23.2.2008 | 21:56
Þau voru dásamlega ber ...
Eldrauð jarðaber, græn vínber og dökklituð vínber .....
Það er laugardagskvöld þið sem hélduð að það væri mánudagur
.... 1 á móti milljón lesendum mínum héldu að það væri mánudagur, eru nú í sjöunda himni.
Hver sagði að lottovinningar væru eini glaðningurinn í lífinu! Not me ....
Fjallið mitt spilar dásamlega gítartóna á meðan dóttir mín dundar sér með afmælisgjafirnar sínar. Sonur minn leikur sér með hetjur og ég er ber. Er með jarðaberin og fæ vatn í munninn, spurning að fá sér kælt kampavín og dýfa jarðaberjunum út í (gott gott gott) .....
Sálufélagar Akrýlmynd
Þá er paramyndin Sálufélagar tilbúin og fer hún brátt á spænskt heimili sitt!
Ég er þreytt svo þreytt en það er stundum þannig að kroppurinn verður lúinn, á lífinu búinn og heimtar hvíld og kósýheit. Ég er búin að ná mér í flísar og ætla að slaka á og mála smá ......
Eigið góðar stundir kæru vinir og óvinir (vona að það séu fáir eða enginn sem fer í óvinahópinn).
Elskumst og strjúkum kviðinn á hvort öðru eða bara það sem við viljum strjúka
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Elsku friðinn og kyssum á kviðinn, það ætlum við að gera hér í kvöld. Það er kosning núna, Hó, Hó er í öðru sæti þannig að það fer ekki út, guði sé lof. Hafðu það gott elskið mitt.
Ásdís Sigurðardóttir, 23.2.2008 kl. 22:06
Hrönn Sigurðardóttir, 23.2.2008 kl. 22:30
Ég er viss um að ef að ég myndi hitta þið í persónu þá myndi ég bara stara og brosa. Mér verður svo hlýt í hjartanu bara af að lesa bloggið þitt að ég myndi örugglega bara bráðna í návígi við þig.
Eigðu yndislega helgi.
Mér líst vel á þessar strokur sem að þú nefndir, hér skal strokið í kvöld
Sporðdrekinn, 23.2.2008 kl. 23:08
Huld S. Ringsted, 24.2.2008 kl. 00:02
það er yndi að lesa færslurnar þínar
Brynja skordal, 24.2.2008 kl. 02:33
Elskum friðinn, strjúkum kviðinn ...... þetta var sagt í mínu ágæta ungdæmi ....
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.2.2008 kl. 02:59
Marta B Helgadóttir, 24.2.2008 kl. 12:28
kampavín, konukviður og kæti á vel við á konudegi. Nú er sunnudagur og mikil sæla í allri sunnudagsslökuninni.
Jarðaber til þín...
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.2.2008 kl. 13:00
Einu sinni var ég dásamleg ber
Til hamingju með daginn elskling
Solla Guðjóns, 24.2.2008 kl. 17:22
Knús á þig á konudaginn.
Kristín Katla Árnadóttir, 24.2.2008 kl. 18:46
Hæ krúzlan mín, æðislegar nýju flísarnar, bæði umhyggjurnar og sálufélagarnir, bara æææææði!

Vona þú hafir átt g-óða helgi ber eða ekki
Til hamingju á konudaginn og hjúts knús á ykkur öll
Elín (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 21:03
Elskaðu friðinn og strjúktu á þér kviðinn, svona heyrði ég þetta. Ég ætla að strjúka kviðina á köttunum þegar við erum komin upp í rúm.
Svava frá Strandbergi , 24.2.2008 kl. 23:50
fallegt, og vært, en þó laumast þarna þreyta , sem hefur sitt pláss líka!
Bless í bili
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 15:29
Rakst hér inn og má til með að þakka fyrir þessar yndislegu færslur og enn yndislegri myndir. Takk fyrir!
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 25.2.2008 kl. 17:19
Fyrir hvað stendur sjöan á Rósinni? - Sem ég horfi á þegar ég þarfnast þess að sjá eitthvað fallegt.........
Hrönn Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 20:42
Hrönn, 2007 .......
Ragnheiður Ása takk fyrir innlitið. Steina, Svandís og Gúðný Svava .... Essin þrjú takk fyrir komuna.
Elín Pelín, Ollasak og Katla knús í kross á ykkur vinkonur mínar!
Marta, Brynja Huld og Brynja
bros á blíðu kvöldi. Sporðdreki, Móðir í hjáverkum , Adda og Ásdís koss og knússlur og ....
Hrönn eigðu yndislegt kvöld og en kaerlighedskyss og kram til dig!
Upphaf og endir í góðan áratug bendir!
www.zordis.com, 25.2.2008 kl. 20:46
aaaaaaa þegar þú segir það.........
Hrönn Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 20:50
love love .... evol !
www.zordis.com, 25.2.2008 kl. 20:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.