Grænn köttur sem sækir á andann .....

Dagurinn hefur verið heldur betur notalegur.  Konan kúrði sem lengst í hjónasænginni og varð Fjallinu undrun ein af uppátæki hennar.  Dásamlegt að hvíla sig út árið svo ekki verður meira sagt!

Þegar dóttlan fór í stelpuafmæli og strákarnir mínir fóru í bíó, náði ég í striga og liti og "hestinn" minn og smellti skjannahvítum striganum á.  Ég ætlaði að klára aðra mynd sem fer í tækifærisseríu en draumurinn um græna köttinn hefur sótt á mig svo ég ákvað að láta slag standa .....

Græni kötturinn

Græni kötturinn er háðskur happafífill

Aldís og græni kötturinn

Aldís og græni kötturinn, Olía á striga 100 x 81

Myndin er í vinnslu, ég á ekki nógu góða pennsla því miður og þarf að ná fram betri strokum í kjólnum og svo þarf andlitið að þorna áður en það fær miðnæturmálninguna.

Ótrúlegt hvernig sumir draumar sækja á konu og það var víst ekki annað að gera en að koma þeim græna á strigann.  Fyrsta atrenna er búin og nú ilmar stofan af terpentínu og olíu.  Við erum sátt ég og sá græni ...... Aldís vill fá kjólinn sinn úr eðal flaueli svo á morgun verða keyptir fínustu olíupennslar til að geta alið henni fínan kjól fyrir nýja árið!

Þvílíkur unaðs og leti dagur, það kom að því að hann liti dagsins ljós, svona rétt áður en árið 2008 tæki við.  Nýtt ár, nýjir draumar og tækifæri eru handan við sólarhringinn ......  Ég er tilbúin að takast á við það sem nýja árið bíður.

Inn í nóttina býð ég ykkur ævintýranna sem aldrei komu, þeirra sem sækja á okkur áður en árið er liðið.  Ég vona að þið hafið það gott elþkurnar, með von um fallega drauma.

gleðilegt ár elskurnar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Yndislegar myndirnar og græni kötturinn er kominn til að vera með á komandi ári....gleðilegt ár mín kæra og takk fyrir stórskemmtilega og yndislega bloggvináttu.

Knús 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.12.2007 kl. 23:41

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Mér líst vel á græna köttinn - og einnig þessa á rauða kjólnum. Þetta sambland af munúð og dulúð er svo skemmtilegt. Eigðu góð áramót, fjallgöngukona!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 30.12.2007 kl. 23:52

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Yndislegar myndir, sérstaklega græni kötturinn!

Eigðu góð Áramót bloggvinkona

Huld S. Ringsted, 31.12.2007 kl. 00:30

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Er hrifnari af græna kettinum ... það er e-ð við hana  ;)

Gleðilegt ár kæra Þórdís !

Guðsteinn Haukur Barkarson, 31.12.2007 kl. 00:43

5 identicon

Auðvitað er græni kötturinn æðislegur ...

Ég mundi nú ekki eftir draumum mínum í nótt... en mér fannst gott að vakna og kíkja á bloggið þitt og sjá þessa færslu hjá þér með myndinni (-unum). Það er ekki oft sem grænir kettir mæta manni í morgunsárið.

Hafið það yndislegt yfir áramótin, elsku besta bloggvinkona. Það hefur verið svo gaman að kynnast þér og ég hlakka til frekari kynna á komandi árum.

Kossar og knús frá Akureyri

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 08:48

6 Smámynd: www.zordis.com

Takk elskurnar mínar (ein væmin í lok árs) en þið eruð elskur á ykkar hátt eins og ég á minn.  Ég held ég viti að þið vitið að við vitum ..... (grín) þetta er að sjálfsögðu ein og sama myndin og sá græni vill gælur Aldísar .....

Er að fara að kaupa pennsla og ditten svo ég geti haldið áfram!

Megi kærleikurinn vera allsráðandi í lífi ykkar þennan síðasta dag árs!

www.zordis.com, 31.12.2007 kl. 09:09

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hafðu það fallegast kæra fallega zordís með rauða hárið !

AlheimsLjós til þín og þinna

 steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 31.12.2007 kl. 09:46

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Vil bara óska gleðilegs árs Þórdís mín og þakka fyrir frábæra viðkynningu á árinu.

Marta B Helgadóttir, 31.12.2007 kl. 10:44

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gleðilegt ár elsku Þórdís og fjölskylda  knús.

Kristín Katla Árnadóttir, 31.12.2007 kl. 16:12

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Algjörlega frábært. Sá græni lofar góðu.  Hlakka til að fylgjast með þér á nýju ári og þakka fyrir góða blogg vináttu.  Kær kveðja til þín og þinna.

                    

Ásdís Sigurðardóttir, 31.12.2007 kl. 23:40

11 identicon

Gleðilegt nýtt ár!  

Lilja (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 02:32

12 Smámynd: bara Maja...

Græni kötturinn á hug minn allann! vá alveg frábær  hlakka til að sjá hann þróast hjá þér. óska þér og þínum gleðilegs árs, takk fyrir fallegar og gefandi bloggfærslur og athugasemdir til mín.

bara Maja..., 1.1.2008 kl. 14:56

13 Smámynd: Elín Björk

Gleðilegt ár elsku krúzlan mín!!!!

Knús á ykkur

Elín Björk, 1.1.2008 kl. 19:58

14 identicon

Gleðilegt ár, elzku Zórdís mín. 

Græni kötturinn og fallega Aldís eru bæði silkimjúk og falleg á að líta.  Hlakka til að lesa og sjá allt það skemmtilega frá þér á árinu 2008.

Hils. Srósin

Srósin (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 20:06

15 Smámynd: Elín Björk

Græni kötturinn og Aldís eru æði, þessir 2 litir harmonera líka æðislega saman

Elín Björk, 1.1.2008 kl. 20:12

16 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Græni kötturinn er hreint frábær.

Marta B Helgadóttir, 1.1.2008 kl. 20:35

17 Smámynd: Margrét M

flottur köttur....Gelðileg nýtt ár ..

Margrét M, 2.1.2008 kl. 09:00

18 Smámynd: Solla Guðjóns

Tilbreyting í GRÆNUM ketti.

Gleðilegt og gæfuríkt ár elsku Þórdís mín,Fjall og börn

Solla Guðjóns, 2.1.2008 kl. 12:49

19 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Glæsilegur grænn köttur

Gleðilegt ár elsku vinkona

Vatnsberi Margrét, 2.1.2008 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband