teskeið, matskeið eða súpuskeið .....

Vaknaði eldhress þrátt fyrir að vera með leiðinda eymsli í hálsinum og hósta skrjáfþurrum hroðbjóðslegum hósta sem ég er að vinna frá mér.  Ég er sú allra leiðinlegasta þegar sjúkdómar gera hosur sínar grænar!

Tengdó hringdi í morgun og ég sagði henni að ég ætlaði að opna koníaksflöskuna og skvetta í mig.  "Heldurðu ekki að hunangið virki betur" sagði ofurdúllulega tengdamamma mín ....  Ég leiðrétti þetta svo hún héldi ekki að ég yrði bara blindfull af koníaksdrykkju hugsandi um barnabörnin hennar....

Kanski ég fái mér eina matskeið áður en ég fer í háttinn og svo aðra þegar ég vakna.  Setja pyttluna undir koddann og láta sig dreyma um lækningarmáttinn ógurlega.  Já, þetta er allt spurning ..... gæti líka farið uppá þak og látið reyna á mátt tunglstöðunnar, íklædd hvítum serk með baldursblóm í hárinu!

Ljúf Ást
Ljúf Ást mynd í einkaeign

Þetta er eitt af tækifæriskortunum sem ég fékk úr prentun um helgina.  Lenti í því að láta hraðbankann snuða mig og ég stóð gapandi af undrun.

Prentunin fór ekki alveg eins og ég átti von á og var á fundi með sölufulltrúa prentsmiðjunnar og á von á að hlutirnir fari eins og lagt var upp með.  Nú er ég með "my fingers krossed" ....

Netfangið mitt er eitthvað að stríða mér þessa dagana.  Ég á von á tæknimanni á miðvikudag til að laga stöðuna og ef ég hef ekki svarað mailum undanfarið þá er það ekki vegna kvikyndisnóraháttar míns heldur er tæknilega hliðin eitthvað hrekkjótt.  Ég get verið óttalegur dóni en ég svara alltaf meilum sem mér berast!

Svo er það að finna stóra matskeið og taka meðalið .....

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

passaðu að hafa hana nógu stóra

Hrönn Sigurðardóttir, 21.1.2008 kl. 17:08

2 identicon

Elsku dúllan mín.

Án gríns, þá hef ég mikla mikla trú á því að koníakið hjálpi. Góð matskeið fyrir svefninn og góð matskeið í bítið ... hjálpaði mér mjög mikið um jólin! Heilsukveðjur og -knús til þín!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 17:13

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég var að vinna á elli heimili og maður sem var 96 ára og ofurhress í þokkabót sagði að koníak væri allra meinabót... Hann fékk sér víst koniak í hvert sinn þegar hann var veikur og varð hann stálslegin fyrir vikið.. Ég ítreka að hann var engin alki heldur notaði þennan drykk við veikindum.

Brynjar Jóhannsson, 21.1.2008 kl. 17:18

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi elsku Þórdís mín láttu þér batna sem fyrst Kveðja til þín

Kristín Katla Árnadóttir, 21.1.2008 kl. 18:08

5 identicon

Æ vona að þér batni fljótt

Bryndís R (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 20:32

6 Smámynd: Solla Guðjóns

Góð og einföld uppdkrift...........2msk mjög heitt vatn 1 tsk hunang og 3.msk coniak sett í lítið staup og hellt í sig í einum teig.

Láttu þér batna krútta

Solla Guðjóns, 21.1.2008 kl. 22:12

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Láttu þér batna Þórdís mín, koníakið svíkur aldrei

Huld S. Ringsted, 21.1.2008 kl. 22:55

8 identicon

Þér batnar örugglega fljótt dúlla, hörkukona eins og þú!!!
En alveg er það típískt með prentun... það er sjaldan alveg eins og það á að vera

Knúsur og smúsur

Elín (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 23:11

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vonandi ertu betri - ætlaði bara að benda þér á að ausur eru stærri en skeiðar.....

Hrönn Sigurðardóttir, 22.1.2008 kl. 13:59

10 Smámynd: Margrét M

það eru til risa ausur .. láttu þér batna

Margrét M, 22.1.2008 kl. 15:31

11 Smámynd: Hugarfluga

Nema þú stútir koníakspelanum.  Þá manstu ekki einu sinni eftir að þú sért lasin! Uss uss, fluva.  *koss*

Hugarfluga, 22.1.2008 kl. 17:03

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Góðan bata snúllustelpa

Marta B Helgadóttir, 22.1.2008 kl. 21:35

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þetta er bara flott..allar konur að láta sér batna nú um mundir...eretta ekki bara eitthvert merkilegt tímaskeið fyrir konur..að þeim batni öllum í einu???

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.1.2008 kl. 23:15

14 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

taka meðalið, og pakka ser inn í ullarteppi. það er gott.

Bless

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 23.1.2008 kl. 16:19

15 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Láttu þér batna sem fyrst.

Svava frá Strandbergi , 23.1.2008 kl. 18:34

16 Smámynd: www.zordis.com

Takk fyrir kveðjurnar, ég er orðin eins og nýslegin þegar ég horfi fram hjá dotlu. 

www.zordis.com, 23.1.2008 kl. 18:38

17 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Batakveðjur

Vatnsberi Margrét, 23.1.2008 kl. 20:25

18 Smámynd: Solla Guðjóns

hehe dottlu

Solla Guðjóns, 23.1.2008 kl. 21:43

19 Smámynd: www.zordis.com

Já Ollasak, þetta er hjartanlega komið frá þér og það er útaf dottlu!

www.zordis.com, 23.1.2008 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband