27.12.2007 | 20:21
Grænir kettir ...
Skrítið að dreyma grænan kött sem hafði konuandlit! Andlit Aldísar í kattarlíki ..... Sé jafnvel fyrir mér málverk í grænum tón þar sem Aldís gælir við kisulúsina.
Dagurinn í dag er búinn að vera rólegur, ég fór seint á fætur þar sem græni kötturinn vildi gælur og atlot. Vantaði orku inn í dýraheim sem er ekki fjarri.

Grænn köttur
Í dag hafa iðnaðarmenn heimsótt okkur, sett nýtt stykki í arininn sem logar nú glatt. Þegar þeir fóru kom byggingaraðilinn og leit á hitakútinn okkar og skömmu síðar mættu pípulagningamennirnir og skiptu út gömlu fyrir nýtt.
Í Kvöld borðar sonur minn ásamt vini sínum krókódílaskott (fiskur en þeir halda hitt) og hrísgrjón. Ég léttsteikti þistilhjörtu á pönnu ásamt púrru og lauk, dassaði það með himalayasalti og sauð heilan haug af fersku brokkolýi. Hlakka bara til að borða en með því græna og væna fæ ég mér blóðuga nautalund ásamt glútenlausri kaldri piparrótarsósu.
grænn dagur
Eftir matinn, mal uppþvottavélarinnar og næturkoss til barna ætla ég að halda áfram að mála. Er að mála á striga, konu með blóm. Ég er einhverf á myndefni en er alveg sátt við það sem ég er að gera í dag, svo miklu betra að vera sáttur og sæll.
Til gamans .....
Eldabuska akrýl á þakflís
Já, það var nefnilega það. þakflísamálun, nokkuð krúttað og kemur vel út á vegg. Myndefnið varð að umræðuefni og Fjallið hafði á orði við mig afhverju ég málaði ekki eitthvað annað!
Góð spurning, sagði ég? Sennilega af sömu ástæðu og þú málar ekki á flísarnar.
Ég á ekki fleiri flísar og ef þið heyrið fréttir af "ðe hamsterlady" í háloftum að ræna þakflísun þá hafið þið forskot á fréttina. "Æm gona fly tonæt"
Elskurnar mínar nú er alveg að skella á helgi .... og árið er að líða sitt skeið. Uppáhaldstíminn minn, þrifadagur framundan en nú skal rýma fyrir hreinum vættum og vinum.
Árið mitt með mið af afmælisdegi verður ár tækifæra, eitthvað nýtt gerist sem mun verða það allrabesta. Hvað annað? Svo fagna ég enn einu aldursárinu innan skamms .....
Eintóm hamingja og gleði!
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:23 | Facebook
Athugasemdir
Innan skamms er eftir 8 daga, 39 ára verður kjéddlingin .... "júhú" .... enn eitt gleðiárið á enda og það næsta eintóm tilhlökkun.
Maturinn var ljúffengur og ég er mett og sátt, búin að ganga frá eftir matinn og er með málningardótið bíður spennt!
Ooooog hvenær er innan skamms hjá þér kæra Arna??????? Við getum jafnvel haft sameiginlega bloggveislu! Sendum út boðskort og alles!!!!
www.zordis.com, 27.12.2007 kl. 22:04
Þú ert ung kona ekki kalla þig kellingu þú ert falleg með fallegt hjarta. Til hamingju með afmælið elsku Þórdís mín og maturinn hljómar góður það sem ég gat lítið borðað um jólin þá er þetta að lagast hjá mér. Yndislegar kveðjur þil þín


Kristín Katla Árnadóttir, 27.12.2007 kl. 22:20
Þakflísar, alveg brillíant. Hef verið að hugsa til þín undnafarið, þar sem ég er að lesa "Óreiða á striga" eftir Kristínu Marju. Bókin er sjálfstætt framhald "Karitas - án titils" sem kom út fyrir 2 árum. Þetta eru einhverjar bestu bækur sem ég hef lesið - og fjalla um lífsþyrsta listakonu. Þú ættir að lesa þær!
Eigðu góða daga, elsku kona, njóttu lífsins áfram og skreyttu flísar og brot. Líst vel á þetta hjá þér.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.12.2007 kl. 23:21
Til hamingju með afmælið fallega kona.
Heiða Þórðar, 27.12.2007 kl. 23:58
Til hamingju með afmælið eftir 8 daga. Falleg fiskiflísin hjá þér. Hafðu að gott mín kæra.
Ásdís Sigurðardóttir, 28.12.2007 kl. 00:35
Ég mun halda upp á afmælið þitt með því að taka familíuna með mér til Kanaríeyja örfáum dögum eftir að þú verður dirty nine.
Ég verð 37 ára 7. maí nk.
kossar og knús á þig
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 28.12.2007 kl. 11:47
Já Arna mín, við erum semsagt báðar á degi 4 jan! Við höldum þá uppá þetta saman hér í bloggheimum!!!
Doddi, dirty nine finst mér kúúúl ... dirty somthing .... Svo Doddi er Naut og El Toro er á förum til Canarý .... Við skulum skála saman í andanum þrjú, Þú, Arna og Yo.
Svo er það bara knús á línuna, ætla að fara og kaupa bengal blys, smá bíltúr og leita að góðri lund fyrir gamlárskvöldið. Ef engin fæst þá narta ég bara í ofurFjallið mitt .........
www.zordis.com, 28.12.2007 kl. 12:09
Góð færsla að vanda. Mér finnast þessar flísar alveg geggjaðar og hugmyndin algjörlega brill! Er sammála þér að næsta ár verði ár tækifæra .. endalausra og ótakmarkaðra! Knús á þig .. næstum ammmmilisstelpa!
Hugarfluga, 28.12.2007 kl. 18:42
Sara, kanski vegna þess að ég lifi lífinu tvöfalt í eiginlegri merkingu með fólkinu mínu! þú í raun tekur lífið fjórum sinnum fyrir í sömu setningu ....
www.zordis.com, 28.12.2007 kl. 23:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.