinn að venja mig á það. þú ert engill og hann situr við hlíð þér.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.12.2007 kl. 18:31

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég er byrjuð að skreyta smá, en samt ekki jólatréð ennþá.

Svava frá Strandbergi , 13.12.2007 kl. 18:44

3 identicon

Yndisleg mynd af ykkur litla stúf mömmustrák.

RisakremjuknÚs á ykkur öll -og nú tökum við bara jólahjól á þetta ...

Lísa (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 20:39

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Hjá mér er jólatréð ekki skreytt fyrr en á Þorláksmessu sem er hefðin frá æskuheimilinu mínu. Ég hef haldið í hana bara af ást til pabba gamla sem gerði svo skemmtilega uppákomu úr þessu embætti sínu á Þorláksmessu að skreyta tréð með okkur krökkunum.

Marta B Helgadóttir, 13.12.2007 kl. 23:18

5 Smámynd: www.zordis.com

Á æskuheimilinu skreytti pabbi tréð þegar ég var og lítil, hræðilegur sjálfstæðis fiktari ... svo héldum við þessum hætti og ég man í fyrra þá var gamla serían enn í gullnu ígildi og tréð skreytt að kvöldi 23 des.

Ég man hvað það var jólalegt að vakna að morgni 24, með tilhlökkun og væntingarnar, sjá ljósin á trénu og upplifa lengsta dag ever, lengstu kvöldmáltíð ever og lifa daginn af ....

knús á ykkur kæru bloggvinir!

www.zordis.com, 13.12.2007 kl. 23:26

6 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæ er þetta ný mynd?

Jólatrésskreyting á Þorláksmessukvöld þegar búið er að ræsta húsið eftir skötuveisluna+pizzaveislu fyrir þau yngri.

Knús á þig sætaspæta með eyrun á skýji

Solla Guðjóns, 14.12.2007 kl. 01:01

7 identicon

Lamma og lafi eru orð sem ég ætla að fá leyfi hjá þér til að nota ... því flott eru þau mjög! Hér verður jólatréð skreytt þarnæstu helgi, væntanlega á sunnudeginum ... annars er sú hefð í skoðun eins og aðrar þegar fjölskyldur mætast svona saman. En ég held að það sé svipað með okkur í þessum málum...

knús, kveðjur og allt hlýtt

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 07:50

8 Smámynd: Sigrún

OOOhhhhh hvað mig langar í skötu  !!!!!!!!!

Kannski að ég reyni að troða mérí skötu á  ráðhúsi bæjarins

Því eitt er ég með á hreinu að Gummi mundi henda mér út og pottinum á eftir ef ég fær að malla þennan mat í okkar húsi

samt sem áður elska ég skötu skata skata skata

Sigrún, 14.12.2007 kl. 08:00

9 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Jólatréið er komið upp hér og nýtur sín vel :)

Vatnsberi Margrét, 14.12.2007 kl. 15:35

10 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þ'U ERT ÓFRÍSK! Innlitsknús darling

Heiða Þórðar, 15.12.2007 kl. 00:19

11 identicon

Knús á þig jólastelpa, lamma og lafi eru yndæl orð
Heyrirðu í mér ef ég hvísla í eyrun í skýjunum?

Elín (IP-tala skráð) 15.12.2007 kl. 01:14

12 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þórdís, þú ert BARA yndisleg. Lamma og lafi eru frábær orð - og hvað maður les og skynjar mikla væntumþykju þegar þú talar um fjölskyldu þína.  Myndin segir manni dullítið, fugl hvíslar í eyra, - er það rétt sem hann segir...???

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.12.2007 kl. 00:39

13 Smámynd: www.zordis.com

Elsku bloggvinir .... þessi mynd var gerð 2005 eða fyrr ......  litli fuglinn situr á öxlinni og dreymir .....  Zordis er ekki ó en mjög frísk .... 

Sveitamarkadur og leitin ad jólaandanum 2007 stendur yfir ....  Svo kemur jólatrésmynd í kvöld eða morgun .....

www.zordis.com, 16.12.2007 kl. 10:23

14 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Eigðu góðan dag jólastelpa

Marta B Helgadóttir, 16.12.2007 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband