5.2.2008 | 21:02
Palli hvað .....
Gapandi fór fjallkonan til náða, var svo djö..... (afsakið blótið) íllt í vinkonu minni þeirri inngrónu. Mikið Helv. (sorry aftur) er mér íllt þarna innst og svo er þvílíkur hiti og æðasláttur í beibinu mínu inngróna.
Ég er ekki ein af þeim sem naga á mér táneglurnar, ó nei! Ég er hins vegar ein af þeim fáu eftirlifandi sem kann ekki að klippa eina tá af þeim 10 sem ég hef. Fjallið lá rólegur í hvílunni og bjóst nú ekki við blóðugri táaðgerð. Hann er enn að kynnast mér og mikið getur hann þakkað fyrir að ég notaði ekki tækifærið og gerði að honum með vopnin í hönd.

Æj, þetta var ekki gott en, nú er vont orðið gott og ég er stálslegin, óhöllt og til í allt, verst að fjallinu er eitthvað flökurt en hann hlýtur að jafna sig, verður jafngóður eftir góðan nætursvefn.
(hér var mynd en á henni stód ... haettu ad stela band vídd svo ég tók hana út)
langar ekki ad vera ad stela sko .......
Oft verið betri í tásslunum
Annars er bara allt í gúddý, þyrfti að kaupa mér naglalakkaeyðir og nýtt lakk. Þoli ekki að vera með rauðar tásuneglur, er hrifnari af hvítu eða glæru! Reif mig úr háu hælunum og fór með Fjallinu mínu á ströndina. Við áttum góða göngu og hefðum sennilega kastað okkur á hvort annað ef ég hefði ekki verið svona slæm eftir aðgerðina.
Tja, og hina sem voru á ferð, eilífðarbögg að vera ekki eins og
"Palli var einn í heiminum"
Flokkur: Menning og listir | Breytt 12.2.2008 kl. 17:03 | Facebook
Athugasemdir
Ég skal nú segja þér, svona í trúnaði,
að ef ég set á mig naglalakk þá finnst mér ég vera að kafna. Hef trú á því að ég andi með nöglunum og gæti þess vegna gefið bæði lungun........
Ég hef alltaf sagt það, annað fólk er til vesenis - enda einstaklega ófélagslega sinnuð
En nú er ég farin að sofa í hausinn á mér
Hrönn Sigurðardóttir, 5.2.2008 kl. 21:09
Arghhh .. ég er soddan hræðileg tepra þegar kemur að tám og tánöglum. Get varla lesið um þær! Það má ekki klippa, kroppa, toga eða neitt nálægt mér ... hvorki í mínar tær eða aðrir í sínar eigin. Bjakk, jökk, piff og pjaff!! Burtu með tásurnar!! Burtu!!
Hugarfluga, 5.2.2008 kl. 21:12
Skemmtileg færsla, hefði nú alveg hent mér á fjallið þrátt fyrir tásu mein var það ekki örugglega sú vinkona þín sem þér var illt í?? eki pjöll. ? Hrönn andar örugglega með nöglunum hún er svo spes og yndisleg. Trúi því ekki að hún sé farin að sofa nó vei hósei. Mér sýnist nú að þessar tásur sem þú sýnir hér að ofan séu frekar af líki sem myrt hefur verið í henni Ameríku. Annars er ég á leið í sturtu, það er hreint á rúminu og húsbandið verður bara að passa sig.
jú ar greit vúman.
Ásdís Sigurðardóttir, 5.2.2008 kl. 21:27
Táslumyndin góð. Meina ekkert illt. Maður finnur oftar en ekki fjársjóði bara með því að líta niður.
Bergur Thorberg, 5.2.2008 kl. 21:39
Jiii, grey tásur! Flott myndin af ykkur hér fyrir neðan, þið eruð svoddans krútt að það hálfa væri hellingur
Og æj, hvað mig langar í strandgöngu þarna megin - með meiru!!
en það stærsta til þín að sjálfsögðu! 
Taktu knús á línuna frá mér, ekki gleyma CRC genginu
Elín (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 21:42
Gott að þú fékkst þér hvít á Tásuneglurnar gott að þú ert að lagast elsku Þórdís mín knús á þig inní nóttina.
Kristín Katla Árnadóttir, 5.2.2008 kl. 22:02
Móðir, mér var einu sinni líkt við einhvern Stefán en ég kynntist honum aldrei!
Katla já, veistu ég vil helst hafa tásuneglurnar mínar natural en ef ég vel lit þá er það eitthvað sem kallar ekki á athygli.
Elín, knús og knús og knús og bráðum get ég framkvæmt á þér tásuaðgerðir og borði þig á háhest eftir standlengjunni!!!!!
Bergur, já veistu eftir því sem ég færi augnstæðið neðar á Fjallinu þá hýrnar brúnin oftar en ekki
Ásdís, pjöllið er í firnagóðu lagi og hver er svo sem að kvarta yfir einni tásu, kommon sko!
Hugarfluga, vorum við ekki búnar að semja um 12 kg af hunangi???
Hrönn, ég sem hélt að heimurinn hafi veirð skapaður akkúrat fyrir þessu helstu augnablik. Sammála með að doneita lungun því andardrátturinn fer fram í nöglum. Hef t.d. fengið mér svona giftingarneglur á fingur og var orðin óþolinmóð þegar fór að líða á .....
Konan er best natural, með plástur eða án!
www.zordis.com, 5.2.2008 kl. 22:59
Ég þoli ekki að klippa á mér táneglur og fingurneglur ... finnst það hræðilega leiðinlegt, og svo þegar maður er með smá mallakút, þá vilja tánegluklippiatriðin verða skrautleg. Ég kannast ekki við svona marga plástra í einu ... en þeir hafa verið einn og einn hjá mér.
Svo vill enginn kyssa á bágtið...!!
Koss og knús á þig, sæta dúlla
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 23:47
Palli var einn......en þið hefðuð alveg getað verið tvö.....
En ég á nú falllegri mynd af tásunum þínum nýkomnum úr ísköldu atlanshafinu.
Knús á táslurnar......fyrst enginn vill kyssa á aðgerðina.
Solla Guðjóns, 6.2.2008 kl. 01:36
zordis: Hvað með að skera vandræðagemlinginn bara af ? Veldur engu nema vandræðum .......
Lárus Gabríel Guðmundsson, 6.2.2008 kl. 02:05
Æ hvað ég er fegin að tásan er hætt að bögga þig, það er fátt verra en sár tá. Hefur þú ekki fötu við hliðina á rúminu fyrir Fjallið
Sporðdrekinn, 6.2.2008 kl. 04:17
Gott að þú varst að tala um tánna þína ekki inngróna leiðarann, hmmmmmm. Talandi um rosario, hvítan og svartan. Er frítt fram fyrir mig??? Verð i bandi.
See yah!
Inga Steina Joh, 6.2.2008 kl. 07:24
Algjört möst að fara reglulega í fótsnirtingu
Anna Gísladóttir, 6.2.2008 kl. 10:09
Las betur, hvitan EÐA svartan rosario. Sjá til hvað ég á......................
Fine ting kommer til dem som venter.
Inga Steina Joh, 6.2.2008 kl. 10:36
Inngróna tánaglahelv...
Tásuknús
Lísa (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 14:47
Knús :)
Vatnsberi Margrét, 6.2.2008 kl. 16:56
Bráðskemmtileg færsla hjá þér.
Inga Helgadóttir (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 19:14
Knús mín kæra og vona að ástandið á þínum fínu tásum verði björgulegt sem fyrst..svona kona eins og þú þarft svosemm ekkert mikið að labba..svífur þú ekki bara um allt?.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 6.2.2008 kl. 20:57
Mæli með naglasnyrtingu, French-pedicure, olíunuddi og salvíuböðum, elsku Zordís!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.2.2008 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.