Hvað ertu gömul elskan ....

... sagði amma mús áðan

Ég er 39 ára unglamb sem dreymir um að taka þátt í fegurðarsamkeppni.  Kona sem er vel greidd með kórónu, sem mátar skó sem passa allir og velur svo feikifallega "törkiss" bláa skó til að stíga um borð í einkaþotuna.

Skelfingar róa er ég eiginlega, 39 ára að taka þátt í fegurðarsamkeppni.  Kjóllinn fór vel um vömbina og skórnir nutu sín bærilega vel á fótafrárri frúnni.  Að ganga um eftir sviðinu var eitt en hvíti sundbolurinn og mín með Friðrikku í vetrarklæðum.  Sennilega feitasta fljóð sem gengið hefur um á sviði Ólafs Laufdal frá degi númer eitt. 

Alheimsfrægð og heimsyfirráð yrði bókað.  Times magasín og Geograpic international myndu ekki halda vatni yfir þessari vænu mær sem gengi eins og fjörlegasta hind eftir sviðinu ....

Beint í djúpu laugina

stundum er gott að láta bara vaða

Ég vaknaði með ógurlegan hjartslátt þar sem úrslitin voru ekki ljós.  Ég skal vinna, langfallegust sko, langelst og langfeitust.  Draumarnir okkar eru yndislegir ... látum þá alla rætast!

Nothing will stop me now!

Kæru bloggvinir, bestu þakkir fyrir allar kveðjurnar þið eruð dásamleg. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Marta B Helgadóttir, 4.1.2008 kl. 20:45

2 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

 Myndin sem fylgir textanum er geðveikislega fyndin.

Ég er alveg til í að láta alla draumana rætast......flott.

Sniðugt blogg....Sóldís Fjóla

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 4.1.2008 kl. 21:17

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert elskulegust alltaf svara þú mér ég held að þú þekkir mig mjög vel þú ert dásamlag góð elsku Þórdís mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.1.2008 kl. 23:01

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, nú dreymir mig um að fara að sofa og hvíla mig. Sofa vel í alla nótt og vakna hraust á morgun 

Ásdís Sigurðardóttir, 5.1.2008 kl. 00:00

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Láta vaða og svífa um loftin......

Aftur til hamingju með að vera 30 og eitthvað í síðasta sinn 

Solla Guðjóns, 5.1.2008 kl. 00:15

6 Smámynd: www.zordis.com

Takk fyrir innlitið kæru bloggvinir.  Ég er viss um að við þekkjumst betur og betur eftir því sem við skynjum hvort annað betur!

í dag er kóngadagurinn okkar og spænsku jólin á næsta leyti ....

www.zordis.com, 5.1.2008 kl. 12:27

7 Smámynd: Elín Björk

Hjúts knús á þig sætust  Ömmumýs eru alltaf svo miklar dúllur! Knúsaðu familíuna þína frá okkur, og enn og aftur til hamingju með gærdaginn!!

Elín Björk, 5.1.2008 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband