Á bleikri grein ....

Stundum er nauðsynlegt að taka tilfinningarnarnar og blása þeim út í loftið, blása blítt og framleiða af stút þykkar og silkimjúkar sápukúlur.  Finna svo svörin som koma til þín beint í undirmeðvitundina þína. 

Sápukúlur

Svo getur kona lent inn í kúlunni líka

Ég er eitthvað svo poppuð eftir daginn, ætlaði að gera svo margt, gerði margt en ekkert sem ég var búin að ráðgera.  Svona gerist stundum og það er allt í lagi.  Anda bara djúpt, inn og út og láta kvöldið líða.  Það eru allir að dedúa í sínu horni, heimasætan að læra og feðgarnir í Play station ..... Hvað gera þá sætulíusarkonur eins og ég ???

Spurning

Ég held W00t að við séum óvenjulega fjölskylda, erum  heimakær og nennum oft ekki að fara á flakkið.  Áður fyrr vorum við duglegri að sækja allskyns tómstundir eða útiveru um kvippinn og kvappinn en í dag þá er heimilið aðalpartýstaðurinn.  Það er nú í lagi, alveg sátt við það að vera með þeim sem ég elska mest "all day round" .... kanski erum við bara ósköp venjuleg "boring" fjölskylda.  Já, ég held það ósköp venjulegt ógnarskemmtilegt mengi.

Eftir að hafa verið í Fjallgöngu í 7 ár ákvað ég að negla fjallið.  Gerði honum grein fyrir því að nú væri tíminn.  Við myndum gifta okkur eftir 7 mánuði þann sjöunda.  Mér reiknaðist til að það yrði 7 Október og ca. 1 mán fyrir brúðkaup fór mærin mjúka að leita að kjól en hefði öllu frekar átt að panta sér tíma í fitusogi því enginn fannst kjóllinn.  En til að gera langa sögu stutta, sagði Fjallið JÁ og ég hélt ræðu í kirkjunni fyrir íslensku gestina okkar og við frestuðum hungangsferðinni um óákveðinn tíma.

Á toppnum
Heart Búin að gabba´nn  Heart

Hann er ennþá óákveðinn þ.e. tíminn því ekki höfum við farið saman í ferðina einu, skreytta ástinni og bliki þess að vera ...... innnnn löv!  Koma tímar og þessi ferð verður farin þótt síðar verði!  Við eigum 3ja ára brúðkaupsafmæli og hver veit nema að við finnum leið til að strjúka 2 saman. 

bjúti is in ðe æ off ðe bíhólder

Parlez-vouz frances?

 Vona að kvöldið verði ánægjulegt, ég ætla að láta verða af því sem var á dagskránni í dag ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Æ nú fékkstu mig til að hlægja upphátt iog innilega..talandi um foitusog og kjóla. Ég er einmitt að huga kaup á kjól fyrir fermingu sonarins en var að hugsa um hvort ég ætti ekki fyrst að gefa einhverjum á mér mallann..hehe.

Knús í sápu

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.1.2008 kl. 21:52

2 Smámynd: Hugarfluga

Ohhh þið eruð svoooo mikið sæt saman!! Takk fyrir færsluna!

Hugarfluga, 12.1.2008 kl. 23:12

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fallegar myndir af ykkur!

Hrönn Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 12:46

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Krúsuleg og sæt hjón ! 

Marta B Helgadóttir, 13.1.2008 kl. 15:08

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Rosalega eruð þið flott saman. Mikið öfunda ég þig af hlýjunni í landinu þínu, mér leiðist kuldinn núna, er með gigt.  Má ég ekki bara koma og sækja flísina??Hafðu það gott elskið mitt.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 17:35

6 Smámynd: www.zordis.com

  Ásdís, koddu bara!!

Það er eins og ágætis sumar hjá okkur núna, fínasta peysuveður!

Takk fyrir komuna músirnar mínar, ég ætla að setja inn lítil litashow á eftir ef ég næ að gera alla tæknihlutina rétt ....

www.zordis.com, 13.1.2008 kl. 18:00

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

voðalega eruð þið ferlega fín og sæt, og hamingjusöm !

það er gott að vera í hreiðrinu sínu!

Bless

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 21:18

8 Smámynd: Dísa Dóra

Flott hjón

Dísa Dóra, 13.1.2008 kl. 22:04

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Flottu þið

Solla Guðjóns, 14.1.2008 kl. 17:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband