5.1.2008 | 13:36
Á leið til himna ....
hvað er betra en kúrinn, undir hlýrri sænginni ..... dorma þó ekki á gormabedda því nú sefur konan á geimdýnu og veit fátt betra en að gæla við draumaheim á dúnmjúku skýji.
Við áttum notalegan gærdag og dagurinn í dag verður góður þar sem seinnipartinn í dag koma Los Reyes Magos sem eru það sem við þekkjum sem vitringana þrjá er færðu jesúbarninu gjafir.

Kóngarnir þrír á leið til barnanna
En talandi um kónga þá á Konungurinn Juan Carlos afmæli í dag. Enn ein veislan sem sækir á okkur. Fagna sjötugsafmæli þessarar elsku, lengi lifi konungurinn, húrra húrra húrra! Til hamingju elskan mín .......

Juan Carlos er sjötugur í dag, hann lengi lifir
Það er milt og gott veður, eilítið kalt en hér er enginn að kvarta. Hvað er hægt að óska sér meira á þessum kóngabjarta fagra degi ??
Er að stripplast berfætt, fór í galleríið mitt og náði mér í striga, verð að tæma hugann með einhverju móti. Seinnipartinn fer Fjallkonan í hælaháa skó, kjólinn og smá túpering í hárið, galvösk með börnin að kasta kveðjur á kóngana okkar. Nú er spenna í litlum hjörtum sem bíða kóngagjafarinnar á degi þrettándans. Á morgun seinnipartinn fara jólin sína leið, jafn snöggt og þau sóttu okkur heim.
Skál fyrir konungi Spánar, lengi lifi Spánn
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Til Hamingju með Spánar konung Þórdís mín og skemmti þið ykkur vel.
Kristín Katla Árnadóttir, 5.1.2008 kl. 15:13
ég skála með þér kæra zordís !
AlheimsLjós til þín
Steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 5.1.2008 kl. 16:21
Skál fyrir kónginum og þér.
Svava frá Strandbergi , 5.1.2008 kl. 16:36
Bið að heilsa kónginum! Segð'onum að ég komi að heimsækja hann í mars!!
Hugarfluga, 5.1.2008 kl. 17:21
Dile a Enrique que vamos a venir el día 18 de junio y que vamos a estar hasta el día 9 de julio. Nos vemos!!!
Agust (IP-tala skráð) 5.1.2008 kl. 17:23
Grrr ... Hot þessi kóngur. Skál!
Lísa (IP-tala skráð) 5.1.2008 kl. 22:12
Nákvæmlega Lísa, hann er hot! Reyndar er þetta búið að vera pólemískt ár hjá honum blessuðum þar sem margt og mikið er búið að gerast í lífi bláblóðafólksins en það er nú held ég bara þannig hjá okkur öllum.
Hugarfluga, ertu á leið til Madrid?
Og elsku vinir, kvöldið í kvöld er búið að vera "du´la" sem er bannað að lesa eins og hver önnur dula .....
Knús á línuna ..... Jólin eru á morgun og við hittum kóngana, kameldýrin og sáum þvílík show og allt í notalegu veðri. Nú fara þeir að koma svo það er best að kúrast í háttinn .....
Agust, tenemos muchas ganas de ver os ..... muchos besitos para tu mamí!
www.zordis.com, 6.1.2008 kl. 00:57
Elsku yndislegasta Zordis. Ég vildi bara láta þig vita að ég skálaði fyrir þér í gær (fyrradag) í afmælinu hjá frænku minni, sem var dirty nine plus one. Ég skálaði hins vegar svo mikið að ég lá veikur í rúminu í dag (gær) fram til 4 og hef varla liðið eins miklar þjáningar
En svo fór ég strax aftur að hitta skoskan félaga minn og svo hittumst við Liverpool-bloggararnir á Austur-Indíafélaginu og áttum frábæra stund þar og tókum svo pöbbaröltið. En áður en ég sofna fram til hádegis á þrettándanum þá vildi ég segja þetta:
Til hamingju með afmælið! Þú ert svo yndisleg og mér þykir vænt um þig. Ég hefði auðvitað vilja senda þér kveðjur á sjálfum deginum, en verð að fela mig á bak við tímaleysi frá því ég keyrði af stað frá Akureyri og fór þaðan beint í afmælið og lá svo óvirkur fram eftir degi og svo beint í annan fagnað ... þú ert sú fyrsta og sú eina sem ég skrifa til - áður en ég leggst til hvílu.
Knús og kossar úr Hafnarfirði, frá akureyrískum dóna sem getur verið dúlla stundum. Hafðu það yndislegt!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 03:56
Takk Vilborg fyrir kveðjuna og Doddi þú ert bara dúlla og ástarþakkir fyrir kveðjuna frá þér! Langafi minn hefði átt afmæli með okkur í dag í jarðneska lífinu svo það er alveg spurning að fagna fyrir honum og lyfta skálinni.
Ég er ánægð með þig að hafa tekið daginn minn með trukki því þannig eiga afmælisdagar að vera !!!!!
www.zordis.com, 6.1.2008 kl. 09:40
Solla Guðjóns, 7.1.2008 kl. 16:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.