Lítil myndlistarsýning ...

Nú birti ég allar flísarnar sem ég er búin að dúllast og dedúa við!

Þær eru að sjálfsögu til sölu og kosta 10.000 krónur íslenskar fyrir ykkur sem hafið áhuga.  Ég ætla að taka mér smá hvíld þar sem vöðvabólgan er að pirrast í mér.  Þýðir ekki að dubba sig upp á Ibuprofeni þótt það slái á!  Sendið mér línu á zordis@zordis.com ....

Ég vona að þið njótið veitinganna á meðan þið skoðið agnaragnirnar sem gætu þó verið væn flís úr feitum sauð.  Jólin að nálgast og allir á fullu að sinna skyldum en ég sit og slaka hér á.  Hlusta á Bo Hall og sötra kaffitár. 

Rólegheit er það sem er efst í huga mér.  Dóttlan mín var erfið við mig í gær en við erum orðnar sáttar og ætlum að fagna jólunum eins og best verður kosið.  Ég er svoddan lamb að ég vil að allt sé á rósrauðu skýji að allt sé gott.   Við erum gerendur og berum ábyrgð, ég vil fagna kærleik og hamingjunni ofar öllu, ég ætla að axla það hlutverk að bjóða hamingjunni birginn. 

"Efnið er svo einlægt"  yfirlýsing þessarar litlu örsýningar

Vínberjaást

Vínberjaást - Frátekin

Sæt og svalandi

Svalandi sæt akrýl á flís 20 x 40

Eldabuska

Eldabuska akrýl á flís 20 x 40

Blómastelpa

Blómastelpa akrýl á flís 20 x 40

Eplapæja

Eplapæja akrýl á flís 20 x 40

10 dropar

10 dropar akrýl á flís 20 x 40

Kaffikerling

Kaffikerling í einkaeigu

 Heart

Vona að þið hafið notið komunnar

Gleðileg Jól kæru vinir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Takk elsku Guðmundur minn fyrir það og ég segi það sama.  Gaman að hitta þig á árinu og vonandi að við hittumst á því nýja fersk og falleg bæði 2.

www.zordis.com, 21.12.2007 kl. 18:39

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nú verð ég að fá að vita aðeins meira. Flís?  sé ekki alveg á þessari mynd að þetta sé 20 x 40  geturðu útskýrt fyrir mér, mér finnst þetta nefnilega æði.  Viltu láta mig vita á mína síðu.??

Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2007 kl. 19:12

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég er yfir mig hrifin og ja ......eftir jól 

Þetta mun pottþétt slá í gegn.

Solla Guðjóns, 21.12.2007 kl. 19:38

4 identicon

Þær eru alveg svahakalega smartar, ég á mér 2 uppáhalds nú þegar
Knús á þig blómarós

Elín (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 20:19

5 identicon

Dugnaður er á þér kona. Ég er líka alveg að rifna úr hrifningu og ætla að skella mér á flís, ekki spurning. Hef samband. Virkilega gaman að koma á sýningu hjá þér

Gleðileg Jól

Lísa (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 20:20

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir þetta, ætla að kaupa eina, vel á eftir og læt þig svo taka hana frá, borga milli jóla og nýárs, býrðu ekki á stór-Reykjavíkursvæðinu?? ég gæti þá komið til þín sótt flisina, hitt þig og borgað.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2007 kl. 20:31

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Eru blómastelpa eða vínberjaást laus. ??

Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2007 kl. 20:34

8 Smámynd: www.zordis.com

Elsku Ásdís mín, ég bý á Spáni og sendi þér myndina í pósti!

Vínberjaástin og blómastelpa eru báðar lausar ......

Ég sendi þér myndina 27 des og þú ættir að fá hana í upphafi ársins!  Nema ég nái í einhvern sem er á faraldsfæti!

jólaknús til þín!

www.zordis.com, 21.12.2007 kl. 20:42

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Fallegt verk Þórdís mín guð gefi ykkur fjölskynduni gleðileg jól.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.12.2007 kl. 22:06

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Mikið er þetta fallegt, elsku listfengi- og kæri Eskfirðingurinn minn. Vona að vöðvabólgan hypji sig á brott og engin þörf verði fyrir Ibufen. Eigðu yndisleg jól með börnum og buru, fjalli og fjöru. Hugsa til þín.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 21.12.2007 kl. 22:07

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ekki bara FALLEGT..heldur bara flottast!!! Svalandi sæt og Blómastelpan eru virkilega að tala til mín núna.

Heyrðu mig Dísin mín góða...hvenær er von á þér heim???? 

Jólagleðiskveðja og sátt til þín og þinna.

Knús 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.12.2007 kl. 23:26

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Heyrðu ég er búin að ákveða mig, vínberjaást skal það vera. Verðum í bandi milli jóla og nýjárs.                  

                           

Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2007 kl. 23:50

13 Smámynd: Ólafur fannberg

flott

Ólafur fannberg, 22.12.2007 kl. 02:23

14 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Eslku Zordís. Gleðileg jól til þín og þinna.

Munum næsta ár með:

Hatur í Kærlika,

Ljót hugsun gerir Ljótt,

Falleg hugsun gerir Fagurt.

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 22.12.2007 kl. 08:24

15 Smámynd: Huld S. Ringsted

Æðislegar flísarnar! Mig langar í kaffitár

Gleðileg jól til þín og þinna

Gif santa claus Images

Huld S. Ringsted, 22.12.2007 kl. 11:07

16 Smámynd: www.zordis.com

Huld mín það er enn sem komið er engin komin með nafnið kaffitár en hún verður hönnuð þér til heiðurs! Þú átt sennilega við "kaffikerlingu"

kæru bloggvinir, þið eruð yndislegust af öllum!

Gleðilega hátíð til ykkar ....

www.zordis.com, 22.12.2007 kl. 12:09

17 Smámynd: Huld S. Ringsted

ég átti við kaffikerlingu

Huld S. Ringsted, 22.12.2007 kl. 12:17

18 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Smá lokaorð á þessu ári frá Nelson Mandela sem setur sig yfir eigin þarfir og hugsar sig sem heildina. Boðskapur inn í hið nýja ár sem á erindi til okkar allra.

Steina

Okkar dýpsti ótti er ekki að við séum vanmáttug.
Okkar dýpsti ótti er að við erum óendanlega máttug.

Það er ljósið innra með okkur ekki myrkrið sem við hræðumst mest.Við spyrjum sjálf okkur hvað á ég með að vera frábær, yndisfögur, hæfileikarík og mikilfengleg manneskja.

Enn í raun hvað átt þú með að vera það ekki?

Þú ert barn Guðs.

Það þjónar ekki heiminum að gera lítið úr sjálfum sér.
Það er ekkert uppljómað við það að gera lítið úr sjálfum sér til þess að annað fólk verði ekki óöruggt í kringum þig.

Við fæddumst til að staðfesta dýrð guðs innra með okkur, það er ekki bara í sumum okkar, heldur í hverju einasta mannsbarni.Og þegar við leyfum ljósinu okkar að skína, gefum við öðrum, ómeðvitað, leyfi til að gera slíkt hið sama.Um leið og við erum frjáls undan eigin ótta mun nærvera okkar ósjálfrátt frelsa aðra.
 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 22.12.2007 kl. 12:28

19 Smámynd: bara Maja...

Kæra Zordís, óska þér og þínum gleði og gæfu á jólum og nýju ári. Þakka skemmtileg bloggsamskipti á árinu. jólakveðja frá Baulandi Búkollu :)

bara Maja..., 22.12.2007 kl. 17:43

20 Smámynd: Kristín Erla Kristjánsdóttir

Þetta er allt svooo fallegt hjá þér :)

Gleðileg jól til þín og bið að heilsa kaffikerlingunni ;)

Kristín Erla Kristjánsdóttir, 22.12.2007 kl. 18:55

21 Smámynd: Hugarfluga

Vá, hvað þetta eru flott listaverk!!! Megi ljós og friður hátíðarinnar ná til hjarta ykkar allra.  Knús og kremjur. 

Hugarfluga, 22.12.2007 kl. 19:29

22 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Flott verk! Gleðileg jól

Valgerður Halldórsdóttir, 23.12.2007 kl. 16:42

23 Smámynd: Anna Gísladóttir

Ekkert smá flott !

Gleðilega jólahátíð

Anna Gísladóttir, 24.12.2007 kl. 00:57

24 Smámynd: Solla Guðjóns

my pictureselsku Þórdís mín,Fjallið og börn.Hafið það alveg dúndrandi gott-flott um jólin

Solla Guðjóns, 24.12.2007 kl. 01:56

25 identicon

Gleðilega hátíð gamla vinkona.

Gaman að fylgjast með ykkur hérna á netinu þó svo að ég hafi ekki hitt þig í mörg ár.

mbk

Tryggvi

Tryggvi Baldur Bjarnason (IP-tala skráð) 24.12.2007 kl. 09:20

26 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Gleðileg jól Þórdís mín og takk fyrir frábær kynni í bloggheimum.

Marta B Helgadóttir, 24.12.2007 kl. 09:33

27 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Zordís... Þú ert frábær myndlistamaður og þú veist það sem er hið besta mál því þú mátt vita það ... Gleðileg jól og hafðu það náðugt yfir steikinni með börnum þínum og fjölskyldu..

Brynjar Jóhannsson, 24.12.2007 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband