Ég elska konur ...

... þegar ég vel mér myndefniKonur eru spennandi, mjúkar og hlýjar persónur sem ég hreinlega elska að mála.  Konan getur verið þú eða ég, konan á móti eða sú sem býr í bakhúsinu við okkur.

Konan elskar ketti og krumma, elskar rósir og allskyns blómKonan elskar það eitt að vera, finna ilminn af þér sem leggur leið sína í líf hennar, vertu velkomin í heimsókn. 

Ég mála konur og reyndar líka karlmenn og gerði smá tilraun sem ég þarf að vinna með en ætla að sýna ykkur tilraunina sem heitir tvö falin hjörtu sem er fyrsta flísin hér að neðan.  Í framhaldi koma nokkrar "flísar" sem ég hef verið að gera undanfarið.  Stærðirnar eru ca. 20 x40 og munu flísarnar verða settar á heimasíðuna mína www.zordis.com þegar tæknigúrúið finnur anda sinn.

Njótið

Tvö hjörtu sem slá.

Tvö falin hjörtu

Vínberjaástin bláa

Blá Vínberjaást

Ástarjátning og Vínberjaást II 007

Vínberjaást II

Í einkaeigu

Komdu kisa mín

Komdu Kisa mín

Í einkaeigu

Kona og Krummi

Kona og Krummi

Blómastelpa

Blómastelpa

Í einkaeigu

Ástarjátning

Ástarjátning

Sunnudagskvöld, góð mynd á skjánum sem ég hlusta á.  Ég viðurkenni að ég heyri nú ekki mikið af því sem fram fer því ég er hvort sem er annars hugar.  Kanski draumasvið mitt verður á sviði gamallar bíómyndar.

En vona að þið njótið flísanna, ég er greinilega í einhverju orkubústi því ég hef valið rauðan lit á nánast allar konurnar mínar.  En það er nú í lagi.

Takk fyrir komuna

Heart

Ath. ef þið viljið frekari upplýsingar sendið mér línu á zordis@zordis.com


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ÉG held bara að þú mundir sífellt koma með eitthvað nýtt fyrir mig til að langa í. Eru fleiri svona ástar flísar í farvatninu?? ertu búin að senda pakkann nokkuð? ég er voalegur sukker fyrir ástinni.

Konur elska konur og konur elska mennKonur elska börnin og alla aðra í senn.Konur eru fallegar og lita lífsins grundKonur eru góðar jafnt við hal og spurnd.

Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 22:47

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Konur elska konur og konur elska menn

 

Konur elska börnin og alla aðra í senn.

 

Konur eru fallegar og lita lífsins grund

 

Konur eru góðar jafnt við hal og spurnd.

Þetta á að vera svona ekki í einni bunu.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 22:48

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

vá vá ein voða klaufsk spurnd á að vera sprund

Ásdís Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 22:49

4 Smámynd: www.zordis.com

Nei, Ásdís sprund  ástarstelpa .... ég á eftir að dedúa við Vínberjaástina þar, setja festir á hana og svoll .... fallegt ljóð sem þú setur saman.

Ég elska líka ástina, stundum finst ég mér ég vera andlega fötluð vegna þess að ég neita að trúa því að það sé eitthvað sem geti sigrað ástina og hamingjuna.

Ég ætlaði að vera með skemmtilega sýningu sem enn hefur ekki orðið að og hún heitir "hundraðföld hamingja" hver veit nema að ég geti látið verða af þeirri sýningu.

www.zordis.com, 13.1.2008 kl. 22:53

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nú er ég skítfallin fyrir "komdu kisa mín"  :):)  má skipta. ????

Ásdís Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 22:53

6 Smámynd: Hugarfluga

Mér finnst Tvö falin hjörtu vera myndin MÍN.  *andvarp*

Hugarfluga, 13.1.2008 kl. 22:56

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Mér líkar vel þegar þú skrifar um heitar, heillandi og hamingjusamar konur. Konur eru heimurinn og heimurinn er konur. Reyndar karlar líka, en konur eru eigi að síður alfa og omega. Góða nótt - faðmlag til þín elsku meðsystir!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.1.2008 kl. 22:56

8 Smámynd: www.zordis.com

Ásdís, já það má skipta ....  Komdu Kisa mín er voðalega krúttleg ...

Takk stelpur, fallegu konur fyrir innlitið!

www.zordis.com, 13.1.2008 kl. 23:03

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Æðislega fallegt, fallega kona...þú ert einstök Zordis.

Heiða Þórðar, 13.1.2008 kl. 23:50

10 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Athyglisvert með flísamálverk.....og jú, mér finnst konur líka vera spennandi. Get tekið undir það

Lárus Gabríel Guðmundsson, 14.1.2008 kl. 00:32

11 identicon

Elsku dúllan mín

Þessar útiflísar eru snilld  Á sko pottþétt eftir að versla þær hjá þér.  Fær maður ekki að sjá þær á sýningunni hjá þér í Ágúst sem verður hérna á klakanum?

Go, go girl

Knús og kossar frá Lettlandi

Guðný

G.Hansen (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 09:12

12 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Allar myndirnar eru fallegar eins og þú ert elsku Þórdís mín þú ert mikil listakona knús til þín.

Kristín Katla Árnadóttir, 14.1.2008 kl. 09:41

13 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Frábærar myndir hjá þér

Vatnsberi Margrét, 14.1.2008 kl. 10:33

14 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Er hægt að panta svona nokkur hundruð konuflísar...ég sé það núna að ég vil ekki sofa undir neinu öðru þaki en svona hamingjusömum konuflísum....með kisum, krummum og blómahafi. Finn fiðting í fingurgómunum þar sem nhý sköpun er að spretta fram og finna sér farveginn...sjáum hvað verður til á leiðinni í Ráðhúsið.

Smjúts

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.1.2008 kl. 11:06

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Eitt enn..þú hlýtur að hafa með þér heilan her huldukvenna þér til fulltingis og aðstoðar...það er engin hemja hversu afkastamikil Zordísin er

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.1.2008 kl. 11:07

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

kona og krummi

Hrönn Sigurðardóttir, 14.1.2008 kl. 11:26

17 Smámynd: Inga Steina Joh

I like!!!!  . Frábærar flísar hjá þér!  Hér er mikið um að það sé málað á þakflísar en það er alltaf annað hvort maritimt eða blómapottur fullur af bómum og með :Velkommen. undir. Gaman að sjá eitthvað nýtt!

Inga Steina Joh, 14.1.2008 kl. 14:07

18 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Þessar flísar eru ekkert minna en Brilljant. Litirnir svo tærir og heillandi....frábært. 

Kveðjur,

Sóldís Fjóla 

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 14.1.2008 kl. 14:41

19 identicon

Ég elska líka konurnar þínar  og loksins þegar ég hef ákveðið hvaða kona mun prýða mig, þá verða þær allar farnar.

Flísakonuknús

Lísa (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 15:04

20 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég er dáleidd af þessum flísum og konunum sem þær príða..........

Solla Guðjóns, 14.1.2008 kl. 17:35

21 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég elska þessar flísar hjá þér, allar!

Huld S. Ringsted, 14.1.2008 kl. 23:19

22 Smámynd: Margrét M

æ etta er svo flott

Margrét M, 15.1.2008 kl. 09:34

23 Smámynd: Inga Steina Joh

'Eg er ´buin að skoða allar flísarnar hjá þér og get hreinlega ekki gert upp við mig hver er flottust! You go girl!!!! Stórfenglegt, hreint og beint!  

Inga Steina Joh, 15.1.2008 kl. 10:39

24 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þetta er yndislegt hjá þér, myndi líklega velja blómastelpuna eða bara þær allar 

Marta B Helgadóttir, 15.1.2008 kl. 10:45

25 Smámynd: Sigrún

vá endalaust fallegar flísarnar þínar

Sigrún, 15.1.2008 kl. 13:52

26 identicon

Ekkert smá flottar flísarnar þínar svo ég segi það enn og aftur! Og konur eru auðvitað laaaaang fallegasta myndefnið, ekki spurning!

Knús á þig

Lína (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 13:53

27 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

áfram áfram konur !!! og kallar !!!

Bless

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 15.1.2008 kl. 15:02

28 Smámynd: www.zordis.com

Rosalega eruð þið búin að vera dugleg að staldra við.  Takk fyrir komuna og fyrir öll fallegu kommentin ykkar.

Er loksins að gefa mér tíma til að klára pantanir fyrir ykkur sem kíkið við og kvittið ekki .....

Vonandi að ég geti sent sýnishornin ykkar fljótlega og ef ykkur líkar það sem komið er vinsamlegast að láta mig vita. 

www.zordis.com, 15.1.2008 kl. 15:45

29 identicon

Mér finnst þetta ekkert smá flott hjá þér. Langar í alveg fullt af þessum flísum hjá þér.

Bryndís R (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 15:48

30 Smámynd: www.zordis.com

Dúa, þakflísar setur maður í flestum tilfellum á þakið hjá sér eða í mínu tilfelli þá er flisarnar gerðar til að setja á vegg.

Móðir og barn, já ég á eina;

http://www.zordis.com/pics/pinturas/p003.jpg

  Í móðurfaðmi Olía á Striga 20 x 50

get ekki sett hana inn í kommentaboxið því það kemur bara upp "rauði krossinn"

Á nokkrar sem eru hálfmálaðar etc ....

www.zordis.com, 15.1.2008 kl. 20:32

31 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

heyrðu heyrðu heyrðu. Þekki þig  greinilega ekki alveg nógu vel. Er kolfallin fyrir flísunum. hvur andskotinn. hvað kostar eitt svona stykki?

Jóna Á. Gísladóttir, 15.1.2008 kl. 23:53

32 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Æðislega flottar hjá þér flísarnar. Hvað selurðu svona eitt stykki á?

Svava frá Strandbergi , 16.1.2008 kl. 00:08

33 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 16.1.2008 kl. 00:13

34 Smámynd: www.zordis.com

Vá, hvað ég fór snemma að sofa í gær ......   svo gott!

Jóna og Guðný Svava svona flísar er ég að selja á 10.000 krónur!   Dóttlan mín er í gifsi á hægri og mín þurfti að vakna snemmmmmmmma til að þvo á henni hárið, held hún ætli að kasta því út um skólastofuna í dag ... en nú þarf ég að þurrka lubbulínu mína!

www.zordis.com, 16.1.2008 kl. 06:35

35 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Glæsilegt Zordís! Eins og venja er. En mig langar að spyrja þig spurninga, langar þig að vera með í samsýningu á blogginu núna í vor, ásamt mér og Steinu? Þú manst nú eftir framtakinu hjá okkur í fyrra, og lukkaðist það mjög vel. Nú erum við að leita að fleiri góðum myndlistarfólki með okkur í lið. Ef þú hefur áhuga sendu mér t-póst á gudsteinnb@hotmail.com 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.1.2008 kl. 09:31

36 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég er svo stolt af þér og finnst gaman segja fólki frá að  þetta listaverk  sé eftir Þórdísi og pastelmyndirnar líka.......ég þarf að geta sagt flísarnar eru líka eftir þórdís...

Knús á þig duglega Fjallkona.

Solla Guðjóns, 16.1.2008 kl. 13:49

37 identicon

Ég elska konur líka.... ég elska það líka að vera kominn aftur hingað á skerið eftir ljúfa lystisemdaviku á Kanarí, sem ég elska líka.

Já, ég elska mikið. Knús og kossar á þig

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 19:49

38 identicon

Bara að fylgjast með

Næturdrotttning (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 20:18

39 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Marta B Helgadóttir, 17.1.2008 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband