Snillingur ...

Eitt sinn kallaði fyrrverandi tengdafaðir minn mig SNILLING.  Frá honum var þetta mikið hrós!  Svo skellti hann sér í augnaðgerð og sagði þegar ég heimsótti hann eftir aðgerð.  Mikið ertu ljómandi FALLEG.  Ég er bara farinn að sjá LoL  Elsku kallinn, hann reyndi líka að fljúga en náði ekki að hefja vænghafið og hrundi niður af háalofti en það er allt önnur ella.

Eitthvað er krúttið ofarlega í huga hjá mér því þessi færsla átti að snúast um líkamsræktar áhuga Fjallsins.  Við fórum saman á Karneval hátíð drengsins í skólanum og þá stakk hann uppá því að ég færi að hreyfa mig meira.

Ég;  Nú nú, finst þér ég vera orðin allt of feit, eða er það vegna þess að ég anda svo ótt og títt?

Fjallið;  Heyrðu þú ert nú ekkert að yngjast.

Ég; " Með tíkó í hárinu og á nýju strigaskóm leið eins og 17 ára .... "  nú nú, ekkert að yngjast ...

Fjallið; Já og ég er rúmlega fertugur og .....

Grái fiðringurinn, of lítill og stór og feitur of mjór eða bara eitthvað of í aðra áttina.  Hjúkkit það var engin bikinístelpa sem nálgaðist fjallsræturnar því þá hefði hann sko fengið að hlaupa.  Fyrsti tíminn í líkamsrækt fær því að bíða!  Við áttum erindi í stórborg Torrevieja og álpuðumst inn á útsölu í versluninni Maximo Dutti og þar gerðum við frábær kaup á þann allra sætasta, (ástarpunginn eins og amma hefði kallað yndið mitt) ..... við keyptum buxur og tvö ógisslega kúl herrabindi og það kostaði innan við 7000 ísl krónur .... annað bindið kostaði 3000, say no more!

Æm hot or æm not!

Tölvugúrustrákur var hjá mér í dag að laga tölvurnar hjá okkur!  Ég nefnilega hef orðið vör við það að póstur sem ég hef sent frá mér hefur ekki skilað sér alveg 100%  svo ef einhver ykkar eruð að bíða eftir línu frá mér þá er það ekki vegna hversu ofbóðslegur dóni ég er heldur tæknilegt atriði.  Endilega látið mig vita þið sem eruð búin að stimpla mig dóna og durt!

Best að halda áfram að pakka inn varningi sem er að fara með Póstinum Páli á morgun! 

Svo er lífið bara gott í Janúar, einhver spenna sem hvílir í bústna búknum mínum .... er búin að finna fótaaðgerðarfræðing sem er íslensk frábær kona sem ég ætla að skella mér til og heyja stríð á hendur þeirrar inngrónu. 

Þú sleppur ekki helvítið þitt .... í burtu með meinið og þá hættir kveinið í kerlingunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Eg helt alltaf að þetta með gráa fiðringinn vari grín... En ó nei svo er víst ekki, sumir komast bara betur út úr þessu en aðrir.

Eg er td að spá i að safna hári , langar til að geta verið með tígó . það er reyndar ekki eina ástaðan, allar þessar brjósta stærstu í bíó eru með sítt hár, er að vona að mín stækki með hárinu .

Annars er aldurinn svo merkilegur að hann breytir bara hinum i kringum mig, ég er ekki deginum eldri en 23 og er ég þó fædd 1970  hvernig sem að það virkar nú

Sporðdrekinn, 31.1.2008 kl. 19:42

2 Smámynd: www.zordis.com

Nákvæmlega sporðdreki ... það eru hinir sem eldast, við erum ekki degi eldri en okkur líður!

Gott að láta sér vaxa hár í þeirri von að brjóstfitan taki við sér ....   þarf að skella mér í herdú ... er svo argintætuleg eitthvað.

www.zordis.com, 31.1.2008 kl. 19:56

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Aldurinn já, hann er skrítinn.  VIð hjónin vorum út í apóteki og það var kona á undan sem var spurð um kennit. hún sagði eitthvað 56 og þar sem við erum líka fædd 1956, var okkur stórbrugðið, litum hvort á annað og sendum svona skelfingar augnaráð, á eftir sagði ég svo við hann að við bara gætum ekki verið svona gömul nó vei hósei.  En svona sér maður alltaf sjálfan sig ungan.

Ásdís Sigurðardóttir, 31.1.2008 kl. 20:19

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Aldurinn er afstæður, mér finnst ég alltaf vera 25 (hætti að telja fyrir 20 árum síðan). Sammála Ásdísi, stundum sé ég gamla skólafélaga og hugsa með mér "guð hvað hann/hún er orðin gömul"!

Knús á þig Þórdís mín, þú ert yndisleg

Huld S. Ringsted, 31.1.2008 kl. 20:39

5 Smámynd: www.zordis.com

Gamall vinur minn fór á hitting með bekkjarfélögunum.  Hann hringdi í mig frá Íslandi og sagði mér að hann hefði nú barasta fengið sjokk að sjá strákana!

Jæja, sagði ég og þú hefur nottlega ekki litið í spegilinn nýlega!  Ég eignaðist strákavin sem er æðislegur á áttræðisaldri, við hljótum að vera sálufélagar því ég elska hann mikið.

Móðir í hjáverkum ..... frá því að ég var lítil stúlka hefur mig ávallt hlakkað til sextugsaldursins.  Af hverju veit ég ekki en ætli þægindasviðið mitt verði ekki í hámarki þá!  Mjúk, móðurleg og vonandi full af náungakærleik!

Takk fyrir innlitið stelpur!

www.zordis.com, 31.1.2008 kl. 21:22

6 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Það er svo skrytið, maður eldist bara útvortis... en ekki sjálfið inni í sjálfri sér

Þú ERT snillingur og falleg, sá gamli veit hvað hann syngur

Marta B Helgadóttir, 31.1.2008 kl. 21:38

7 identicon

Hehe, ohh hvað ég kannast við þetta með hvað "hinir" eldast en ekki ég!
Og X-tengdóinn þinn sagði satt, þú ert og verður falleg, innan sem utan.
Annars langaði mig að segja þér að netið er líka að stríða mér, ég var ekki dóni viljandi!
Hjúts knús og gúd lökk viþ ðí pakking

Elín (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 21:54

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Marta sagði akkúrat það sem ég vildi sagt hafa! Þannig að ég kópí/peista hana bara og smelli hjartanu með í för

Hrönn Sigurðardóttir, 31.1.2008 kl. 22:15

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

mér finnst færslan þín yndisleg. Mér finnst aldur afstæður og þú snillingur elsku Þórdís mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 31.1.2008 kl. 22:26

10 Smámynd: www.zordis.com

Marta, Hrönn og Katla ... fallegar konur með falleg nöfn þið fáið þakkir og þið öll knús inn í nóttina! 

Ég ætla að finna til bókina sem Katla er að lesa og leggja á ráðin!  Góða Nótt

www.zordis.com, 31.1.2008 kl. 22:36

11 Smámynd: www.zordis.com

Elín BJÖRK in mín þú áttir að vera í kvennahópnum hér að ofan .... óvart og ekki hægt að kenna tækninni hér um heldur er heilinn á mér komin í leyndó og bænaundirbúning.

Og hér ertu komin elsklingur!

www.zordis.com, 31.1.2008 kl. 22:38

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég um mig frá mér til mín er ung og alltaf í ræktinni...konuræktinni. Rækta mína innri ungu konu en leyfi þessari sem er utan um að eldast fallega svo sú innri fái frið fyrir fiðringunum gráu..híhíhí. Svona dulargervi fyrir telpuna tágrönnu og yndisfögru. Virkar svo vel að velflestir trúa.....og enginn veit nema ég.

Knús

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 1.2.2008 kl. 10:27

13 Smámynd: Solla Guðjóns

ójá já ... mér brá svoldið um daginn þegar ég var að fatta að frumburðurinn á 2ár í 30.árin og ég ennþá að tala um þrítugsafmælið mitt....en ég er ekki degi eldri en ég vil vera.

Árafjöldinn segir að maður ætti að vera á gráa svæðinu og ég er ekki frá því að kallinn............

Solla Guðjóns, 1.2.2008 kl. 10:52

14 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

flott færsla, við erum líka að labba og labba og labba, ekki yngjumst við sagði konan og borðar græna súpu alla dag, með hreinsunarhómópatalyfjum sem hreinsar liði og sál.

góða helgi kæra kona

Bless

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.2.2008 kl. 15:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband