13.2.2008 | 20:30
Samsýning í Ráðhúsi Reykjavíkur ....
Auglýsingagildið er og verður aldrei of mikið. Það er gott að tyggja vel og lengi áður en bitanum er kyngt og ætla ég að minna ykkur kæru bloggvinír á samsýningu nokkura bloggvinkvenna sem haldin verður í lok ágúst.
Afmælisdagur móður minnar og Mikael Jackson (he doesn´t know yet) eða 29.ágúst í mánuði meyju svo það er eins gott að vera vel undir búinn með línurnar á hreinu.
Hvíti galdur hafði sitt að segja og það sem er ment to be það verður! Get ekki betur séð en að nú sé rétt að nýta tímann vel til að skipuleggja hlutina (sjálfa mig) ...... af mörgu er að taka svo það er best að byrja frá byrjuninni. Klæða grunninn vel, þá er björninn unninn!

Tré Rautt e. Katrínu Snaehólm
Sem demandar í kórónu landsins e. Guðný Svövu Strandberg
Media Naranja e. Elínu Björk
Málverk e. Gerður Rósa
Stelpur e. Zordisi
Ég læt þetta gott heita í bili en ég valdi myndir af algjöru handahófi, sitt þykir hverjum og ég veit ekki hvort myndir sýningar verða í þessum anda en hver og ein vinnum að settu marki.
Þetta verður spennandi, gaman og þá mest að hittast og vera saman!
Flokkur: Menning og listir | Breytt 14.2.2008 kl. 21:36 | Facebook
Athugasemdir
Og ekki verður minna gaman að koma og skoða......
Hrönn Sigurðardóttir, 13.2.2008 kl. 20:50
Ég rétt vonast til að sjá þig kona!
Mér gengur brösuglega að setja þessar myndir inn. Gerður Rósa hefur einhverja blokker stærðar fælu svo ég get bara ekki minnkað myndina niður ....
Jæja svona eretta .....
Hrönn ég er svo yfir mig hissa að engar sendingar hafi skilað sér. Sendi nokkrar á Selfoss og engin virðist hafa ratað sína leið!
www.zordis.com, 13.2.2008 kl. 20:52
Nebbs ekkert komið! Ég var einmitt að hugsa þetta í dag.........
Hrönn Sigurðardóttir, 13.2.2008 kl. 20:55
Ég fæ ekkert enn, en pósturinn getur verið ótrúlega seinn, svo þurfa þeir að senda þetta í gegnum toll og alles. Rosalega hlakka ég til að sjá sýninguna í ágúst, fer bara bráðum að telja dagana.
Ásdís Sigurðardóttir, 13.2.2008 kl. 21:28
Ég verð að koma og skoða takk fyrir Þórdís mín
Kristín Katla Árnadóttir, 13.2.2008 kl. 21:34
Hlakka svoo mikið til að koma og skoða
Marta B Helgadóttir, 13.2.2008 kl. 22:36
Óó æ hvað ég vona að ég verði á landinu þá, ef ekki þá sendi ég mömmu annars komum við samann (mamma er lystakonan mín
).
Það tók pakka frá USA heilan mánuð að koma sér til Íslands, eða rétt er að segja það tók hann heilan mánuð að komast í hendurnar á mótakanda eftir að hann kom til landsins. Þetta voru jólagafirna og ég var ekkert allt of ánægð með þjónustu íslandspóst
.
Ég veit ekki hvort að það er bara hjá mér en linkarnir virka ekki, þar að er þegar að ég klikka á nöfn stelpnanna undir myndunum.
Sporðdrekinn, 14.2.2008 kl. 04:43
Ég og mitt lið mætum......eins gott að vera ekki á Spáni á þessum tíma......veit núna hvenær ég á ekki að fara.
Knús á sýningarstúlkur
Solla Guðjóns, 14.2.2008 kl. 08:23
Æðislegar myndir og vonandi nær maður að sjá sýninguna. Þið eruð allar listadúllur og eigið
skilið!
Þú færð extra knús í viðbót
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 11:48
Zordísin mín..frábært að galdurinn gekk upp og að þú komir...já skipuleggja og leggja sig svo til að dreyma myndefnið. Smjúts!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.2.2008 kl. 12:27
gangi ykkur vel, kæru listakonur !
Bless til þín í dag kæra zordís
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 14.2.2008 kl. 14:43
Fallegar myndir allar og flottar listakonur. Verður sýningin 29. ágúst og stendur í viku?
Lísa (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 16:00
Ég geri sko allt til þess að komast á sýninguna hjá ykkur, þó að ég þyrfti að fara á puttanum suður! þessu missi ég ekki af
Þið eruð allar snilldarlistakonur
Huld S. Ringsted, 14.2.2008 kl. 19:34
Takk fyrir komuna stelpur ... og Doddi dúlla
Huld ég rétt vona að þú komir og bara sem flestir!
Lísa sýningin stendur í allavega 2 vikur
Ég ætla að reyna að laga linkana, er svo mikill snillingur að stundum væri það hálfa nóg!
www.zordis.com, 14.2.2008 kl. 19:45
Eitthvað blokkerabögg í gangi á mér Zordís mín? Man bara að ég var að verða geðveik á að reyna að setja myndina af málverkinu inn upphaflega, ægilegt vesen alveghreint.
Annars er ég nú bara svona auka í þessu dæmi ... Zordís og allar hinar eru sko alvöru listamennirnir - ég fæ bara að vera með af algjörri góðsemi þeirra hæfileikaríku mektarmeyja ... :)
gerður rósa gunnarsdóttir, 14.2.2008 kl. 20:12
spennandi!!!!!!!!!!!!!!! Knús til þín
Inga Steina Joh, 15.2.2008 kl. 05:35
mæti að skoða og fikta
Ólafur fannberg, 15.2.2008 kl. 10:47
Ágúst... það verður sko komið og skoðað af minni hálfu, ekki spurning. Hlakka til.
Gangi ykkur vel í þessu spennandi verkefni.
Srósin (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 11:47
æðislegar myndir
Margrét M, 15.2.2008 kl. 13:29
Hafðu góða helgi knús
Brynja skordal, 15.2.2008 kl. 13:55
Knús á þig!!!
Mest gaman að hittast og vera saman, mig hlakkar sko til 
Elín (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 18:20
Knús til þín kæra bloggvinkona og tillvonandi samsýningar listakona.
Svava frá Strandbergi , 16.2.2008 kl. 00:11
Þetta er frábært - og verður enn frábærara!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.2.2008 kl. 13:59
Orðið frábærara er svolítið skondið!
Takk fyrir innlitin kæru blogginir, þið eruð nottl. langsamlega frábærærust!
www.zordis.com, 16.2.2008 kl. 14:02
Sumt kommenta sumir en kommenta þó! Mikið rosalega hlakka ég til að upplifa ykkur stelpurnar! Og hlakka til að sjá þig, ljúfan mín. Ertu hætt við Ítalíuferðina og ætlar í staðinn að koma á farsælda Frónið?
Hugarfluga, 16.2.2008 kl. 19:05
frábært framtak, verð að reyna að sjá þetta. !
Lárus Gabríel Guðmundsson, 19.2.2008 kl. 03:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.