Jóla andinn ...

Í hverju skúmaskoti, í hjartanu þó mest um verður ert þú sanni jóla andi.

Í dag fór ég með prinsessuna mína, við héldum á sveitamarkað hönd í hönd gengum við og grömmsuðum í básum, reyndum að finna eitthvað sniðugt til að senda yfir hafið.  Við stelpurnar nutum okkar á okkar máta, sáum litla jólasveina klifra upp gylltar perlur og húrra niður.  Við sáum Betty Boop pæjuna, tanga fyrir herrann, já og spes tanga þar sem raninn hafði frjálst fall og eitt sem vakti innilegan hlátur mæðgnanna var Spider - Penis ....

Var að spá í að kaupa svoleiðis fyrir bróður minn en gerði það ekki ...................  Við keyptum jóladúk og jólastjörnu.  Við áttum heimboð, jólaglögg hjá hárgreiðslukonunni okkar og ég kom með jólaglögg sem hitti í mark og jólarósin átt vel heima á fallegu heimilinu!  Það var skrafað og gaman að hitta ólíkt fólk jafnt lítið sem stórt!

Eftir glöggið og mikið kaffiþamb var haldið í verslunarmiðstöðina í Torrevieja og þar náðum við að kaupa jólagjöf handa Guðný Björg litlu frænkunni okkar.  Við náðum að gera fullt meira, hittum skemmtilegt fólk og svo rigndi á okkur.

Navidad

Mæðgin Olía á Striga

(grín Sony girl)

Litla krúttið mitt hafði hvern svipinn á fætur öðrum, fylltist áhuga og vildi taka myndir!  Hann verður sko snillingur þessi elska .... ég elska hann þúsundfallt, hærra en hæðsta fjall og dýpra en nokkur sær!  Já, er það nema vona að við elskum það sem fellur af trénu!

Við mæðginin erum aum í puttunum, voru að setja negulnagla í appelsínur og húsið ilmar af jólalykt.  Þetta kalla ég að lifa lífinu til hámarks.  Kyssa svo litla krúttið sem finst mamma svoooo sniðug.

Mig langar að biðja okkur öll, sem stöldrum við að biðja fyrir lífi, biðja fyrir velvild, biðja fyrir þeim sem minna mega sín því það er þörf fyrir jákvæðum straumum.

Ég gef líf með góðri hugsun og jákvæðri orku, ég veit að það eiga margir um sárt að binda þegar ég leik mér að lífinu.  Lífið er ekki sjálfgefið, það er viðkvæmur fjársjóður sem okkur ber að hlúa og virða!  Megi góður guð rækta okkur til betri vegar!

Ég gef bæn mína fallegri ungri konu sem berst við líf sitt, ungri konu sem mér er annt um.

Guð er með okkur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Spider-penis er algjörlega jólagjöfin í ár

Margrét Birna Auðunsdóttir, 16.12.2007 kl. 22:22

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Æðisleg myndin af ykkur!  en hvað er spider penis????

Huld S. Ringsted, 16.12.2007 kl. 22:35

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert svo góð elsku Þórdís mín þú ert engil í mínum augum. Fallegar myndir af ykkur knús til þín í nóttinna.

Kristín Katla Árnadóttir, 16.12.2007 kl. 22:52

4 Smámynd: www.zordis.com

Spider - penis eru tanganærhald fyrir herramanninn þar sem hönnun er fyrir liminn eins og um annan legg ræddi!  Ég hefði átt að kaupa þetta því jólin eru líka bros og grín!

Jólin eru svo miklu meira en gjafir, þau snúast um nærveru og kærleik!  En, spider penis er sko vissulega til að ýfa upp brosið okkar!

www.zordis.com, 16.12.2007 kl. 23:17

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Tek þig á orðinu englastelpa

Heiða Þórðar, 16.12.2007 kl. 23:49

6 identicon

Sæt myndin af ykkur dúllunum, knús á ykkur öll  Held ég viti alveg hvernig spider penis líta út

Elín (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 01:17

7 identicon

Þetta verða yndisleg jól - þegar maður ákveður það. Það er komast meiri og meiri jólastemmning í okkur fjölskylduna í Akurgerði ... og fyrstu jólin saman verða alltaf minnisstæð. Góð hugsun, jákvæð orka, kærleikur og væntumþykja ... þetta á að vera ríkjandi yfir hátíðirnar.

Falleg mynd af ykkur! 

Kossar og knús frá Akureyri til ykkar, elsku besta Zordis.

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 09:24

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Ást á ykkur elsklingYndislegust alltaf

Solla Guðjóns, 17.12.2007 kl. 12:44

9 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Sendi Ljós til allra sem á þurfa að halda, alheimsLjós til þín og þinna

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.12.2007 kl. 17:05

10 identicon

Hehemmmm... jóla andinn hér er sko með læti.... enn og aftur!

Elín (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband