Úr pokanum tíni ég rauðleit hjörtu ....

Ég kraup við hné og Fjallið hallaði sér að mér og mændi.  "Hvað" sagði ég??  Hann svaraði og spurði; hef ég sagt þér hvað ég elska þig mikið í dag?

Það eru þessar stundir sem eru svo ánægjulegar í sambandi fólks.  Þegar þú ert heima, að raða ajaxi, klósettilmi og baðsápu inn í skáp, ótilhöfð eða þannig.  Konur eru fallegastar á hinn náttúrulega veg "la mujer serrena".  Konur eiga að láta sína eðlislægu náttúrulegu fegurð lýsa í gegn.  Fegurð er ekki bara útlit heldur líka viðkomandi persóna.

Við erum öll persónur, segjum hluti vanhugsaða, velhugsaða, óhugsaða og getum glatt, sært og sviðið heilar jarðir án þess að leggja upp með nein leiðindi.  Ég lét út úr mér óvalin orð nú um daginn vegna viðtals bloggkonu hjá útvarpskonu.  Ég er sjálf mjög viðkvæm á orð og viðbrögð, einna helst viðbrögð þótt mér sé sama um helling.  Það sem hvílir næst hjartanu segir að við eigum að gæta betur að orðum og aðgerðum.  Aðgát er ávalt góð og það sem skiptir máli er að geta fyrirgefið og ég vona heitt og innilega að bæn fyrirgefningar rati rétta leið.

Við lærum allt lífið, við erum lífið, við erum það eina sem skiptir máli.  Förum vel með hvort annað og verum gætin með orðin ...

kvöldmatur
 

Bláskeljar með sítrónu

Ég verð að segja að forrétturinn sem Arna bloggvinkona gæti náð í, í fjörunni og Sigrún og Solla og Lísa bloggvinkonur og fleiri eðal íslendingar .... bláskelin sem flæðir allar fjörur kaupi ég í kaupfélaginu og borða með miklu slurpi, sem var "delisju" ....  Í hægra efra horni glittir í kristalglas með gylltum vökva.

Hvaða gyllti vökvi er í glasinu????

Íris Hadda og Enrique

Aðalrétturinn var hráskinka

Þessi tvö yndislegu börn eru svo aðalrétturinn ..... Íris Hadda er farin í háttinn en júníorinn situr enn hjá okkur og horfir á skemmtiþátt með pabba sínum.  Það er kominn tími á draumalandið, land sem hefur upp á svo margt að bjóða.

Ást í poka sem ekki má loka ....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Krúslu mynd af börnunum

Það er svo gott að elska og vera elskaður

Eigðu yndislegt kvöld.

Sporðdrekinn, 1.2.2008 kl. 22:14

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Krútt myndir, ég er löt og líður vel, er á leið í háttinn með húsbands krúttinu.  Hafðu það gott elskulega vina mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.2.2008 kl. 23:26

3 Smámynd: Hugarfluga

Awwww, ástin er engu lík. Mikið áttu falleg börn, Þórdísin mín.

Hugarfluga, 1.2.2008 kl. 23:48

4 Smámynd: www.zordis.com

Elsku vinkonur, ástin er eitthvad sem við ættum að láta vera ofar .... börnin eru best þegar þau sofa  ... nehhh þau eru alltaf æði, ung smá stór og villt! 

Móðir, væri til í að prófa bláskelja réttinn þinn en ég gera "almejas" litlar skeljar með hvítlauk og kampavíni og maður lifandi!

Held ég hafi skeljar í hádeginu á morgun líka.  Kaupi mér strönd og net

Góða nótt englar!

www.zordis.com, 1.2.2008 kl. 23:54

5 Smámynd: Sigrún

knústil þín væri gaman að sjá þig í kvöld :)

Sigrún, 2.2.2008 kl. 09:07

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú átt mjög falleg börn Þórdís mín. Þú skrifar alltaf svo fallega og ert ofsalega góð kona það er ég búin að finna lengi.

Kristín Katla Árnadóttir, 2.2.2008 kl. 11:24

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fallegt

Líka svona gyllt í glasi! En skeljarnar heilla mig minna.........

Ég held nú svona þér að segja að ummæli þín um tiltekna konu hafi verið meira misskilin en særandi. Allavega tók ég þau ekki sem móðgun gagnvart viðkomandi. En það er með særindin eins og annað. Það sem einum svíður finnur annar ekki fyrir.

Herre gud! Ég ætti að gefa út svona heilræðaspekibók

Hrönn Sigurðardóttir, 2.2.2008 kl. 17:32

8 Smámynd: www.zordis.com

Hrönn, þú  mælir af miklu viti varðandi þetta tiltekna atriði.  Mér leið hins vegar ekki vel vitandi að kjánaleg ummæli hefði sært því til þess var leikurinn ekki gerður.

Ég kaupi fyrsta áritaða eintakið af bókinni!!!

www.zordis.com, 2.2.2008 kl. 17:49

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Jamm kræklinga ferð með prímusinn í Englavík væri tilvalið fyrir okkur stöllur ......en ég veðja að gullni vökvinn hafi verið kampavín.......

Gaman að fá að sjá myndir af þínum yndislegu börnum annað slagið

Solla Guðjóns, 6.2.2008 kl. 01:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband