Marinerað hjarta með ferskum lauk ...

.... hjartað á mér er eitthvað meir"t"iháttar þessa dagana.

Veit eiginlega ekki hvort þetta sé gott eða slæmt því ég veit varla hvort ég sé meir eða meiriháttar ......  það má segja að hjartað mitt sé marinerað í miklum kærleik heimilismanna og treður nú hjartað leið upp Fjall með litlu birkitré hreinræktuðu íslenskum runna og appelsínutré, líka nokkuð svo hreinræktaður runni.

Ég heyrði í kóngunum þrem sem komu færandi hendi og þeir bentu mér á leið til að nálgast það sem var efst á óskalista barnanna, svona ..... Wiiiiiiiiiiii tölvuLoL  Já, það er nebblega málið, bankinn sem ég var að hefja viðskipti við gefur svona tölvu sem er uppseld á öllum Iberíuskaga.  Það getur borgað sig að trúa á töframátt og eftir 10 daga kemur leynigjöf inn á heimilið sem við þökkum konungum alheimsins.

Ástarjátning II

Ástarjátning II

Ég hef stundum hugleitt af hverju ástin er mér hugleikin, af hverju aldur og ár eru mér hugleikin, af hverju rósrautt skýjið hefur dregið hluta af mér á annað stig og af hverju ég hef verið svona mikill prakkari í gegn um lífið.  Grínið mitt er mörgum andstætt en þannig eru sumir hlutir, andstæðir en samt svo stæðir sem ferðast um hæðir þar til hjarta mitt/þitt blæðir.

Já nú er ég farin að bulla. 

BRÁÐUM ER SÝNINGIN Í RÁÐHÚSINU STELPUR 

Katrín Snæhólm

Elín Björk

Guðný Svava

Zóa

Zordis

Það styttist með degi hverjum, hún er eftir tæpl. 7 mánuði ...... Ótrúlega spennandi tími framundan, næg vinna og pælingar og hugsanir sem ná vonandi að skreyta grunninn, sem ná að heilla augu þín og sál.  Nægur tími hefur aldrei verið skemri en akkúrat núna.

Stelpur, nú er að taka á listagyðjunni og skapa fegurð sem hvergi hefur verið sýnd áður.

Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hlakka til að sjá sýninguna ykkar

Bryndís R (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 21:04

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það verður nú bara hátið í borginni þegar sýningin ykkar verður.  Hvað er konan með í hendinni á myndinni hér fyrir ofan fugl eða kött?? kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 10.1.2008 kl. 21:45

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ef Siló er innan fjárlagaramma míns þá vil ég endilega festa kaup á henni, er það hægt???

Ásdís Sigurðardóttir, 10.1.2008 kl. 21:49

4 Smámynd: www.zordis.com

Heyrðu konan er með fugl sem bregður sér greinilega alls kyns líki eftir augu áhorfandans ....

Ásdís, hvaða mynd ertu að tala um Síló?  fatta ekki alveg???

Já, Svandís, er það málið ..... kóngarnir fundu leiðina og þetta apparat er á leiðinni hingað heima og mæ god það verður fjör!  Eða ekki ..... já og hver veit, með englana  mína .... þeir verða örugglega með í för!!!!!

www.zordis.com, 10.1.2008 kl. 23:42

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú nefnir hana sjálf Siló, ein af pastel myndunum þínum.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.1.2008 kl. 00:02

6 Smámynd: www.zordis.com

ok Ásdís .... kem bara með hana til þín  var ekki að fatta!

Sit hér alein og sukka í NS súkkulaði ... svona jólaskeljar og mæ sko, ætti að fara bara að sofa í hausinn á mér!
 

Og Arna, ef þú kemur ekki þá rúnta ég á Grundarfjörð og mæti með gönguprikið!

www.zordis.com, 11.1.2008 kl. 00:11

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vantaði eiginlega verðið og eins á litlu myndinni af fermingarstulkunni. Var búin að panta flís manstu, en er að spá hvort ég ætti að sleppa henni og taka heldur myndir, þú gefur mér verðið darling og hættu nú að borða súkkulaði, mig langar svo í þegar ég les þetta.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.1.2008 kl. 00:15

8 Smámynd: Solla Guðjóns

JEYYYY!!!!! Hvaða Ráðhúsi........skiptir ekki öllu heldur að ég viti hvort það er hér í bæ.......eða annars staðar og ég verð sko á staðnum......

Er alveg að fíla í þér prakkarann........

Flott þetta með tölvuna og bankann.Langar að sjá svipinn á j.r...þegar hún kemur.

Sibbulíusarknús og bros inn í dasginn......11.jan

Solla Guðjóns, 11.1.2008 kl. 00:43

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Hey já geðveik þessi mynd

Solla Guðjóns, 11.1.2008 kl. 00:44

10 Smámynd: Inga Steina Joh

Gaman, gaman. Langar til að koma og sjá! Hver veit nema leið okkar liggji á landið ylhýra í sumar??? Þá kem ég!

Inga Steina Joh, 11.1.2008 kl. 05:59

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

En spennandi Þórdís mín ég ætla að reyna koma á sýninguna eftir 7 mánuði gaman og þessi mynd er rosalega falleg. Þú ert yndisleg ég mér líður svo vel að lesa bloggið þitt vegna þess þú ert svo mikil kærleikur.

Kristín Katla Árnadóttir, 11.1.2008 kl. 11:04

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Zordís mín..já í horninu hinu megin við hurðina heima hjá mér eru komnar upp trönur og ég tek þig á orðinu og ætla mér að skapa fegurð eins og hún hefur ekki sést áður.

Mikið rosalega held ég að þetta verði frábær myndlistar og ævintýragjörningur hjá okkur stelpunum í Ráðhúsinu eftir 7 mánuði...

oh my oh my...bara 7 MÁNUÐIR til stefnu. Farin að skapa. Bæ yndislegust. Zá fáum viz að hittazt..gaman saman

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 11.1.2008 kl. 13:18

13 Smámynd: Margrét M

spennandi sýning

Margrét M, 11.1.2008 kl. 13:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband