9.2.2008 | 13:14
Hrottaleg áskorun holdsins ....
"Bjúti is pein" það vitum við girlís ..... Ég renni augum mínum eftir mjúkum kroppnum og mig rekur í rogastans að sjá loðnar fæturnar.
Það er bara ekki hægt að vera loðinlappa þegar ströndin er við hliðina á kotinu. Rölta eftir strandlengjunni með loðnar lappir ... hreinlega gengur ekki. Ég sem á svo fína Philips græju, satinelle soft sem tætir hárin, eitt og eitt í burtu á sársaukafullan hátt.
Ekki það að lafði leggjaprúð dofnar fljótlega og þetta er bara spurningin að hefjast handa á verkefninu. En, to og tre ......
ÁTSITTÝÁTSITTÝ ÁI ÁI LIGGALIGGA LÁ, NÚ LIGGUR KERLINGUNNI Á!

Fegurð er sársauki
Ég ætla að taka þetta í skorpum. Svo verð ég dásamlega mjúk, óskaplega fögur og dofin.
- ein löpp
- hin löppin
- vinstri kantskurður
- undirhandar hár
- hægri kanturinn
- hin undirhandarhárahendin
- nefhárin
- augnhárin (nehhhhhh)
Hrottaleg áskorun framundan. Ég verð sem sagt útúrdofin og aum þar sem hárstæðin eru.
Bling bling, eitt hár hér og annað þar, syngjandi tæti ég þau af mér.
Svo þegar þessu áskorunarverkefni lýkur mun ég finna einhverfuna mína og tylla mér í heim þar sem pennslar og litir deifa hugann. Klára nokkrar flísapantanir sem eiga að vera tilbúnar fyrir miðja næstu viku. Ekki veitir af tímanum ..... Leyndarmálið er ekkert leyndarmál eða hvað!
Þarf að spella smá út í heiminn, sendi Biddu litlu ekki moggabloggara knúsið en hún ákvað að hætta að blogga á mogganum vegna auglýsinganna sem birtast á hægri væng síðunnar. Ég ætla að setja Háskólakórinn á fóninn og hugga sálina þótt kroppurinn sé í þján.
Laugardagar eru bara skemmtilegir.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
"Lafði Leggjaprúð" ... þetta nafn er bara snilld!
ég sendi þér stuðningskveðjur til að lina sársaukann. Bjútí is pein .. það veit ég líka. Enda algjör görlí í mér ... raka mig samt minna á löppunum en annars staðar.
Spurning að fá þitt tæki til að taka bakið á mér ... ?
Knús og kveðjur!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 13:25
Doddi, ekki málið .... hrikalega held ég að það verði vont!!!
Knús á þig sæti görlisshhhh vinurinn minn. kossar og laugardagsknús!
www.zordis.com, 9.2.2008 kl. 13:27
Jáhá þetta er sko áskorun í lagi.Ofur mjúkur kroppur sem þú verður.
Kjútíknús.
Solla Guðjóns, 9.2.2008 kl. 13:53
Uff nefhárin eru eiginlega það sársaukafyllsta.....
Hrönn Sigurðardóttir, 9.2.2008 kl. 14:13
Svo sannarlega Þórdís, "bjútí is pain" svo eru það svona kellur eins og ég sem hafa atvinnu af því að skapa "pain" til að öðlast "bjútí".
Annars skil ég ekki hvernig er hægt að nota þessa tætara, nógu er nú vaxið vont
Huld S. Ringsted, 9.2.2008 kl. 16:58
Það er eins gott að það vaxa ekki hár útúr augunum á manni ....
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 9.2.2008 kl. 17:21
Ok hér er spurning, nei spurningar, virkar þetta jafnvel og vaxið?
Þarf að safna til að geta notað þetta (svona eins og fyrir vaxið)?
Er hægt að nota þetta í nárann og nágrenni!?!?
Ég nefnilega hef ekki safnað kjarki til að finna mér vaxdömu hér en langar svo að vera últra mjúk

Ég fæ svona unaðs tilfinningu þegar að þú talar um að "finna einhverfuna þína og tylla þér í heim þar sem penslar og litir deyfa hugann."
Huld, er það "masókisti" sem fær mann til að velja þetta starf?

Sporðdrekinn, 9.2.2008 kl. 17:26
þýskar konur láta sig hafa það að vera loðnar á löppunum, undir höndunum og í náranum. Þegar ég hugsa djúpt út í það, afhverju er það svona nauðsynlegt að taka það í burtu sem náttúran ætaðist til að væri á konu?
En bæta svo öðru við sem náttúran ætlaðist ekki til að væri á konu, eins og t.d. varalit, púðri, meiki, augnaháralit , botox og s.frv? Ég las í einni kynfræðslubók að konur ættu ekki að raka hárin undir höndunum, þau væru sexý.
Svava frá Strandbergi , 9.2.2008 kl. 18:17
Náttúran ætlaðist líka til að við hefðum okkar eigin líkamslykt, svitalyktina sem er ekki eins á öllum. Náttúran ætlaði þessari líkamslykt að vera kynæsandi, en við deyfum hana með annari lykt eins og t.d. ilmvötnum.
Það er nefnilega þannig að okkur er kennt að svitalykt sé vond og þess vegna finnst okkur hún vond. Ungabörn sem vita ekki hvaða lykt er vond og hver er góð, finnst t.d. kúkalegt bara fín.
Svava frá Strandbergi , 9.2.2008 kl. 18:20
Guðný þetta er málið, við setjum okkur í mót til að mæla kröfum samfélagssins. Mér finst hrein líkamslykt góð en svitalykt getur verið hreinn viðbjóður!!!! Ég held líka að ef okkur líður sexý þá erum við það með eða án hára! Góður punktar hjá þér!
Sporðdreki, ég hætti eftir fótleggina og er naked núna! Þori ekki í nárann, viðurkenni það en tek hárin undan höndunum. Smá vont fyrst þangað til þú dofnar!
G.Anna, þökkum Guði fyrir að það vaxi ekki út úr augunum og ég þakka fyrir að vera ekki með fléttur út úr eyrunum eins og sumir eldri karlar!
Já og stelpur mínar kæru, það er vel þess virði að koma sér í það form sem hentar hverju sinni. Kvölið er að skella á og ég var að klára söngkonuna ....
Kanski ég taki lagið í kvöld
www.zordis.com, 9.2.2008 kl. 18:56
já
Bless
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.2.2008 kl. 21:40
Hahhahaha! Þú ert frábær, darling! Kröfur samfélagsins eður ei; mér finnst bara æðislegt að vera hárlaus og vel lyktandi! Sama hvað hver ÆTLAST til af mér eða ekki. Lovjú girl ... haltu áfram að vera eins og þú ert!
Hugarfluga, 9.2.2008 kl. 22:14
hahaha "þangað til þú dofnar"
Ég held mig við bartskerann
Sporðdrekinn, 10.2.2008 kl. 05:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.