12.2.2008 | 18:56
Venjulegur dagur ...
.... eða var hann óvenjulegur!
Ég er búin að ráðstafa ýmsu í dag og eiga skemmtilegar umræður við nokkra einstaklinga. Suma þekki ég betur en aðra en svona er að starfa með ólíku fólki.
Var að spekulera í því hvort við getum ekki glatt hvort annað meira, lagt meira á okkur til að náunganum líði vel. Koma af stað smitandi kærleik sem við sendum hvort öðru. Ég sé þetta vel fyrir mér, gerast og verða mörgum til hamingju, ekki síst þeim sem vill vel og gefur kærleik frá hreinu hjarta.
Fyrir þó nokkru síðan, nokkrum árum síðan langaði mig að opna fyrir kærleikshring. Hring sem sálin heldur utan um og fólk frá ólíkum löndum, lithætti eða hugsunum sameinast í bæn. Gefa okkur tíma til að finna okkur þar sem við sitjum innst í okkur sjálfum. Snerta eigin nærveru og hugulesemi.
Þessi hugmynd er enn sem komið er í loftinu og það þarf bara að grípa hana og senda hana áfram.
Hvað er venjulegt við dagana?
Ég fann mynd sem ég málaði með olíulitum á striga fyrir ansi mörgum árum, sennilega máluð fyrir árið 2000 þ.e. árið sem sonur minn fæddist og ætla ég að deila henni með ykkur.
Það er eitthvað við þessa konu
Svo, fór ég og náði mér í meira efni til að halda áfram að mála. Var að vonast eftir að geta sent nokkrar flísar á mánudaginn næsta en það er allt of mikið að millilenda með herlegheitin .......
Svo, kemur hér paramynd sem fékk ansi sterkt nafn í huga mínum, er ekki viss með það svo ég hinkra með það nafn sem mér finst viðeigandi!
Par
Við hjónin fórum og vorum að spekulera í dottlu og mér leist ljómandi vel á hugmyndina þangað til ég gerði mér grein fyrir því að ef af því verður þá er það "good bye Iceland" næsta sumar, nema ég nota innihald hvíta galdursins og láti allt gerast. Samt, stundum er ekki allt hægt!
Gamla góða, velja og hafna aðferðin verður nýtt .......
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Hurðu mig sko...ég er búin að gera gjörning sem innifelur í sér að allt er hægt fyrir englakonuna þig...það kemur barasta ekki til greina að Zordísin mæti ekki í samsýningjuna í sumar.....segi það og skrifa!!!! Fer að grenja ef þú kemur ekki góðan mín...til hvers á þá að láta mig hlakka..ha???
Annars spilast nú lífið stundum útaf og ekki eins og maður vildi. Held þá bara áfram að hitta þig á fjólubláum ævintýraplánetum og kjafta við þig þar.
Knú mús
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.2.2008 kl. 19:08
Konumyndin er falleg, Þórdís, en paraflísin enn fallegri. Er hún til sölu eða kannski seld?
Og í hverju voruð þið Fjallið að spekúlera? Þú mátt ekki sleppa því að koma á klakann kalda!!
Hugarfluga, 12.2.2008 kl. 19:08
Elsku Þórdís mín þú ert svo kærleiksrík mér líst vel á kærleikshringing þinn þú ert með þeim bestu hér í heimi.

Kærar kveðjur til þín ljósið mitt og vonandi komið þið heim.
PS Þetta eru mjög fallegar myndir.
Kristín Katla Árnadóttir, 12.2.2008 kl. 19:19
Já, ég er tilbúin að gera allt til að komast heim og ég galdra aðstæðurnar bara þannig. Katrín það er gott að vita af svona hjálpargaldri
Ég hlakka bara offfffsalega mikið til að koma og njóta þess að vera til, fara að Snæfellsjökli og anda að mér landsslaginu ... bara að njóta!
Hugarfluvan mín þessi er glæný og óseld, of snemmt að uppljóstra iðnaðarleyndarmálum að svo stöddu ... thi hi hi! (langaði að prakkarast og segja eitthvað fyndið en .... kemur seinna)
Azul (blue) og Katla þið eruð yndislegar og takk fyrir innlitið.
www.zordis.com, 12.2.2008 kl. 19:39
Kærleikskveðja frá mér
Anna Gísladóttir, 12.2.2008 kl. 19:41
Takk fyrir falleg orð til mín
Huld S. Ringsted, 12.2.2008 kl. 20:52
Mér finnst ég nú alltaf vera kominn í einhverskonar kærleikshring þegar að ég lít hér inn, það streymir bara gott frá síðunni þinni
. Ef að þú ætlar að stofna svona kærleikshring þá bið ég um að mér verði boðið í hann (er ég ekki óforskömmuð
).
Konan er falleg. Ég verð svona mjúk af að horfa á parið, "virðing og saklaus unaður/nautn", það er það sem að ég finn.
Ég vona að allar þínar langanir rætist Þórdís, hvort sem að það eru ferðalög eða viðskipti.
Sporðdrekinn, 12.2.2008 kl. 21:00
Fallegt og fróðlegt að fylgjast með þér. Þú ferð náttúrulega ekki að hætta við að koma til Íslands í sumar, ég hlakka svo til að hitta þig... og örugglega eru það fleiri en ég ....!
- kveðjur til þín.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.2.2008 kl. 22:06
Ég verð sko pottþétt með í kærleikshring. Enn bólar ekkert á flísinni minni, en ég er þolinmóð og róleg. Hlakka svo mikið til að hitta þig í sumar á sýningunni. Málverkið af konunni er æðislegt mundi segja að þetta væri táknræn mynd fyrir allar konur, ófullkomin en samt svo fullkomin þegar á allt er litið. Kveðja á fjallið og hafið það gott.
Ásdís Sigurðardóttir, 12.2.2008 kl. 23:53
Falleg, þessi brúna
Lilja (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 04:24
Þórdís mín ég ætla bara að segja þér að þessi flís er SELD.
Ég verð með í að þiggja og gefa smitandi kærleik.Ég tel líka að það sé ekki hægt að gefa kærleik nema frá hreinu hjarta og beint frá því...
Hibb hibb Barbabrella.......sjáum hvað verður
Solla Guðjóns, 13.2.2008 kl. 13:00
ég vil vera med !!!!
Bless í dag !
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.2.2008 kl. 16:44
Auðvitað verður Doddi dúlla með í kærleikshring... kærleikskveðjur frá Akureyri til þín, sætasta
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 17:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.